Úrskurðir og álit
-
04. september 2019 /Nr. 173/2019 - Úrskurður
Sjúklingatrygging. Staðfest ákvörðun Sjúkratrygginga Íslands um synjun bóta úr sjúklingatryggingu. Úrskurðarnefnd velferðarmála taldi að fyrirliggjandi gögn bentu ekki til annars en að rannsókn og meðferð kæranda hafi verið hagað eins vel og unnt hefði verið og í samræmi við þekkingu og reynslu á viðkomandi sviði.
-
04. september 2019 /Nr. 88/2019 - Úrskurður
Sjúklingatrygging. Staðfest ákvörðun Sjúkratrygginga Íslands um bætur úr sjúklingatryggingu. Úrskurðarnefnd velferðarmála taldi tímabil þjáningabóta væri réttilega metið en ekki kom til greiðslu þar sem tjónið uppfyllti ekki skilyrði 1. málsl. 2. mgr, 5. gr. laga um sjúklingatryggingu um að tjónið nemi ákveðinni lágmarksfjárhæð.
-
04. september 2019 /Nr. 213/2019 - Úrskurður
Staðfestur úrskurður barnaverndarnefndar um umgengni kynmóður við dóttur hennar.
-
04. september 2019 /Nr. 176/2019 - Úrskurður
Staðfestur úrskurður barnaverndarnefndar um umgengni kynmóður við son hennar.
-
04. september 2019 /Nr. 138/2019 - Úrskurður
Staðfestur úrskurður barnaverndarnefndar um umgengni kynforeldra við son þeirra.
-
03. september 2019 /Nr. 262/2019 - Úrskurður
Ofgreiddar bætur. Staðfest ákvörðun Vinnumálastofnunar um innheimtu ofgreiddra bóta.
-
03. september 2019 /Nr. 237/2019 - Úrskurður
Virk atvinnuleit. Staðfest ákvörðun Vinnumálastofnunar um að hafna umsókn kæranda um atvinnuleysisbætur þar sem hún var skráð í nám.
-
03. september 2019 /Nr. 229/2019 - Úrskurður
Biðtími. Staðfest ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði. Starfi sagt upp án gildra ástæðna.
-
03. september 2019 /Nr. 228/2019 - Úrskurður
Biðtími. Staðfest ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði. Starfi sagt upp án gildra ástæðna.
-
03. september 2019 /Nr. 226/2019 - Úrskurður
Viðurlög. Ótilkynnt nám. Staðfest ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður bótarétt kæranda í tvo mánuði og innheimta ofgreiddar bætur.
-
-
03. september 2019 /Nr. 180/2019 - Úrskurður
Afturköllun. Staðfest ákvörðun Vinnumálastofnunar um að afturkalla fyrri ákvörðun um bótahlutfall kæranda.
-
03. september 2019 /Nr. 179/2019 - Úrskurður
Viðurlög. ótilkynnt vinna. Staðfest ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður bótarétt kæranda í tvo mánuði vegna ótilkynntrar vinnu. Felld úr gildi ákvörðun um endurgreiðslu ofgreiddra bóta og vísað til nýrrar afgreiðslu stofnunarinnar. Ekki rannsakað nægjanlega.
-
03. september 2019 /Nr. 171/2019 - Úrskurður
Viðurlög. Ítrekunaráhrif fyrri viðurlaga. Staðfest ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður bætur í tvo mánuði og innheimta ofgreiddar bætur vegna ótilkynntra tekna. Einnig staðfest ákvörðun stofnunarinnar um að synja umsókn kæranda um atvinnuleysisbætur með vísan til 61. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.
-
03. september 2019 /Nr. 168/2019 - Úrskurður
Bótahlutfall. Staðfest ákvörðun Vinnumálastofnunar um 60% bótahlutfall líkt og kærandi var reiðbúinn að ráða sig til.
-
02. september 2019 /Mál nr. 76/2019 Úrskurður 2. september 2019
Beiðni um eiginnafnið Illíes er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.
-
02. september 2019 /Mál nr. 75/2019 Úrskurður 2. september 2019
Fallist er á móðurkenningu Dönudóttir.
-
02. september 2019 /Mál nr. 74/2019 Úrskurður 2. september 2019
Beiðni um eiginnafnið Tófa er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.
-
02. september 2019 /Mál nr. 73/2019 Úrskurður 2. september 2019
Beiðni um eiginnafnið Gaston er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.
-
02. september 2019 /Mál nr. 72/2019 Úrskurður 2. september 2019
Beiðni um eiginnafnið Sezar er hafnað.
-
02. september 2019 /Mál nr. 70/2019 Úrskurður 2. september 2019
Beiðni um eiginnafnið Aryan er hafnað.
-
02. september 2019 /Mál nr. 69/2019 Úrskurður 2. september 2019
Beiðni um millinafnið Haukdal er hafnað.
-
02. september 2019 /Mál nr. 67/2019 Úrskurður 2. september 2019
Beiðni um eiginnafnið Catra er hafnað.
-
02. september 2019 /Mál nr. 60/2019 Úrskurður 2. september 2019
Beiðni um eiginnafnið Maia er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá sem ritháttur nafnsins Maja.
-
02. september 2019 /Mál nr. 58/2019 Úrskurður 2. september 2019
Beiðni um eiginnafnið Ursula er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá sem ritháttur nafnsins Úrsúla
-
30. ágúst 2019 /Mál nr. 4/2019 - Úrskurður
Jöfn meðferð á vinnumarkaði. Kröfur um íslenskukunnáttu í starfi.
-
28. ágúst 2019 /Nr. 415/2019 - Úrskurður
Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja um að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á grundvelli c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og senda hann til Svíþjóðar er felld úr gildi. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka mál kæranda til efnismeðferðar.
-
28. ágúst 2019 /Nr. 413/2019 - Úrskurður
Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja um að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á grundvelli c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og senda hann til Svíþjóðar er staðfest.
-
28. ágúst 2019 /Nr. 410/2019 - Úrskurður
Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja um að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á grundvelli c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og senda hann til Ítalíu er staðfest.
-
28. ágúst 2019 /Nr. 350/2019 - Úrskurður
Beiðni kærenda um endurupptöku er samþykkt. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka mál kærenda til efnismeðferðar.
-
28. ágúst 2019 /nr. 416/2019 Úrskurður
KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA Þann 28. ágúst 2019 er kveðinn upp svohljóðandi úrskurður nr. 416/2019 í stjórnsýslumáli nr. KNU19050046 Kæra [...] á ákvörðun Útlendingastofnunar I. Kröfur, kærufrestir o)...
-
28. ágúst 2019 /Nr. 406/2019 Úrskurður
Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja um að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á grundvelli a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og senda hann til Ítalíu er staðfest.
-
28. ágúst 2019 /Nr. 404/2019 Úrskurður
Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja beiðni kæranda um endurupptöku máls á grundvelli 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 er staðfest.
-
28. ágúst 2019 /Nr. 408/2019 Úrskurður
Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja um að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á grundvelli a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og senda hann til Ítalíu er staðfest.
-
28. ágúst 2019 /Nr. 198/2019 - Úrskurður
Örorkumat. Staðfest ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um að synja um örorkulífeyri og tengdar greiðslur. Skilyrði 75% örorku samkvæmt örorkustaðli ekki uppfyllt. Felld úr gildi synjun stofnunarinnar um greiðslu örorkustyrks og vísað aftur til stofnunarinnar til nýrrar meðferðar.
-
28. ágúst 2019 /Nr. 194/2019 - Úrskurður
Slysatrygging/örorka. Staðfest ákvörðun Sjúkratrygginga Íslands um 8% varanlega læknisfræðilega örorku vegna slyss.
-
28. ágúst 2019 /Nr. 186/2019 - Úrskurður
Slysatrygging/örorka. Staðfest ákvörðun Sjúkratrygginga Íslands um 0% varanlega læknisfræðilega örorku vegna slyss.
-
28. ágúst 2019 /Nr. 409/2019 Úrskurður
Beiðni kæranda um endurupptöku er samþykkt. Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja um að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á grundvelli c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og senda hann til Ítalíu er felld úr gildi. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka mál kæranda til efnismeðferðar.
-
28. ágúst 2019 /Nr. 412/2019 Úrskurður
Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja um að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á grundvelli c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og senda hann til Danmerkur er staðfest.
-
28. ágúst 2019 /Nr. 405/2019 Úrskurður
Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja umsókn kæranda um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi af mannúðarástæðum er staðfest.
-
28. ágúst 2019 /Nr. 387/2019 Úrskurður
Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja um að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á grundvelli a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og senda hann til Grikklands er staðfest.
-
28. ágúst 2019 /Nr. 216/2019 - Úrskurður
Örorkumat Staðfest ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um að synja kæranda um örorkulífeyri og tengdar greiðslur. Skilyrði 75% örorku samkvæmt örorkustaðli ekki uppfyllt. Felld úr gildi ákvörðun stofnunarinnar að synja kæranda um örorkustyrk. Fallist á að skilyrði örorkustyrks væru uppfyllt og málinu heimvísað til ákvörðunar á tímalengd örorkustyrks.
-
28. ágúst 2019 /Nr. 214/2019 - Úrskurður
Örorkumat Staðfest ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um að synja kæranda um örorkumat. Ekki talið að endurhæfing hafi verið fullreynd.
-
28. ágúst 2019 /Nr. 202/2019 - Úrskurður
Örorkumat Staðfest ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um að synja kæranda um örorkumat. Ekki talið að endurhæfing hafi verið fullreynd.
-
28. ágúst 2019 /Nr. 96/2019 - Úrskurður
Ekki fallist á að afgreiðsla máls hefði dregist óhæfilega, sbr. 4. mgr. 9. gr. stjórnsýslulaga.
-
28. ágúst 2019 /Nr. 162/2019 - Úrskurður
Staðfestur úrskurður barnaverndarnefndar um umgengni kynföður við son hans.
-
26. ágúst 2019 /Mál nr. 24/2019. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála.
Með kæru móttekinni hjá kærunefnd útboðsmála 6. ágúst 2019 kærir Almenna umhverfisþjónustan ehf. innkaup Grundafjarðarbæjar (hér eftir vísað til sem varnaraðila) á verki auðkennt „Steypt gata við G. Run – milli Nesvegar og Sólvalla“. Skilja verður kæru svo að þess sé krafist að sú ákvörðun varnaraðila að ganga til samninga við Þ.G. Þorkelsson verktaka ehf. um verkið sé ógild og að samið verði við kæranda. Auk þess er krafist málskostnaðar. Í þessum hluta málsins tekur kærunefnd útboðsmála afstöðu til þess hvort rétt sé að verða við kröfu kæranda um að stöðva samningsgerð um stundarsakir á meðan leyst er úr kæru þessari.
-
26. ágúst 2019 /Mál nr. 23/2019. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála
Með kæru móttekinni hjá kærunefnd útboðsmála 22. júlí 2019 kæra Hópferðabílar Reynis Jóhannssonar ehf. og Sigurður Sverrir Jónsson útboð Ríkiskaupa fyrir hönd Hvalfjarðarsveitar (hér eftir vísað til sem varnaraðila) nr. 20912 „Skólaakstur fyrir Hvalfjarðarsveit“. Kærendur krefjast þess að kærunefnd útboðsmála ógildi útboðið og geri varnaraðilum að auglýsa það að nýju. Þá er þess krafist að kærunefnd útboðsmála láti uppi álit sitt á skaðabótaskyldu varnaraðila gagnvart kærendum. Jafnframt er krafist málskostnaðar. Í þessum hluta málsins tekur kærunefnd útboðsmála afstöðu til þess hvort rétt sé að verða við kröfu varnaraðila um að aflétta sjálfkrafa stöðvun hins kærða innkaupaferlis sem komst á með kæru í máli þessu.
-
26. ágúst 2019 /Mál nr. 21/2019. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála.
Með kæru móttekinni hjá kærunefnd útboðsmála 11. júlí 2019 kærir Jökulfell ehf. samningskaup RARIK auðkennd „Hitaveita RARIK í Hornafirði – Lagning stofnpípu frá Hoffelli og að kyndistöð á Höfn“. Kærandi krefst þess að kærunefnd útboðsmála felli úr gildi ákvörðun varnaraðila RARIK (hér eftir vísað til sem varnaraðila) um að ganga til samningskaupa við Rósaberg ehf. um fyrrnefnt verk og að lagt verði fyrir RARIK að auglýsa verkið að nýju. Til vara er þess krafist að fyrrnefnd ákvörðun verði ógilt og að tilboð sem bárust utan tilboðsfrests verði metin ógild. Þá er þess krafist að kærunefnd útboðsmála láti uppi álit sitt á skaðabótaskyldu varnaraðila gagnvart kæranda. Jafnframt er krafist málskostnaðar. Í þessum hluta málsins tekur kærunefnd útboðsmála afstöðu til þess hvort rétt sé að stöðva hið kærða innkaupaferli þar til endanlega verður leyst úr málinu.
-
22. ágúst 2019 /Nr. 394/2019 Úrskurður
Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja umsókn kæranda um ótímabundið dvalarleyfi á grundvelli 58. gr. laga um útlendinga er staðfest.
-
22. ágúst 2019 /Nr. 403/2019 Úrskurður
Ákvörðun Útlendingastofnunar um að brottvísa kæranda frá Íslandi er staðfest. Endurkomubann kæranda er ákveðið tvö ár.
-
22. ágúst 2019 /Nr. 393/2019 Úrskurður
Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja umsókn kæranda um dvalarleyfi á grundvelli 58. gr. laga um útlendinga er staðfest.
-
22. ágúst 2019 /Nr. 392/2019 Úrskurður
Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja umsókn kæranda um dvalarleyfi á grundvelli 58. gr. laga um útlendinga er staðfest.
-
22. ágúst 2019 /Nr. 399/2019 Úrskurður
Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja umsókn kærenda um dvalarleyfi á grundvelli 78. gr. laga um útlendinga er felld úr gildi. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að veita kærendum dvalarleyfi á grundvelli 78. gr. laga um útlendinga, að uppfylltum skilyrðum 55. gr. laganna.
-
22. ágúst 2019 /Nr. 313/2019 Úrskurður
Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja umsókn kæranda um dvalarleyfi á grundvelli 70. gr. laga um útlendinga er felld úr gildi. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka mál kæranda til nýrrar meðferðar.
-
21. ágúst 2019 /Nr. 286/2019 - Úrskurður
Formannmarki. Kæru vísað frá þar sem kærandi hafði óskað eftir endurupptöku málsins hjá Sjúkratryggingum Íslands áður en kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála.
-
21. ágúst 2019 /Nr. 252/2019 - Úrskurður
Kærufrestur. Kæru vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála þar sem kærufrestur var liðinn. Ekki var talið afsakanlegt að kæran barst ekki fyrr eða að veigamiklar ástæður mæltu með því að kæran yrði tekin til meðferðar.
-
21. ágúst 2019 /Nr. 189/2019 - Úrskurður
Umönnunarmat. Staðfest ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um að fella umönnun dóttur kæranda undir 3. flokk, 35% greiðslur.
-
21. ágúst 2019 /Nr. 167/2019 - Úrskurður
Umönnunarmat. Staðfest ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um að fella umönnun vegna dóttur kærenda undir 4. flokk, 25% greiðslur.
-
21. ágúst 2019 /Nr. 113/2019 - Úrskurður
Ferðakostnaður innanlands. Staðfest ákvörðun Sjúkratrygginga Íslands um að synja kæranda um greiðsluþátttöku í ferðakostnaði innanlands. Skilyrði undantekningarákvæðis 2. mgr. 2. gr. reglugerðar nr. 871/2004 ekki talið uppfyllt.
-
21. ágúst 2019 /Nr. 197/2019 - Úrskurður
Umönnunarmat. Staðfest ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um að ákvarða umönnun sonar kæranda samkvæmt 5. flokki, 0% greiðslur.
-
21. ágúst 2019 /Nr. 181/2019 - Úrskurður
Örorkumat Staðfest ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um að synja kæranda um örorkumat. Ekki talið að endurhæfing hafi verið fullreynd.
-
21. ágúst 2019 /Nr. 164/2019 - Úrskurður
Uppbót/styrkur til bifreiðakaupa. Staðfest ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um að synja kæranda um uppbót/styrk til bifreiðakaupa. Skilyrði um hreyfihömlun samkvæmt 10. gr. laga nr. 99/2007 ekki uppfyllt.
-
20. ágúst 2019 /812/2019. Úrskurður frá 23. júlí 2019
Seðlabanki Íslands krafðist þess að réttaráhrifum úrskurðar úrskurðarnefndar nr. 810/2019 yrði frestað með vísan til 1. mgr. 24. gr. upplýsingalaga, nr. 140/2012, enda hygðist bankinn bera úrskurðinn undir dómstóla. Krafa Seðlabanka Íslands byggði m.a. á því að birting skjalsins, sem fallist var á aðgang að í úrskurðinum, kynni að skerða með óbætanlegum hætti annars vegar orðspor bankans og hins vegar nánar tilgreinds starfsmanns. Að auki teldi bankinn mikilvægt að fá úrlausn dómstóla um skýringu á 7. gr. upplýsingalaga, en úrskurðarframkvæmd nefndarinnar væri reikul við skýringu á því hvað félli undir orðalagið „starfssambandið að öðru leyti“ í 7. gr. upplýsingalaga. Úrskurðarnefnd tók fram að ekki yrði séð að dómstólar hefðu tekið afstöðu til sambærilegs ágreinings og leyst var úr í úrskurðinum, og kynni því að vera ástæða til þess að bera ágreining um túlkun framangreinds ákvæðis upplýsingalaga undir dómstóla. Í því samhengi tók nefndin þó fram að enda þótt einhver þróun kynni að hafa átt sér stað í túlkun hennar á 7. gr. upplýsingalaga teldi hún ekki augljóst að eldri úrskurðarframkvæmd hefði leitt til þess að synjun Seðlabankans á umbeðnu gagni hefði verið staðfest. Með vísan til vafa um túlkun á 7. gr. laganna og hagsmuna bankans taldi nefndin rétt, eins og á stæði, að fresta réttaráhrifum úrskurðarins.
-
-
-
15. ágúst 2019 /Úrskurður nr. 7/2019
Kærð var ákvörðun Embættis landlæknis sem synjaði kæranda um starfsleyfi sem sjúkraliði. Ráðuneytið staðfesti ákvörðun embættisins.
-
15. ágúst 2019 /Nr. 246/2019 - Úrskurður
Málefni fatlaðra. Ekki fallist á beiðni um að fresta réttaráhrifum ákvörðunar Byggðasamlags Vestfjarða um breytingu á skammtímavistun kæranda.
-
15. ágúst 2019 /Nr. 157/2019 - Úrskurður
Félagslegt leiguhúsnæði. Staðfest ákvörðun Kópavogsbæjar um að segja upp húsaleigusamningi við kæranda þar sem hann upplýsti ekki um eignir sínar.
-
15. ágúst 2019 /Nr. 150/2019 - Úrskurður
Málefni fatlaðra. Staðfest synjun Reykjavíkurborgar á umsókn kæranda um sérmerkt bifreiðastæði fyrir hreyfihamlaða. Læknisfræðileg skilyrði ekki uppfyllt.
-
15. ágúst 2019 /Nr. 141/2019 - Úrskurður
Sérstakar húsaleigubætur. Staðfest synjun Reykjavíkurborgar um greiðslu sérstakra húsaleigubóta aftur í tímann. Ekki fallist á að í matsviðmiðum Reykjavíkurborgar fælist ólögmæt mismunun.
-
15. ágúst 2019 /Nr. 140/2019 - Úrskurður
Sérstakar húsaleigubætur. Staðfest synjun Reykjavíkurborgar um greiðslu sérstakra húsaleigubóta aftur í tímann. Ekki fallist á að í matsviðmiðum Reykjavíkurborgar fælist ólögmæt mismunun.
-
15. ágúst 2019 /Nr. 120/2019 - Úrskurður
Sérstakur húsnæðisstuðningur. Felld úr gildi synjun Kópavogsbæjar á umsókn um sérstakan húsnæðisstuðning. Skyldubundið mat Kópavogsbæjar afnumið með reglu 2. mgr. 1. gr. reglna sveitarfélagsins um sérstakan húsnæðisstuðning.
-
14. ágúst 2019 /Nr. 389/2019 Úrskurður
Ákvarðanir Útlendingastofnunar um að synja um að taka umsóknir kærenda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á grundvelli a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og endursenda þau til Grikklands eru staðfestar.
-
14. ágúst 2019 /Nr. 196/2019 - Úrskurður
Slysatrygging. Staðfest ákvörðun Sjúkratrygginga Íslands um synjun á bótskyldu vegna slyss. Úrskurðarnefndin fellst ekki á að það frávik á leið kæranda til vinnu að ganga inn á skólalóð C teldist liður í nauðsynlegri ferð hennar á milli heimilis og vinnustaðar.
-
14. ágúst 2019 /Nr. 187/2019 - Úrskurður
Ellilífeyrir. Staðfest ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um að synja kæranda um greiðslu ellilífeyris fyrir 67 ára aldur. Kærandi var ekki talin uppfylla skilyrði 5. mgr. 17. gr. laga um almannatryggingar um að samþykkt hafi verið umsókn um áunnin réttindi hjá öllum skyldubundnum atvinnutengdum lífeyrissjóðum.
-
14. ágúst 2019 /Nr. 175/2019 - Úrskurður
Meðlag. Staðfest ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um stöðvun á greiðslu meðlags til A, fyrir tímabilið X 2017 til X 2018. Kæra á ákvörðun Tryggingastofnunar um endurkröfu vegna ofgreidds meðlags vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála og framsend félagsmálaráðuneytinu.
-
14. ágúst 2019 /Nr. 144/2019 - Úrskurður
Ellilífeyrir. Staðfest ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um að synja kæranda um greiðslu ellilífeyris fyrir 67 ára aldur. Skilyrði 5. mgr. 17. gr. laga um almannatryggingar, um að samþykkt hafi verið umsókn um áunnin réttindi hjá öllum skyldubundnum atvinnutengdum lífeyrissjóðum, ekki talið uppfyllt.
-
14. ágúst 2019 /Nr. 117/2019 - Úrskurður
Örorkumat. Felld úr gildi ákvörðun Sjúkratrygginga Íslands um að synja kæranda um mat á varanlegri örorku og vísað aftur til stofnunarinnar til nýrrar meðferðar. Sjúkratryggingum Íslands var ekki heimilt að synja kæranda um mat á varanlegri örorku með vísan til 14. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar.
-
14. ágúst 2019 /Nr. 386/2019 Úrskurður
Ákvarðanir Útlendingastofnunar um að synja um að taka umsóknir kærenda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á grundvelli c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og senda þau til Frakklands eru staðfestar.
-
14. ágúst 2019 /Nr. 388/2019 Úrskurður
Ákvarðanir Útlendingastofnunar um að synja um að taka umsóknir kærenda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á grundvelli a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og endursenda þau til Grikklands eru staðfestar.
-
-
-
-
-
-
-
-
14. ágúst 2019 /Nr. 215/2019 - Úrskurður
Meðlag. Staðfest ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um að hafa milligöngu um meðlagsgreiðslur til barnsmóður kæranda. Lögformleg meðlagsákvörðun lá fyrir.
-
-
14. ágúst 2019 /Nr. 177/2019 - Úrskurður
Heimilisuppbót Felld úr gildi ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um að synja kæranda um heimilisuppbót og málinu heimvísað til frekari rannsóknar. Tilefni til að rannsaka nánar hvort að kærandi uppfyllti undantekningarákvæði 8. gr. reglugerðar nr. 1200/2018.
-
09. ágúst 2019 /Nr. 145/2019 - Úrskurður
Staðfest ákvörðun umboðsmanns skuldara Dvöl kæranda erlendis er nú orðin það löng, eða á níunda ár, að hún geti ekki lengur fallið undir undanþáguákvæði a-liðar 4. mgr. 2. gr. laga nr. 101/2010 um greiðsluaðlögun einstaklinga.
-
09. ágúst 2019 /Nr. 156/2019 - Úrskurður
Staðfest ákvörðun umboðsmanns skuldara um að synjað um heimild til að leita greiðsluaðlögunar. Skuldari hafi stofnað til skuldbindinga sem hún var greinilega ófær um að standa við samkvæmt b-lið 2. mgr. 6. gr. lge. Einnig hafi skuldari hagaði fjármálum sínum á verulega ámælisverðan hátt samkvæmt c-lið 2. mgr. 6. gr. lge.
-
09. ágúst 2019 /Nr. 190/2019 - Úrskurður
Staðfest ákvörðun umboðsmanns skuldara um að fella niður greiðsluaðlögunarumleitanir kæranda á þeim grundvelli að hún hafi af ráðnum hug eða með grófri vanrækslu veitt rangar eða villandi upplýsingar um aðstæður sem eru mikilsverðar í málinu skv. 1. mgr. 6. gr. lge.
-
08. ágúst 2019 /Nr. 379/2019 Úrskurður
Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja umsókn kæranda um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi af mannúðarástæðum er staðfest.
-
08. ágúst 2019 /Úrskurður nr. 385/2019
Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja umsókn kæranda um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi af mannúðarástæðum er staðfest.
-
08. ágúst 2019 /Nr. 380/2019 Úrskurður
Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja umsókn kæranda um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi af mannúðarástæðum er staðfest.
-
08. ágúst 2019 /Nr. 381/2019 Úrskurður
Ákvarðanir Útlendingastofnunar um að synja um að taka umsóknir kærenda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á grundvelli c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og senda þau til Portúgals eru staðfestar.
-
08. ágúst 2019 /Nr. 328/2019 Úrskurður
Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja umsókn kæranda um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi af mannúðarástæðum ásamt því að vísa honum frá Íslandi er staðfest.
-
08. ágúst 2019 /Nr. 382/2019 - Úrskurður
Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja um að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á grundvelli c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og senda hann til Portúgals er staðfest. Felld er úr gildi ákvörðun Útlendingastofnunar um frávísun.
-
08. ágúst 2019 /Nr. 383/2019 - Úrskurður
Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja um að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á grundvelli a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og endursenda hann til Möltu er staðfest.
-
-
07. ágúst 2019 /Mál nr. 53/2019 úrskurður 7. ágúst 2019
Beiðni um millinafnið Ljónshjarta er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.
-
07. ágúst 2019 /Mál nr. 52/2019 úrskurður 7. ágúst 2019
Beiðni um eiginnafnið Mordekaí er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.
-
07. ágúst 2019 /Mál nr. 55/2019 úrskurður 7. ágúst 2019
Beiðni um eiginnafnið Frostúlfur er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.
-
07. ágúst 2019 /Mál nr. 51/2019 úrskurður 7. ágúst 2019
Beiðni um eiginnafnið Brandr er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá sem ritmynd nafnsins Brandur.
-
07. ágúst 2019 /Mál nr. 71/2019 úrskurður 7. ágúst 2019
Beiðni um eiginnafnið Rúnel er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.
-
07. ágúst 2019 /Mál nr. 68/2019 úrskurður 7. ágúst 2019
Beiðni um millinafnið Grjótgarð er samþykkt.
-
07. ágúst 2019 /Mál nr. 48/2019 úrskurður 7. ágúst 2019
Beiðni um millinafnið Vatneyrr er hafnað. Beiðni um millinafnið Vatneyr er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.
-
07. ágúst 2019 /Mál nr. 66/2019 úrskurður 7. ágúst 2019
Beiðni um eiginnafnið Dynja er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.
-
-
07. ágúst 2019 /Mál nr. 64/2019 úrskurður 7. ágúst 2019
Beiðni um eiginnafnið Ynda er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.
-
07. ágúst 2019 /Mál nr. 63/2019 úrskurður 7. ágúst 2019
Beiðni um eiginnafnið Kiddi er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.
-
-
07. ágúst 2019 /Mál nr. 57/2019 úrskurður 7. ágúst 2019
Beiðni um eiginnafnið Maya er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.
-
-
07. ágúst 2019 /Úrskurður í máli nr. SRN18050079
Samgöngustofa: Felld úr gildi ákvörðun um að akstur sé skilgreindur sem farþegaflutningar í atvinnuskyni og því leyfisskyldur.
-
02. ágúst 2019 /Úrskurður vegna ákvörðunar Sýslumannsins á Norðurlandi eystra um að synja kæranda um rekstrarleyfi í flokki II og framlengingu bráðabirgðaleyfis með framlengdum gildistíma.
Synjun um útgáfu rekstrarleyfis. Framlenging bráðabirgðaleyfis. Frávísun. Rekstrarleyfi í flokki II. Lögvarðir hagsmunir.
-
01. ágúst 2019 /Ákvörðun sveitarfélags um að fallast á beiðni barnsmóður um tímabundna skólavist
Ár 2019, fimmtudaginn 1. ágúst, var kveðinn upp í mennta- og menningarmálaráðuneytinu svofelldur úrskurður
-
30. júlí 2019 /Mál nr. 15/2019. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála.
Með kæru 12. júní 2019 kærði Mannverk ehf. útboð Mosfellsbæjar „Helgafellsskóli nýbygging, 2.-3. áfangi“. Kærandi gerir aðallega þá kröfu að felld verði úr gildi ákvörðun varnaraðila Mosfellsbæjar (hér eftir vísað til sem varnaraðila) um að velja tilboð Flotgólfa ehf. og Eignarhaldsfélagsins Á.D. ehf. í hinu kærða útboði. Þá er gerð krafa um að kærunefnd útboðsmála láti uppi álit sitt á skaðabótaskyldu varnaraðila gagnvart kæranda og að varnaraðila verði gert að greiða kæranda málskostnað. Í þessum þætti málsins tekur nefndin afstöðu til kröfu kæranda um stöðvun samningsgerðar, en úrlausn málsins bíður að öðru leyti endanlegs úrskurðar. Undir rekstri málsins óskaði kærunefnd útboðsmála eftir frekari upplýsingum frá varnaraðila.
-
30. júlí 2019 /Mál nr. 18/2019. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála.
Með kæru móttekinni hjá kærunefnd útboðsmála 25. júní 2019 kærir Tyrfingsson ehf. útboð Reykjavíkurborgar f.h. Strætó bs. (hér eftir vísað til sameiginlega sem varnaraðila) nr. 14403 auðkennt „Purchase of Hydrogen Buses.“ Kærandi krefst þess aðallega að kærunefnd útboðsmála felli úr gildi ákvörðun varnaraðila 5. júní 2019 um að hafna tilboði kæranda í hinu kærða útboði. Til vara er þess krafist að kærunefnd láti uppi álit sitt á skaðabótaskyldu varnaraðila gagnvart kæranda samkvæmt 2. mgr. 111. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup. Jafnframt er krafist málskostnaðar. Í þessum hluta málsins tekur kærunefnd útboðsmála afstöðu til þess hvort rétt sé að verða við kröfu kæranda um að stöðva hið kærða útboð þar til endanlega hefur verið leyst úr kærunni.
-
30. júlí 2019 /Mál nr. 17/2019. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála.
Með kæru 21. júní 2019 kærðu Þ.S. Verktakar ehf. útboð Vegagerðarinnar „Dettifossvegur (862-02) Hólmatungur – Ásheiði“. Kærandi gerir aðallega þá kröfu að felld verði úr gildi ákvörðun varnaraðila Vegagerðarinnar (hér eftir vísað til sem varnaraðila) að velja tilboð G. Hjálmarssonar hf. í hinu kærða útboði. Til vara er þess krafist að kærunefnd útboðsmála láti uppi álit sitt á skaðabótaskyldu varnaraðila gagnvart kæranda. Í báðum tilvikum er þess einnig krafist að varnaraðila verði gert að greiða kæranda málskostnað. Kæra barst innan biðtíma samkvæmt 1. mgr. 86. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup og leiddi þannig til sjálfkrafa stöðvunar samningsgerðar samkvæmt 1. mgr. 107. gr. laganna. Í þessum þætti málsins tekur nefndin afstöðu til kröfu kæranda um stöðvun samningsgerðar en úrlausn málsins bíður að öðru leyti endanlegs úrskurðar.
-
30. júlí 2019 /Mál nr. 16/2019. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála.
Með kæru móttekinni hjá kærunefnd útboðsmála 14. júní 2019 kærir Malbikun Akureyrar ehf. útboð Vegagerðarinnar auðkennt „Yfirlagnir á Norður- og Austursvæði 2019 - malbik“. Kærandi krefst þess að kærunefnd útboðsmála felli úr gildi ákvörðun varnaraðila um að hefja samningaviðræður við Finn ehf. um hið útboðna verk. Jafnframt er þess krafist að „úrskurðað verði að kærði Vegagerðin skuli ganga til samninga við kæranda“ um hið útboðna verk, en til vara „að úrskurðað verði að verkið skuli boðið út að nýju.“ Til vara er þess krafist að kærunefnd útboðsmála láti uppi álit sitt á skaðabótaskyldu varnaraðila gagnvart kæranda. Jafnframt er krafist málskostnaðar. Í þessum hluta málsins tekur kærunefnd útboðsmála afstöðu til þess hvort rétt sé að verða við kröfu varnaraðila um að aflétta sjálfkrafa stöðvun hins kærða innkaupaferlis sem komst á með kæru í máli þessu.
-
-
26. júlí 2019 /Ákvörðunar Byggðastofnunar um að hafna umsókn kæranda um úthlutun aflamarks samkvæmt 10. gr. a í lögum nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum.
Aflaheimildir Byggðastofnunar - Ákvörðun felld úr gildi - Stjórnvaldsákvörðun - Málsmeðferð.
-
25. júlí 2019 /Nr. 369/2019 - Úrskurður
Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja um að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á grundvelli a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og senda hann til Grikklands er felld úr gildi. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka umsókn kæranda til efnismeðferðar.
-
25. júlí 2019 /Nr. 368/2019 - Úrskurður
Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja um að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á grundvelli a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og senda hann til Grikklands er felld úr gildi. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka umsókn kæranda til efnismeðferðar.
-
25. júlí 2019 /Nr. 359/2019 - Úrskurður
Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja umsókn kæranda um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi af mannúðarástæðum er staðfest.
-
25. júlí 2019 /Nr. 360/2019 - Úrskurður
Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja umsókn kæranda um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi af mannúðarástæðum er staðfest.
-
25. júlí 2019 /Nr. 362/2019 - Úrskurður
Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja um að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á grundvelli c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og senda hann til Póllands er staðfest.
-
25. júlí 2019 /Nr. 364/2019 Úrskurður
Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja um að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á grundvelli c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og senda hann til Bretlands er staðfest.
-
25. júlí 2019 /Nr. 347/2019 Úrskurður
Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja um að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á grundvelli c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga
-
25. júlí 2019 /Nr. 363/2019 Úrskurður
Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja um að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á grundvelli c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og senda hann til Póllands er staðfest.
-
25. júlí 2019 /Nr. 367/2019 Úrskurður
Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja umsókn kærenda um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi af mannúðarástæðum er staðfest.
-
-
22. júlí 2019 /Mál nr. 62/2019 úrskurður 22. júlí 2019
Beiðni um eiginnafnið Mariska er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.
-
22. júlí 2019 /Mál nr. 61/2019 úrskurður 22. júlí 2019
Beiðni um eiginnafnið Varmi er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.
-
18. júlí 2019 /Nr. 351/2019 Úrskurður
Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja umsókn kæranda um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi af mannúðarástæðum er staðfest.
-
18. júlí 2019 /Nr. 346/2019 Úrskurður
Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja um að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á grundvelli a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og endursenda hann til Ítalíu er staðfest.
-
18. júlí 2019 /Nr. 354/2019 Úrskurður
Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja kæranda um dvalarleyfi á grundvelli 73. gr. laga um útlendinga er staðfest.
-
18. júlí 2019 /Nr. 353/2019
Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja kæranda um dvalarleyfi á grundvelli 73. gr. laga um útlendinga er staðfest.
-
18. júlí 2019 /Nr. 352/2019 Úrskurður
Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja kæranda um dvalarleyfi á grundvelli 73. gr. laga um útlendinga er staðfest.
-
18. júlí 2019 /Nr. 348/2019 Úrskurður
Beiðni kæranda og barna hennar um endurupptöku máls fyrir kærunefnd á grundvelli 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 er hafnað.
-
18. júlí 2019 /Nr. 349/2019 - Úrskurður
Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja um að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á grundvelli a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og senda hann til Grikklands er staðfest.
-
18. júlí 2019 /Nr. 357/2019 Úrskurður
Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja umsókn kæranda um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi af mannúðarástæðum er staðfest.
-
18. júlí 2019 /Nr. 335/2019 - Úrskurður
Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja um að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á grundvelli a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og endursenda hann til Möltu er staðfest.
-
17. júlí 2019 /Ákvörðun Fiskistofu annars vegar að svipta skipið [S] leyfi til veiða í atvinnuskyni í eina viku og hins vegar að draga 286 kg af þorski frá aflamarki skipsins.
Svipting leyfis til veiða í atvinnuskyni - Leiðrétting á aflaskráningu - Veiðieftirlitsmaður Fiskistofu - Mæling á undirmáli í afla.
-
17. júlí 2019 /Mál nr. 24/2018. Úrskurður kærunefndar útboðsmála.
Með kæru 13. nóvember 2018 kærði Hugvit hf. samkeppnisútboð Ríkiskaupa fyrir hönd Háskóla Íslands nr. 20724 „Mála- og skjalakerfi fyrir Háskóla Íslands“. Kærandi gerir aðallega þá kröfu að felldar verði úr gildi ákvarðanir varnaraðila Ríkiskaupa og Háskóla Íslands (hér eftir vísað til sem „varnaraðila“) um að velja tilboð Spektra ehf. og varnaraðilum verði gert að velja tilboð kæranda. Til vara er þess krafist að útboðið verði fellt úr gildi og varnaraðilum gert að auglýsa það að nýju. Til þrautavara er þess krafist að samningur varnaraðila við Spektra ehf. verði lýstur óvirkur. Einnig er gerð krafa um að kærunefnd útboðsmála láti uppi álit sitt á skaðabótaskyldu varnaraðila gagnvart kæranda og að varnaraðilum verði gert að greiða kæranda málskostnað. Varnaraðila var kynnt kæran og gefinn kostur á að gera athugasemdir. Greinargerðir varnaraðila bárust kærunefnd útboðsmála 23. nóvember 2018 og 28. janúar 2019 þar sem þess var krafist að öllum kröfum kæranda yrði vísað frá eða hafnað. Spektra ehf. var gefinn kostur á að koma að athugasemdum og bárust þær 23. nóvember 2018. Kærandi sendi athugasemdir vegna greinargerða varnaraðila 20. febrúar 2019.
-
17. júlí 2019 /Mál nr. 15/2018. Úrskurður kærunefndar útboðsmála.
Með kæru 8. september 2018 kærði Fastus ehf. útboð Ríkiskaupa fyrir hönd Landspítala nr. 20678 um blóðflögutæki („Automated continuous microbal detection system and consumables for detecting the presence or absence of microorganisms in blood and sterile body fluids“). Kærandi gerir aðallega þá kröfu að felld verði úr gildi ákvörðun varnaraðila Ríkiskaupa og Landspítala (hér eftir vísað til sem varnaraðila) um að velja tilboð Medor ehf. í hinu kærða útboði og lagt verði fyrir varnaraðila að velja tilboð að nýju. Til vara gerir kærandi þá kröfu að kærunefnd útboðsmála láti uppi álit sitt á skaðabótaskyldu varnaraðila gagnvart kæranda. Þá er einnig gerð sú krafa að varnaraðila verði gert að greiða kæranda málskostnað. Varnaraðilum var kynnt kæran og gefinn kostur á að gera athugasemdir. Greinargerðir varnaraðila bárust kærunefnd útboðsmála 24. og 25. september 2018 þar sem þess var krafist að öllum kröfum kæranda yrði hafnað og kæranda gert að greiða málskostnað. Kærunefndin óskaði eftir viðbótarskýringum um mat tilboða frá varnaraðila og bárust þær 30. október 2018. Kærandi sendi athugasemdir vegna greinargerða varnaraðila 20. desember 2018.
-
17. júlí 2019 /Mál nr. 4/2019. Úrskurður kærunefndar útboðsmála.
Með kæru móttekinni hjá kærunefnd útboðsmála 6. mars 2019 kærði Fornleifastofnun Íslands ses. útboð Framkvæmdasýslu ríkisins f.h. forsætisráðuneytisins (hér eftir vísað sameiginlega til sem „varnaraðila“) nr. 20869 auðkennt „Lóð við stjórnarráðshúsið Lækjargötu 1. Fornleifagröftur“. Kærandi krefst þess að kærunefnd útboðsmála felli úr gildi ákvörðun varnaraðila um val á tilboði Hellu og lagna ehf. í hinu kærða útboði.
-
17. júlí 2019 /Mál nr. 1/2019. Úrskurður kærunefndar útboðsmála.
Með kæru 21. janúar 2019 kærði Sanmar denizcilik makina ve ticaret a.s. ákvörðun Faxaflóahafna sf. um að taka tilboði Damen Shipyards Gorincherm B.V í útboðinu „Tender for tug boat for Faxaflóahafnir sf – Associated Icelandic Ports Iceland“. Kærandi gerir aðallega þá kröfu að felld verði úr gildi ákvörðun Faxaflóahafna sf. (hér eftir vísað til sem varnaraðila) um að velja tilboð Damen Shipyards Gorincherm B.V í hinu kærða útboði og lagt verði fyrir varnaraðila að gera ný útboðsgögn. Til vara er gerð krafa um að kærunefnd útboðsmála láti uppi álit sitt á skaðabótaskyldu varnaraðila gagnvart kæranda og í öllum tilvikum að varnaraðila verði gert að greiða kæranda málskostnað. Varnaraðila var kynnt kæran og gefinn kostur á að gera athugasemdir. Greinargerð varnaraðila barst kærunefnd útboðsmála 8. febrúar 2019 þar sem þess var aðallega krafist að öllum kröfum kæranda yrði vísað frá en til vara að þeim yrði hafnað. Kærandi sendi athugasemdir vegna greinargerðar varnaraðila 5. mars 2019.
-
15. júlí 2019 /810/2019. Úrskurður frá 3. júlí 2019
Kærð var ákvörðun Seðlabanka Íslands um að synja beiðni blaðamanns um aðgang að samningi bankans við starfsmann um námsleyfi og styrk til náms. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál féllst ekki á það að upplýsingarnar yrðu felldar undir þagnarskylduákvæði 35. gr. laga um Seðlabanka Íslands nr. 36/2001. Þá féllst nefndin ekki á að upplýsingarnar vörðuðu starfssamband bankans og fyrrum starfsmanns bankans, sbr. 7. gr. upplýsingalaga. Að lokum var ekki fallist á að upplýsingarnar vörðuðu einka- og fjárhagsmálefni einstaklings sem eðlilegt og sanngjarnt væri að leynt færu, sbr. 9. gr. upplýsingalaga. Var því lagt fyrir Seðlabanka Íslands að veita kæranda aðgang að samningnum.
-
15. júlí 2019 /811/2019. Úrskurður frá 3. júlí 2019
Deilt var um rétt kæranda til aðgangs að skjali um efnahagsleg áhrif af mögulegri rekstrarstöðvun WOW Air hjá fjármála- og efnahagsráðuneytinu. Beiðni kæranda var synjað á grundvelli 1. tölul. 6. gr. upplýsingalaga þar sem það hefði verið tekið saman fyrir fund ráðherranefndar. Að mati úrskurðarnefndar bar skjalið það ótvírætt með sér að hafa verið tekið saman fyrir ráðherranefnd. Vegna þessa taldi úrskurðarnefnd að fjármála- og efnahagsráðuneytinu hefði verið heimilt að synja kæranda um aðgang að skjalinu á grundvelli 1. tölul. 6. gr. upplýsingalaga. Með vísan til framangreinds varð ekki hjá því komist að staðfesta ákvörðun fjármála- og efnahagsráðuneytisins um að synja beiðni kæranda um aðgang að skjalinu.
-
15. júlí 2019 /809/2019. Úrskurður frá 3. júlí 2019
Deilt var um afgreiðslu Lindarhvols ehf. á beiðni Frigus II ehf. um upplýsingar um stjórnarfundi Lindarhvols á tímabilinu 27. apríl 2016 til loka árs 2016. Synjun Lindarhvols var byggð á því að beiðni kæranda hefði ekki verið afmörkuð með fullnægjandi hætti, sbr. 1. mgr. 15. gr. upplýsingalaga. Að mati úrskurðarnefndar um upplýsingamál laut beiðni kæranda að tilgreindum upplýsingum með nægilega skýrum hætti til þess að hægt væri, án verulegrar fyrirhafnar, að afmarka hana við tiltekin gögn. Þannig hefðu skilyrði 1. mgr. 15. gr. upplýsingalaga verið uppfyllt. Taldi úrskurðarnefnd ekki hjá því komist að vísa málinu aftur til Lindarhvols til nýrrar meðferðar og afgreiðslu.
-
15. júlí 2019 /808/2019. Úrskurður frá 3. júlí 2019
Deilt var um rétt kæranda til aðgangs að afritum af lánasamningum og skuldaskilmálum Íslandspósts ohf. til dótturfélags síns, ePósts ehf. Af hálfu Íslandspósts kom fram að ePóstur væri undanþeginn gildissviði upplýsingalaga, og því þyrfti ekki að afhenda upplýsingar um lánveitingar og önnur fjárhagsmálefni sem vörðuðu undanþegið félag. Úrskurðarnefnd rakti að þegar beiðni kæranda barst Íslandspósti hefði ePóstur verið undanþeginn gildissviði laganna. Hins vegar væri til þess að líta að beiðni kæranda hefði ótvírætt verið beint að Íslandspósti, sem ekki væri undanþeginn gildissviði laganna. Með vísan til þess taldi úrskurðarnefnd að vísa skyldi beiðni kæranda til nýrrar meðferðar og afgreiðslu hjá Íslandspósti, þar sem tekin yrði efnisleg afstaða til beiðninnar á grundvelli þeirra gagna sem fyrir kynnu að liggja.
-
15. júlí 2019 /807/2019. Úrskurður frá 3. júlí 2019
Kærð var afgreiðsla Kópavogsbæjar á beiðni kæranda um aðgang að gögnum sem vörðuðu samþykktir byggingarfulltrúa sveitarfélagsins í tilteknum málum. Undir meðferð málsins veitti Kópavogsbær kæranda aðgang að þeim gögnum sem talið var að féllu undir beiðni kæranda, en kærandi taldi bæinn ekki hafa sinnt skyldu sinni að afhenda öll fyrirliggjandi gögn. Úrskurðarnefnd taldi sig ekki hafa forsendur til að draga í efa þá fullyrðingu bæjarins að kæranda hefði verið veittur aðgangur að öllum gögnum sem skráð væru í málaskrá bæjarins vegna þeirra mála sem hann tilgreindi í beiðni sinni. Það félli hins vegar utan valdsviðs úrskurðarnefndarinnar að hafa eftirlit með því hvort Kópavogsbær héldi skráningu um öll gögn málanna í samræmi við skráningarskyldu upplýsingalaga, stjórnsýslulaga og laga um opinber skjalasöfn. Með hliðsjón af framangreindu var kærunni vísað frá úrskurðarnefnd.
-
15. júlí 2019 /806/2019. Úrskurður frá 3. júlí 2019
Kærð var synjun atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins á beiðni um aðgang að bréfi og fylgigögnum frá Félagi makrílveiðimanna. Synjunin var byggð á því að um væri að ræða upplýsingar um mikilvæga fjárhags- eða viðskiptahagsmuni félagsmanna í Félagi makrílveiðimanna sem sanngjarnt væri og eðlilegt að leynt færu á grundvelli 9. gr. upplýsingalaga. Úrskurðarnefndin féllst ekki á að gögnin innihéldu slíkar upplýsingar og lagði fyrir ráðuneytið að veita kæranda aðgang að þeim.
-
15. júlí 2019 /805/2019. Úrskurður frá 3. júlí 2019
Kærð var synjun Grímsnes- og Grafningshrepps á beiðni um aðgang að upplýsingum um álögð fasteignagjöld fyrir frístundahús og lögbýli á ákveðnu tímabili. Af hálfu sveitarfélagsins kom fram að umbeðin gögn væru ekki fyrirliggjandi í skilningi upplýsingalaga. Úrskurðarnefndin taldi að ekki væri um að ræða synjun í skilningi 20. gr. upplýsingalaga og var kærunni því vísað frá.
-
15. júlí 2019 /804/2019. Úrskurður frá 3. júlí 2019
Kærð var afgreiðsla Þjóðskrár Íslands á beiðni Siðmenntar – félags siðrænna húmanista á Íslandi um aðgang að netföngum félagsmanna. Þjóðskrá vísaði til þess að gögnin væru ekki fyrirliggjandi í skilningi upplýsingalaga, þar sem ekki væri til sérstök skrá yfir netföngin þó svo að þau væri að finna í gögnum í vörslum stofnunarinnar. Einnig vísaði Þjóðskrá til þess að óheimilt væri að veita aðgang að netföngunum, sbr. 9. gr. upplýsingalaga, þar sem netföng teldust til upplýsinga um einkamálefni einstaklinga. Úrskurðarnefndin tók fram að þegar beiðni um upplýsingar nær til upplýsinga sem nauðsynlegt væri að vinna upp úr öðrum gögnum dugi jafnan ekki að synja beiðninni á grundvelli 3. málsl. 1. mgr. 5. gr. heldur beri stjórnvaldi að taka afstöðu til þess hvort beiðandi eigi rétt til aðgangs að gögnunum þar sem umbeðnar upplýsingar er að finna, svo hann geti sjálfur tekið þær saman. Úrskurðarnefndin taldi jafnframt að netföng einstaklinga teldust almennt ekki til viðkvæmra upplýsinga um einkamálefni einstaklinga sem sanngjarnt væri og eðlilegt að færu leynt. Þjóðskrá var því gert að veita kæranda aðgang að gögnum sem innihéldu netföng félagsmanna Siðmenntar.
-
15. júlí 2019 /Mál nr. 47B/2019 úrskurður 15. júlí 2019
Beiðni um eiginnafnið Bentley er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.
-
12. júlí 2019 /Ákvörðun Fiskistofu um að hafna umsókn kæranda um úthlutun byggðakvóta á Flateyri í Ísafjarðarbæ fyrir fiskveiðiárið 2018/2019 (útgerðarfélag I).
Byggðakvóti - Úthlutun aflaheimilda - Skilyrði fyrir úthlutun - Skráning skips í viðkomandi byggðarlagi.
-
12. júlí 2019 /Rekstrarleyfi í flokki III – Tímabundin svipting rekstrarleyfis – Rannsóknarregla.
Stjórnsýslukæra Með erindi, dags. 16. maí 2019, bar [A, lögmaður], fram kæru fyrir hönd [B ehf.] (hér eftir kærandi), vegna ákvörðunar Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu (hér eftir sýslumaður) frá 13.)...
-
11. júlí 2019 /Nr. 340/2019 - Úrskurður
Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja um að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á grundvelli a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og senda hann til Grikklands er staðfest.
-
-
11. júlí 2019 /Nr. 334/2019 Úrskurður
Ákvarðanir Útlendingastofnunar um að brottvísa kærendum frá Íslandi og ákveða þeim tveggja ára endurkomubann eru felldar úr gildi.
-
11. júlí 2019 /Nr. 340/2019 Úrskurður
Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja um að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á grundvelli a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og endursenda hann til Grikklands er staðfest.
-
11. júlí 2019 /Nr. 342/2019 Úrskurður
Lagt er fyrir Útlendingastofnun að veita kæranda dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga. Ákvörðun Útlendingastofnunar í máli kæranda varðandi umsókn hans um alþjóðlega vernd er staðfest.
-
11. júlí 2019 /Úrskurður nr. 6/2019
Kærð var ákvörðun Embættis landlæknis sem synjaði kæranda um starfsleyfi sem sálfræðingur. Ráðuneytið staðfesti ákvörðun embættisins en lagði það fyrir embættið að leiðbeina kæranda um til hvaða úrbóta hún geti gripið til svo henni sé unnt að sækja á ný um starfsleyfi sem sálfræðingur.
-
11. júlí 2019 /Nr. 341/2019 Úrskurður
Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja kæranda um dvalarleyfi á grundvelli 71. gr. laga um útlendinga er staðfest.
-
11. júlí 2019 /Nr. 339/2019 - Úrskurður
Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja um að taka umsóknir kæranda og barna hennar um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á grundvelli a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og senda þau til Ítalíu er felld úr gildi. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka mál kæranda og barna hennar til efnismeðferðar.
-
11. júlí 2019 /Nr. 336/2019 - Úrskurður
Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja um að taka umsókn kæranda og tveggja barna hennar um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á grundvelli c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og senda þau til Möltu er felld úr gildi.
-
11. júlí 2019 /Nr. 337/2019 - Úrskurður
Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja um að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á grundvelli c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og senda hann til Möltu er felld úr gildi.
-
11. júlí 2019 /Nr. 343/2019 Úrskurður
Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja umsókn kæranda um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi af mannúðarástæðum ásamt því að vísa honum frá Íslandi er staðfest.
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
07. júlí 2019 /Nr. 345/2019 Úrskurður
Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja umsókn kæranda um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi af mannúðarástæðum ásamt því að brottvísa honum frá Íslandi og ákveða endurkomubann er staðfest.
-
05. júlí 2019 /Úrskurður nr. 5/2019
Kærð var ákvörðun Lyfjastofnunar um flokkun á vörunni CW Hemp Everyday Organic Virgin Olive Oil sem lyf í samræmi við ákvæði 2. mgr. 5. gr. lyfjalaga svo að hún þurfi markaðsleyfi. Kærandi krafðist þess að varan yrði heimiluð til innflutnings og sölu á almennum markaði sem fæðubótarefni. Ráðuneytið staðfesti ákvörðun stofnunarinnar.
-
05. júlí 2019 /Mál nr. 49/2019 úrskurður 5. júlí 2019
Beiðni um eiginnafnið Eragon (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.
-
04. júlí 2019 /Nr. 329/2019 - Úrskurður
Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja um að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á grundvelli c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og senda hann til Ítalíu er staðfest.
-
04. júlí 2019 /Nr. 331/2019 Úrskurður
Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja um að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á grundvelli a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og senda hann til Grikklands er staðfest.
-
04. júlí 2019 /Nr. 332/2019 - Úrskurður
Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja um að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á grundvelli c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og endursenda hann til Svíþjóðar er felld úr gildi. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka umsókn kæranda til meðferðar á ný.
-
04. júlí 2019 /Nr. 333/2019 - Úrskurður
Ákvarðanir Útlendingastofnunar um að synja um að taka umsóknir kærenda og barns þeirra um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á grundvelli a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og senda þau til Ítalíu er staðfest.
-
04. júlí 2019 /Nr. 330/2019 - Úrskurður
Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja um að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á grundvelli c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og vísa henni frá landinu er staðfest.
-
-
-
04. júlí 2019 /Nr. 45/2019 - Álit
ÁLIT KÆRUNEFNDAR HÚSAMÁLA í máli nr. 45/2019 Tilurð húsfélags, stjórnar húsfélags og framkvæmdasjóðs. I. Málsmeðferð kærunefndar Með rafrænni álitsbeiðni, móttekinni 12. maí 2019, beindi A, hér efti)...
-
-
-
04. júlí 2019 /Nr. 33/2019 - Álit
Skaðabótaábyrgð húsfélags: Rakavarnarlag og tjón í séreignarhluta.
-
-
-
Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.