Hoppa yfir valmynd

Auglýsingar

Dagpeningar ríkisstarfsmanna á ferðalögum innanlands - auglýsing nr. 1/2023

Ferðakostnaðarnefnd hefur ákveðið dagpeninga til greiðslu gisti- og fæðiskostnaðar ríkisstarfsmanna á ferðalögum innanlands á vegum ríkisins sem hér segir:

1. Gisting og fæði í einn sólarhring kr. 49.500
2. Gisting í einn sólarhring kr. 34.300
3. Fæði hvern heilan dg, minnst 10 tíma ferðalag kr. 15.200
4. Fæði í hálfan dag, minnst 6 tíma ferðalag kr. 7.600

Dagpeningar þessir gilda frá og með 1. maí 2023. Jafnframt fellur úr gildi auglýsing nr. 2/2022.

Nefndin fer þess á leit við ráðuneyti og stofnanir að viðmiðunarfjárhæðir um greiðslur dagpeninga um gistingu og veitingar verði kynntar starfsfólki til að útlagður kostnaður sé sem næst viðmiðunarfjárhæðum.

Athygli er vakin á að meginreglan er að greiða skal kostnað vegna ferðalaga innanlands, s.s. fargjöld, fæði og gistingu, eftir reikningi.


 

Akstursgjald ríkisstarfsmanna - Auglýsing nr. 1/2023

Ferðakostnaðarnefnd hefur ákveðið akstursgjald í aksturssamningum ríkisstarfsmanna og ríkisstofnana sem hér segir:

Almennt gjald

Fyrstu 10.000 km, kr. 141,0 pr. km

Frá 10.000 til 20.000 km, kr. 127,0 pr. km

Umfram 20.000 km, kr. 113,0 pr. km

Við útreikning á sérstöku gjaldi skal bæta 15% álagi á almenna gjaldið og við útreikning á torfærugjaldi skal bæta 45% álagi á almenna gjaldið.

Akstursgjald þetta gildir frá og með 1. maí 2023. 

Dagpeningar ríkisstarfsmanna á ferðalögum erlendis – auglýsing nr. 3/2014

Ferðakostnaðarnefnd hefur ákveðið dagpeninga til greiðslu ferðakostnaðar ríkisstarfsmanna  á ferðalögum erlendis á vegum ríkisins sem hér segir:

Almennir dagpeningar

Flokkur og staðir
Gisting Annað Samtals
Flokkur 1: Moskva, New York borg, Singapúr, Tókýó,Washington DC SDR 208 125 333
Flokkur 2: Dublin, Istanbúl, Japan (nema Tókýó), London, Lúxemborg, Mexíkóborg, Seúl SDR 177 106 283
Flokkur 3: Amsterdam, Aþena, Bandaríkin (nema New York borg og Washington DC), Barsilóna, Brussel, Genf, Helsinki, Hong Kong, Kanada, Kaupmannahöfn, Madrid, Osló, París, Róm, Stokkhólmur, Vín SDR 156 94 250
Flokkur 4: Annars staðar SDR 139 83 222

Dagpeningar vegna þjálfunar, náms eða eftirlitsstarfa

Flokkur og staðir
Gisting Annað Samtals
Flokkur 1: Moskva, New York borg, Singapúr, Tókýó, Washington DC SDR 133 80 213
Flokkur 2: Dublin, Istanbúl, Japan (nema Tókýó), London, Lúxemborg, Mexíkóborg, Seúl SDR 113 67 180
Flokkur 3: Amsterdam, Aþena,  Bandaríkin (nema New York borg og Washington DC), Barsilóna, Brussel, Genf, Helsinki, Hong Kong, Kanada, Kaupmannahöfn, Madrid, Osló, París, Róm, Stokkhólmur, Vín SDR 100 60 160
Flokkur 4: Annars staðar SDR 89 54 143

Ákvörðun þessi gildir frá og með 1. desember 2014.  Jafnframt fellur úr gildi auglýsing  nr. 1/2009 dagsett 27. febrúar 2009.

Síðast uppfært: 31.5.2023
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Yfirlit

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum