Hoppa yfir valmynd

Stök aðgerð

C.14. Virk þátttaka í alþjóðlegu samstarfi

Aðgerðin er í vinnslu

Fréttir af aðgerðinni

Febrúar 2025  Ísland tekur virkan þátt í Norræna Atlantssamstarfinu (NORA) sem tekur til Íslands, Færeyja, Grænlands og strandhéraða Noregs, Norðurslóðaáætlun ESB (NPA) sem er samstarfsvettvangur Írlands, Svíþjóðar, Finnlands, Noregs, Færeyja, Grænlands og Íslands og European Territorial Observatory Network (ESPON) sem er samstarf ESB og EES ríkja. Á árunum 2022-24 hefur NORA styrkt 60 verkefni, þ.a. er íslensk þátttaka í 50. Ísland veitti NORA forystu 2023-24 og skipulagði m.a. lausnamót fyrir ungmenni frá Norðurlöndum um málefni tengd nýtingu hafsins og tók þátt í hátíðinni sjávarréttahátíðinni Matey. Báðir viðburðir voru í Vestmannaeyjum. Á árunum 2022-24 hefur NPA samþykkt 41 verkefni, þ.a. eru íslenskir aðilar í 34. Þessi mikla þátttaka hefur leitt til þess að fjármunir Íslands eru búnir, en Evrópusambandslöndin í NPA ákváðu að nýta eigin fjármuni, um 1,4 milljón evra í desember 2024, til að styrkja íslenska þátttakendur. Haustið 2024 var haldið verkefnastefnumót á Laugarbakka fyrir íslensku NPA þátttakendurnar sem tókst vel og stefnt á að halda það árlega. ESPON miðar að því að efla magn og gæði byggðarannsókna og greiða aðgengi stjórnvalda að þeim. Innleiðing ESPON 2030 verkefnisins fór hægt af stað. Byrjað er að vinna með tvö af átta þemum verkefnisins. Ísland hefur ekki verið þátttakandi verkefnum í núverandi áætlun en verið er skoða mögulega aðkomu íslenskra þátttakenda. Þá tekur Ísland virkan þátt í starfi Nordregio en hlutverk þess er að stunda rannsóknir á sviði skipulags- og byggðamála.

Tengiliður   

Sigríður Elín Þórðardóttir, Byggðastofnun - [email protected] 

Aðgerðin

Markmið: Að þekkingargrundvöllur stefnumótunar og framkvæmdar á sviði byggðamála verði styrktur með aðgengi að alþjóðlegum straumum og stefnum á því sviði.

Stutt lýsing: Virk þátttaka verði í alþjóðlegu samstarfi, svo sem undir merkjum Nora, Nordregio, Norðurslóðaáætlunar, ESPON og OECD, og þekkingar- og hugmyndafræðilegur grundvöllur byggðaaðgerða þannig styrktur og efldur.

  • Ábyrgð: Innviðaráðuneytið. 
  • Framkvæmdaraðili: Innviðaráðuneytið og Byggðastofnun.
  • Dæmi um samstarfsaðila: Háskólar, aðrar þekkingar- og rannsóknarstofnanir, lands¬hluta¬samtök sveitarfélaga, sveitarfélög og atvinnulífið. 
  • Tímabil: 2022–2026.
  • Tenging við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: Styður markmið 11 og 17, einkum undirmarkmið 11.a, 17.13, 17.14, 17.16 og 17.17.
  • Tillaga að fjármögnun: 410 millj. kr. úr byggðaáætlun. 

Innviðaráðuneytið
Sveitarstjórnir og byggðamál
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta