Hoppa yfir valmynd

Samgönguáætlun

Ráðherra skal leggja tillögu til þingsályktunar um stefnu í samgöngumálum, samgönguáætlun, til fimmtán ára fyrir Alþingi að lágmarki á þriggja ára fresti. Með henni setja stjórnvöld fram stefnu og markmið fyrir allar greinar samgangna. Samhliða skal leggja fram fimm ára áætlun um framkvæmdir, aðgerðaáætlun, fyrir fyrsta tímabil stefnunnar sem einnig skal endurskoðuð minnst á þriggja ára fresti.

Tillaga til þingsályktunar um samgönguáætlun fyrir tímabilið 2020-2034 var samþykkt á Alþingi 29. júní 2020. Um er að ræða uppfærða og endurskoðaða samgönguáætlun til fimmtán ára á grunni þeirrar sem samþykkt var á Alþingi í febrúar 2019. Einnig var samþykkt tillaga til þingsályktunar um samgönguáætlun (aðgerðaáætlun) fyrir fyrsta tímabilið 2020-2024.

Stefnumótun og áætlanagerð

Samgönguáætlun tekur til stefnu, fjáröflunar og útgjalda allra greina samgangna, þ.e. flugmála, vegamála og siglingamála, þ.m.t. almenningssamgangna, hafnamála, sjóvarna, öryggismála og umhverfismála samgöngugreina. Þar skal skilgreina það grunnkerfi sem ætlað er að bera meginþunga samgangna og gera grein fyrir ástandi og horfum í samgöngum í landinu. Við gerð samgönguáætlunar skal m.a. byggja á þeim meginmarkmiðum að samgöngur séu greiðar, hagkvæmar, öruggar og umhverfislega sjálfbærar auk þess sem þær stuðli að jákvæðri byggðaþróun.

Við gerð samgönguáætlunar skal einnig tekið mið af eftirfarandi markmiðum:

  • Að ná fram samræmdri forgangsröð og stefnumótun.
  • Að ná fram hagkvæmri notkun fjármagns og mannafla.
  • Að ná fram samræmdu skipulagi samgöngugreina og samstarfi stofnana ráðuneytisins og fyrirtækja á vegum þess.

Samgönguáætlun verður til í nokkrum þrepum. Ráðherra leggur fram áherslur sínar fyrir samgönguráð sem mótar tillögu að samgönguáætlun. Við undirbúning tillögunnar fer fram víðtækt samráð við hagsmunaaðila, kynningarfundir haldnir en síðasti hlutinn í samráðsferli er samgönguþing sem haldið er reglulega. Að því loknu skilar samgönguráð ráðherra tillögu að samgönguáætlun. Það er loks ráðherra sem leggur fram á Alþingi tillögu til þingsályktunar um samgönguáætlun til umfjöllunar.

Skýrslur um framkvæmd samgönguáætlunar

Ráðherra skal árlega leggja fram á Alþingi skýrslu um framkvæmd samgönguáætlunar. Vegagerðin, Samgöngustofa og Isavia ohf. leggja til efni við gerð skýrslunnar. 

Sjá einnig:

Síðast uppfært: 22.5.2023
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum