Hoppa yfir valmynd

Ræða eða grein fyrrum ráðherra

02. nóvember 2011 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytiðSvandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra 2009, umhverfis- og auðlindaráðherra 2012-2013

Grein umhverfisráðherra í Fréttablaðinu - Brugðist við óvæntum sveiflum í rjúpnastofninum

Eftirfarandi grein Svandísar Svavarsdóttur umhverfisráðherra um viðbrögð við óvæntum sveiflum í rjúpnastofninum birtist í Fréttablaðinu í dag 2. nóvember 2011.

Elvar Árni Lund, formaður Skotvís, birtir grein í Morgunblaðinu 31. október sl., þar sem hann gagnrýnir ákvörðun umhverfisráðherra um rjúpnaveiðar þetta árið. Ég harma þann misskilning sem mér finnst örla á hjá Elvari og vil því fara yfir aðdraganda ákvörðunar um rjúpnaveiðar þetta árið. Það skiptir miklu máli að traust ríki á milli stjórnvalda og veiðimanna í þessum efnum.

Stjórnvöldum ber skylda út frá náttúruverndarsjónarmiðum að tryggja að athafnir mannsins höggvi ekki of stór skörð í dýrastofna og nýting þeirra sé með sjálfbærum hætti. Sú nýbreytni varð við ákvörðun á fyrirkomulagi rjúpnaveiða haustið 2009, að gert var ráð fyrir að ákvörðunin gilti til þriggja ára, nema að óvænt þróun yrði í rjúpnastofninum á þeim tíma. Þegar umhverfisráðuneytinu bárust ráðleggingar Náttúrufræðistofnunar Íslands (NÍ) 7. september kom fram að stærð veiðistofnsins virtist hafa dregist saman um ríflega helming á milli ára. Lagði NÍ til þrjár leiðir í stöðunni; í fyrsta lagi óbreytt 18 daga veiðitímabil, í öðru lagi fækkun veiðidaga, t.d. um helming, og í þriðja lagi að rjúpnaveiðum yrði hætt.

Sérfræðingar NÍ og Umhverfisstofnunar (UST) mættu á fund í umhverfisráðuneytinu 20. september, þar sem UST  lagði fram útfærslu á tillögu um 18 veiðidaga. Taldi ég sveiflu í rjúpnastofninum vera meiri en svo að hægt væri að láta athugunarlaust, en jafnframt fulllangt gengið að banna veiðar með öllu. Því óskaði ég eftir útfærslu sérfræðinga NÍ og UST á níu daga veiðitíma á rjúpu þetta árið. Tillaga stofnananna tveggja lá fyrir 29. september og voru lögboðnir hagsmunaaðilar þá þegar boðaðir á fund um málið.

Þann 30. september fundaði ráðuneytið með hagsmunaaðilum, þ.e. fulltrúum frá Skotvís, Bændasamtökunum og Fuglavernd. Þar tilkynnti ég ákvörðun um níu daga veiðitímabil og bað hagsmunaaðila um útfærslu á fyrirkomulaginu, svo hægt væri að taka endanlega ákvörðun fyrir 5. október. Þær athugasemdir sem bárust snéru allar að breytingum á fjölda daga, en ekki með slíkum rökum að sérfræðingar ráðuneytisins leggðu til að horfið yrði frá níu daga útfærslunni – enda ljóst að rjúpnastofninn þyrfti strangari veiðistjórnun en áður. Því var farið að tillögu Náttúrufræðistofnunar og Umhverfisstofnunar við endanlega ákvörðun, sem kynnt var 5. október.

Almennt er mikill skilningur í samfélaginu á mikilvægi þess að ganga vel um rjúpnastofninn og fara veiðimenn og samtök þeirra þar framarlega í flokki. Samstarf stjórnvalda við Skotvís hefur verið gott og ber að þakka fyrir það. Eins og fram kom þegar ákvörðun um veiðar var kynnt, hyggst ég boða til frekara samstarfs, þar sem skoðað verður hvernig rjúpnaveiðum verði best hagað á komandi árum. Ég tek undir með formanni Skotvís, að slæmt sé að það þurfi að handstýra ákvörðun um rjúpnaveiðar svo skömmu fyrir veiðitímabilið ár hvert. Bind ég vonir við að samstarf sérfræðinga og hagsmunaaðila geti á næstu vikum og mánuðum fundið nýjar lausnir við skipulag rjúpnaveiða, svo hægt sé að stunda þær á sjálfbæran hátt um ókomna tíð.

Svandís Svavarsdóttir
umhverfisráðherra

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum