Hoppa yfir valmynd

Öll með: Fyrirhugaðar breytingar á örorkulífeyriskerfinu

Fram undan eru breytingar á örorkulífeyriskerfinu sem fela í sér bætta þjónustu, mikilvæga hvata til atvinnuþátttöku og bætt kjör með betra og einfaldara greiðslukerfi.

Markmiðið er að bæta afkomu þeirra sem fá greiddan örorkulífeyri, einfalda kerfið, draga úr tekjutengingum, auka hvata til atvinnuþátttöku og gera örorkulífeyriskerfið gagnsærra og réttlátara

Þá er stuðningur aukinn við fólk meðan á endurhæfingu þess stendur, samvinnu þjónustukerfa komið á og áhersla lögð á að hindra að fólk falli á milli kerfa.

Af hverju breytingar? Kerfið er fólkið og ógagnsætt. Litlir hvatar til avinnuþátttöku. Mörg tækifæri fólkgin í því að koma í veg fyrir að fólk endi ótímabært á örorku.

Af hverju breytingar?

Hvaða breytingar eru fyrirhugaðar og hvað felst í þeim? Svör við því og fleiru til má lesa um í samantekt um breytingarnar. 

 

Frétt: Ný hugsun. Samanlagt getur einstaklingur sem fær greidda hlutaörorkulífeyri haft 350 þúsund krónur í atvinnutekjur á mánuði án þess að greiðslur lækki.

Kynningarfundur

Fyrirhugaðar breytingar voru kynntar í beinni útsendingu úr Þjóðmenningarhúsinu. Þú getur horft á upptökuna hér á vefnum.

Frétt: Ný hugsun. Samanlagt getur einstaklingur sem fær greidda hlutaörorkulífeyri haft 350 þúsund krónur í atvinnutekjur á mánuði án þess að greiðslur lækki.

Reiknivél

Í reiknivél á vefnum er hægt að bera saman hvað fólk fær í örorkulífeyri í núverandi greiðslukerfi og hvað það myndi fá í nýju greiðslukerfi. 

Grípum fólk snemma 

Í nýja kerfinu er aukin áhersla lögð á samfellda þjónustu í tengslum við starfsendurhæfingu hjá fólki sem verður fyrir alvarlegum eða langvarandi heilsubresti. Markmiðið er að grípa fólk snemma og draga úr líkum á því að fólk hætti þátttöku á vinnumarkaði og fari á ótímabæra örorku með tilheyrandi tekjutapi til framtíðar fyrir viðkomandi.

Eftir breytingarnar verður fólki með mismikla getu til atvinnuþátttöku gert kleift að reyna fyrir sér á vinnumarkaði og bæta þar með afkomu sína kjósi það svo. Á sama tíma er markmiðið að halda sérstaklega utan um þau sem minnst hafa og eru með litlar líkur á atvinnuþátttöku.

Hjá Miðstöð um auðlesið mál getur þú séð frétt á auðlesnu máli um frumvarpsdrögin frá því að þau voru birt í samráðsgátt stjórnvalda

Alvöru hvatar og stuðningur

Ný hugsun

 

 

Öll með

Grunnhugsunin er sú að við séum öll með og skiptum öll máli.  Leiðarljósið er skýrt: Að stuðla að bættum kjörum, aukinni virkni og meira öryggi og vellíðan fólks.

Verkefnið er að tryggja fólki tækifæri – að tryggja að við fáum öll að vera með.

 

 


Frumvarpið sjálft

Viltu lesa frumvarpið sjálft? Frumvarpið er komið til Alþingis og hefur verið birt á vef þingsins.

Yfirlýsing um samstarf þjónustukerfa 

Heildstæð nálgun, samvinna kerfa og samfella í þjónustu verða leiðarstefin í endurhæfingu fólks samkvæmt viljayfirlýsingu sem hefur verið undirrituð. 

Lesa frétt

Frétt: Ný hugsun. Samanlagt getur einstaklingur sem fær greidda hlutaörorkulífeyri haft 350 þúsund krónur í atvinnutekjur á mánuði án þess að greiðslur lækki.

Frétt um breytingarnar

„Leiðarljósið er stuðla að bættum kjörum, meira öryggi og vellíðan fólks,“ segir Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra. 

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum