Hoppa yfir valmynd

Aðgerð

B.01. Þrífösun og jarðstrengjavæðing

Aðgerðin er í vinnslu

Tengiliður    

Erla Sigríður Gestsdóttir, umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu - [email protected] 

Fréttir

27.01.22 Í vinnslu og á áætlun. Árið 2019 kynnti iðnaðarráðherra þriggja ára átak til að hraða þrífösun rafmagns. Skaftárhreppur og Mýrar verða þar í forgangi og hefur þegar verið hafist handa. Átakið hefur beina skírskotun til byggðaáætlunar. Í fjármálaáætlun 2021-2025 er gert ráð fyrir að 500 m.kr. verði varið úr ríkissjóði í að flýta fyrir jarðstrengjavæðingu og þrífösun dreifikerfis raforku. Er það í samræmi við tillögur átakshóps ríkisstjórnarinnar um úrbætur í innviðum sem kynntar voru fyrr á árinu í kjölfar fárviðrisins sem gekk yfir landið síðasta vetur. Á þessu ári var 100 m.kr. varið úr ríkissjóði í verkefnið og er það hafið. Miðað er við að árið 2022 verði fjárveiting ríkis 200 m.kr. og 100 m.kr. á ári næstu tvö ár á eftir, eða alls 500 m.kr.

18.12.20 Árið 2019 kynnti iðnaðarráðherra þriggja ára átak til að hraða þrífösun rafmagns. Skaftárhreppur og Mýrar verða þar í forgangi og hefur þegar verið hafist handa. Átakið hefur beina skírskotun til byggðaáætlunar. Í fjármálaáætlun 2021-2025 er gert ráð fyrir að 500 m.kr. verði varið úr ríkissjóði í að flýta fyrir jarðstrengjavæðingu og þrífösun dreifikerfis raforku. Er það í samræmi við tillögur átakshóps ríkisstjórnarinnar um úrbætur í innviðum sem kynntar voru fyrr á árinu í kjölfar fárviðrisins sem gekk yfir landið síðasta vetur. Á þessu ári var 100 m.kr. varið úr ríkissjóði í verkefnið og er það þegar hafið. Miðað er við að árið 2022 verði fjárveiting ríkisins 200 m.kr. og 100 m.kr. á ári næstu tvö ár á eftir, eða samtals 500 m.kr.

13.11.20 Greining á regluverki og fyrirkomulagi er varðar flutning og dreifingu raforku.

02.10.20 Aukin framlög til jöfnunar dreifikostnaðar raforku, þrífösunar og úrbóta á varaafli.

5.4.19 Skýrsla starfshóps varðandi raforkuflutning í dreifbýli og þrífösun rafmagns

30.01.19 Þrífösun rafmagns verði flýtt – Skaftárhreppur og Mýrar í fyrsta áfanga

Verkefnið 

Markmið: Að afhendingaröryggi raforku verði aukið, aðgengi að áreiðanlegri orku á lands¬vísu jafnað, búsetuskilyrði bætt og atvinnutækifæri efld.

Stutt lýsing: Haldið verði áfram jarðstrengjavæðingu dreifikerfis raforku og samhliða verði það þrífasa. Einnig verði unnið að einföldun regluverks varðandi framkvæmdir í flutnings- og dreifikerfi raforku. Aðgerðin verði unnin í samræmi við fimm ára fjármálaáætlun 2021–2025 þar sem gert er ráð fyrir 600 millj. kr. framlagi úr ríkissjóði í sérstakt átak til að ljúka þrífösun og jarðstrengjavæðingu þjóðhagslega mikilvægs hluta dreifikerfis raforku að mestu leyti fyrir árið 2025.

  • Ábyrgð: Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið. 
  • Framkvæmdaraðili: Rarik og Orkubú Vestfjarða.
  • Dæmi um samstarfsaðila: Orkustofnun og landshlutasamtök sveitarfélaga.
  • Tímabil: 2022–2025.
  • Tenging við aðrar stefnur/áætlanir: Orkustefna, nýsköpunarstefna.
  • Tenging við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: Styður markmið 7 og 11, einkum undir¬markmið 7.1 og 11.a.
  • Tillaga að fjármögnun: 275 millj. kr. úr byggðaáætlun. 

Auðlindir
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum