Hoppa yfir valmynd

Þjónusta við Íslendinga

Íslendingum sem hyggja á nám eða lengri dvöl í Kanada er bent á að leita sér upplýsinga um nauðsynlegan undirbúning að flutningi hjá sendiráði Kanada á Íslandi.

Hér að neðan er hægt að leita upplýsinga um endurnýjun vegabréfa, ökuskírteini og starfsemi tengda Vestur-Íslendingum.

Hægt er að sækja um vegabréf hjá sendiráðinu í Ottawa. 

Upplýsingar um nauðsynleg gögn, tímapantanir, verð og fleira má finna hér.

Sendiráðið og ræðismenn geta gefið út neyðarvegabréf. Neyðarvegabréf eru einungis gefin út ef umsækjandi getur ekki sótt vegabréf í sendiráði eða á Íslandi. Taka skal fram að neyðarvegabréf eru ekki ákjósanleg ferðaskilríki.

Búnaður til að taka við umsóknum um vegabréf er í eftirtöldum sendiráðum Íslands erlendis: Berlín, Brussel, Genf, Helsinki, Kaupmannahöfn, Kampala, Lilongwe, London, Moskvu, Nýju-Delí, Osló, Ottawa, París, Peking, Stokkhólmi, Tókýó, Vín, Washington DC, og á aðalræðisskrifstofum í New York og Nuuk. Á þessum sendiskrifstofum er því hægt að sækja um vegabréf. Á næstunni verður bætt við búnaði á skrifstofum okkar í Þórshöfn og Winnipeg.

Ekki er lengur unnt að framlengja gildistíma almennra íslenskra vegabréfa.

 

 

Íslenskir ríkisborgarar þurfa ekki vegabréfsáritun til Kanada, hyggist þeir dvelja skemur en 90 daga í landinu.

Hyggist íslenskur ríkisborgari dvelja lengur en 90 daga í Kanada þarf hann að sækja um vegabréfsáritun í sendiráði Kanada á Íslandi.

Athygli er vakin á því að skv. nýjum reglum ber öllum ferðamönnum sem ferðast í gegnum Bandaríkin að framvísa raflesanlegu vegabréfi.

Hægt er að sækja um nýtt ökuskírteini hjá sendiráði Íslands í Ottawa

  • Viðkomandi kemur í sendiráðið og fyllir út umsóknareyðublað
  • Viðkomandi kemur með eina (1) passamynd
  • Sendiráðið sendir umsóknina til Ríkislögreglustjóra sem sendir svo skírteinið beint til viðkomandi
  • Ökuskírteini kostar kr. 3.500 eða ca 65 CAD auk póstburðargjalda
  • Hægt er að láta þýða íslenska skírteinið á ensku og kostar sú þýðing 24 CAD

Er íslenskt ökuskírteini gilt erlendis?

Nánari upplýsingar um ökuréttindi er hægt að nálgast á vef Samgöngustofu.

Talið er að allt að 200 þúsund Kanadamenn eigi rætur að rekja til Íslands. Vestur-Íslendingar reka blómlega félagsstarfsemi víða í Kanada og á Íslandi sinna nokkrir samstarfi við Vestur-Íslendinga.

Hér að neðan er að finna tengla í vefsetur sem tengjast Vestur-Íslendingum í Kanada og á Íslandi.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum