Hoppa yfir valmynd

Konur og siglingar: Hvað er svona merkilegt við það?

Alþjóðasiglingadagurinn 26. september 2019 var helgaður konum með þemanu „Empowering women in the maritime community“. Af því tilefni stóðu Siglingaráð og samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið fyrir ráðstefnu fimmtudaginn 26. september undir yfirskriftinni Hvað er svona merkilegt við það?

Á ráðstefnunni var fjallað um sögu íslenskra kvenna á sjó og erlendir og innlendir fyrirlesarar sögðu frá starfsvali sínu og reynslu af samvinnu og sambúð kynjanna í siglingum. Þá var leitað svara við því hvers vegna konur eru svo fáar til sjós og í siglingum og hvernig megi gera störf til sjávar eftirsóknarverð fyrir konur.
Ráðstefnan var haldin í Kaldalóni í Hörpu frá kl. 13-16.

Dagskrá:

  • 13:00 - Forseti Íslands Guðni Th. Jóhannesson setur ráðstefnuna.
  • „Women in the Maritime Community.“
    Joanna Nonan, aðmíráll í bandarísku strandgæslunni  (Rear Admiral US Coast guard).

  • „All Aboard: Icelandic Women, Equality and Opportunity at Sea“
       Margaret Willson, mannfræðingur og prófessor við Washington-háskóla.


  • Átakið #kvennastarf“
    Jón Hjalti Ásmundsson, skólastjóri Skipstjórnar- og véltækniskólans.


  • 14:30 - Hlé

  • „Í blíðu og stríðu. Reynslusaga konu til sjós.“
    Jónína Hanse
    n, stýrimaður.

  • „Vélfræði, sálfræði, stjórnun.“
    J. Snæfríður Einarsdóttir, vélfræðingur og ráðgjafi hjá HSE Consulting.

  • „Sjómannslífið.“
    Heiðveig María Einarsdóttir, sjómaður og viðskiptalögfræðingur.


  • „Af hverju ekki ég.“ 
    Halldóra Kristín Unnarsdóttir, strandveiðikona af Snæfellsnesi

  • Samantekt: Af hverju eru ekki fleiri konur á sjó?

  • 16:00 - Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, flytur lokaorð og slítur ráðstefnu.
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum