Ferðakostnaður
Ferðakostnaður ríkisstarfsmanna skiptist í akstursgjald vegna aksturs ríkisstarfsmanna á eigin bifreiðum á vegum ríkisstofnana og dagpeninga vegna ferða almennra ríkisstarfsmanna innanlands sem utan. Ferðakostnaðarnefnd hefur það verkefni að ákveða hver þessi gjöld eigi að vera.
Nefndin skoðar forsendur akstursgjalds og dagpeninga að jafnaði ársfjórðungslega eða oftar, ef þörf krefur. Í framkvæmd breytast þó fjárhæðirnar sjaldnar. Þannig breytast dagpeningar erlendis yfirleitt einu sinni á ári, í júní. Dagpeningar innanlands breytast alla jafna tvisvar á ári, í júní og október. Akstursgjaldið hefur upp á síðkastið breyst tvisvar til þrisvar á ári, en breyttist áður fyrr mun oftar enda verðbreytingar þá miklu meiri.
Ferðakostnaðarnefnd var fyrst skipuð samkvæmt ákvæðum kjarasamninga aðildarfélaga BSRB og BHMR við ríkið árið 1974. Í nefndinni eiga sæti einn fulltrúi tilnefndur af BSRB, annar af BHM og tveir fulltrúar tilnefndir af fjármála- og efnahagsráðherra. Nefndin er í eðli sínu samninganefnd og komi til ágreinings skipar Hagstofa Íslands oddamann, en ekki hefur enn reynt á þetta.
Um dagpeninga æðstu embættismanna og ráðherra gilda hins vegar sérstakar reglur sem ferðakostnaðarnefnd fjallar ekki um.
Ferðakostnaðarnefnd skipa:
- Aldís Stefánsdóttir, formaður, tilnefnd af fjármála- og efnahagsráðherra
- Ragnheiður Gunnarsdóttir, tilnefnd af fjármála- og efnahagsráðherra
- Guðmundur F. Guðmundsson, tilnefndur af BSRB
- Helga Birna Ingimundardóttir, tilnefnd af BHM
- Kjartan Dige Baldursson, ritari ferðakostnaðarnefndar
Athygli er vakin á áskriftarþjónustu ráðuneytisins
Akstursgjald, bílapeningar, kílómetragjald
- Akstursgjald ríkisstarfsmanna - auglýsing nr 1/2019
- Akstursgjald ríkisstarfsmanna - auglýsing nr. 3/2015 (fallin úr gildi)
Dagpeningar á ferðalögum innanlands
- Dagpeningar ríkisstarfsmanna á ferðalögum innanlands - auglýsing nr. 3/2019
- Dagpeningar ríkisstarfsmanna á ferðalögum innanlands - auglýsing nr. 2/2019 (15.5.2019)
Dagpeningar á ferðalögum erlendis
SDR er gjaldmiðlakarfa ákvörðuð af Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn reiknar daglega gengi SDR í bandarískum dollurum út frá verði myntanna í körfunni á hádegi á gjaldeyrismarkaðnum í London. Peningamálasvið Seðlabanka Íslands ákvarðar daglega gengi SDR gagnvart íslenskri krónu. Sjá frekari upplýsingar á síðu Seðlabankans.
FYRIRVARI: Athugið að leyfilegur frádráttur á móti dagpeningum og ökutækjastyrkjum, samkvæmt skattmati ríkisskattstjóra, þarf ekki að vera sama fjárhæð og ferðakostnaðarnefnd ákvarðar að greiða skuli starfsmönnum ríkisins vegna ferða á vegum launagreiðanda. Sé leyfilegur frádráttur lægri ber að skila staðgreiðslu af mismuninum.
- Reglur nr. 1/2009 um greiðslu ferðakostnaðar vegna ferðalaga á vegum ríkisins
- Eyðublöð fjársýslu ríkisins um ferðakostnað og ferðauppgjör
- Reglugerð nr. 1281/2014 um bifreiðamál ríkisins, reglugerd.is
- Um framkvæmd reglugerðar nr. 580/1991 um bifreiðamál ríkisins (PDF 56K)
- Umburðarbréf ferðakostnaðarnefndar, 26. maí 2004
- Forsendur útreikninga á akstursgjaldi og dagpeningum ríkisstarfsmanna
- Upplýsingar um leyfilegan frádrátt á móti dagpeningum og ökutækjastyrk (á vef ríkisskattstjóra)
Kjarasamningar
Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.