Hoppa yfir valmynd
Táknmál

Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Síðumúla 24
108 Reykjavík
Sími: 545 8100
Netfang: [email protected]
Kt. 521218-0610

Afgreiðsla ráðuneytisins er opin virka daga kl. 8.30–16.00.

Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið tók til starfa 1. febrúar 2022 í samræmi við forsetaúrskurð um skiptingu Stjórnarráðs Íslands í ráðuneyti.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, fer með yfirstjórn ráðuneytisins og ber ábyrgð á öllum stjórnarframkvæmdum þess.

Verkefni félags- og vinnumarkaðsráðuneytisins varða félags- og fjölskyldumál, lífeyristryggingar, almannatryggingar, vinnumál og undir ráðuneytið heyrir úrskurðarnefnd velferðarmála. Árið 2022 tók auk þess til starfa ný sjálfstæð eftirlitsstofnun, Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála. Þjónusta við umsækjendur um alþjóðlega vernd heyrir auk þess undir ráðuneytið.

Ráðuneytisstjóri stýrir ráðuneytinu undir yfirstjórn ráðherra. Ráðuneytisstjóri er Gissur Pétursson.

Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Auglýst eftir styrkjum vegna verkefna og viðburða á sviði jafnréttismála

Sjá nánari upplýsingar

Auglýst er eftir umsóknum um styrki til verkefna og viðburða á sviði jafnréttismála. Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið veitir slíka styrki til eins árs í senn. Umsóknarfrestur er til miðnættis 25. okt 2024.

Auglýst eftir styrkjum frá félagasamtökum: Verkefna- og rekstrarstyrkir

Sjá nánari upplýsingar

Auglýst er eftir umsóknum um styrki frá íslenskum félagasamtökum til verkefna og starfsemi sem heyrir undir málefnasvið félags- og vinnumarkaðsráðuneytisins. Umsóknarfrestur er til 28. október 2024 kl. 13:00.

Hvað gerum við?

Verkefni félags- og vinnumarkaðsráðuneytisins varða meðal annars velferðar- og fjölskyldumál, vinnumarkaðsmál og málefni innflytjenda. 

Ráðherra fer með yfirstjórn ráðuneytisins og ber ábyrgð á öllum stjórnarframkvæmdum þess.

Ráðuneytisstjóri stýrir ráðuneytinu undir yfirstjórn ráðherra. 

Nánar
No image selected

Félags- og vinnumarkaðsráðherra

Bjarni Benediktsson

Bjarni tók við embætti forsætisráðherra 9. apríl 2024. Hann var utanríkisráðherra frá 14. október 2023 til 9. apríl 2024. Þar áður gegndi hann embætti fjármála- og efnahagsráðherra frá 30. nóvember 2017. Hann hefur setið á Alþingi fyrir Sjálfstæðisflokkinn í suðvesturkjördæmi frá 2003. Bjarni er formaður flokksins frá 2009. Hann var fjármála- og efnahagsráðherra frá 23. maí 2013 til 11. janúar 2017 og forsætisráðherra frá 11. janúar 2017 til 30. nóvember 2017.

Nánar

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta