Hoppa yfir valmynd

Framlög til stjórnmálaflokka

Í lögum um starfsemi stjórnmálasamtaka er að finna reglur um framlög ríkis og sveitarfélaga til stjórnmálastarfsemi samanber II. kafli laganna.

Þar kemur fram að stjórnmálasamtök sem hafa fengið a.m.k. einn mann kjörinn á þing eigi rétt á 12 milljóna króna grunnrekstrarframlagi úr ríkissjóði á ári hverju.

Þá fá stjórnmálasamtök sem fengið hafa að minnsta kosti einn mann kjörinn eða hloti hafa að lágmarki 2,5% atkvæða í næstliðnum alþingiskosningum framlag úr ríkissjóði skv. ákvörðun í fjárlögum hverju sinni. 

Stjórnmálasamtök sem bjóða fram í þremur kjördæmum eða fleirum geta að loknum kosningum sótt um sérstakan fjárstyrk til að mæta útlögðum kostnaði við kosningabaráttu að hámarki 750.000 kr. fyrir hvert kjördæmi sem boðið er fram í. Umsóknum um slíkan fjárstyrk skal skila til dómsmálaráðuneytisins eigi síðar en þremur mánuðum eftir að kosningar fóru fram.

Í 4. gr. framangreindra laga er svo kveðið á um framlög til þingflokka úr ríkissjóði og í 5. gr. um framlög frá sveitarfélögum til stjórnmálasamtaka.

Skilyrði fyrir úthlutun á fé úr ríkissjóði sem og frá sveitarstjórnum er að viðkomandi stjórnmálasamtök séu skráð á stjórnmálasamtakaskrá skv. I. kafla C í lögunum og að þau hafi uppfyllt upplýsingaskyldu sína við ríkisendurskoðanda skv. 8. og 9. gr. laganna og að ríkisendurskoðandi hafi birt ársreikning þeirra.

 

  • Framlög úr ríkissjóði til stjórnmálasamtaka 2024
  • Framlög úr ríkissjóði til stjórnmálasamtaka 2023
  • Framlög úr ríkissjóði til stjórnmálasmtaka 2022
  • Framlög úr ríkissjóði til stjórnmálasamtaka 2021
  • Framlög úr ríkssjóði til stjórnmálasamtaka 2020
  • Framlög úr ríkissjóði til stjórnmálasamtaka 2019
  • Framlög úr ríkissjóði til stjórnmálasamtaka 2018
  • Framlög úr ríkissjóði til stjórnmálasamtaka 2017
  • Framlög úr ríkissjóði til stjórnmálasamtaka 2016
  • Framlög úr ríkissjóði til stjórnmálasamtaka 2015
  • Framlög ríkisins til stjórnmálasamtaka 2014
  • Framlög ríkisins til stjórnmálaflokka 2010-2013
  • Síðast uppfært: 6.5.2025 0
    Var efnið hjálplegt?
    Takk fyrir

    Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

    Af hverju ekki?

    Hafa samband

    Ábending / fyrirspurn
    Ruslvörn
    Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

    Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á hjalp@utn.is

    Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta