Hoppa yfir valmynd
04. mars 2016 Athugasemdir og umsagnir um frumvörp stjórnarskrárnefndar 2013-2017

Jón Viðar Gunnarsson - Náttúruauðlindir

Góðan dag. Ég geri eftirfarandi athugasemdir við „Frumvarp til stjórnskipunarlaga“, (náttúruauðlindir), sem eru drög stjórnarskrárnefndar frá 19. febrúar 2016.  

Ég mótmæli orðalaginu "eðlilegt gjald" sem fram kemur í 1. gr í drögum frá 19. febrúar 2016. Orðalagið er alltof opið og eðlilegra að þarna standi "fullt gjald" eins og í tillögum stjórnlagaráðs.   

En þar segir.
„Náttúruauðlindir.Auðlindir í náttúru Íslands, sem ekki eru í einkaeigu, eru sameiginleg og ævarandi eign þjóðarinnar.  Enginn getur fengið auðlindirnar, eða réttindi tengd þeim, til eignar eða varanlegra afnota og aldrei má selja þær eða veðsetja. 
Til auðlinda í þjóðareign teljast náttúrugæði, svo sem nytjastofnar, aðrar auðlindir hafs og hafsbotns innan íslenskrar lögsögu og uppsprettur vatns- og virkjunarréttinda, jarðhita- og námaréttinda. Með lögum má kveða á um þjóðareign á auðlindum undir tiltekinni dýpt frá yfirborði jarðar.  Við nýtingu auðlindanna skal hafa sjálfbæra þróun og almannahag að leiðarljósi.
Stjórnvöld bera, ásamt þeim sem nýta auðlindirnar, ábyrgð á vernd þeirra. Stjórnvöld geta á grundvelli laga veitt leyfi til afnota eða hagnýtingar auðlinda eða annarra takmarkaðra almannagæða, gegn fullu gjaldi og til tiltekins hóflegs tíma í senn. Slík leyfi skal veita á jafnræðisgrundvelli og þau leiða aldrei til eignarréttar eða óafturkallanlegs forræðis yfir auðlindunum.„  

Tillagan frá 19. febrúar 2016 er afrit af tillögum stjórnlagaráðs (smá orðalagsbreyting), en útþynnt með þessari breytingu sem hér er mótmælt.  

Virðingarfyllst 
Jón Viðar Gunnarsson

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum