Hoppa yfir valmynd
07. mars 2016 Athugasemdir og umsagnir um frumvörp stjórnarskrárnefndar 2013-2017

Jón Viðar Gunnarsson - Ákvæðin þrjú

Góðan dag.

Ég sem Íslendingur mótmæli harðlega þeim ljóta leik sem Alþingi Íslendinga hefur leikið þjóðina með breytingar á stjórnarskránni.

Þann 20. október 2012 samþykkti Íslenska þjóðin í þjóðaratkvæðagreiðslu nýja stjórnarskrá Stjórnlagaráðs sem Alþingi hefur með ofbeldi kosið að virða að vettugi.

Ég mótmæli þessu  harðlega.

Varðandi yfirklór svokallaðrar stjórnarskrárnefndar þá hefur sú vinna ekkert umboð frá þjóðinni og hafna ég því þeim málatilbúnaði öllum fyrir mína parta.

Virðingarfyllst,
Jón Viðar Gunnarsson 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum