Mannauðsmál
Það er stefna innviðaráðuneytisins að hafa ávallt á að skipa hæfu og áhugasömu starfsfólki sem sýnir frumkvæði í störfum, veitir góða þjónustu og bregst við síbreytilegum þörfum samfélagsins. Í mannauðsstefnu ráðuneytisins er lögð rík áhersla á starfsánægju og heilbrigði starfsfólks, jafnvægi milli vinnu og einkalífs, jafnrétti, góðan aðbúnað á vinnustað, jákvæð samskipti, faglega og styðjandi stjórnun og tækifæri fyrir starfsfólk til símenntunar og þróunar í starfi.
Starfsmannahópur ráðuneytisins hefur fjölbreyttan bakgrunn hvað varðar menntun og reynslu. Í lok árs 2021 voru starfsmenn í föstu starfi 43 talsins og fjórir í tímabundnu starfi, auk ráðherra og aðstoðarmanna. Hlutföll kynja eru jöfn 24 konur og 23 karlar. Meðalaldur starfsfólks er 49 ár og meðalstarfsaldur tæp 9 ár. Ráðuneytið tekur þátt í reglulegum vinnustaðakönnunum sem framkvæmdar eru í öllu Stjórnarráðinu og mælist starfsánægja góð.
Jafnlaunavottun
Jafnrétti er hornsteinn í mannauðsstefnu ráðuneytisins. Meginmarkmið jafnlaunavottunar er að vinna gegn kynbundnum launamun og stuðla að jafnrétti kynjanna á vinnumarkaði. Óháðir úttektaraðilar gera úttekt á jafnlaunakerfi ráðuneytisins á hverju ári og hefur kerfið hlotið vottun árlega frá árinu 2019.
Um innviðaráðuneytið
Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.