Hoppa yfir valmynd

Copy of Samráðsfundir með innviðaráðherra 2025

No image selected

 

Myndatexti

 

Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra boðar til opinna íbúafunda í ágúst í öllum landshlutum til að eiga samráð um málaflokka ráðuneytisins.

Tilgangur fundanna er að kalla eftir sjónarmiðum íbúa og sveitarstjórnarfólks um málaflokka ráðuneytisins – samgöngur, sveitarstjórnar- og byggðamál og fjarskipti og stafræna innviði. Það mun m.a. nýtast í vinnu við stefnumótun og undirbúning áætlana á vegum ráðuneytisins. Þá er stefnt að því að leggja fram samgönguáætlun síðar í haust og íbúum gefst því tækifæri til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri við ráðherra. 

Fundirnir eru opnir öllum en hægt er að skrá sig á einstaka fundi hér að neðan. Fundir eru alla jafna haldnir síðdegis og boðið upp á kaffiveitingar á hverjum stað.

Dagskrá funda í ágúst

Dagskrá samráðsfunda og skráningarhlekkir.

Dags. Staðsetning (salur)  Skráning  Fundartími
12. ágúst Akureyri (Múlaberg)  Lokið 16:45-18:15
13. ágúst Borgarnes (Hjálmaklettur)  Lokið 16:30-18:00
18. ágúst Reykjanesbær (Radisson Park Inn)  Lokið 16:30-18:00
19. ágúst Ísafjörður (Edinborgarhúsið)  Lokið 16:30-18:00
20. ágúst Selfoss (Hótel Selfoss)  Lokið 16:30-18:00
25. ágúst Blönduós (Hótel Blönduós, Krúttið)  Skráning 16:30-18:00
26. ágúst Egilsstaðir (Hótel Hérað)  Skráning 16:30-18:00
28. ágúst Innviðaþing (Hilton Nordica)  Skráning allan daginn

Innviðaþing 28. ágúst

Innviðaþing verður haldið í fyrsta sinn fimmtudaginn 28. ágúst nk. á Hilton Reykjavík Nordica. Húsið opnar kl. 9 og dagskrá skömmu síðar en þinginu lýkur kl. 16.

Innviðaráðuneytið stendur að þinginu en þar verður sjónum beint að uppbyggingu og öryggi innviða í samgöngum og fjarskiptum, þ.á m. fjárfestingum í innviðum og samfélagslegum ávinningi þeirra. 

Nánari upplýsingar um dagskrá og fyrirlesara verða kynntar síðar. Skráning á Innviðaþingið er hafin.

Reglulegt samráð

Samráðsfundir eru ekki eina tækifæri íbúa til að hafa áhrif á stefnumótun ráðuneytisins. Stöðumat og valkostir (þ.e. grænbók) og drög að stefnu (þ.e. hvítbók) eru birtar í samráðsgátt stjórnvalda. Þar gefst fólki einnig tækifæri til að senda inn umsagnir og ábendingar. 

Einnig er hægt að senda inn ábendingar í tengslum við þessa fundi á netfang ráðuneytisins - [email protected] 

Forsætisráðherra, fjármála- og efnahagsráðherra, innviðaráðherra og borgarstjóri og bæjarstjórar sveitarfélaganna tóku þátt í undirrituninni á uppfærðum sáttmála

Greiðar samgöngur bæta lífsgæði til framtíðar

Smelltu á mynd til að sjá efni frá kynningarfundi um uppfærðan samgöngusáttmála

Sjá einnig:

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta