Ársskýrslur ráðherra
Í lögum um opinber fjármál er áskilið að ráðherrar birti ársskýrslur þar sem gerð er grein fyrir útgjöldum málefnasviða og málaflokka og þau borin saman við fjárheimildir fjárlaga. Þá skal í ársskýrslunum gera grein fyrir fjárveitingum til einstakra ríkisaðila og verkefna og leggja mat á ávinning af þeim með tilliti til aðgerða og markmiða sem sett hafa verið fram í fjármálaáætlun.
Ársskýrslur ráðherra fyrir árið 2024 eru birtar samhliða til að bæta aðgengi notenda. Skýrslunum er skipt upp í tvo meginkafla, markmið og árangur og greiningu á útgjöldum. Notendur smella á kaflana og velja þar ráðuneyti eða málaflokka til að skoða.
Efnisflokkar
Aðgerðir og viðmið 2025
Mælaborð árangurs
Á mælaborðinu eru birt markmið og mælikvarðar málaflokka fyrir tímabil fjármálaáætlunar 2026-2030.
Ársskýrslur fyrri ára
Ráðherrar hafa skilað ársskýrslum frá því að lög um opinber fjármál tóku gildi. Þar til nú skilaði hver ráðherra sér skýrslu.
Opinber fjármál
Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.