Hoppa yfir valmynd

Aðgerð

A.06. Héraðslækningar

Aðgerðin er í vinnslu

Tengiliður    Helga Harðardóttir, sérfræðingur í heilbrigðisráðuneytinu
                     [email protected]

Fréttir

27.01.22 Starfshópur skilaði inn tillögum um áramótin 2019/2020. Unnið er með þær tillögur en vinnan hefur tafist, m.a. vegna Covid. Marklýsing liggur ekki fyrir og óvíst er með framhaldið.

18.12.20 Starfshópur skilaði inn tillögum um áramótin 2019/2020. Unnið er með þær tillögur en vinnan hefur tafist, m.a. vegna Covid-19. Áætlað er að marklýsing liggi fyrir árið 2021.

29.11.19 Starfshópur á vegum heilbrigðisráðuneytis hefur skilað inn tillögum til mats- og hæfnisnefndar HRN. Áætlað að marklýsing fyrir sérnám í héraðslækningum liggi fyrir um áramótin 2019/2020. Þegar þeirri vinnu lýkur verður marklýsing birt á vef Embættis landlæknis.

Verkefnið

 Verkefnismarkmið: Að fjölga heilsugæslulæknum á landsbyggðinni með því að koma á tveggja ára námi sem býr heilsugæslulækna undir starf í dreifbýli. 

Unnið verði að frekari kortlagningu, greiningu og þróun náms sem býr heilsugæslulækna undir starf í dreifbýli. Ráðinn verði kennslustjóri og skipuð kennslunefnd. Stefnt verði að því að bjóða upp á námið eigi síðar en 2020. 

  • Ábyrgð: Heilbrigðisráðuneytið.
  • Framkvæmdaraðili: Þróunarmiðstöð heilsugæslunnar. 
  • Dæmi um samstarfsaðila: Mennta- og menningarmálaráðuneyti, heilbrigðisstofnanir utan höfuðborgarsvæðisins, vinnuhópur Félags íslenskra heimilislækna um gerð marklýsingar, mats- og hæfisnefnd um starfsnám til að öðlast almennt lækningaleyfi og um sérnám í læknisfræði og Háskólinn á Akureyri. 
  • Tímabil: 2019–2020. 
  • Tillaga að fjármögnun: 2,5 millj. kr. úr byggðaáætlun. 

Líf og heilsa
Menntamál
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum