Hoppa yfir valmynd
Táknmál

Forsætisráðuneytið
Stjórnarráðshúsinu við Lækjartorg
101 Reykjavík
Sími: 545 8400
Netfang: [email protected]
Kt. 550169-1269

Afgreiðsla ráðuneytisins í Stjórnarráðshúsinu við Lækjartorg er opin virka daga kl. 8.30–16.00.

Netföng starfsfólks

Forsætisráðuneytið hefur frá upphafi verið í Stjórnarráðshúsinu við Lækjartorg þar sem ríkisstjórnin fundar reglulega. Starfsemi á vegum ráðuneytisins fer nú einnig fram í nærliggjandi húsum að Hverfisgötu 4–6. Aðalskrifstofa forsætisráðuneytisins skiptist samkvæmt skipuriti í skrifstofu yfirstjórnar, skrifstofu þjóðhagsmála, skrifstofu löggjafarmála og skrifstofu fjármála.

Skipurit forsætisráðuneytisins

Forsætisráðherra fer með yfirstjórn ráðuneytisins og ber ábyrgð á öllum stjórnarframkvæmdum þess. Ráðuneytisstjóri stýrir ráðuneytinu undir yfirstjórn ráðherra.

Þær stofnanir sem heyra undir ráðuneytið eru Seðlabanki Íslands, Ríkislögmaður, Hagstofa Íslands, Umboðsmaður barna, Óbyggðanefnd og Jafnréttisstofa.

Verkefni ráðuneytisins eru skilgreind í forsetaúrskurði um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands. Þau varða stjórnskipan lýðveldisins Íslands og Stjórnarráðið í heild, málefni ríkisstjórnar og ráðherranefnda, málefni ríkisráðs, þjóðhagsmál, löggjafarmálefni, stjórnarfar almennt, þjóðartákn, mannréttindamál, jafnréttismál og fleira. Forsætisráðuneytið fer auk þess með ýmis málefni og tilfallandi verkefni er tengjast stöðu og störfum forsætisráðherra sem oddvita ríkisstjórnarinnar og samræmingu og samráð er lýtur að samstarfi ráðuneyta á ýmsum sviðum.

Forsetaúrskurður um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands

Lagasafn Alþingis - helstu lög er falla undir ráðuneytið

Forsætisráðherra stýrir ríkisstjórnarfundum enda er hann skv. 17. gr. stjórnarskrár „sá ráðherra, er forseti lýðveldisins hefur kvatt til forsætis“. Hann fer einnig með forsetavald í fjarveru forseta Íslands, ásamt forseta Alþingis og forseta Hæstaréttar. Ráðherranefndir starfa undir forystu forsætisráðherra, auk þess sem ýmsar aðrar nefndir, verkefnishópar og ráð heyra undir ráðuneytið.

Um ráðuneytið

Forsætisráðuneytið

Stjórnarráðshúsinu við Lækjartorg
101 Reykjavík

 

 

Sími: 545 8400

Netfang: [email protected]

Kt. 550169-1269



Afgreiðsla ráðuneytisins í Stjórnarráðshúsinu við Lækjartorg er opin virka daga kl. 8.30–16.00.

Netföng starfsfólks

Forsætisráðuneytið hefur frá upphafi verið í Stjórnarráðshúsinu við Lækjartorg. Starfsemi á vegum ráðuneytisins fer nú einnig fram í nærliggjandi húsum að Hverfisgötu 4–6. Aðalskrifstofa forsætisráðuneytisins skiptist samkvæmt skipuriti í skrifstofu stjórnskipunar og stjórnsýslu, skrifstofu samhæfingar og stefnumála, skrifstofu jafnréttis- og mannréttindamála og skrifstofu innviða og þróunar.

Forsætisráðherra fer með yfirstjórn ráðuneytisins og ber ábyrgð á öllum stjórnarframkvæmdum þess. Ráðuneytisstjóri stýrir ráðuneytinu undir yfirstjórn ráðherra.

Þær stofnanir sem heyra undir ráðuneytið eru Seðlabanki Íslands, Ríkislögmaður, Hagstofa Íslands, Umboðsmaður barna, Jafnréttisstofa og Óbyggðanefnd.

Verkefni ráðuneytisins eru skilgreind í forsetaúrskurði um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands. Þau varða stjórnskipan lýðveldisins Íslands og Stjórnarráðið í heild, málefni ríkisstjórnar og ráðherranefnda, málefni ríkisráðs, þjóðhagsmál, löggjafarmálefni, stjórnarfar almennt, þjóðartákn, mannréttindamál, jafnréttismál og fleira. Forsætisráðuneytið fer auk þess með ýmis málefni og tilfallandi verkefni er tengjast stöðu og störfum forsætisráðherra sem oddvita ríkisstjórnarinnar og samræmingu og samráð er lýtur að samstarfi ráðuneyta á ýmsum sviðum.

Forsætisráðherra stýrir ríkisstjórnarfundum enda er hann skv. 17. gr. stjórnarskrár „sá ráðherra, er forseti lýðveldisins hefur kvatt til forsætis“. Hann fer einnig með forsetavald í fjarveru forseta Íslands, ásamt forseta Alþingis og forseta Hæstaréttar. Ráðherranefndir starfa undir forystu forsætisráðherra, auk þess sem ýmsar aðrar nefndir, verkefnishópar og ráð heyra undir ráðuneytið.

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum