Úrskurðir og álit
-
28. ágúst 2024 /Mál nr. 244/2024-Úrskurður
Meðlag. Staðfest ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um að hafa milligöngu um meðlagsgreiðslur til barnsmóður kæranda. Lögformleg meðlagsákvörðun lá fyrir.
-
28. ágúst 2024 /Mál nr. 258/2024-Úrskurður
Ofgreiddar bætur. Staðfest ákvörðun um endurreikning og uppgjör Tryggingastofnunar ríkisins á tekjutengdum bótum ársins 2023.
-
28. ágúst 2024 /Mál nr. 241/2024-Úrskurður
Ofgreiddar bætur. Staðfest ákvörðun um endurreikning og uppgjör Tryggingastofnunar ríkisins á tekjutengdum bótum ársins 2023.
-
28. ágúst 2024 /Nr. 864/2024 Úrskurður
Ákvörðun lögreglustjórans á Suðurnesjum um að frávísa kæranda á grundvelli d-liðar 1. mgr. 94. gr. laga um útlendinga, er staðfest.
-
28. ágúst 2024 /Nr. 722/2024 Úrskurður
Ákvörðun lögreglustjórans á Suðurnesjum um að frávísa kæranda á grundvelli j-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, er staðfest.
-
28. ágúst 2024 /Nr. 836/2024 Úrskurður
Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja umsókn kæranda um dvalarleyfi vegna fjölskyldusameiningar, sbr. 72, sbr. 1. mgr. 55. gr. laga um útlendinga, er felld úr gildi. Lagt er fyrir stofnunina að taka málið til nýrrar meðferðar.
-
27. ágúst 2024 /Úrskurður nr. 17/2024
Kærð var ákvörðun embættis landlæknis um að synja umsókn kæranda um sérfræðileyfi í hjartalækningum sem undirsérgrein við lyflækningar. Kærandi í málinu hélt því fram að skilyrði væru til að staðfesta umsókn hans, enda hefði hann lokið sérfræðinámi. Embætti landlæknis taldi að skilyrði fyrir að veita kæranda sérfræðileyfi væru ekki fyrir hendi, enda væri það forsenda fyrir veitingu sérfræðileyfis, ef ekki er fyrir að fara marklýsingu fyrir námið hér á landi, að umsækjandi hafi fengið útgefið leyfi í námsríkinu sem embætti landlæknis er heimilt að staðfesta á Íslandi. Í úrskurði ráðuneytisins kom fram að kærandi hafi ekki uppfyllt skilyrði reglugerðar nr. 856/2023 né reglugerðar nr. 467/2015 til að hljóta sérfræðileyfi. Var ákvörðun embættis landlæknis af þeim sökum staðfest.
-
23. ágúst 2024 /Mál nr. 89/2024 Úrskurður 23. ágúst 2024
Beiðni um eiginnafnið Josef (kk.) er hafnað.
-
23. ágúst 2024 /Mál nr. 87/2024 Úrskurður 23. ágúst 2024
Beiðni um eiginnafnið Hennie (kvk.) er hafnað.
-
23. ágúst 2024 /Mál nr. 79/2024 Úrskurður 23. ágúst 2024
Beiðni um eiginnafnið Amira (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.
-
23. ágúst 2024 /Nr. 448/2023 Úrskurður
Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja umsókn kæranda um dvalarleyfi fyrir foreldra á grundvelli 72. gr. laga um útlendinga er staðfest.
-
22. ágúst 2024 /Mál nr. 269/2024-Úrskurður
Viðurlög. Staðfest ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði vegna ótilkynntrar dvalar erlendis. Einnig staðfest ákvörðun stofnunarinnar um að setja greiðslur atvinnuleysisbóta til kæranda á bið þar sem hann hafði ekki áunnið sér rétt til nýs bótatímabils.
-
22. ágúst 2024 /Mál nr. 266/2024-Úrskurður
Viðurlög. Staðfest ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði þar sem hann mætti ekki á boðaðan kynningarfund hjá stofnuninni.
-
22. ágúst 2024 /Mál nr. 262/2024-Úrskurður
Biðtími. Staðfest ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði. Starfi sagt upp án gildra ástæðna.
-
22. ágúst 2024 /Mál nr. 233/2024-Úrskurður
Ofgreiddar bætur. Staðfest ákvörðun Vinnumálastofnunar um innheimtu ofgreiddra atvinnuleysisbóta þar sem kærandi var með opna launagreiðendaskrá.
-
22. ágúst 2024 /Mál nr. 232/2024-Úrskurður
Viðurlög. Felld úr gildi ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði. Ekki rannsakað nægjanlega hvort kærandi hafi sannanlega hafnað starfi. Málinu vísað til nýrrar meðferðar stofnunarinnar.
-
22. ágúst 2024 /Mál nr. 210/2024-Úrskurður
Biðtími. Staðfest ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði. Starfi sagt upp án gildra ástæðna.
-
22. ágúst 2024 /Mál nr. 204/2024-Úrskurður
Endurupptökubeiðni. Beiðni um endurupptöku úrskurðar synjað.
-
22. ágúst 2024 /Mál nr. 288/2024-Úrskurður
Fjárhagsaðstoð. Kærufrestur. Kæru vísað frá þar sem hún barst að liðnum kærufresti. Ekki talið afsakanlegt að kæra barst ekki fyrr né að veigamiklar ástæður mæltu með því að kæran yrði tekin til meðferðar.
-
22. ágúst 2024 /Mál nr. 250/2024-Úrskurður
Viðurlög. Staðfest ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði þar sem hún hafnaði starfi.
-
22. ágúst 2024 /Mál nr. 195/2024-Úrskurður
Viðurlög. Ofgreiddar bætur. Staðfest ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði og að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur vegna ótilkynntrar dvalar erlendis.
-
21. ágúst 2024 /Mál nr. 304/2024-Úrskurður
Slysatrygging. Staðfest ákvörðun Sjúkratrygginga Íslands um að synja um bætur úr slysatryggingum almannatrygginga.
-
21. ágúst 2024 /Mál nr. 203/2024 - Úrskurður
Staðfest ákvörðun Sjúkratrygginga Íslands um slysabætur.
-
21. ágúst 2024 /Mál nr. 293/2024-Úrskurður
Lyfjaskírteini. Felld úr gildi ákvörðun Sjúkratrygginga Íslands um að synja um útgáfu lyfjaskírteinis vegna lyfsins semaglutide (Wegovy). Fallist er á útgáfu lyfjaskírteinis vegna semaglutide (Wegovy).
-
21. ágúst 2024 /Mál nr. 287/2024-Úrskurður
Slysatrygging. Staðfest ákvörðun Sjúkratrygginga Íslands um að synja um bætur úr slysatryggingum almannatrygginga.
-
21. ágúst 2024 /Mál nr. 254/2024-Úrskurður
Sjúklingatrygging. Staðfest ákvörðun Sjúkratrygginga Íslands um að synja um bætur samkvæmt lögum nr. 111/2000 um sjúklingatryggingu.
-
21. ágúst 2024 /Mál nr. 245/2024-
Slysatrygging/öroka. Staðfest ákvörðun Sjúkratrygginga Íslands um 0% varanlega læknisfræðilega örorku vegna slyss.
-
21. ágúst 2024 /Mál nr. 176/2024-Úrskurður
Læknismeðferð erlendis. Staðfest afgreiðsla Sjúkratrygginga Íslands um endurgreiðslu á kostnaði vegna læknismeðferðar erlendis.
-
21. ágúst 2024 /Mál nr. 170/2024-Úrskurður
Læknismeðferð erlendis. Staðfest synjun Sjúkratrygginga Íslands um endurgreiðslu á kostnaði vegna læknismeðferðar erlendis.
-
21. ágúst 2024 /Mál nr. 150/2024-Úrskurður
Sjúklingatrygging. Staðfest ákvörðun Sjúkratrygginga Íslands um að synja um bætur samkvæmt lögum nr. 111/2000 um sjúklingatryggingu.
-
21. ágúst 2024 /Mál nr. 22/2024-Úrskurður
Tannlækningar. Staðfest ákvörðun Sjúkratrygginga Íslands um að synja um greiðsluþátttöku í tannlækningum
-
21. ágúst 2024 /Kæra vegna skólaaksturs fyrir barn frá grunnskóla sveitarfélags að heimili
Fimmtudaginn 18. júlí 2024 var kveðinn upp í mennta- og barnamálaráðuneytinu svohljóðandi Úrskurður í máli nr. MRN24020155 Kæra, kröfur og kæruheimild Mennta- og barnamálaráðuneyti)...
-
-
21. ágúst 2024 /Mál nr. 184/2024-Úrskurður
Slysatrygging/örorka. Staðfest ákvörðun Sjúkratrygginga Íslands um 8% varanlega læknisfræðilega örorku vegna slyss.
-
-
21. ágúst 2024 /Mál nr. 116/2024-Úrskurður
Hjálpartæki. Staðfest ákvörðun Sjúkratrygginga Íslands um að synja um styrk til kaupa á sérhönnuðum búningi með raförvunarbúnaði.
-
20. ágúst 2024 /Mál nr. 1/2023 - Úrskurður
Uppsögn. Meðganga maka. Þjóðernisuppruni. Ekki fallist á brot.
-
19. ágúst 2024 /Mál nr. 10/2023 - Úrskurður
Skipun í embætti. Mismunun á grundvelli kyns. Ekki fallist á brot.
-
-
19. ágúst 2024 /Mál nr. 93/2024 Úrskurður 19. ágúst 2024
Beiðni um eiginnafnið Arló er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá yfir kynhlutlaus nöfn.
-
19. ágúst 2024 /Mál nr. 91/2024 Úrskurður 19. ágúst 2024
Beiðni um eiginnafnið Todor (k.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.
-
19. ágúst 2024 /Mál nr. 88/2024 Úrskurður 19. ágúst 2024
Beiðni um eiginnafnið Marló er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá yfir kynhlutlaus nöfn.
-
19. ágúst 2024 /Mál nr. 85/2024 Úrskurður 19. ágúst 2024
Beiðni um eiginnafnið Ástborg (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.
-
19. ágúst 2024 /Mál nr. 84/2024 Úrskurður 19. ágúst 2024
Beiðni um eiginnafnið Líana (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.
-
19. ágúst 2024 /Mál nr. 82/2024 Úrskurður 19. ágúst 2024
Beiðni um eiginnafnið Konstantína (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.
-
19. ágúst 2024 /Mál nr. 80/2024 Úrskurður 19. ágúst 2024
Beiðni um eiginnafnið Logar (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.
-
19. ágúst 2024 /Mál nr. 78/2024 Úrskurður 19. ágúst 2024
Beiðni um eiginnafnið Salvarr (kk.) er hafnað.
-
19. ágúst 2024 /Mál nr. 77/2024 Úrskurður 19. ágúst 2024
Beiðni um eiginnafnið Santos (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.
-
18. ágúst 2024 /Nr. 708/2024 Úrskurður
Ákvörðun lögreglustjórans á Suðurnesjum um að frávísa kæranda á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, er felld úr gildi.
-
15. ágúst 2024 /Úrskurður vegna stjórnsýslukæru: Kæra, kröfur og kæruheimild - synjun um endurgreiðslu útlags kostnaðar vegna túlkaþjónustu
ÚRSKURÐUR í stjórnsýslumáli nr. MVF23090319 I. Kæra, kröfur og kæruheimild
-
15. ágúst 2024 /Mál nr. 239/2024-Úrskurður
Greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði. Staðfest ákvörðun Fæðingarorlofssjóðs um að synja umsókn kæranda um greiðslur úr sjóðnum. Ekki í samfelldu starfi á innlendum vinnumarkaði í sex mánuði fyrir fæðingardag barns.
-
15. ágúst 2024 /Mál nr. 226/2024-Úrskurður
Öryggislenging. Kæru vísað frá þar sem Fæðingarorlofssjóður hafði afturkallað hina kærðu ákvörðun og tekið umsókn kæranda til nýrrar meðferðar.
-
-
-
14. ágúst 2024 /Mál nr. 14/2023 - Úrskurður
Ráðning í starf. Mismunun á grundvelli kyns. Ekki fallist á brot.
-
14. ágúst 2024 /Mál nr. 291/2024-Úrskurður
Felld úr gildi ákvörðun umboðsmanns skuldara um að synja umsókn kæranda um greiðsluaðlögun
-
14. ágúst 2024 /Mál nr. 186/2024-Úrskurður
Felld úr gildi ákvörðun umboðsmanns skuldara um að synja umsókn kæranda um greiðsluaðlögun
-
14. ágúst 2024 /Úrskurður nr. 22/2024
Kærð var ákvörðun færni- og heilsumatsnefndar höfuðborgarsvæðisins um að synja umsókn kæranda um færni- og heilsumat þar sem talið var að forsendur fyrir færni- og heilsumati væru ekki nægjanlegar að sinni auk þess sem heimaþjónusta væri ekki fullnýtt. Í úrskurði ráðuneytisins kom fram að af gögnum málsins og samskiptum við kæranda væri ljóst að gögn málsins sem færni- og heilsumatsnefndin aflaði um stöðu kæranda væru röng og ættu líkast til ekki við um kæranda. Var því ekki mótmælt af hálfu nefndarinnar. Var það mat ráðuneytisins að af þeim sökum gæti málið ekki talist rannsakað með fullnægjandi hætti. Ákvörðun færni- og heilsumatsnefndar var af þeim sökum felld úr gildi og lagt fyrir nefndina að taka umsókn kæranda fyrir að nýju.
-
12. ágúst 2024 /Úrskurður vegna stjórnsýslukæru: synjun um útgáfu rekstrarleyfis í flokki II staðfest
Synjun útgáfu rekstrarleyfis. Rekstrarleyfi í flokki II
-
-
08. ágúst 2024 /Mál nr. 12/2023 - Úrskurður
Uppsögn. Fæðingarorlof. Ástæður tengdar meðgöngu og barnsburði. Ekki fallist á brot.
-
08. ágúst 2024 /Mál nr. 6/2023 - Úrskurður
Tilkynningarskylda. Mismunun vegna kynþáttar og þjóðernisuppruna. Utan vinnumarkaðar. Ekki fallist á brot.
-
06. ágúst 2024 /Úrskurður vegna stjórnsýslukæru: stjórnvaldssekt vegna rekstur gististaða án tilskilins rekstrarleyfis - sekt lækkuð
Stjónvaldssekt. Leyfislaus gististarfsemi. Rekstrarleyfi.
-
02. ágúst 2024 /Nr. 798/2024 Úrskurður
Ákvörðun Útlendingastofnunar um að afturkalla alþjóðlega vernd kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi ásamt því að brottvísa honum frá Íslandi og ákveða endurkomubann er staðfest.
-
01. ágúst 2024 /Úrskurður vegna stjórnsýslukæru: kærð synjun um eftirvinnslustyrk vegna verkefnis
Úrskurður dags. 23. júlí 2024, kærð synjun eftirvinnslustyrks vegna verkefnis
-
19. júlí 2024 /Úrskurður nr. 20/2024
Óskað var eftir endurupptöku á úrskurði ráðuneytisins nr. 12/2024 þar sem talið var að úrskurðurinn væri haldinn efnislegum annmörkum. Í úrskurði ráðuneytisins kom fram að skilyrði fyrir endurupptöku væru ekki fyrir hendi enda væru atvik málsins ekki með þeim hætti sem greinir í 24. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993. Engu að síður taldi ráðuneytið að því bæri skylda til að líta til annarra heimilda sem það hefði til að endurskoða ákvörðunina. Kannaði ráðuneytið m.a. hvort skilyrði fyrir afturköllun ákvörðunar væru fyrir hendi. Niðurstaða ráðuneytisins var að svo væri ekki enda væri úrskurðurinn lögum samkvæmt. Var endurupptökubeiðni kæranda af þeim sökum hafnað.
-
18. júlí 2024 /Nr. 707/2024 Úrskurður
Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja umsókn kæranda um dvalarleyfi vegna sérstakra tengsla við landið, sbr. 78. gr. laga um útlendinga, er staðfest.
-
18. júlí 2024 /Nr. 719/2024 Úrskurður
Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja kæranda um dvalarleyfi fyrir foreldra, sbr. 72. gr. laga um útlendinga, er staðfest.
-
18. júlí 2024 /Nr. 706/2024 Úrskurður
Ákvörðun Útlendingastofnunar um að vísa umsókn kæranda um dvalarleyfi frá, sbr. 1. mgr. 101. gr. laga um útlendinga, er staðfest.
-
18. júlí 2024 /Nr. 503/2024 Úrskurður
Ákvörðun Útlendingastofnunar um brottvísun og endurkomubann kæranda, sbr. b-lið 1. mgr. 98. og 2. mgr. 101. gr. laga um útlendinga, er felld úr gildi.
-
18. júlí 2024 /Nr. 721/2024 Úrskurður
Ákvörðun Útlendingastofnunar um að vísa umsókn kæranda um dvalarleyfi frá, sbr. 1. mgr. 101. gr. laga um útlendinga, er staðfest.
-
18. júlí 2024 /Úrskurður nr. 14/2024
Kærð var málsmeðferð setts landlæknis í kvörtunarmáli til ráðuneytisins. Gerðar voru athugasemdir við marga þætti málsmeðferðar setts landlæknis í kærum sem stöfuðu bæði frá heilbrigðisstofnun og sjúklingi. Í úrskurði ráðuneytisins kom fram að hvorki yrði hæfi setts landlæknis né óháðu sérfræðinga málsins dregin í efa. Rannsókn málsins hefði verið fullnægjandi og andmælaréttur virtur. Hins vegar hefði málsmeðferðartími farið úr hófi fram og að rökstuðningur setts landlæknis í málinu hefði ekki að fullu samrýmst ákvæðum stjórnsýslulaga, nr. 37/1993 og laga nr. 41/2007, um landlækni og lýðheilsu. Var málsmeðferð setts landlæknis staðfest að öðru leyti. Þá var það niðurstaða ráðuneytisins að aðeins væri hægt að kvarta yfir framkomu heilbrigðisstarfsmanna í garð notenda heilbrigðisþjónustu og að ákvörðun um að tilkynna ekki atvik væri ekki kæranleg á grundvelli 12. gr. laga nr. 41/2007.
-
18. júlí 2024 /Nr. 711/2024 Úrskurður
Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja umsókn kæranda um dvalarleyfi vegna hjúskapar, sbr. d-lið 1. mgr. 55. gr. laga um útlendinga, er staðfest.
-
18. júlí 2024 /Nr. 712/2024 Úrskurður
Ákvörðun lögreglustjórans á Suðurnesjum um að frávísa kæranda á grundvelli c- og d-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, er staðfest.
-
18. júlí 2024 /Nr. 718/2024 Úrskurður
Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja umsókn kæranda um dvalarleyfi vegna starfs sem krefst sérfræðiþekkingar, sbr. 61., sbr. 4. mgr. 51. gr. laga um útlendinga, er staðfest. Felld er úr gildi ákvörðun stofnunarinnar um brottvísun og endurkomubann kæranda.
-
18. júlí 2024 /Nr. 717/2023 Úrskurður
Ákvörðun Útlendingastofnunar um að hafna umsókn kæranda á grundvelli hjúskapar, sbr. 70. gr. sbr. 4. mgr. 51. gr. laga um útlendinga, er felld úr gildi.
-
18. júlí 2024 /Nr. 713/2024 Úrskurður
Ákvörðun lögreglustjórans á Suðurnesjum um að frávísa kæranda á grundvelli d-liðar 1. mgr. 94. gr. laga um útlendinga, er felld úr gildi.
-
-
15. júlí 2024 /Mál nr. 49/2023. Úrskurður kærunefndar útboðsmála.
Samningskaup án undangenginnar útboðsauglýsingar. Brýnir almannahagsmunir. Krafa um óvirkni samnings. Stjórnvaldssekt. Málskostnaður.
-
15. júlí 2024 /Mál nr. 4/2024. Úrskurður kærunefndar útboðsmála.
Hugbúnaður. Útboðsgögn. Almennt útboð. Fasaskipt útboð. Bindandi samningur.
-
15. júlí 2024 /Mál nr. 1/2024. Úrskurður kærunefndar útboðsmála.
Sérfræðingur. Hugbúnaðargerð. Útboðsgögn. Bindandi samningur.
-
15. júlí 2024 /Mál nr. 19/2024. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála.
Verðfyrirspurn. Bindandi samningur. Kröfu um stöðvun innkaupaferlis hafnað.
-
-
-
12. júlí 2024 /Mál nr. 14/2024. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála.
Biðtími. Sjálfkrafa stöðvun samningsgerðar. Krafa um stöðvun innkaupaferlis.
-
-
-
12. júlí 2024 /Mál nr. 16/2024. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála.
Tilboðsgögn. Sjálfkrafa stöðvun samningsgerðar aflétt.
-
11. júlí 2024 /Úrskurður félags- og vinnumarkaðsráðuneytis 7/2024
Fyrirmæli Vinnueftirlits ríkisins. Merkingar salerna.
-
11. júlí 2024 /Mál nr. 189/2024-Úrskurður
Félagslegt leiguhúsnæði. Málshraði. Afgreiðsla Hafnarfjarðarbæjar var ekki í samræmi við málshraðareglu 9. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.
-
11. júlí 2024 /Mál nr. 57/2024 - Beiðni um endurupptöku
Endurupptökubeiðni. Beiðni um endurupptöku úrskurðar synjað.
-
11. júlí 2024 /Mál nr. 8/2024. Úrskurður kærunefndar útboðsmála.
Örútboð. Tilboðsgögn. Val tilboðs. Jafnræði. Málskostnaður.
-
-
-
-
10. júlí 2024 /Mál nr. 101/2024-Úrskurður
Ofgreiddar bætur. Staðfestar ákvarðanir Tryggingastofnunar ríkisins um um endurreikning og uppgjör á tekjutengdum bótum kæranda á árinu 2022 og að innheimta ofgreiddar bætur. Endurreikningurinn í samræmi við lög og Tryggingastofnun innheimtir ekki meira en 20% af mánaðarlegum greiðslum til kæranda.
-
10. júlí 2024 /Mál nr. 216/2024-Úrskurður
Viðurlög. Staðfest ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði þar sem hann mætti ekki í boðað viðtal hjá stofnuninni.
-
10. júlí 2024 /Mál nr 204/2024-Úrskurður
Viðurlög. Ofgreiddar bætur. Staðfest ákvörðun Vinnumálastofnunar um að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til kæranda vegna ótilkynntra tekna. Einnig staðfest ákvörðun stofnunarinnar um innheimtu ofgreiddra bóta.
-
10. júlí 2024 /Mál nr. 202/2024-Úrskurður
Ávinnslutímabil. Staðfest ákvörðun Vinnumálastofnunar um að synja umsókn kæranda um atvinnuleysisbætur. Kærandi hafði ekki starfað í að minnsta kosti 24 mánuði á innlendum vinnumarkaði frá því að hann fékk síðast greiddar atvinnuleysisbætur og því ekki áunnið sér rétt til nýs bótatímabils.
-
10. júlí 2024 /Mál nr. 197/2024-Úrskurður
Viðurlög. Staðfest ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði þar sem hann mætti ekki á boðaðan fund hjá stofnuninni.
-
10. júlí 2024 /Mál nr. 225/2024-Úrskurður
Framlenging lífeyrisgreiðslna. Staðfest ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um að synja umsókn um framlengingu lífeyrisgreiðslna þrátt fyrir dvöl á sjúkrastofnun. Kærandi uppfyllti ekki skilyrði framlengingar lífeyrisgreiðslna þar sem að hún var talin fær um að greiða afborganir og rekstrarkostnað vegna íbúðarinnar.
-
10. júlí 2024 /Mál nr. 221/2024-Úrskurður
Örorkumat. Staðfest ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um að synja kæranda um örorkulífeyri. Ekki talið að endurhæfing hafi verið fullreynd.
-
10. júlí 2024 /Mál nr. 209/2024-Úrskurður
Örorkumat. Felld úr gildi ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um að synja kæranda um örorkulífeyri og tengdar greiðslur og málinu vísað aftur til stofnunarinnar til mats á örorku. Að mati úrskurðarnefndar er endurhæfing ekki raunhæf að sinni.
-
10. júlí 2024 /Mál nr. 228/2024-Úrskurður
Viðurlög. Staðfest ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði þar sem hún mætti ekki á boðaðan kynningarfund hjá stofnuninni.
-
10. júlí 2024 /Mál nr. 146/2024-Úrskurður
Uppbót á lífeyri. Staðfest ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um að synja umsókn kæranda um uppbót á lífeyri. Tekjur kæranda voru umfram þau tekjumörk sem tilgreind eru í 11. gr. reglugerðar nr. 1200/2018 um heimilisuppbót og uppbætur á lífeyri. Ekki fallist á að ákvörðun Tryggingastofnunar brjóti í bága við jafnræðisreglu 11. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.
-
10. júlí 2024 /Mál nr. 123/2024 Úrskurður
Ellilífeyrir. Staðfest ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um búsetuhlutfall kæranda vegna greiðslu ellilífeyris.
-
10. júlí 2024 /Mál nr. 179/2024-Úrskurður
Viðurlög. Ofgreiddar bætur. Staðfest ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður bótarétt kæranda í tvo mánuði vegna ótilkynntra tekna. Einnig staðfest ákvörðun stofnunarinnar um innheimtu ofgreiddra bóta þar sem kærandi var með opna launagreiðendaskrá. Endurkrafa fyrir einn mánuð þó felld úr gildi og þeim hluta málsins vísað til nýrrar meðferðar stofnunarinnar.
-
10. júlí 2024 /Mál nr. 196/2024-Úrskurður
Viðurlög. Ítrekunaráhrif. Staðfest ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði þar sem hann mætti ekki á boðað námskeið. Einnig staðfest ákvörðun Vinnumálastofnunar um að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til kæranda þar sem hann mætti ekki á boðað námskeið.
-
10. júlí 2024 /Mál nr. 185/2024-Úrskurður
Viðurlög. Staðfest ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði þar sem hann mætti ekki í boðað viðtal hjá stofnuninni.
-
10. júlí 2024 /Mál nr. 132/2024-Úrskurður
Viðurlög. Ofgreiddar bætur. Staðfest ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði vegna ótilkynntra tekna. Einnig staðfest ákvörðun stofnunarinnar um innheimtu ofgreiddra atvinnuleysisbóta.
-
08. júlí 2024 /Úrskurður vegna stjórnsýslukæru: Stjórnvaldssekt sem Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu lagði vegna rekstrarleyfisskyldrar gististarfsemi lækkuð.
stjórnvaldssekt vegna Rekstrarleyfisskyldrar gististarfsemi. Lögaðili ekki sektaður án skýrrar lagaheimildar. Almennar fyrningarreglur. Sektarfjárhæð lækkuð. Stjórnvaldssekt sem Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu lagði
-
08. júlí 2024 /Úrskurður vegna stjórnsýslukæru: Stjórnvaldssekt vegna Rekstrarleyfisskyldrar gististarfsemi - sekt lækkuð
Stjórnvaldssekt vegna Rekstrarleyfisskyldrar gististarfsemi. Lögaðili ekki sektaður án skýrrar lagaheimildar. Almennar fyrningarreglur. Sektarfjárhæð lækkuð.
-
05. júlí 2024 /Mál nr. 8/2023 - Úrskurður
Ráðning í starf. Stjórnvald. Mismunun á grundvelli kyns. Mismunun á grundvelli aldurs. Fjölþætt mismunun. Fallist á brot.
-
04. júlí 2024 /Úrskurður félags- og vinnumarkaðsráðuneytis 6/2024
Staðfest ákvörðun Ábyrgðarsjóðs launa
-
04. júlí 2024 /Mál nr. 6/2024. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála, endurupptaka.
Beiðni um endurupptöku hafnað.
-
-
04. júlí 2024 /Mál nr. 4/2024. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála.
Hugbúnaður. Aflétting sjálfkrafa stöðvunar samningsgerðar.
-
04. júlí 2024 /Mál nr. 6/2024. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála.
Kröfu kæranda um stöðvun innkaupaferlis hafnað.
-
04. júlí 2024 /Mál nr. 8/2024. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála.
Örútboð. Tilboðsgögn. Stöðvun samningsgerðar.
-
03. júlí 2024 /Úrskurður félags- og vinnumarkaðsráðuneytis 5/2024
Umsókn um tímabundið atvinnuleyfi vegna skorts skorts á vinnuafli.
-
03. júlí 2024 /Úrskurður félags- og vinnumarkaðsráðuneytis 4/2024
Umsókn um tímabundið atvinnuleyfi vegna skorts skorts á vinnuafli.
-
-
03. júlí 2024 /Mál nr. 112/2023-Álit
Bótaábyrgð húsfélags vegna tjóns á séreign af völdum viðgerða á sameign
-
-
-
02. júlí 2024 /Úrskurður vegna stjórnsýsluákæru - synjun um útgáfu rekstrarleyfis vegna gististaðar í flokki II staðfest
Ákvörðun Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu um að synja umsókn kæranda um útgáfu rekstrarleyfis vegna gististaðar í flokki II staðfest.
-
-
02. júlí 2024 /Mál nr. 75/2024 Úrskurður 2. júlí 2024
Beiðni um eiginnafnið Núri (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.
-
02. júlí 2024 /Mál nr. 74/2024 Úrskurður 2. júlí 2024
Beiðni um eiginnafnið Foster (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.
-
02. júlí 2024 /Mál nr. 73/2024 Úrskurður 2. júlí 2024
Beiðni um eiginnafnið Roj (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.
-
02. júlí 2024 /Mál nr. 72/2024 Úrskurður 2. júlí 2024
Beiðni um eiginnafnið Ana (kvk.) er samþykkt og skal fært á mannanafnaskrá.
-
02. júlí 2024 /Mál nr. 71/2024 Úrskurður 2. júlí 2024
Beiðni um eiginnafnið Ahelia (kvk.) er samþykkt og skal fært á mannanafnaskrá.
-
02. júlí 2024 /Mál nr. 69/2024 Úrskurður 2. júlí 2024
Beiðni um eiginnafnið Maríabet (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.
-
02. júlí 2024 /Úrskurður félags- og vinnumarkaðsráðuneytis 3/2024
Ákvörðun Fjölmenningarseturs, nú Vinnumálastofnun, um synjun á endurgreiðslu á veittri aðstoð við erlenda ríkisborgara á grundvelli 15. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga felld úr gildi.
-
01. júlí 2024 /Mál nr. 18/2024-Úrskurður
Tryggingarfé: Leigusali gerði ekki skriflega kröfu í tryggingarféð innan tilskilins frests
-
01. júlí 2024 /Mál nr. 10/2024-Úrskurður
Tryggingarfé: Leigjandi hætti við að taka herbergi á leigu.
-
01. júlí 2024 /Mál nr. 4/2024-Úrskurður
Tryggingarfé: Leigusali gerði ekki skriflega kröfu í tryggingarféð innan tilskilins frests
-
01. júlí 2024 /Mál nr. 143/2023-Álit
Eigendaskipti: Greiðandi kröfu vegna sameiginlegra framkvæmda.
-
-
01. júlí 2024 /Mál nr. 134/2023-Úrskurður
Tryggingarfé: Ágreiningi um bótaskyldu leigjanda ekki vísað til kærunefndar innan tilskilins frests.
-
01. júlí 2024 /Mál nr. 133/2023-Úrskurður
Krafa leigusala í tryggingu leigjanda tekin til efnislegrar úrlausnar.
-
01. júlí 2024 /Úrskurður vegna stjórnsýslukæru: Ferðamálastofa skal endurákvarða fjárhæð tryggingar og iðgjalds kæranda
Ákvörðun fjárhæðar tryggingar og iðgjalds vegna sölu pakkaferða og samtengdrar ferðatilhögunar. Krafist að ákvörðun Ferðamálastofu um hækkun tryggingar og iðgjalds sem kæranda er gert að leggja fram verði felld úr gildi og fjárhæðin endurákvörðuð án álags, sbr. 7. og 10. gr. reglugerðar nr. 812/2021, um Ferðatryggingasjóð.
-
01. júlí 2024 /Úrskurður vegna sjórnsýsluákæru - Ákvörðun fjárhæðar tryggingar og iðgjalds vegna sölu pakkaferða og samtengdrar ferðatilhögunar.
Ákvörðun fjárhæðar tryggingar og iðgjalds vegna sölu pakkaferða og samtengdrar ferðatilhögunar.
-
01. júlí 2024 /Mál nr. 127/2023-Úrskurður
Krafa leigusala í tryggingu leigjanda tekin til efnislegrar úrlausnar.
-
01. júlí 2024 /Úrskurður vegna stjórnsýslukæru: Ákvörðun fjárhæðar tryggingar og iðgjalds vegna sölu pakkaferða og samtengdrar ferðatilhögunar
Ákvörðun fjárhæðar tryggingar og iðgjalds vegna sölu pakkaferða og samtengdrar ferðatilhögunar.
-
-
-
28. júní 2024 /Mál nr. 90/2024-Úrskurður
Staðfest ákvörðun umboðsmanns skuldara að synja kæranda um greiðsluaðlögun.
-
-
27. júní 2024 /Úrskurður nr. 19/2024
Kærður var málshraði embættis landlæknis í kvörtunarmáli til ráðuneytisins. Kærandi kvartaði til embættis landlæknis þann 24. júní 2021 en þegar kæra barst ráðuneytinu beið málið enn eftir að komast í umsögn hjá óháðum sérfræðingi. Ráðuneytið gerði ekki athugasemdir við að embætti landlæknis forgangsraðaði kvörtunum enda væri byggt á málefnalegum sjónarmiðum. Kvartanir til embættisins varði iðulega atvik sem beri að taka alvarlega og því beri ávallt að beita forgangsröðun af varfærni, svo sem embætti landlæknis geri. Engu að síður var það niðurstaða ráðuneytisins að málsmeðferðartími kvörtunarmálsins samrýmdist ekki kröfum 1. mgr. 9. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993.
-
27. júní 2024 /Nr. 677/2024 Úrskurður
Ákvarðanir Útlendingastofnunar um að synja um að taka umsóknir kærenda og barns þeirra um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á grundvelli d-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og senda þau til Chile eru staðfestar.
-
25. júní 2024 /Mál nr, 193/2024-Úrskurður
Tannlækningar erlendis. Staðfest afgreiðsla Sjúkratrygginga Íslands á umsókn um þátttöku í kostnaði vegna tannlækninga erlendis.
-
25. júní 2024 /Mál nr. 168/2024-Úrskurður
Slysatrygging/örorka. Staðfest ákvörðun Sjúkratrygginga Íslands um varanlega læknisfræðilega örorku vegna slyss.
-
25. júní 2024 /1211/2024. Úrskurður frá 25. júní 2024
Deilt var um rétt kæranda til aðgangs að skattskrám ársins 2022 vegna tekna á árinu 2021, sem gerðar væru á grundvelli 2. mgr. 98. gr. laga um tekjuskatt, nr. 90/2003. Skatturinn kvað ekki heimilt að afhenda gögnin með vísan til þess að upplýsingar í þeim væru háðar þagnarskyldu. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál rakti að 117. gr. laga um tekjuskatt væri sérstakt þagnarskylduákvæði sem gengi almennt framar rétti til aðgangs að upplýsingum samkvæmt upplýsingalögum. Ákvæðið væri grundvallarregla á sviði skattaréttar um trúnað um tekjur og efnahag skattaðila, og umbeðnar upplýsingar féllu undir ákvæðið. Ákvæði 2. mgr. 98. gr. laganna væri undantekningarregla gagnvart þagnarskyldunni í 117. gr. laganna og fæli ekki í sér ríkari fyrirmæli um afhendingu skattskráa en berum orðum fælist í ákvæðinu. Með vísan til þessa auk fleiri sjónarmiða var ákvörðun Skattsins staðfest.
-
25. júní 2024 /1210/2024. Úrskurður frá 25. júní 2024
Deilt var um rétt kæranda til aðgangs að myndskeiði í vörslum Fiskistofu sem sýndi brottkast á fiski. Ákvörðun Fiskistofu að synja beiðninni byggðist að hluta til á því að afhending myndskeiðsins væri óheimil vegna hagsmuna útgerða og skipverja, sbr. 9. gr. upplýsingalaga, nr. 140/2012. Nefndin taldi að þótt andlit skipverja hefðu í flestum tilvikum verið gerð ógreinileg teldust þeir engu að síður vera persónugreinanlegir í skilningi laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga. Þá taldi nefndin að það að Fiskistofa hefði ekki á þeim tíma haft lagaheimild til þess að gera þær upptökur af skipverjum sem finna mætti í myndskeiðinu hefði áhrif á mat samkvæmt 9. gr. upplýsingalaga. Þá teldust upplýsingar um það hvort einstaklingur væri grunaður um refsiverðan verknað eða önnur lögbrot almennt vera upplýsingar um einkamálefni viðkomandi sem sanngjarnt væri og eðlilegt að færu leynt. Með vísan til þessa auk fleiri sjónarmiða taldi úrskurðarnefndin að óheimilt væri að afhenda það myndskeið sem um var deilt í málinu, og staðfesti ákvörðun Fiskistofu.
-
25. júní 2024 /1209/2024. Úrskurður frá 25. júní 2024
Deilt var um rétt kæranda til aðgangs að umsögnum nánar tilgreindra stjórnvalda sem ríkislögmaður hafði aflað í tilefni af bótakröfu kæranda sem beint var að embættinu. Ákvörðun ríkislögmanns að synja beiðninni byggðist á því að gögnin væru bréfaskipti við sérfróðan aðila, sbr. 3. tölul. 6. gr. upplýsingalaga, nr. 140/2012. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi að samskipti stjórnvalds við ríkislögmann vegna könnunar á réttarstöðu eða vegna dómsmáls féllu undir framangreinda undanþágu í upplýsingalögum. Ákvörðun ríkislögmanns var staðfest.
-
25. júní 2024 /1208/2024. Úrskurður frá 25. júní 2024
Deilt var um rétt kæranda til aðgangs að gögnum í vörslum Fiskistofu. Ákvörðun Fiskistofu að synja beiðni kæranda var byggð á 1. tölul. 4. mgr. 15. gr. upplýsingalaga, nr. 140/2012, með vísan til þess að meðferð beiðninnar tæki svo mikinn tíma eða krefðist svo mikillar vinnu að ekki teldist af þeim sökum fært að verða við henni. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi að Fiskistofa hefði með fullnægjandi hætti sýnt fram á að skilyrði þess að ákvæðinu yrði beitt væru uppfyllt í málinu. Var ákvörðun Fiskistofu því staðfest.
-
25. júní 2024 /1207/2024. Úrskurður frá 25. júní 2024
Deilt var um rétt kærenda til aðgangs að umsögnum nánar tilgreindra stjórnvalda sem ríkislögmaður hafði aflað í tilefni af bótakröfu kærenda sem beint var að embættinu. Ákvörðun ríkislögmanns að synja beiðninni byggðist á því að gögnin væru bréfaskipti við sérfróðan aðila, sbr. 3. tölul. 6. gr. upplýsingalaga, nr. 140/2012. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi að samskipti stjórnvalds við ríkislögmann vegna könnunar á réttarstöðu eða vegna dómsmáls féllu undir framangreinda undanþágu í upplýsingalögum. Hins vegar voru kærendur taldir eiga rétt til aðgangs að fylgigögnum sem fylgdu einni umsögninni. Að öðru leyti var ákvörðun ríkislögmanns staðfest.
-
25. júní 2024 /1206/2024. Úrskurður frá 25. júní 2024
Deilt var um rétt kæranda til aðgangs að umsögnum nánar tilgreindra stjórnvalda sem ríkislögmaður hafði aflað í tilefni af bótakröfu kæranda sem beint var að embættinu. Ákvörðun ríkislögmanns að synja beiðninni byggðist á því að gögnin væru bréfaskipti við sérfróðan aðila, sbr. 3. tölul. 6. gr. upplýsingalaga, nr. 140/2012. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi að samskipti stjórnvalds við ríkislögmann vegna könnunar á réttarstöðu eða vegna dómsmáls féllu undir framangreinda undanþágu í upplýsingalögum. Ákvörðun ríkislögmanns var staðfest.
-
25. júní 2024 /1205/2024. Úrskurður frá 25. júní 2024
Deilt var um rétt kæranda til aðgangs meðal annars að gögnum um bótakröfu og bótagreiðslu sveitarfélags til einstaklings. Ákvörðun sveitarfélagsins að synja beiðninni byggðist fyrst og fremst á því að óheimilt væri að afhenda gögnin því þau vörðuðu einkamálefni einstaklingsins. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál fór yfir gögnin og taldi þau hafa að geyma upplýsingar um einkamálefni einstaklingsins sem sanngjarnt væri og eðlilegt að færu leynt. Var ákvörðun sveitarfélagsins því staðfest.
-
25. júní 2024 /Mál nr. 130/2024-Úrskurður
Staðfest ákvörðun Sjúkratrygginga Íslands um að synja kæranda um bætur úr sjúklingatryggingu.
-
25. júní 2024 /Mál nr. 154/2024 Úrskurður
Sjúklingatrygging. Staðfest ákvörðun Sjúkratrygginga Íslands um að synja um bætur samkvæmt lögum nr. 111/2000 um sjúklingatryggingu.
-
25. júní 2024 /Mál nr. 169/2024 - Úrskurður
Sjúklingatrygging. Staðfest ákvörðun Sjúkratrygginga Íslands um að synja um bætur samkvæmt lögum nr. 111/2000 um sjúklingatryggingu.
-
25. júní 2024 /Mál nr. 143/2024- Úrskurður
Sjúklingatrygging/örorka. Staðfest ákvörðun Sjúkratrygginga Íslands um varanlega örorku samkvæmt lögum nr. 111/2000 um sjúklingatryggingu.
-
25. júní 2024 /Mál nr. 109/2024 - Úrskurður
Sjúklingatrygging. Staðfest ákvörðun Sjúkratrygginga Íslands um að synja um bætur samkvæmt lögum nr. 111/2000 um sjúklingatryggingu.
-
25. júní 2024 /Mál nr. 205/2024-Úrskurður
Tannlækningar. Staðfest ákvörðun Sjúkratrygginga Íslands um að synja um greiðsluþátttöku í tannréttingum.
-
25. júní 2024 /Mál nr. 199/2024-Úrskurður
Tannlækningar. Staðfest ákvörðun Sjúkratrygginga Íslands um að synja um greiðsluþátttöku í tannlækningum.
-
25. júní 2024 /Mál nr. 198/2024-Úrskurður
Slysatrygging/örorka. Staðfest ákvörðun Sjúkratrygginga Íslands um varanlega læknisfræðilega örorku vegna slyss.
-
25. júní 2024 /Mál nr. 153/2024-Úrskurður
Slysatryggingar. Staðfest ákvörðun Sjúkratrygginga Íslands um að synja um bætur úr slysatryggingum almannatrygginga.
-
25. júní 2024 /Úrskurður 17/2024 Gildi ágreiningsseðla
Úrskurður um ágreiningsseðla úr Reykjavíkurkjördæmi norður við forsetakjör.
-
25. júní 2024 /Úrskurður 16/2024 Gildi ágreiningsseðla
Úrskurður um ágreiningsseðla úr Reykjavíkurkjördæmi suður við forsetakjör.
-
25. júní 2024 /Úrskurður 15/2024 Gildi áreiningsseðla
Úrskurður um ágreiningsseðil úr Norðvesturkjördæmi við forsetakjör.
-
24. júní 2024 /Matsmál nr. 4/2023, úrskurður 19. júní 2024
Vegagerðin ohf. gegn Víkingi P. Aðalsteinssyni
-
21. júní 2024 /Nr. 574/2024 Úrskurður
Ákvörðun Útlendingastofnunar í máli kæranda er varðar umsókn hans um alþjóðlega vernd er staðfest. Lagt er fyrir stofnunina að veita kæranda dvalarleyfi á grundvelli 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
-
21. júní 2024 /Mál nr. 218/2024-Úrskurður
Fjárhagsaðstoð. Felld úr gildi ákvörðun Reykjavíkurborgar um að synja kæranda um áframhaldandi fjárhagsaðstoð. Ekki lagt mat á raunverulegar aðstæður kæranda og möguleika til framfærslu.
-
21. júní 2024 /Mál nr. 178/2024-Úrskurður
Sorgarleyfi. Staðfestur útreikningur Vinnumálastofnunar á mánaðarlegum greiðslum til kæranda í sorgarleyfi.
-
20. júní 2024 /Nr. 664/2024 Úrskurður
Ákvarðanir Útlendingastofnunar um að synja umsóknum kærenda um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi af mannúðarástæðum ásamt því að brottvísa þeim frá Íslandi og ákveða endurkomubann er staðfest.
-
19. júní 2024 /Mál nr. 164/2024-Úrskurður
Örorka. Staðfest ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um að synja kæranda um örorkulífeyri. Ekki talið að endurhæfing hafi verið fullreynd.
-
19. júní 2024 /Nr. 663/2024 Úrskurður
Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja umsókn kæranda um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi af mannúðarástæðum ásamt því að brottvísa honum frá Íslandi og ákveða endurkomubann er staðfest.
-
19. júní 2024 /Nr. 621/2024 Úrskurður
Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja umsókn kæranda um dvalarskírteini fyrir aðstandanda EES- og EFTA-borgara, sbr. 2. mgr. 92. gr. laga um útlendinga, er staðfest. Felld er úr gildi ákvörðun Útlendingastofnunar um brottvísun og endurkomubann kæranda.
-
19. júní 2024 /Nr. 596/2024 Úrskurður
Ákvörðun Útlendingastofnunar um að fella niður dvalarrétt kæranda, sbr. 1. mgr. 92. gr. laga um útlendinga, er felld úr gildi.
-
19. júní 2024 /Mál nr. 162/2024-Úrskurður
Örorkumat. Staðfest ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um að synja kæranda um örorkulífeyri og tengdar greiðslur. Skilyrði 75% örorku samkvæmt örorkustaðli ekki uppfyllt.
-
19. júní 2024 /Mál nr. 160/2024-Úrskurður
Umönnunarmat. Staðfest ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um að ákvarða umönnun sonar kæranda samkvæmt 3. flokk, 35% greiðslur.
-
19. júní 2024 /Mál nr. 148/2024-Úrskurður
Örorkumat. Felld úr gildi ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um að synja kæranda um örorkulífeyri og tengdar greiðslur og vísað aftur til stofnunarinnar til mats á örorku. Að mati úrskurðarnefndar er frekari endurhæfing ekki raunhæf.
-
19. júní 2024 /Mál nr. 126/2024-Úrskurður
Örorkumat. Staðfest ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um að synja kæranda um örorkulífeyri. Ekki talið að endurhæfing hafi verið fullreynd.
-
19. júní 2024 /Nr. 636/2024 Úrskurður
Ákvörðun Útlendingastofnunar um brottvísun og endurkomubann kæranda, sbr. c-lið 1. mgr. 99. gr., sbr. 2. mgr. 101. gr. laga um útlendinga, er staðfest.
-
18. júní 2024 /Úrskurður nr. 5/2024 um ákvörðun Fiskistofu um sviptingu strandveiðileyfis í eina viku skv. 1. og 2. mgr. 15. gr. laga um umgengni um nytjastofna sjávar, nr. 57/1996.
Svipting strandveiðileyfis. Brottkast. Frestun réttaráhrifa. Viðurlög. Persónuvernd.
-
18. júní 2024 /Úrskurður nr. 4/2024 um ákvörðun Fiskistofu um að veita skriflega áminningu skv. 3. mgr. 15. gr. laga um umgengni um nytjastofna sjávar, nr. 57/1996.
Áminning. Vigtun. Skráning afla. Strandveiðar. Viðurlög.
-
18. júní 2024 /Úrskurður nr. 3/2024 um ákvörðun Fiskistofu að hafna beiðni um endurupptöku eða afturköllun ákvörðunar um skriflega áminningu vegna brota á 2. mgr. 2. gr. laga um umgengni um nytjastofna sjávar, nr. 57/1996.
Endurupptaka. Áminning. Brottkast. Frávísun. Persónuvernd.
-
-
14. júní 2024 /Nr. 645/2024 Úrskurður
Endurteknum umsóknum kærenda er vísað frá og kröfu kærenda um frestun réttaráhrifa er hafnað.
-
14. júní 2024 /Stjórnsýslukæra vegna ákvörðunar og framgöngu MAST um afhendingu hrúts
Stjórnsýslulög, reglugerð um útrýmingu á riðuveiki og bætur vegna niðurskurðar
-
13. júní 2024 /1204/2024. Úrskurður frá 13. júní 2024
Kærandi óskaði eftir upplýsingum um hvort Vestmannaeyjaferjan Herjólfur ohf. hefði gefið út mörg leyfi til undirmanna á Herjólfi til að stunda önnur launuð eða ólaunuð störf. Herjólfur synjaði beiðninni með vísan til þess að ekki væru veittar upplýsingar um starfssamband félagsins við starfsfólk þess. Í skýringum til úrskurðarnefndar um upplýsingamál kom fram að ekki lægi fyrir gagn með þeim upplýsingum sem kærandi óskaði eftir. Úrskurðarnefndin taldi samkvæmt þessu að ekki lægi fyrir ákvörðun sem kæranleg væri til nefndarinnar og staðfesti því ákvörðun Herjólfs.
-
13. júní 2024 /1203/2024. Úrskurður frá 13. júní 2024
Kærandi óskaði eftir upplýsingum um heildartölu úr bókhaldi Vestmannaeyjaferjunnar Herjólfs ohf. um sálfræðikostnað sem félagið hefði greitt árið 2023. Herjólfur synjaði beiðninni með vísan til þess að ekki væru veittar upplýsingar um starfssamband félagsins við starfsfólk þess. Í skýringum til úrskurðarnefndar um upplýsingamál kom fram að ekki lægi fyrir gagn með þeim upplýsingum sem kærandi óskaði eftir. Úrskurðarnefndin taldi samkvæmt þessu að ekki lægi fyrir ákvörðun sem kæranleg væri til nefndarinnar og staðfesti því ákvörðun Herjólfs.
-
13. júní 2024 /1202/2024. Úrskurður frá 13. júní 2024
Deilt var um rétt kæranda til aðgangs að upplýsingum varðandi innkaup ríkislögreglustjóra á skotvopnum, skotfærum og öðrum vörum í tengslum við leiðtogafund Evrópuráðsins sem fram fór á Íslandi í maí 2023. Ákvörðun ríkislögreglustjóra að synja beiðni kæranda um aðgang að upplýsingunum var byggð á 1. tölul. 10. gr. upplýsingalaga, nr. 140/2012, og 2. málsl. 9. gr. sömu laga. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál lagði fyrir ríkislögreglustjóra að taka að nýju til meðferðar og afgreiðslu þann hluta beiðninnar sem laut að upplýsingum um skotvopn og skotfæri. Þá taldi nefndin að kærandi ætti rétt til aðgangs að sölureikningum varðandi kaup á fatnaði, hjálmum og fylgibúnaði.
-
13. júní 2024 /1201/2024. Úrskurður frá 13. júní 2024
Deilt var um rétt kæranda til aðgangs að greinargerð fyrrverandi setts ríkisendurskoðanda um starfsemi Lindarhvols ehf. Fjármála- og efnahagsráðuneyti synjaði beiðni kæranda með vísan til þess að greinargerðin væri undirorpin þagnarskyldu og að án samþykkis Ríkisendurskoðunar væri ráðuneytinu óheimilt að afhenda hana kæranda. Eftir að kæra í málinu barst úrskurðarnefnd um upplýsingamál var greinargerðin birt af hálfu forsætisnefndar á vef Alþingis. Með vísan til þess taldi úrskurðarnefndin að þeir hagsmunir sem áður kynnu að hafa staðið afhendingu greinargerðarinnar í vegi væru niður fallnir og að ráðuneytinu bæri að afhenda hana kæranda.
-
13. júní 2024 /1200/2024. Úrskurður frá 13. júní 2024
Deilt var um rétt kæranda til aðgangs að umsögnum sem ríkislögmaður aflaði í tilefni af erindi til embættisins þar sem krafist var viðurkenningar á bótaskyldu. Ríkislögmaður synjaði beiðni kæranda með vísan til þess að gögnin teldust bréfaskipti við sérfróða aðila, sbr. 3. tölul. 6. gr. upplýsingalaga, nr. 140/2012. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi að umbeðnar umsagnir lytu að könnun á réttarstöðu hlutaðeigandi stjórnvalda vegna nærliggjandi möguleika á málshöfðun og að ríkislögmanni hefði þannig verið heimilt að takmarka aðgang kæranda að þeim. Ákvörðun ríkislögmanns var því staðfest.
-
12. júní 2024 /Mál nr. 118/2024 - Úrskurður
Lyfjaskírteini. Staðfest ákvörðun Sjúkratrygginga Íslands um að synja um útgáfu lyfjaskírteinis vegna lyfsins Baqsimi.
-
12. júní 2024 /Mál nr. 113/2024 - Úrskurður
Hjálpartæki. Felld úr gildi ákvörðun Sjúkratrygginga Íslands um að synja um styrk til kaupa á sérsmíðuðum skóm. Málinu vísað aftur til stofnunarinnar til nýrrar meðferðar.
-
12. júní 2024 /Mál nr. 175/2024-Úrskurður
Örorkumat. Staðfest ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um að synja umsókn kæranda um örorkulífeyri á þeim grundvelli hún uppfyllti ekki skilyrði 1. mgr. 24. gr. laga um almannatryggingar að hafa verið tryggð á landinu samfellt í að minnsta kosti þrjú ár.
Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.