Hoppa yfir valmynd

Innviðaþing 28. ágúst 2025

Innviðaþing er haldið fimmtudaginn 28. ágúst nk. á Hilton Reykjavík Nordica undir yfirskriftinni Sterkir innviðir – sterkt samfélag. Innviðaráðuneytið stendur að þinginu en þar verður sjónum beint að uppbyggingu og öryggi innviða í samgöngum og fjarskiptum, þ.á m. fjárfestingum og samfélagslegum ávinningi.

Þingið er öllum opið en við hvetjum fólk til að skrá þátttöku sína. Húsið opnar kl. 8:30 og dagskrá hefst skömmu síðar. Þinginu lýkur kl. 16. Ítarlegar upplýsingar um dagskrá verða kynntar síðar.

Fjölbreytt dagskrá

Eyjólfur Ármannsson, innviðaráðherra, Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra og Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra flytja erindi á þinginu. Sérstakur gestur Innviðaþings er Jari Kauppila, forstöðumaður hjá International Transport Forum (ITF). 

Jari Kaupilla mun í erindi sínu fjalla um gildi innviðauppbyggingar og leiðir til að fjármagna slíka uppbyggingu – og setja hvort tveggja í alþjóðlegt samhengi. ITF starfar innan OECD og markmið þess er að stuðla að samvinnu þjóða í málefnum samgangna og standa að viðamiklum rannsóknum sem ætlað er að vera grundvöllur fyrir stefnumótun og ákvörðunartöku á öllum sviðum samgangna.

Fjölmargir aðrir þátttakendur munu í fyrirlestrum eða í pallborði beina sjónum að uppbyggingu og öryggi innviða í samgöngum og fjarskiptum frá ýmsum hliðum.

Samráðsfundir með innviðaráðherra um land allt

Í aðdraganda Innviðaþings boðaði Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra til opinna íbúafunda í ágúst í öllum landshlutum til að eiga samráð um málaflokka ráðuneytisins. Tilgangur fundanna er að kalla eftir sjónarmiðum íbúa og sveitarstjórnarfólks um málaflokka ráðuneytisins – samgöngur, sveitarstjórnar- og byggðamál og fjarskipti og stafræna innviði. Það mun m.a. nýtast í vinnu við stefnumótun og undirbúning áætlana á vegum ráðuneytisins.

Sjá einnig:

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta