Hoppa yfir valmynd

Ræða eða grein fyrrum ráðherra

25. október 2011 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytiðSvandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra 2009, umhverfis- og auðlindaráðherra 2012-2013

Grein umhverfisráðherra í Fréttablaðinu - Að loknu Umhverfisþingi

Eftirfarandi grein Svandísar Svavarsdóttur umhverfisráðherra birtist í Fréttablaðinu 25. október 2011.

Við þekkjum öll, að dagarnir geta verið misjafnir. Stundum erum við sérstaklega heppin og höfum ríka ástæðu til að fagna góðu dagsverki. Nýlega átti ég slíkan dag, ásamt ríflega 300 öðrum náttúruverndarsinnum, þegar Umhverfisþing var haldið í sjöunda sinn.

Yfirskrift Umhverfisþings að þessu sinni var náttúruvernd en í forgrunni umræðunnar var Hvítbók um löggjöf til verndar náttúru Íslands, sem kom út í haust og er til umsagnar á heimasíðu umhverfisráðuneytisins. Bókinni er ætlað að vera grundvöllur heildarendurskoðunar á íslenskri löggjöf um náttúruvernd. Er þar tekið saman yfirlit yfir stöðu náttúruverndar á Íslandi og í nágrannaríkjunum, til að hægt sé að hafa sem mesta þekkingu tiltæka við lagasmíðina. Hvítbókin sjálf er hins vegar fjarri því endimark stefnumótunarvinnunnar.

Á hinn bóginn er Hvítbókin góður grundvöllur umræðu. Slík umræða átti sér m.a. stað á Umhverfisþingi og þarf að halda áfram því íslensk náttúra snertir okkur öll sem byggjum þetta land, bæði nú og í framtíðinni. Á þinginu var enda áberandi samhljómur fundarmanna um mikilvægi þess að hafa samráð og kynningu á Hvítbókinni fyrir almenning svo hann hafi raunverulegan möguleika á að hafa áhrif á endurskoðun löggjafarinnar.

Hvítbókin hefur þegar fengið nokkra umfjöllun fjölmiðla en að auki hyggst umhverfisráðuneytið standa fyrir almennum kynningarfundum á efni hennar á næstu vikum. Þá er Hvítbókin sjálf og umfjöllun um hana aðgengileg á heimasíðu umhverfisráðuneytisins, þar sem einnig eru leiðbeiningar um hvar skila skuli umsögnum og athugasemdum um hana.

Allt er þetta gert til að stuðla að samráði um framhaldið en til að niðurstöður samráðsins séu sem bestar þarf að tryggja að öflug og góð skoðanaskipti eigi sér sem víðast stað. Þau verða að felast í því að aðilar setji fram ólík sjónarmið og hlusti á hin gagnstæðu.

Ég vil því hvetja sem flesta til að kynna sér efni hvítbókarinnar og mynda sér skoðun, allt eftir áhugasviði og þekkingu hvers og eins. Ekki er gerð krafa um að vera sérfræðimenntaður til að hafa skoðun á náttúruverndarmálum og það er ekki skylda að lesa hvítbókina spjaldanna á milli til að hafa álit á henni. Heildarendurskoðun náttúruverndarlaga er mikilvægt verkefni, sem er ekki einkamál okkar í umhverfisráðuneytinu eða fyrirfram skilgreindra hagsmunaaðila. Til að vel takist til verður allt samfélagið að koma að verkinu. Áhugasamir eru því hvattir til að fjölmenna á heimasíðu umhverfisráðuneytisins fyrir 15. desember og leggja sínar hugmyndir í púkkið.

 

 

 

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum