Hoppa yfir valmynd

Aðgerð

A.12. Akstursþjónusta í dreifbýli

. Aðgerðinni er lokið

Tengiliður    Guðni Olgeirsson, mennta- og barnamálaráðuneyti
                     [email protected]

Fréttir

27.01.22 Lokið með reglugerð nr. 1088/2018 um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga. Jöfnunarsjóður úthlutaði 14 m.kr. á grundvelli umsókna frá sveitar-félögum á árinu 2019 og 18 m.kr. árið 2020. Útreikningar vegna 2021 verða framkvæmdir í lok árs. Framlögin eru að hámarki 50 m.kr. hvert ár.

18.12.20 Jöfnunarsjóður sveitarfélaga úthlutaði 14 m.kr árið 2019 á grundvelli umsókna frá sveitarfélögum. Framlög árið 2020 verða að hámarki 50 m.kr. en unnið er að útreikningum framlaga á grundvelli umsókna.

29.11.19 Aðgerð lokið með reglugerð nr. 1088/2018 um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga. Tillaga að úthlutun lögð fyrir ráðgjafanefnd Jöfnunarsjóðs fyrir áramót.

Reglugerð um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga nr. 1088/2018

06.12.18 Ný reglugerð um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga tekur gildi næstu áramót

Verkefnið

Verkefnismarkmið: Að auka aðgengi að skipulagðri akstursþjónustu í dreifbýli. 

Unnið verði að gerð tillagna um stuðning við skipulagða akstursþjónustu í dreifbýli sem einkum mæti þörfum fatlaðs fólks og annarra sem búa við aðstöðumun gagnvart almenningssamgöngum. Horft verði til núverandi fyrirkomulags á miðlægum stuðningi við skólaakstur úr dreifbýli. 

  • Ábyrgð: Innviðaráðuneytið. 
  • Framkvæmdaraðili: Jöfnunarsjóður sveitarfélaga. 
  • Dæmi um samstarfsaðila: Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið, Öryrkjabandalag Íslands og sveitarfélög. 
  • Tímabil: 2019–2021. 
  • Tillaga að fjármögnun: Jöfnunarsjóður sveitarfélaga. 

Félags- og fjölskyldumál
Sveitarstjórnir og byggðamál
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum