Hoppa yfir valmynd

Stofnstyrkir til hitaveitna

Samkvæmt lögum um niðurgreiðslur húshitunarkostnaðar er heimilt að veita styrki til stofnunar nýrra hitaveitna eða til stækkunar eldri veitna. Skal þeim fjármunum varið til eftirfarandi þátta:

  1. Til nýrra hitaveitna sem hófu rekstur árið 1998 eða síðar.
  2. Til hitaveitna sem hafa aukið við dreifikerfi sitt á árinu 1998 eða síðar til að geta tengt íbúðarhúsnæði sem notið hefur niðurgreiðslna á rafhitun.
  3. Til starfandi hitaveitna sem hafa einkaleyfi til dreifingar á heitu vatni og stækka veitusvæði sitt með yfirtöku á hitaveitum sem ekki hafa slíkt einkaleyfi, dreifa heitu vatni um dreifikerfi sitt til a.m.k. 5 aðgreindra húsveitna og standa frammi fyrir kostnaðarsömum aðgerðum vegna endurnýjunar dreifikerfis.
  4. Til íbúðareigenda sem vilja taka upp umhverfisvæna orkuöflun og/eða ráðast í aðgerðir sem leiða til bættrar orkunýtingar við húshitun.

Sækja má um eingreiðslu vegna aðgerða sem leiða til betri orkunýtingar við húshitun með eftirtöldum leiðum:

  • Fylla út umsókn á netinu og senda rafrænt til Orkustofnunar.
  • Fylla út eyðublað á pappírsformi og senda í pósti til Akureyrarseturs Orkustofnunar, Rangárvöllum 603 Akureyri. Orkustofnun sendir eyðublaðið til þeirra sem þess óska.

Eingreiðslur til hverrar hitaveitu/notanda getur numið allt að 16 ára áætluðum niðurgreiðslum á rafmagni eða olíu til húshitunar miðað við meðalnotkun til húshitunar næstu fimm ár á undan.

Sjá einnig:

Síðast uppfært: 13.12.2022
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum