Hoppa yfir valmynd

Ferðakostnaður vegna ferðalaga á vegum ríkisins

 Akstursgjald, bílapeningar, kílómetragjald. Mynd af þjóðvegi.

Akstursgjald, bílapeningar, kílómetragjald

Dagpeningar á ferðalögum innanlands. Mynd frá Akureyri, séð frá kirkjutröppunum.

Dagpeningar innanlands

 Dagpeningar á ferðalögum erlendis. Mynd af þjóðfánum.

Dagpeningar erlendis

Seðlabanki Íslands ákvarðar daglega gengi SDR gagnvart íslenskri krónu.

Nánar um ferðakostnað

Leyfilegur frádráttur

Leyfilegur frádráttur á móti dagpeningum og ökutækjastyrkjum, samkvæmt skattmati ríkisskattstjóra, þarf ekki að vera sama fjárhæð og ferðakostnaðarnefnd ákvarðar að greiða skuli starfsmönnum ríkisins vegna ferða á vegum launagreiðanda. Sé leyfilegur frádráttur lægri ber að skila staðgreiðslu af mismuninum.

Ferðakostnaðarnefnd

Ferðakostnaðarnefnd hefur það verkefni að ákveða hver þessi gjöld eigi að vera. Nefndin skoðar forsendur akstursgjalds og dagpeninga að jafnaði ársfjórðungslega. Í framkvæmd breytast þó fjárhæðirnar sjaldnar.

Ferðakostnaðarnefnd var fyrst skipuð samkvæmt ákvæðum kjarasamninga aðildarfélaga BSRB og BHMR við ríkið árið 1974. Í nefndinni eiga sæti einn fulltrúi tilnefndur af BSRB, annar af BHM og tveir fulltrúar tilnefndir af fjármála- og efnahagsráðherra. Nefndin er í eðli sínu samninganefnd og komi til ágreinings skipar Hagstofa Íslands oddamann, en ekki hefur enn reynt á þetta.

Um dagpeninga æðstu embættismanna og ráðherra gilda sérstakar reglur sem ferðakostnaðarnefnd fjallar ekki um.

 

Síðast uppfært: 11.3.2024
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum