Hoppa yfir valmynd

Úrskurðir og álit


Sýni 8001-8200 af 21160 niðurstöðum.

Áskriftir

  • 13. nóvember 2019 / Úrskurðarnefnd velferðarmála - Almannatryggingar

    Mál nr. 343/2019 - Úrskurður

    Hjálpartækjastyrkur. Staðfest ákvörðun Sjúkratrygginga Íslands um að synja umsókn kæranda um styrk til kaupa á skóinnleggi. Úrskurðarnefnd velferðarmála taldi að tilvik kæranda félli ekki undir neitt af þeim tilefnum sem tilgreind eru í fylgiskjali með reglugerð nr. 1155/2013 um styrki vegna hjálpartækja sbr. 1. mgr. 26. gr. laga um sjúkratryggingar.


  • 13. nóvember 2019 / Úrskurðarnefnd velferðarmála - Barnaverndarmál

    Mál nr. 367/2019 - Úrskurður

    Afgreiðsla Barnaverndarnefndar ekki í samræmi við málshraðareglu 4. mgr. 9. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.


  • 13. nóvember 2019 / Úrskurðarnefnd velferðarmála - Barnaverndarmál

    Mál nr. 309/2019 - Úrskurður

    Felldur úr gildi úrskurður barnaverndarnefndar um umgengi kynmóður við son hennar.


  • 13. nóvember 2019 / Úrskurðarnefnd velferðarmála - Barnaverndarmál

    Mál nr. 293/2019 - Úrskurður

    Staðfest ákvörðun barnaverndarnefndar um að loka máli vegna sonar kæranda


  • 13. nóvember 2019 / Úrskurðarnefnd velferðarmála - Barnaverndarmál

    Mál nr. 284/2019 - Úrskurður

    Staðfestur úrskurður barnaverndarnefndar um umgengni kæranda við sonarson hennar.


  • 12. nóvember 2019 / Kærunefnd útlendingamála

    Nr. 541/2019 Úrskurður

    Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja kæranda um vegabréfsáritun til Íslands er staðfest.


  • 842/2019. Úrskurður frá 28. október 2019

    Kæru var vísað frá úrskurðarnefnd um upplýsingamál þar sem kærði fellur ekki undir upplýsingalög.


  • 07. nóvember 2019 / Kærunefnd útlendingamála

    Nr. 469/2019 Úrskurður

    Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja um að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á grundvelli c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og senda hann til Tékklands er staðfest.


  • 841/2019. Úrskurður frá 28. október 2019

    Kæru vegna afgreiðslu utanríkisráðuneytisins á beiðni um aðgang að gögnum var vísað frá þar sem umbeðin gögn voru ekki fyrirliggjandi í ráðuneytinu.


  • 840/2019. Úrskurður frá 28. október 2019

    Deilt var um ákvörðun Vinnumálastofnunar um að synja beiðni kæranda, blaðamanns, um aðgang að gögnum með upplýsingum um hvaða fyrirtæki hafi gripið til hópuppsagna í maí 2019. Synjun Vinnumálastofnunar var byggð á því að óheimilt væri að veita kæranda aðgang að upplýsingunum vegna 9. gr. upplýsingalaga. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál óskaði eftir afstöðu tveggja fyrirtækja sem höfðu tilkynnt hópuppsögn til Vinnumálastofnunar. Annað þeirra veitti samþykki fyrir því að kærandi fengi aðgang að upplýsingunum og var synjun Vinnumálastofnunar um aðgang að tilkynningu þess fyrirtækis felld úr gildi. Nefndin staðfesti synjun stofnunarinnar varðandi það fyrirtæki sem ekki veitti samþykki sitt fyrir afhendingu upplýsinganna þar sem nefndin taldi tilkynninguna fela í sér viðkvæmar upplýsingar um fjárhagsstöðu þess fyrirtækis sem óheimilt væri að veita aðgang að sbr. 9. gr. upplýsingalaga.


  • 839/2019. Úrskurður frá 28. október 2019

    Deilt var um ákvörðun Grindavíkurbæjar á beiðni um aðgang að sundurliðuðum útreikningum álagðra fasteignagjalda vegna tiltekinnar fasteignar. Sveitarfélagið hélt því fram að álagningarseðlar fasteignagjalda væru ekki vistaðir sjálfstætt heldur þyrfti að kalla þá fram með sérstakri aðgerð, þannig væru þeir ekki fyrirliggjandi hjá sveitarfélaginu. Úrskurðarnefnd taldi ekki ástæðu til að draga þær skýringar í efa og var kæru því vísað frá.


  • 07. nóvember 2019 / Kærunefnd útlendingamála

    Nr. 528/2019 Úrskurður

    Ákvarðanir Útlendingastofnunar um að synja um að taka umsóknir kærenda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á grundvelli a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og endursenda þau til Möltu eru felldar úr gildi. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka mál kærenda og barna þeirra til efnismeðferðar.


  • 838/2019. Úrskurður frá 28. október 2019

    Kæru vegna afgreiðslu Landspítala-Háskólasjúkrahúss á gagnabeiðni var vísað frá úrskurðarnefnd um upplýsingamál. Landspítali-Háskólasjúkrahús hélt því fram að kærandi hefði fengið afhent öll fyrirliggjandi gögn er varði gagnabeiðni kæranda og hafði úrskurðarnefnd um upplýsingamál ekki forsendur til að rengja þá staðhæfingu.


  • 837/2019. Úrskurður frá 28. október 2019

    Samtök iðnaðarins kærðu ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um synjun beiðni um aðgang að samningi Tryggingastofnunar við Veðurstofu Íslands um aðstöðu fyrir miðlægan tölvubúnað Tryggingastofnunar í tölvusal Veðurstofunnar. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál fór yfir samninginn og taldi ekki að ákvæði upplýsingalaga stæðu aðgangi í vegi. Var því fallist á rétt kæranda til aðgangs að samningnum með vísan til meginreglu 1. mgr. 5. gr. upplýsingalaga um upplýsingarétt almennings.


  • 07. nóvember 2019 / Kærunefnd útlendingamála

    Nr. 522/2019 Úrskurður

    Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja um að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á grundvelli c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og senda hann til Frakklands er staðfest.


  • 836/2019. Úrskurður frá 28. október 2019

    Kærð var ákvörðun Fjallabyggðar um synjun beiðni um aðgang að gögnum vegna verðkönnunar Fjallabyggðar. Leyst var úr rétti kæranda til aðgangs að gögnunum samkvæmt 14. gr. upplýsingalaga en kærandi var meðal tilboðsgjafa. Talið var að hagsmunir kæranda til aðgangs að gögnunum vægju þyngra en hagsmunir annarra tilboðsgjafa af því að upplýsingarnar í gögnunum færu leynt, sbr. 3. mgr. 14. gr. laganna. Var því synjun Fjallabyggðar felld úr gildi það lagt fyrir sveitarfélagið að veita kæranda aðgang að gögnunum.


  • 835/2019. Úrskurður frá 28. október 2019

    Kærandi óskaði eftir upplýsingum frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu um það úr hvaða háskólum verkfræðingar, arkitektar, landslagsarkitektar, tæknifræðingar og byggingafræðingar, sem séu á listum sem birtir eru á vefsíðum ráðuneytisins og fengið hafa leyfi til að nota viðkomandi starfsheiti, luku námi sínu, þ.e. nafn háskóla og námsland, auk upplýsinga um námsgráðu. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál féllst ekki á það með ráðuneytinu að um væri að upplýsingar um einkahagsmuni einstaklinga sem óheimilt sé að veita aðgang, sbr. 9. gr. upplýsingalaga. Þá féllst nefndin ekki á að umfang beiðninnar væri slíkt að ráðuneytinu væri heimilt að synja beiðninni með vísan til 1. tölul. 4. mgr. 15. gr. upplýsingalaga. Var því ákvörðunin felld úr gildi og það lagt fyrir ráðuneytið að afhenda kæranda gögnin.


  • 834/2019. Úrskurður frá 28. október 2019

    Deilt var um rétt kæranda, blaðamanns, til aðgangs að upplýsingum um kostnað vegna öryggisgæslu við íslensk sendiráð. Fyrir lá að ráðuneytið hafði útbúið skjal með umbeðnum upplýsingum. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál féllst á það með utanríkisráðuneytinu að um væri að ræða upplýsingar um öryggi ríkisins sem mikilvægir almannhagsmunir krefjast að fari leynt, sbr. 1. tölul. 10. gr. upplýsingalaga. Var því synjun ráðuneytisins staðfest.


  • 833/2019. Úrskurður frá 28. október 2019

    Kærandi óskaði eftir gögnum frá Reykjavíkurborg varðandi tiltekna framkvæmd annars vegar og samskipti kæranda við sveitarfélagið hins vegar. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi sig ekki hafa forsendur til að rengja þá fullyrðingu Reykjavíkurborgar að aðgangur hafi verið veittur að öllum fyrirliggjandi gögnum er varði framkvæmdina og var því kæru vísað frá að þessu leyti. Beiðni kæranda um gögn varðandi samskipti kæranda og Reykjavíkurborgar var hins vegar vísað aftur til sveitarfélagsins til nýrrar meðferðar þar sem skorta þótti á að kæranda hafi verið leiðbeint með afmörkun beiðninnar.


  • 832/2019. Úrskurður frá 28. október 2019

    Í málinu var deilt um rétt kæranda til aðgangs að upplýsingum sem höfðu verið afmáðar úr samningum sem utanríkisráðuneytið og Þróunarsamvinnustofnun Íslands gerðu við Íslenskar orkurannsóknir. Utanríkisráðuneytið synjaði kæranda um aðgang að upplýsingunum með vísan til 2. og 4. tölul. 10. gr. upplýsingalaga. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál staðfesti synjun utanríkisráðuneytisins að hluta, með vísan til 2. tölul. 10. gr. upplýsingalaga, en felldi úr gildi synjun ráðuneytisins að öðru leyti.


  • 07. nóvember 2019 / Kærunefnd útlendingamála

    Nr. 472/2019 - Úrskurður

    Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja um að taka umsókn kæranda og barna hennar um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á grundvelli c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og senda þau til Ítalíu er felld úr gildi. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka mál kæranda og barna hennar til efnismeðferðar.


  • 07. nóvember 2019 / Kærunefnd útlendingamála

    nr. 512/2019 Úrskurður

    Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja um að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á grundvelli c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og senda hann til Ítalíu er staðfest.


  • 07. nóvember 2019 / Kærunefnd útlendingamála

    Nr. 523/2019 Úrskurður

    Beiðni kærenda um endurupptöku mála þeirra fyrir kærunefnd á grundvelli 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 er hafnað.


  • 07. nóvember 2019 / Kærunefnd útlendingamála

    Nr. 518/2019 Úrskurður

    Ákvarðanir Útlendingastofnunar um að synja um að taka umsóknir kærenda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á grundvelli c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og senda þau til Frakklands er staðfest.


  • 07. nóvember 2019 / Kærunefnd útlendingamála

    nr. 526/2019 úrskurður

    Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja um að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á grundvelli c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og senda hann til Ítalíu er staðfest.


  • 07. nóvember 2019 / Kærunefnd útlendingamála

    Nr. 473/2019 Úrskurður

    Ákvarðanir Útlendingastofnunar um að synja um að taka umsóknir kæranda og barna hennar um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á grundvelli c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og senda þau til Ítalíu eru staðfestar.


  • 06. nóvember 2019 / Mannanafnanefnd

    Mál nr. 105/2019 Úrskurður 6. nóvember 2019

    Fallist er á föðurkenningunar Andrésson.


  • 06. nóvember 2019 / Mannanafnanefnd

    Mál nr. 104/2019 Úrskurður 6. nóvember 2019

    Beiðni um eiginnafnið Mikki (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.


  • 06. nóvember 2019 / Mannanafnanefnd

    Mál nr. 103/2019 Úrskurður 6. nóvember 2019

    Fallist er á föðurkenninguna Viktorsson.


  • 06. nóvember 2019 / Mannanafnanefnd

    Mál nr. 102/2019 Úrskurður 6. nóvember 2019

    Beiðni um eiginnafnið Kristólín (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.


  • 06. nóvember 2019 / Mannanafnanefnd

    Mál nr. 101/2019 Úrskurður 6. nóvember 2019

    Beiðni um eiginnafnið Marzellíus (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.


  • 06. nóvember 2019 / Mannanafnanefnd

    Mál nr. 99/2019 Úrskurður 6. nóvember 2019

    Beiðni um eiginnafnið Heiðbjartur (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.


  • 06. nóvember 2019 / Mannanafnanefnd

    Mál nr. 98/2019 Úrskurður 6. nóvember 2019

    Beiðni um eiginnafnið Damíen (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.


  • 06. nóvember 2019 / Mannanafnanefnd

    Mál nr. 97/2019 Úrskurður 6. nóvember 2019

    Beiðni um eiginnafnið Zelda (kvk.) er hafnað.


  • 06. nóvember 2019 / Mannanafnanefnd

    Mál nr. 96/2019 Úrskurður 6. nóvember 2019

    Beiðni um eiginnafnið Lucifer (kk.) er hafnað.


  • 06. nóvember 2019 / Mannanafnanefnd

    Mál nr. 95/2019 Úrskurður 6. nóvember 2019

    Beiðni um eiginnafnið Rey (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.


  • 06. nóvember 2019 / Mannanafnanefnd

    Mál nr. 94/2019 Úrskurður 6. nóvember 2019

    Beiðni um eiginnafnið Charles (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.


  • 06. nóvember 2019 / Úrskurðarnefnd velferðarmála - Almannatryggingar

    Mál nr. 404/2019 - Úrskurður

    Kærufrestur. Kæru vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála þar sem kærufrestur var liðinn.


  • 06. nóvember 2019 / Mannanafnanefnd

    Mál nr. 92/2019 Úrskurður 6. nóvember 2019

    Beiðni um eiginnafnið Ilíes (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.


  • 06. nóvember 2019 / Úrskurðarnefnd velferðarmála - Almannatryggingar

    Mál nr. 325/2019 - Úrskurður

    Ofgreiddar bætur. Staðfest ákvörðun um endurreikning og uppgjör Tryggingastofnunar ríkisins á tekjutengdum bótum ársins 2018


  • 06. nóvember 2019 / Úrskurðarnefnd velferðarmála - Almannatryggingar

    Mál nr. 323/2019 - Úrskurður

    Ofgreiddar bætur. Staðfest ákvörðun um endurreikning og uppgjör Tryggingastofnunar ríkisins á tekjutengdum bótum ársins 2018. Ekki fallist á að Tryggingastofnun bæri að taka tillit til 3. mgr. 66. gr. laga nr. 90/2006 um tekjuskatt við útreikning á bótum.


  • 06. nóvember 2019 / Úrskurðarnefnd velferðarmála - Almannatryggingar

    Mál nr. 319/2019 - Úrskurður

    Meðlag Staðfest ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um að synja kæranda um milligöngu um meðlagsgreiðslur. Engin heimild er í 4. mgr. 63. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar til þess að greiða meðlag lengra en 12 mánuði aftur í tímann vegna sérstakra aðstæðna


  • 06. nóvember 2019 / Úrskurðarnefnd velferðarmála - Almannatryggingar

    Mál nr. 144/2019 - Úrskurður

    Beiðni um endurupptöku. Synjað beiðni kæranda um endurupptöku úrskurðar úrskurðarnefndar velferðarmála í máli nr. 144/2019


  • 06. nóvember 2019 / Úrskurðarnefnd velferðarmála - Almannatryggingar

    Mál nr. 219/2019

    Umönnunarmat. Staðfest ákvörðun Tryggingastofnunar um upphafstíma umönnunarmats vegna sonar kæranda. Ekki fallist á að kærandi hafi verið framfærandi barnsins í skilningi 1. mgr. 4. gr. laga um félagslega aðstoð á umdeildu tímabili.


  • 06. nóvember 2019 / Úrskurðarnefnd velferðarmála - Almannatryggingar

    Nr. 419/2019 - Úrskurður

    Formannmarki. Kæru vísað frá þar sem ágreiningsefnið á ekki undir úrskurðarnefnd velferðarmála.


  • 05. nóvember 2019 / Úrskurðarnefnd velferðarmála - Atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir

    Mál nr. 438/2019 - Úrskurður

    Endurupptaka. Beiðni um endurupptöku úrskurðar frá árinu 2014 hafnað.


  • 05. nóvember 2019 / Úrskurðarnefnd velferðarmála - Atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir

    Mál nr. 392/2019 - Úrskurður

    Frávísun. Kæra ekki á íslensku.


  • 05. nóvember 2019 / Úrskurðarnefnd velferðarmála - Atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir

    Mál nr. 362/2019 - Úrskurður

    Viðurlög. Ótilkynnt dvöl erlendis. Staðfest ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður bótarétt í tvo mánuði og innheimta ofgreiddar bætur.


  • 05. nóvember 2019 / Úrskurðarnefnd velferðarmála - Atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir

    Mál nr. 355/2019 - Úrskurður

    Viðurlög. Ítrekunaráhrif. Ótilkynnt dvöl erlendis. Staðfest ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður bótarétt í þrjá mánuði og innheimta ofgreiddar bætur.


  • 05. nóvember 2019 / Úrskurðarnefnd velferðarmála - Atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir

    Mál nr. 328/2019 - Úrskurður

    Biðtími. Staðfest ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði. Námi hætt án gildra ástæðna.


  • 05. nóvember 2019 / Úrskurðarnefnd velferðarmála - Atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir

    Mál nr. 300/2019 - Úrskurður

    Ofgreiddar bætur. Staðfest ákvörðun Vinnumálastofnunar um innheimtu ofgreiddra bóta vegna dvalar kæranda erlendis.


  • 05. nóvember 2019 / Úrskurðarnefnd velferðarmála - Atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir

    Mál nr. 273/2019 - Úrskurður

    Ofgreiddar bætur. Staðfest ákvörðun Vinnumálastofnunar um innheimtu ofgreiddra bóta vegna fjármagnstekna.


  • 05. nóvember 2019 / Úrskurðarnefnd velferðarmála - Atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir

    Mál nr. 271/2019 - Úrskurður

    Viðurlög. Felld úr gildi ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður bótaréttar í tvo mánuði. Ekki fallist á að kærandi hafi í reynd hafnað þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum. Annmarkar á málsmeðferð og málinu vísað til nýrrar afgreiðslu stofnunarinnar.


  • 31. október 2019 / Úrskurðir á málefnasviði innviðaráðuneytisins

    Úrskurður í máli nr. SRN19010085

    Vegagerðin: Staðfest ákvörðun um niðurfellingu vegar af vegaskrá.


  • 30. október 2019 / Kærunefnd útlendingamála

    Nr. 514/2019 Úrskurður

    Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja umsókn kæranda um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi af mannúðarástæðum er felld úr gildi. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka mál kæranda til meðferðar á ný.


  • 30. október 2019 / Kærunefnd útlendingamála

    Nr. 515/2019 Úrskurður

    Ákvarðanir Útlendingastofnunar um að synja umsóknum kæranda og barna hennar um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi af mannúðarástæðum er staðfestar.


  • 30. október 2019 / Kærunefnd útlendingamála

    nr. 516/2019 - Úrskurður

    Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja umsókn kæranda um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi af mannúðarástæðum felld úr gildi að hluta. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að veita kæranda dvalarleyfi á grundvelli 73. gr. laga um útlendinga.


  • 29. október 2019 / Úrskurðarnefnd velferðarmála - Almannatryggingar

    Mál nr. 348/2019 - Úrskurður

    Örorkumat. Staðfest ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um að synja kæranda um örorkulífeyri og tengdar greiðslur


  • 29. október 2019 / Úrskurðarnefnd velferðarmála - Almannatryggingar

    Mál nr. 329/2019 - Úrskurður

    Örorkumat. Felld úr gildi ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um að synja kæranda um örorkulífeyri og örorkulífeyri og örorkustyrk og vísað aftur til stofnunarinnar til nýrrar meðferðar. Að mati úrskurðarnefndar var misræmi í gögnum málsins varðandi mat á andlegri færni kæranda.


  • 29. október 2019 / Úrskurðarnefnd velferðarmála - Almannatryggingar

    Mál nr. 317/2019 - Úrskurður

    Örorkumat. Staðfest ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um upphafstíma örorkumats.


  • 29. október 2019 / Úrskurðarnefnd velferðarmála - Almannatryggingar

    Mál nr. 316/2019 - Úrskurður

    Örorkumat. Staðfest ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um að synja kæranda um örorkumat. Ekki talið að endurhæfing hafi verið fullreynd.


  • 29. október 2019 / Úrskurðarnefnd velferðarmála - Almannatryggingar

    Mál nr. 315/2019 - Úrskurður

    Örorkumat. Staðfest ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um að synja kæranda um örorkulífeyri og tengdar greiðslur.


  • 29. október 2019 / Úrskurðir á málefnasviði innviðaráðuneytisins

    Úrskurður í máli nr. SRN18100069

    Samgöngustofa: Staðfest ákvörðun um að synja um útgáfu haffærisskírteinis


  • 29. október 2019 / Úrskurðarnefnd velferðarmála - Almannatryggingar

    Mál nr. 181/2019 - Úrskurður

    Beiðni um endurupptöku. Beiðni um endurupptöku máls 181/2019, þar sem staðfest var ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um að synja kæranda um örorkulífeyri og tengdar greiðslur, synjað.


  • 29. október 2019 / Úrskurðarnefnd velferðarmála - Fæðingar- og foreldraorlof

    Nr. 314/2019 - Úrskurður

    Staðfest ákvörðun Fæðingarorlofssjóðs um að skerða fæðingarorlofsgreiðslur um 13 daga á grundvelli 3. mgr. 8. gr. laga nr. 95/2000 um fæðingar- og foreldraorlof


  • 29. október 2019 / Úrskurðarnefnd velferðarmála - Almannatryggingar

    Mál nr.122/2019 - Úrskurður

    Greiðsluþátttaka í heilbrigðisþjónustu. Staðfestar ákvarðanir Sjúkratrygginga Íslands um að synja kæranda um greiðsluþátttöku vegna lækniskostnaðar, tannlæknakostnaðar, lyfjakostnaðar og ferðakostnaðar. Vísað frá kröfu kæranda um greiðslu lögmannskostnaðar og kostnaðar vegna meðferðar. Vísað frá kröfu um greiðslu reikninga sem kærandi lagði fyrst fram við meðferð málsins hjá úrskurðarnefnd velferðarmála.


  • 26. október 2019 / Kærunefnd útlendingamála

    Nr. 520/2019 Úrskurður

    Ákvarðanir Útlendingastofnunar um að synja umsóknum kærenda um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi af mannúðarástæðum eru staðfestar. Ákvarðanir varðandi brottvísanir og endurkomubönn eru staðfestar.


  • 26. október 2019 / Kærunefnd útlendingamála

    Nr. 521/2019 Úrskurður

    Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja umsókn kærenda um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi af mannúðarástæðum ásamt því að vísa þeim frá Íslandi er staðfest. Ákvörðun Útlendingastofnunar um að brottvísa kærendum frá Íslandi og ákveða þeim endurkomubann til landsins í tvö ár er felld úr gildi.


  • 25. október 2019 / Kærunefnd útlendingamála

    Nr. 519/2019 Úrskurður

    Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja umsókn kærenda um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi af mannúðarástæðum ásamt því að brottvísa þeim frá Íslandi og ákveða endurkomubann er staðfest.


  • 23. október 2019 / Kærunefnd húsamála

    Nr. 86/2019 - Álit

    Hugtakið hús: Eitt hús eða fleiri. Breyting á eignaskiptayfirlýsingu.


  • 23. október 2019 / Kærunefnd húsamála

    Nr. 81/2019 - Úrskurður

    Tryggingarfé.


  • 23. október 2019 / Kærunefnd húsamála

    Nr. 77/2019 - Álit

    Breyting á sameign. Hagnýting séreignar.


  • 23. október 2019 / Kærunefnd húsamála

    Nr. 76/2019 - Álit

    ÁLIT KÆRUNEFNDAR HÚSAMÁLA í máli nr. 76/2019   Greiðsluþátttaka: Viðgerðarkostnaður vegna leka. I. Málsmeðferð kærunefndar Með bréfi, dags. 1. ágúst 2019, mótteknu af kærunefnd 9. ágúst 2019, beindi H)...


  • 23. október 2019 / Kærunefnd húsamála

    Nr. 75/2019 - Úrskurður

    Leigusamningur: Bankaábyrgð.


  • 23. október 2019 / Kærunefnd húsamála

    Nr. 74/2019 - Álit

    Kostnaðarþátttaka: Viðgerð á skólplögnum.


  • 23. október 2019 / Kærunefnd húsamála

    Nr. 72/2019 - Úrskurður

    Tryggingarfé.


  • 23. október 2019 / Kærunefnd húsamála

    Nr. 69/2019 - Úrskurður

    Frístundahús.


  • 23. október 2019 / Kærunefnd húsamála

    Nr. 68/2019 - Úrskurður

    Tryggingarfé.


  • 23. október 2019 / Kærunefnd húsamála

    Nr. 66/2019 - Úrskurður

    Tryggingarfé.


  • 23. október 2019 / Kærunefnd húsamála

    Nr. 44/2019 - Álit

    Hugtakið hús: Eitt hús eða fleiri. Lóð: Sameign/Séreign.


  • 22. október 2019 / Kærunefnd útlendingamála

    Nr. 502/2019 Úrskurður

    Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja um að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á grundvelli a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og senda hann til Grikklands er staðfest.


  • 22. október 2019 / Kærunefnd útlendingamála

    Nr. 503/2019 Úrskurður

    Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja um að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á grundvelli a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og senda hann til Möltu er staðfest.


  • 22. október 2019 / Kærunefnd útlendingamála

    Nr. 504/2019 - Úrskurður

    Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja um að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á grundvelli c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og endursenda hann til Litháen er staðfest.


  • 22. október 2019 / Kærunefnd útlendingamála

    Nr. 505/2019 - Úrskurður

    Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja um að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á grundvelli a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og endursenda hann til Grikklands er staðfest.


  • 22. október 2019 / Kærunefnd útboðsmála

    Mál nr. 25/2019. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála.

    Með kæru 27. september 2019 kærði Öryggismiðstöð Íslands hf. útboð Ríkiskaupa fyrir hönd Sjúkratrygginga Íslands (hér eftir vísað til sem varnaraðila) nr. V20769 „Sjúkrabifreiðar 2018-2019“. Kærandi gerir þá kröfu að felld verði úr gildi ákvörðun varnaraðila um að hafna tilboði kæranda í hinu kærða útboði. Þá er gerð krafa um að varnaraðila verði gert að greiða kæranda málskostnað. Í þessum þætti málsins tekur nefndin afstöðu til kröfu kæranda um stöðvun samningsgerðar, en úrlausn málsins bíður að öðru leyti endanlegs úrskurðar.


  • 22. október 2019 / Kærunefnd útboðsmála

    Mál nr. 11/2019. Úrskurður kærunefndar útboðsmála.

    Með kæru 29. apríl 2019 kærði Urð og grjót ehf. útboð Landsnets hf. nr. KR3-02 auðkennt „Vegslóð, jarðvinna og undirstöður, Kröflulína 3“. Kærandi krefst þess að felld verði úr gildi ákvörðun Landsnets hf. (hér eftir vísað til sem varnaraðila) um að hafna tilboði kæranda í hinu kærða útboði og að kærunefnd útboðsmála láti uppi álit sitt á skaðabótaskyldu varnaraðila gagnvart kæranda. Þá er krafist málskostnaðar. Varnaraðila var kynnt kæran og gefinn kostur á að gera athugasemdir. Með greinargerð 7. maí 2019 var þess krafist að málinu yrði vísað frá eða öllum kröfum kæranda yrði hafnað. Þá var krafist málskostnaðar út hendi kæranda. Með bréfi 2. júlí 2019 var krafa um frávísun ítrekuð „í ljósi þess að úrlausnarefni kærumálsins hefur verið borið undir dómstóla“. Til vara var þess krafist að efnismeðferð málsins yrði frestað þar til dómsmálinu væri lokið. Með ákvörðun kærunefndar útboðsmála 24. maí 2019 var hafnað þeirri kröfu kæranda að hið kærða útboð yrði stöðvað um stundarsakir á meðan leyst væri úr kæru.


  • 22. október 2019 / Kærunefnd útboðsmála

    Mál nr. 7/2019. Úrskurður kærunefndar útboðsmála

    Með kæru 5. apríl 2019 kærði Tencate Geosynthetics útboð Ríkiskaupa fyrir hönd Framkvæmdasýslu ríkisins nr. 20821 á hönnun og framleiðslu stoðkerfis fyrir snjóflóðavarnargarða í Neskaupstað. Kærandi gerir aðallega þá kröfu að felldar verði úr gildi ákvarðanir varnaraðila Ríkiskaupa og Framkvæmdasýslu ríkisins (hér eftir vísað til sem varnaraðila) um að hafna tilboði kæranda og velja tilboð Reinforced Earth Company Ltd. í hinu kærða útboði. Til vara er gerð krafa um að útboðið verði fellt úr gildi og varnaraðilum gert að auglýsa útboðið á nýjan leik. Þá er gerð krafa um að nefndin láti uppi álit sitt á skaðabótaskyldu varnaraðila gagnvart kæranda og að varnaraðilar greiði kæranda málskostnað. Varnaraðilum var kynnt kæran og gefinn kostur á að gera athugasemdir. Greinargerðir varnaraðila bárust kærunefnd útboðsmála 24. apríl 2019 þar sem þess var krafist að öllum kröfum kæranda yrði vísað frá eða hafnað. Þá skilaði Reinforced Earth Company Ltd. athugasemdum til nefndarinnar 17. apríl 2019. Kæranda var gefinn kostur á að gera athugasemdir við greinargerðir varnaraðila og skilaði þeim 4. júní 2019. Þar var bætt við kröfu um óvirkni þess samnings sem þá var kominn á milli varnaraðila Framkvæmdasýslu ríkisins og Reinforced Earth Company Ltd.


  • 22. október 2019 / Kærunefnd útlendingamála

    Nr. 501/2019 - Úrskurður

    Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja um að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á grundvelli c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og senda hann til Ítalíu er staðfest.


  • 22. október 2019 / Úrskurðarnefnd velferðarmála - Atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir

    nr. 363/2019 - Úrskurður

    Kærufrestur. Kæru vísað frá þar sem kærufrestur var liðinn.


  • 18. október 2019 / Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis

    Úrskurður nr. 11/2019

    Kærð var ákvörðun Embættis landlæknis sem synjaði kæranda um starfsleyfi sem hjúkrunarfræðingur á Íslandi. Ráðuneytið felldi úr gildi ákvörðunina og vísaði málinu til nýrrar málsmeðferðar að teknu tilliti til fyrirliggjandi gagna og þeirra sjónarmiða sem koma fram í úrskurðinum.


  • 17. október 2019 / Kærunefnd útlendingamála

    Nr. 500/2019 Úrskurður

    Ákvarðanir Útlendingastofnunar um að synja umsóknum kærenda um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi af mannúðarástæðum eru staðfestar.


  • 17. október 2019 / Kærunefnd útlendingamála

    Nr. 499/2019 Úrskurður

    Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja umsókn kæranda um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi af mannúðarástæðum er felld úr gildi að hluta. Lagt er fyrir stofnunina að veita kæranda dvalarleyfi á grundvelli 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.


  • 16. október 2019 / Úrskurðarnefnd velferðarmála - Almannatryggingar

    Mál nr. 134/2019 - Úrskurður

    Maka/umönnunarbætur. Felld úr gildi ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um að synja kæranda um makabætur og málinu heimvísað til nýrrar meðferðar


  • 16. október 2019 / Yfirfasteignamatsnefnd

    Mál nr. 5/2019

    X, Dalabyggð


  • 16. október 2019 / Úrskurðarnefnd velferðarmála - Almannatryggingar

    Mál nr. 20/2019 - Úrskurður

    Ellilífeyrir. Staðfest ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um meðhöndlun tekna frá Noregi við útreikning á ellilífeyrisgreiðslum. Fallist á það mat Tryggingastofnunar að „tilleggspensjon“ skuli skerða ellilífeyrisgreiðslur frá stofnuninni með sama hætti og greiðslur úr skyldubundnum atvinnutengdum lífeyrissjóðum


  • 16. október 2019 / Úrskurðir um matvæli og landbúnað

    Kæra vegna ákvörðunar Matvælastofnunar dags. 28. nóvember 2014, um að synja umsókn kæranda um heimild til að framleiða lýsi til manneldis úr slógi.

    Matvælastofnun, matvæli, framleiðsla, lagarafurðir, rannsóknarregla.


  • 16. október 2019 / Úrskurðarnefnd velferðarmála - Almannatryggingar

    Nr. 280/2019 - Úrskurður

    Ofgreiddar bætur. Staðfest ákvörðun um endurreikning og uppgjör Tryggingastofnunar ríkisins á tekjutengdum bótum ársins 2018. Ekki fallist á að Tryggingastofnun bæri einungis að líta til tekna þeirra mánaða sem kærandi fékk greiddar bætur við endurreikning og uppgjör, enda skal leggja 1/12 af áætluðum tekjum til grundvallar bótaútreikningi hvers mánaðar og bótagreiðsluár er almanaksár, sbr. 5. mgr. 16. gr. laga um almannatryggingar. ​


  • 16. október 2019 / Úrskurðarnefnd velferðarmála - Almannatryggingar

    Nr. 387/2019 - Úrskurður

    Formannmarki. Kæru vísað frá þar sem að ágreiningsefnið á ekki undir úrskurðarnefnd velferðarmála.


  • 16. október 2019 / Úrskurðarnefnd velferðarmála - Almannatryggingar

    Nr. 303/2019 - Úrskurður

    Barnalífeyrir vegna náms. Felld úr gildi ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um að fresta greiðslum barnalífeyris vegna náms og málinu heimvísað til frekari rannsóknar. Tilefni til að rannsaka málið nánar og meta hvort kærandi uppfyllti skilyrði 1. tölul. 2. mgr. 6. gr. reglugerðar nr. 140/2006 um sérstaka erfiðleika.


  • 14. október 2019 / Kærunefnd útlendingamála

    Nr. 489/2019 Úrskurður

    Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja umsókn kæranda um dvalarleyfi á grundvelli 65. gr. laga um útlendinga er felld úr gildi. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka mál kæranda til nýrrar meðferðar.


  • 14. október 2019 / Kærunefnd útlendingamála

    Nr. 498/2019 Úrskurður

    Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja umsókn kæranda um dvalarleyfi á grundvelli 65. gr. laga um útlendinga er felld úr gildi. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka mál kæranda til nýrrar meðferðar.


  • 14. október 2019 / Kærunefnd útlendingamála

    Nr. 497/2019 Úrskurður

    Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja umsókn kæranda um dvalarleyfi á grundvelli 65. gr. laga um útlendinga er felld úr gildi. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka mál kæranda til nýrrar meðferðar.


  • 14. október 2019 / Kærunefnd útlendingamála

    Nr. 496/2019 Úrskurður

    Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja umsókn kæranda um dvalarleyfi á grundvelli 65. gr. laga um útlendinga er felld úr gildi. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka mál kæranda til nýrrar meðferðar.


  • 14. október 2019 / Kærunefnd útlendingamála

    Nr. 495/2019 Úrskurður

    Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja umsókn kæranda um dvalarleyfi á grundvelli 65. gr. laga um útlendinga er felld úr gildi. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka mál kæranda til nýrrar meðferðar.


  • 14. október 2019 / Kærunefnd útlendingamála

    Nr. 494/2019 Úrskurður

    Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja umsókn kæranda um dvalarleyfi á grundvelli 65. gr. laga um útlendinga er felld úr gildi. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka mál kæranda til nýrrar meðferðar.


  • 14. október 2019 / Kærunefnd útlendingamála

    Nr. 444/2019 Úrskurður

    Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja umsókn kæranda um ótímabundið dvalarleyfi á grundvelli 58. gr. laga um útlendinga er felld úr gildi. Lagt er fyrir stofnunina að taka umsókn kæranda til nýrrar meðferðar.


  • 14. október 2019 / Kærunefnd útlendingamála

    Nr. 490/2019 Úrskurður

    Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja kæranda um dvalarleyfi á grundvelli 65. gr. laga um útlendinga er felld úr gildi. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka mál kæranda til nýrrar meðferðar.


  • 14. október 2019 / Kærunefnd útlendingamála

    Nr. 485/2019 Úrskurður

    Ákvörðun Útlendingastofnunar um að frávísa kæranda frá landinu er felld úr gildi.


  • 14. október 2019 / Kærunefnd útlendingamála

    Nr. 439/2019 Úrskurður

    Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja umsókn kæranda um dvalarleyfi á grundvelli hjúskapar, sbr. 70. gr. laga um útlendinga er staðfest.


  • 14. október 2019 / Kærunefnd útlendingamála

    Nr. 487/2019 Úrskurður

    Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja umsókn kæranda um dvalarleyfi á grundvelli 70. gr. laga um útlendinga er felld úr gildi. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka mál kæranda til nýrrar meðferðar.


  • 14. október 2019 / Kærunefnd útlendingamála

    Nr. 445/2019 Úrskurður

    Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja umsókn kæranda um dvalarleyfi á grundvelli hjúskapar, sbr. 70. gr. laga um útlendinga, er staðfest.


  • 14. október 2019 / Kærunefnd útlendingamála

    Nr. 446/2019 Úrskurður

    Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja umsókn kæranda um ótímabundið dvalarleyfi á grundvelli 58. gr. laga um útlendinga er felld úr gildi. Lagt er fyrir stofnunina að taka umsókn kæranda til nýrrar meðferðar.


  • 11. október 2019 / Úrskurðir um sjávarútveg og fiskeldi

    Ákvörðun Fiskistofu, dags. 2. október 2018, um að svipta skip leyfi til grásleppuveiða í eina viku kærð

    Svipting á leyfi til grásleppuveiða, ítrekunaráhrif, vitjun neta, meðalhófsreglan.


  • 11. október 2019 / Úrskurðarnefnd velferðarmála - Almannatryggingar

    Nr. 234/2019 - Úrskurður

    Umönnunarmat. Felld úr gildi Ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um upphafstíma umönnunarmats og málinu vísað aftur til stofnunarinnar til nýrrar meðferðar.


  • 11. október 2019 / Kærunefnd útlendingamála

    Nr. 476/2019 Úrskurður

    Ákvarðanir Útlendingastofnunar um að synja um að taka umsóknir kærenda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á grundvelli c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og senda þau til Ítalíu eru staðfestar.


  • 10. október 2019 / Kærunefnd útlendingamála

    Nr. 484/2019 Úrskurður

    Ákvarðanir Útlendingastofnunar um að synja um að taka umsóknir kærenda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á grundvelli c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og senda þau til Ítalíu eru felldar úr gildi. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka mál kærenda til efnismeðferðar.


  • 10. október 2019 / Kærunefnd útlendingamála

    Nr. 471/2019 - Úrskurður

    Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja um að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á grundvelli c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og senda hana til Svíþjóðar er staðfest.


  • 10. október 2019 / Kærunefnd útlendingamála

    Nr. 468/2019 Úrskurður

    Beiðni kæranda um endurupptöku máls hans fyrir kærunefnd á grundvelli 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 er hafnað.


  • 10. október 2019 / Úrskurðir á málefnasviði innviðaráðuneytisins

    Úrskurður í máli nr. SRN18120060

    Reykjavíkurborg: Álagning á viðbótargatnagerðargjaldi úrskurðað ólögmætt.


  • 10. október 2019 / Kærunefnd útlendingamála

    Nr. 474/2019 Úrskurður

    Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja um að taka umsókn kæranda og barna hennar um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á grundvelli a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og senda hana og börn hennar til Ítalíu er staðfest.


  • 10. október 2019 / Kærunefnd útlendingamála

    Nr. 471/2019 Úrskurður

    Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja um að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á grundvelli c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og senda hana til Svíþjóðar er staðfest.


  • 10. október 2019 / Kærunefnd útlendingamála

    Nr. 475/2019 Úrskurður

    Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja um að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á grundvelli a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og senda hann til Grikklands er staðfest.


  • 09. október 2019 / Mannanafnanefnd

    Mál nr. 93/2019 Úrskurður 9. október 2019

    Beiðni um eiginnafnið Elja (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaská.


  • 09. október 2019 / Úrskurðarnefnd velferðarmála - Almannatryggingar

    Nr. 224/2019 - Úrskurður

    Slysatrygging/örorka. Staðfest ákvörðun Sjúkratrygginga Íslands um 10% varanlega læknisfræðilega örorku vegna slyss.


  • 09. október 2019 / Úrskurðarnefnd velferðarmála - Almannatryggingar

    Nr. 205/2019 - Úrskurður

    Slysatrygging/örorka. Staðfest ákvörðun Sjúkratrygginga Íslands um 10% varanlega læknisfræðilega örorku vegna slyss.


  • 831/2019. Úrskurður frá 27. september 2019

    Kæru var vísað frá þar sem afgreiðsla embættis ríkisendurskoðanda á beiðni um aðgang að gögnum er ekki kæranleg til úrskurðarnefndar um upplýsingamál, sbr. 4. mgr. 15. gr. laga um ríkisendurskoðanda og endurskoðun ríkisreikninga, nr. 46/2016.


  • 830/2019. Úrskurður frá 27. september 2019

    Kæru var vísað frá þar sem kærði var ekki talinn heyra undir upplýsingalög nr. 140/2012.


  • 829/2019. Úrskurður frá 27. september 2019

    Kæru var vísað frá þar sem kærði var ekki talinn heyra undir upplýsingalög nr. 140/2012.


  • 828/2019. Úrskurður frá 27. september 2019

    Í málinu var deilt um rétt kæranda, blaðamanns, til aðgangs að sérfræðiálitum sem veitt voru í tengslum við málarekstur ríkisins fyrir Mannréttindadómstól Evrópu. Úrskurðarnefnd féllst á það með embætti ríkislögmanns að embættinu væri heimilt að takmarka rétt kæranda til aðgangs að gögnunum með vísan til 3. tölul. 6. gr. upplýsingalaga en samkvæmt ákvæðinu nær réttur almennings til aðgangs að gögnum ekki til bréfaskipta við sérfróða aðila í tengslum við réttarágreining eða til afnota í dómsmáli eða við athugun á því hvort slíkt mál skuli höfðað. Taldi nefndin embætti ríkislögmanns vera sérfróðan aðila í skilningi ákvæðisins auk þess sem gögn sem stöfuðu frá öðrum sérfróðum aðilum yrðu felld undir ákvæðið. Var því ákvörðun embættisins staðfest.


  • 827/2019. Úrskurður frá 27. september 2019

    Deilt var um þá ákvörðun fjármála- og efnahagsráðuneytisins að synja beiðni kæranda um aðgang að greinargerð setts ríkisendurskoðanda um starfsemi Lindarhvols ehf. Ákvörðun ráðuneytisins var byggð á ákvæði 3. mgr. 15. gr., sbr. 14. gr. laga um ríkisendurskoðanda og endurskoðun ríkisreikninga. Úrskurðarnefnd taldi ákvæðið fela í sér sérstaka þagnarskyldureglu sem takmarkaði upplýsingarétt almennings, sbr. 3. mgr. 4. gr. upplýsingalaga. Nefndin féllst á það með ráðuneytinu að greinargerðin hefði verið send ráðuneytinu á grundvelli lagaskyldu og að hún væri í drögum og athugun málsins væri ekki lokið. Væri greinargerðin því undirorpin sérstakri þagnarskyldu, sbr. 3. mgr. 15. gr. laga um ríkisendurskoðanda og endurskoðun ríkisreikninga. Var synjun ráðuneytisins því staðfest.


  • 09. október 2019 / Kærunefnd útlendingamála

    Nr. 486/2019 - Úrskurður

    Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja um að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á grundvelli c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og endursenda hann til Svíþjóðar er staðfest.


  • 826/2019. Úrskurður frá 27. september 2019

    Deilt var um þá ákvörðun fjármála- og efnahagsráðuneytisins að synja beiðni kæranda um aðgang að greinargerð setts ríkisendurskoðanda um starfsemi Lindarhvols ehf. Ákvörðun ráðuneytisins var byggð á ákvæði 3. mgr. 15. gr., sbr. 14. gr. laga um ríkisendurskoðanda og endurskoðun ríkisreikninga. Úrskurðarnefnd taldi ákvæðið fela í sér sérstaka þagnarskyldureglu sem takmarkaði upplýsingarétt almennings, sbr. 3. mgr. 4. gr. upplýsingalaga. Nefndin féllst á það með ráðuneytinu að greinargerðin hefði verið send ráðuneytinu á grundvelli lagaskyldu og að hún væri í drögum og athugun málsins væri ekki lokið. Væri greinargerðin því undirorpin sérstakri þagnarskyldu, sbr. 3. mgr. 15. gr. laga um ríkisendurskoðanda og endurskoðun ríkisreikninga. Var synjun ráðuneytisins því staðfest.


  • 825/2019. Úrskurður frá 27. september 2019

    Kærendur óskuðu eftir því að utanríkisráðuneytið veitti þeim aðgang að öllum gögnum borgaraþjónustumáls. Ráðuneytið synjaði beiðninni að hluta á þeim grundvelli að annars vegar væri um að ræða upplýsingar um viðkvæma einkahagsmuni einstaklinga, sbr. 9. gr. upplýsingalaga, en hins vegar að heimilt væri að takmarka aðgang kærenda að upplýsingum um samskipti við önnur ríki og fjölþjóðastofnanir, sbr. 2. tölul. 10. gr. laganna. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál tók fram að um upplýsingarétt kærenda færi eftir 1. mgr. 14. gr. upplýsingalaga. Fallist var á röksemdir ráðuneytisins varðandi hluta umbeðinna gagna en um önnur vísaði nefndin til þess að ekki væri um viðkvæma einkahagsmuni að ræða eða mikilvægir almannahagsmunir stæðu ekki til beitingar 2. tölul. 10. gr., sbr. 3. mgr. 14. gr., upplýsingalaga. Var því lagt fyrir utanríkisráðuneytið að veita kærendum aðgang að hluta skjalanna en hin kærða ákvörðun staðfest að öðru leyti.


  • 09. október 2019 / Úrskurðarnefnd velferðarmála - Almannatryggingar

    Nr. 266/2019 - Úrskurður

    Staðfest ákvörðun Sjúkratrygginga Íslands um bætur úr sjúklingatryggingu. Úrskurðarnefnd velferðarmála taldi að varanleg einkenni kæranda mætti ekki rekja til sjúklingatryggingaratviksins. Þá taldi nefndin að sjúklingatryggingaratvik hafi ekki leitt til skerðingar á varanlegri getu tjónþola til að afla vinnutekna.


  • 824/2019. Úrskurður frá 27. september 2019

    Í málinu var deilt um þá ákvörðun Menntamálastofnunar að synja beiðni kæranda um aðgang samræmdum könnunarprófum sem lögð voru fyrir dóttur kæranda í september 2018. Fyrir lá að kærandi hafði fengið aðgang að svörum barnsins en hafði verið synjað um aðgang að prófspurningunum. Leyst var úr málinu á grundvelli 14. gr. upplýsingalaga. Fallist var á heimild Menntamálastofnunar til að synja kæranda um aðgang að prófspurningunum á grundvelli 5. tölul. 10. gr. upplýsingalaga, sbr. 2. tölul. 2. mgr. 14. gr. laganna, enda hafði stofnunin fyrirhugað að leggja annað prófið fyrir í óbreyttri mynd og hitt prófið í svo til óbreyttri mynd, haustið 2019.


  • 823/2019. Úrskurður frá 27. september 2019

    Deilt var um synjun sveitarfélagsins Árborgar á beiðni um skýrslu sem unnin var af sálfræðistofunni Lífi og sál og varðaði athugun á innra starfsumhverfi í Barnaskólanum [...]. Í fyrstu var kæranda synjað um aðgang að skýrslunni í heild sinni en undir rekstri málsins fékk kærandi aðgang að skýrslunni, þar sem strikað hafði verið yfir upplýsingar um einkahagsmuni tiltekinna einstaklinga. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi að um aðgang kæranda að skýrslunni færi samkvæmt 14. gr. upplýsingalaga. Var það mat nefndarinnar að hagsmunir kæranda af því að fá aðgang að skýrslunni vægju þyngra en hagsmunir þeirra sem upplýsingarnar vörðuðu af því að það sem strikað var yfir færi leynt, sbr. 3. mgr. 14. gr. laganna. Var því lagt fyrir sveitarfélagið Árborg að veita kæranda aðgang að skýrslunni í heild sinni.


  • 09. október 2019 / Úrskurðarnefnd velferðarmála - Almannatryggingar

    Nr. 337/2019 - Úrskurður

    Örorkumat. Staðfest ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um að synja kæranda um örorkumat. Ekki talið að endurhæfing hafi verið fullreynd.


  • 09. október 2019 / Úrskurðarnefnd velferðarmála - Almannatryggingar

    Nr. 307/2019 - Úrskurður

    Örorkumat. Staðfest ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um að synja kæranda um örorkumat. Ekki talið að endurhæfing hafi verið fullreynd. ​


  • 09. október 2019 / Úrskurðarnefnd velferðarmála - Almannatryggingar

    Nr. 297/2019 - Úrskurður

    Örorkumat. Felld úr gildi ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um að synja kæranda um örorkulífeyri og tengdar greiðslur og vísað aftur til stofnunarinnar til nýrrar meðferðar. Að mati úrskurðarnefndar var misræmi í gögnum málsins varðandi mat á líkamlegri færni kæranda. ​


  • 09. október 2019 / Úrskurðarnefnd velferðarmála - Almannatryggingar

    Nr. 276/2019 - Úrskurður

    Staðfest ákvörðun Sjúkratrygginga Íslands um synjun bóta úr sjúklingatryggingu. Úrskurðarnefnd velferðarmála taldi að krafa kæranda um bætur samkvæmt lögum um sjúklingatrygginga hafi ekki verið sett fram innan þess fjögurra ára fyrningarfrests sem kveðið er á um í 1. mgr. 19. gr. laganna. ​


  • 09. október 2019 / Úrskurðarnefnd velferðarmála - Almannatryggingar

    Nr. 192/2019 - Úrskurður

    Staðfest ákvörðun Sjúkratrygginga Íslands um synjun bóta úr sjúklingatryggingu. Úrskurðarnefnd velferðarmála taldi að fyrirliggjandi gögn bentu ekki til annars en að rannsókn og meðferð kæranda hafi verið hagað eins vel og unnt hefði verið og í samræmi við þekkingu og reynslu á viðkomandi sviði.


  • 09. október 2019 / Úrskurðarnefnd velferðarmála - Almannatryggingar

    Nr. 313/2019 - Úrskurður

    Örorkumat. Staðfest ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um að synja kæranda um örorkulífeyri og tengdar greiðslur. ​


  • 09. október 2019 / Úrskurðarnefnd velferðarmála - Almannatryggingar

    Nr. 125/2019 - Úrskurður

    Staðfest ákvörðun Sjúkratrygginga Íslands um bætur úr sjúklingatryggingu. Úrskurðarnefnd velferðarmála taldi að varanleg einkenni kæranda sem rekja mætti til sjúklingatryggingaratviksins. Þá taldi nefndin að sjúklingatryggingaratvik hafi ekki leitt til skerðingar á varanlegri getu tjónþola til að afla vinnutekna. ​


  • 09. október 2019 / Úrskurðarnefnd velferðarmála - Almannatryggingar

    Nr. 25/2019 - Úrskurður

    Staðfest ákvörðun Sjúkratrygginga Íslands um synjun bóta úr sjúklingatryggingu. Úrskurðarnefnd velferðarmála taldi að fyrirliggjandi gögn bentu ekki til annars en að rannsókn og meðferð kæranda hafi verið hagað eins vel og unnt hefði verið og í samræmi við þekkingu og reynslu á viðkomandi sviði. Þá taldi nefndin að betri árangur hefði ekki náðst með öðru meðferðarúrræði


  • 08. október 2019 / Úrskurðir mennta- og barnamálaráðuneytisins

    Synjun um skólavist á framhaldsskólabraut skóla

    Ár 2019, þriðjudagur 8. október, var kveðinn upp í mennta- og menningarmálaráðuneytinu svofelldur úrskurður


  • 08. október 2019 / Kærunefnd útlendingamála

    Nr. 465/2019 Úrskurður

    Ákvarðanir Útlendingastofnunar um að synja umsóknum kærenda og barna þeirra um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða eru staðfestar.


  • 08. október 2019 / Úrskurðir um sjávarútveg og fiskeldi

    Ákvörðun Fiskistofu um að svipta norsk skip leyfi til veiða í íslenskri landhelgi kærð

    Leyfi til veiða í fiskveiðilandhelgi Íslands, tilkynning á afla, afladagbækur, vigtun, erlend skip


  • 08. október 2019 / Kærunefnd útlendingamála

    Nr. 419/2019 Úrskurður

    Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja umsókn kæranda um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi af mannúðarástæðum er staðfest.


  • 08. október 2019 / Kærunefnd útlendingamála

    Nr. 467/2019 Úrskurður

    Ákvörðunum Útlendingastofnunar um að synja umsóknum kærenda og barns þeirra um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi af mannúðarástæðum ásamt því að vísa honum frá Íslandi er staðfest.


  • 07. október 2019 / Úrskurðarnefnd velferðarmála - Barnaverndarmál

    Nr. 232/2019 - Úrskurður

    Staðfestur úrskurður barnaverndarnefndar um umgengni kynmóður við börn hennar.


  • 07. október 2019 / Úrskurðarnefnd velferðarmála - Barnaverndarmál

    Nr. 230/2019 - Úrskurður

    Staðfestur úrskurður barnaverndarnefndar um umgengni kynföður við börn hans og föðurömmu við barnabörn hennar.


  • 04. október 2019 / Kærunefnd útlendingamála

    Nr. 470/2019 - Úrskurður

    Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja um að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á grundvelli c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og senda hann til Þýskalands er staðfest.


  • 04. október 2019 / Matsnefnd eignarnámsbóta

    Matsmál nr. 1/2019, úrskurður 1. júlí 2019

    Míla ehf. gegn Arnóri Sigurvinssyni


  • 03. október 2019 / Kærunefnd útlendingamála

    Nr. 466/2019 - Úrskurður

    Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja um að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á grundvelli c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og senda hann til Þýskalands er staðfest.


  • 03. október 2019 / Mannanafnanefnd

    Mál nr. 91/2019 Úrskurður 3. október 2019

    Beiðni um eiginnafnið Aldur (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.


  • 03. október 2019 / Mannanafnanefnd

    Mál nr. 90/2019 Úrskurður 3. október 2019

    Beiðni um eiginnafnið Delía (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.


  • 03. október 2019 / Mannanafnanefnd

    Mál nr. 89/2019 Úrskurður 3. október 2019

    Beiðni um að eiginnafnið Reinhard (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.


  • 03. október 2019 / Mannanafnanefnd

    Mál nr. 88/2019 Úrskurður 3. október 2019

    Fallist er á föðurkenninguna Alexandersdóttir.


  • 03. október 2019 / Mannanafnanefnd

    Mál nr. 87/2019 Úrskurður 3. október 2019

    Beiðni um eiginnafnið Amarie (kvk.) er hafnað.


  • 03. október 2019 / Mannanafnanefnd

    Mál nr. 86/2019 Úrskurður 3. októeber 2019

    Beiðni um eiginnafnið Jarpi (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.


  • 03. október 2019 / Mannanafnanefnd

    Mál nr. 85/2019 Úrskurður 3. október 2019

    Beiðni um eiginnafnið Katra (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.


  • 03. október 2019 / Mannanafnanefnd

    Mál nr. 84/2019 úrskurður 3. október 2019

    Beiðni um eiginnafnið Jasper (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.


  • 03. október 2019 / Mannanafnanefnd

    Mál nr. 82/2019 Úrskurður 3. október 2019

    Beiðni um eiginnafnið Ljóni (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.


  • 03. október 2019 / Mannanafnanefnd

    Mál nr. 81/2019 Úrskurður 3. október 2019

    Beiðni um eiginnafnið Thorsteinn (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskráð sem ritháttur nafnsins Þorsteinn.


  • 03. október 2019 / Mannanafnanefnd

    Mál nr. 80/2019 Úrskurður 3. október 2019

    Beiðni um eiginnafnið Yrkir (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.


  • 03. október 2019 / Mannanafnanefnd

    Mál nr. 77/2019 Úrskurður 3. október 2019

    Beiðni um eiginnafnið Ezra (kk.) er hafnað.


  • 01. október 2019 / Kærunefnd útlendingamála

    Nr. 464/2019 - Úrskurður

    Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja um að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á grundvelli a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og senda hann til Þýskalands er staðfest.


  • 30. september 2019 / Kærunefnd útlendingamála

    Nr. 463/2019 Úrskurður

    Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja umsókn kæranda um dvalarleyfi á grundvelli 62. gr. laga um útlendinga er staðfest.


  • 30. september 2019 / Kærunefnd útlendingamála

    Nr. 462/2019 Úrskurður

    Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja umsókn kæranda um dvalarleyfi á grundvelli 62. gr. laga um útlendinga er staðfest.


  • 30. september 2019 / Kærunefnd útboðsmála

    Mál nr. 16/2019. Úrskurður kærunefndar útboðsmála.

    Með kæru móttekinni hjá kærunefnd útboðsmála 14. júní 2019 kærði Malbikun Akureyrar ehf. útboð Vegagerðarinnar, Vg2019-030, auðkennt „Yfirlagnir á Norður- og Austursvæði 2019 - malbik“. Kærandi krefst þess að kærunefnd útboðsmála felli úr gildi ákvörðun varnaraðila að hefja samningaviðræður við Finn ehf. um hið útboðna verk. Jafnframt er þess aðallega krafist að „úrskurðað verði að kærði Vegagerðin skuli ganga til samninga við kæranda“ um hið útboðna verk, en til vara „að úrskurðað verði að verkið skuli boðið út að nýju.“ Verði ekki fallist á fyrri kröfur er þess krafist að kærunefnd útboðsmála láti uppi álit sitt á skaðabótaskyldu varnaraðila gagnvart kæranda. Jafnframt er þess krafist „að báðum kærðu“ verði gert að greiða kæranda málskostnað. Varnaraðila og Finni ehf. var kynnt kæran og gefinn kostur á að gera athugasemdir. Með greinargerðum varnaraðila 2. júlí og 1. ágúst 2019 var þess krafist að „kröfu kæranda um að Vegagerðin skuli ganga til samninga við kæranda verði vísað frá“ og jafnframt að „öllum öðrum kröfum kæranda verði hafnað.“ Í greinargerð sem móttekin var hjá kærunefnd útboðsmála 1. júlí 2017 krafðist Finnur ehf. þess að öllum kröfum kæranda yrði hafnað og að kæranda yrði gert að greiða málskostnað fyrirtækisins samkvæmt mati nefndarinnar „ef það er fært en a.m.k. í ríkissjóð“. Kærandi skilaði andsvörum 23. ágúst 2019. Með ákvörðun kærunefndar útboðsmála 17. júlí 2019 var hafnað þeirri kröfu varnaraðila að sjálfkrafa stöðvun hins kærða útboðs sem hafði komist á með kæru yrði aflétt.


  • 30. september 2019 / Kærunefnd útboðsmála

    Mál nr. 14/2019. Úrskurður kærunefndar útboðsmála.

    Með kæru móttekinni hjá kærunefnd útboðsmála 13. maí 2019 kærðu Aflvélar ehf. útboð Ríkiskaupa f.h. Vegagerðarinnar (hér eftir vísað til sameiginlega sem varnaraðila) nr. 20931 auðkennt „Öryggisvottaðir vegriðsendar fyrir Vegagerðina.“ Kærandi krefst þess aðallega að kærunefnd útboðsmála felli úr gildi ákvörðun varnaraðila um að velja tilboð Nortek ehf. í hinu kærða útboði og að lagt verði fyrir þá „að velja tilboð að nýju.“ Til vara gerir kærandi þá kröfu að hið kærða útboð verði ógilt og lagt verði fyrir varnaraðila að bjóða út innkaupin að nýju. Þá er þess einnig krafist að kærunefndin láti uppi álit sitt á skaðabótaskyldu varnaraðila gagnvart kæranda. Jafnframt er krafist málskostnaðar. Varnaraðilum og Nortek ehf. var kynnt kæran og gefinn kostur á að gera athugasemdir. Með greinargerðvarnaraðila 29. maí 2019 var þess krafist að öllum kröfum kæranda yrði hafnað. Þennan sama dag skilaði Nortek ehf. greinargerð af sinni hálfu þar sem þess var krafist að kærunefnd útboðsmála „staðfesti niðurstöðu kaupanda“ um að ganga til samninga við fyrirtækið. Kærandi skilaði andsvörum sem voru móttekin 30. júlí 2019. Með ákvörðun kærunefndar útboðsmála 7. júní 2019 var aflétt þeirri sjálfkrafa stöðvun hins kærða útboðs sem komist hafði á með kæru í máli þessu.


  • 30. september 2019 / Kærunefnd útboðsmála

    Mál nr. 12/2019. Úrskurður kærunefndar útboðsmála.

    Með kæru móttekinni hjá kærunefnd útboðsmála 3. maí 2019 kærði Klæðir ehf. útboð Vegagerðarinnar (hér eftir vísað til sem varnaraðila) auðkennt „Yfirlagnir á Austursvæði, 2019-2020, klæðning“. Kærandi krefst þess aðallega að kærunefnd útboðsmála felli úr gildi ákvörðun varnaraðila 30. apríl 2019 um að semja við Munck Asfalt A/S í hinu kærða útboði. Til vara er þess krafist að kærunefnd láti uppi álit sitt á skaðabótaskyldu varnaraðila gagnvart kæranda. Þá er krafist málskostnaðar. Varnaraðila og Munck Asfalt A/S var kynnt kæran og gefinn kostur á að gera athugasemdir. Með greinargerðum varnaraðila 10. og 29. maí 2019 var þess krafist að öllum kröfum kæranda yrði hafnað. Auk þess var þess krafist að kærunefnd útboðsmála léti „í ljós það álit að kærandi skuli sjálfur bera kostnað af því að hafa kæruna uppi.“ Munck Asfalt A/S skilaði greinargerð 9. maí 2019 sem skilja verður sem svo að gerð sé krafa um að öllum kröfum kæranda sé hafnað. Kærandi ítrekaði kröfur og sjónarmið sem koma fram í kæru með tölvubréfi 13. ágúst 2019. Með ákvörðun kærunefndar útboðsmála 17. maí 2019 var aflétt þeirri sjálfkrafa stöðvun hins kærða útboðs sem komist hafði á með kæru í máli þessu.


  • 30. september 2019 / Kærunefnd útboðsmála

    Mál nr. 9/2019. Úrskurður kærunefndar útboðsmála.

    Með kæru 17. apríl 2019 kærði Medor ehf. útboð Ríkiskaupa fyrir hönd Landspítala nr. 20879 „Framework Contract for delivery of 1. Implantable Cardiac Pacemakers (ICPs) 2. Implantable Cardioverter-Defibrillators (ICDs) 3. Pacing Leads 4. Defibrillation Leads“. Kærandi gerir aðallega þá kröfu að felld verði úr gildi ákvörðun varnaraðila Ríkiskaupa fyrir hönd Landspítala (hér eftir vísað til sem varnaraðila) um að meta tilboð hans ógilt og taka tilboðum Abbott Medical Denmark og AZ Medica ehf., sem og að kærunefndin leggi fyrir varnaraðila að ganga til samninga við kæranda í samræmi við tilboð hans í hinu kærða útboði. Til vara er þess krafist að útboðið í heild sinni verði lýst ógilt og varnaraðilum gert að auglýsa það að nýju. Þá er gerð krafa um að kærunefnd útboðsmála láti uppi álit sitt á skaðabótaskyldu varnaraðila gagnvart kæranda og að varnaraðilum verði gert að greiða kæranda málskostnað. Varnaraðilum var kynnt kæran og gefinn kostur á að gera athugasemdir. Greinargerðir varnaraðila bárust kærunefnd útboðsmála 6. og 10. maí 2019 þar sem þess var krafist að öllum kröfum kæranda yrði hafnað. Abbott Medical Denmark og AZ Medica ehf. var gefinn kostur á að koma að athugasemdum og bárust athugasemdir AZ Medica ehf. 15. maí 2019 þar sem þess var krafist að öllum kröfum kæranda yrði vísað frá eða hafnað. Kæranda var gefinn kostur á að gera athugasemdir við greinargerðir varnaraðila en kærandi nýtti sér það ekki. Kæra beinist að vali tilboða og barst innan lögboðins biðtíma samkvæmt 86. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup og leiddi þannig til sjálfkrafa stöðvunar samningsgerðar. Með ákvörðun 24. maí 2019 aflétti kærunefndin sjálfkrafa stöðvun samningsgerðar í kjölfar hins kærða útboðs.


  • 30. september 2019 / Kærunefnd útboðsmála

    Mál nr. 8/2019. Úrskurður kærunefndar útboðsmála.

    Með kæru móttekinni hjá kærunefnd útboðsmála 12. apríl 2019 kærði Tak – Malbik ehf. útboð Vegagerðarinnar (hér eftir vísað til sem varnaraðila) auðkennt „Efnisvinnsla á Vestursvæði 2019, Fossamelar“. Kærandi krafðist þess að kærunefnd útboðsmála ógilti ákvörðun kærða um að velja tilboð Þróttar ehf. í hinu kærða útboði. Þá var þess krafist að kærunefnd „tjái sig um bótaskyldu kærða og grundvöll skaðabóta“. Auk þess var krafist málskostnaðar. Með bréfi 13. maí 2019 óskaði kærunefnd útboðsmála upplýsinga frá varnaraðila um hvort hið kærða útboð hefði verið auglýst á EES-svæðinu og hvaða sjónarmið réðu því ef það var ekki gert. Í svari varnaraðila frá 20. maí 2019 kom fram að útboðið hefði ekki verið auglýst á EES-svæðinu þar sem það varðaði gerð verksamnings sem væri undir viðmiðunarfjárhæðum til útboðsskyldu samkvæmt reglugerð nr. 178/2018 um auglýsingu innkaupa á útboðsvef, viðmiðunarfjárhæðir vegna opinberra innkaupa og innkaup samkvæmt samningi Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar (WTO). Með ákvörðun 7. júní 2019 tók nefndin afstöðu til kröfu varnaraðila um að sjálfkrafa stöðvun innkaupaferlisins sem komist hafði á með kæru í málinu yrði aflétt. Kröfunni var hafnað og stendur stöðvun innkaupaferlisins því yfir þar til leyst hefur verið úr kröfum kæranda. Hinn 15. júlí 2019 tilkynnti kærunefnd útboðsmála aðilum um að nefndin hefði til skoðunar að leita ráðgefandi álits EFTA-dómstólsins á því um hvers konar samning væri að ræða í hinu kærða útboði, sbr. tilskipun nr. 2014/24/ESB. Var aðilum gefið færi á að tjá sig um þetta, sbr. 3. mgr. 108. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup. Athugasemdir bárust frá aðilum. 9. ágúst, 29. júlí, 9. ágúst og 21. ágúst 2019.


  • 30. september 2019 / Kærunefnd útboðsmála

    Mál nr. 6/2019. Úrskurður kærunefndar útboðsmála.

    Með kæru móttekinni hjá kærunefnd útboðsmála 29. mars 2019 kærði Verkís hf. útboð Ríkiskaupa f.h. Vatnajökulsþjóðgarðs (hér eftir vísað til sameiginlega sem varnaraðila) nr. 20888 auðkennt „Innheimtukerfi fyrir þjónustugjöld Vatnajökulsþjóðgarðs.“ Kærandi krefst þess að kærunefnd útboðsmála felli úr gildi ákvörðun varnaraðila að taka tilboði Computer Vision ehf. í hinu kærða útboði. Þá er krafist álits á skaðabótaskyldu varnaraðila gagnvart kæranda auk málskostnaðar. Varnaraðilum og Computer Vision ehf. var kynnt kæran og gefinn kostur á að gera athugasemdir. Með greinargerð varnaraðila 23. apríl 2019 var þess krafist að öllum kröfum kæranda yrði vísað frá eða hafnað. Computer Vision ehf. gerði sömu kröfur með greinargerð 23. apríl 2019, auk þess sem krafist var málskostnaðar úr hendi kæranda. Kærandi skilaði andsvörum 18. júní 2019. Með ákvörðun kærunefndar útboðsmála 2. maí 2019 var aflétt þeirri sjálfkrafa stöðvun hins kærða útboðs sem hafði komist á með kæru í máli þessu.


  • 30. september 2019 / Kærunefnd útboðsmála

    Mál nr. 5/2019. Úrskurður kærunefndar útboðsmála.

    Með kæru 1. apríl 2019 kærði Efla hf. örútboð Ríkiskaupa nr. 20901 „Nýr Landspítali við Hringbraut. Jarðvinna og veitur. Áfangi 1 – Eftirlit“ fyrir hönd Framkvæmdasýslu ríkisins innan rammasamnings RK 14.26 „Þjónusta sérfræðinga í umhverfis-, skipulags- og byggingamálum“. Kærandi gerir aðallega þá kröfu að felld verði úr gildi ákvörðun varnaraðila Ríkiskaupa og Framkvæmdasýslu ríkisins (hér eftir vísað til sem varnaraðila) að velja tilboð Verkís hf. í hinu kærða útboði og meta tilboð kæranda ógilt. Til vara er þess krafist að varnaraðilum verði gert að auglýsa útboðið á nýjan leik. Þá er gerð krafa um að varnaraðilar greiði kæranda málskostnað. Varnaraðilum var kynnt kæran og gefinn kostur á að gera athugasemdir. Greinargerðir varnaraðila bárust kærunefnd útboðsmála 14. apríl 2019 þar sem þess var krafist að öllum kröfum kæranda yrði vísað frá eða hafnað. Verkís ehf. var gefinn kostur á að koma að athugasemdum og bárust þær nefndinni 12. apríl 2019. Kærandi sendi athugasemdir vegna greinargerða varnaraðila 3. júní 2019 og gerði þá nýja kröfu um að kærunefndin léti uppi álit sitt á skaðabótaskyldu varnaraðila gagnvart kæranda. Með ákvörðun 6. maí 2019 hafnaði kærunefnd útboðsmála að stöðva samningsgerð varnaraðila, Ríkiskaupa og Framkvæmdasýslu ríkisins, við Verkís hf., í kjölfar hins kærða örútboðs.


  • 30. september 2019 / Úrskurðarnefnd velferðarmála - Barnaverndarmál

    Nr. 275/2019 - Úrskurður

    Felldur úr gildi úrskurður barnaverndarnefndar um umgengni kynmóður við dóttur hennar.


  • 30. september 2019 / Úrskurðarnefnd velferðarmála - Barnaverndarmál

    Nr. 218/2019 - Úrskurður

    Staðfestur úrskurður barnaverndarnefndar um umgengni kynföður við börn hans.


  • 30. september 2019 / Úrskurðarnefnd velferðarmála - Barnaverndarmál

    Nr. 166/2019 - Úrskurður

    Staðfestur úrskurður barnaverndarnefndar um umgengni kynföður við son hans.


  • 28. september 2019 / Úrskurðarnefnd velferðarmála - Almannatryggingar

    Nr. 199/2019 - Úrskurður

    Slysatrygging/kostnaður. Staðfest synjun Sjúkratrygginga Íslands um endurgreiðslu kostnaðar vegna hjálpartækis úr slysatryggingum almannatrygginga.


  • 27. september 2019 / Kærunefnd útboðsmála

    Mál nr. 22/2019. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála.

    Með kæru móttekinni hjá kærunefnd útboðsmála 19. júlí 2019 kærir Orkuvirki ehf. útboð Landsnets hf. (hér eftir vísað til sem varnaraðila) auðkennt „Substation Hnappavellir – HNA-40 New 132 kV substation EPC“. Kærandi krefst þess að viðurkennt verði að kærandi teljist „lægstbjóðandi í útboðinu og Landsneti hafi á grundvelli útboðsgagna borið að semja við“ fyrirtækið. Auk þess er krafist málskostnaðar. Í þessum hluta málsins tekur kærunefnd útboðsmála afstöðu til þess hvort rétt sé að verða við kröfu varnaraðila um að aflétta sjálfkrafa stöðvun innkaupaferlisins sem komst á með kæru í þessu máli.


  • 27. september 2019 / Kærunefnd útboðsmála

    Mál nr. 10/2019. Úrskurður kærunefndar útboðsmála

    Með kæru móttekinni hjá kærunefnd útboðsmála 25. apríl 2019 kærði Geveko Markings Sweden AB útboð Vegagerðarinnar (hér eftir vísað til sem varnaraðila) nr. 20916 auðkennt „Thermoplastic road marking materials for IRCA.“ Kærandi krefst þess að sú ákvörðun varnaraðila að velja tilboð Kelly Bros (Erinline) Ltd. í hinu kærða útboði verði felld úr gildi og að varnaraðila verði gert að velja tilboð kæranda. Varnaraðila og Kelly Bros (Erinline) Ltd. var kynnt kæran og gefinn kostur á að gera athugasemdir. Með greinargerð 2. maí 2019 krafðist varnaraðili að kröfum kæranda yrði hafnað auk málskostnaðar. Kelly Bros (Erinline) Ltd. skilaði sjónarmiðum af sinni hálfu 7. maí 2019, sem skilja verður sem svo að fyrirtækið krefjist þess að kröfum kæranda verði hafnað. Kærandi skilaði andsvörum 19. júní 2019. Með ákvörðun kærunefndar útboðsmála 10. maí 2019 var aflétt þeirri sjálfkrafa stöðvun hins kærða útboðs sem hafði komist á með kæru.


  • 27. september 2019 / Úrskurðir um sjávarútveg og fiskeldi

    Ákvörðun Fiskistofu að svipta fiskiskipið Z leyfi til veiða í 4 vikur frá og með 30. júní 2019

    Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið vísar til stjórnsýslukæru X, f.h., Y, dags. 18. júní 2019, þar sem kærð er ákvörðun Fiskistofu, dags. 29. maí 2019, um að svipta fiskiskipið Z leyfi til veiða í atvinnuskyni í fjórar vikur frá og með 30. júní 2019 á grundvelli 2. mgr. 15. gr. laga nr. 57/1996, um umgengni um nytjastofna sjávar, fyrir brot gegn 2. mgr. 3. gr. sömu laga.


  • 27. september 2019 / Kærunefnd útlendingamála

    Nr. 455/2019 úrskurður

    Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja um að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á grundvelli a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og senda hann til Ítalíu er staðfest.


  • 27. september 2019 / Úrskurðarnefnd velferðarmála - Atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir

    Nr. 288/2019 - Úrskurður

    Viðurlög. Ótilkynnt vinna. Staðfest ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður bótarétt í tvo mánuði vegna ótilkynntrar vinnu.


  • 27. september 2019 / Úrskurðarnefnd velferðarmála - Atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir

    Nr. 272/2019 - Úrskurður

    Viðurlög. Ótilkynnt dvöl erlendis. Staðfest ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður bótarétt í tvo mánuði og innheimta ofgreiddar bætur.


  • 27. september 2019 / Úrskurðarnefnd velferðarmála - Atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir

    Nr. 253/2019 - Úrskurður

    Ofgreiddar bætur. Staðfest ákvörðun Vinnumálastofnunar um innheimtu ofgreiddra bóta. Kærandi var með opna launagreiðendaskrá.


  • 26. september 2019 / Kærunefnd útlendingamála

    Nr. 452/2019 Úrskurður

    Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja um að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á grundvelli a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og senda hana til Möltu er staðfest.


  • 26. september 2019 / Kærunefnd útlendingamála

    Nr. 456/2019 Úrskurður

    Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja um að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á grundvelli c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og senda hann til Ítalíu er staðfest.


  • 26. september 2019 / Kærunefnd útlendingamála

    Nr. 451/2019 Úrskurður

    Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja um að taka umsókn kæranda og barns hennar um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á grundvelli a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og senda hana og barn hennar til Ítalíu er staðfest.


  • 26. september 2019 / Úrskurðir um matvæli og landbúnað

    Kærð er ákvörðunar Matvælastofnunar frá 8. nóvember 2017 um að synja um leyfi til innflutnings á ferskum eggjum til manneldis.

    Synjun um leyfi til innflutnings á ferskum eggjum til manneldis


  • 26. september 2019 / Kærunefnd útlendingamála

    Nr. 453/2019 - Úrskurður

    Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja um að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á grundvelli a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og endursenda hann til Grikklands er staðfest.


  • 26. september 2019 / Kærunefnd útlendingamála

    Nr. 454/2019 - Úrskurður

    Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja um að taka umsókn kærenda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á grundvelli a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og senda þau til Grikklands er staðfest.


  • 26. september 2019 / Kærunefnd húsamála

    Mál nr. 64/2019 - Álit

    Notkun bílastæðis fyrir framan bílskúr.


  • 26. september 2019 / Kærunefnd útlendingamála

    Nr. 458/2019 Úrskurður

    Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja um að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á grundvelli c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og senda hann til Bretlands er staðfest.


  • 26. september 2019 / Kærunefnd útlendingamála

    Nr. 457/2019 Úrskurður

    Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja um að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á grundvelli a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og senda hann til Ítalíu er staðfest.


  • 26. september 2019 / Kærunefnd útlendingamála

    Nr. 459/2019 - Úrskurður

    Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja um að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á grundvelli c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og senda hann til Ítalíu er staðfest.


  • 26. september 2019 / Kærunefnd húsamála

    Nr. 83/2019 - Úrskurður

    Tryggingarfé.


  • 26. september 2019 / Kærunefnd húsamála

    Nr. 70/2019 - Álit

    Kattahald.


  • 26. september 2019 / Kærunefnd húsamála

    Nr. 67/2019 - Úrskurður

    Tryggingarfé.

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta