Hoppa yfir valmynd

Ræða eða grein fyrrum ráðherra

24. febrúar 2012 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytiðSvandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra 2009, umhverfis- og auðlindaráðherra 2012-2013

Grein umhverfisráðherra í Fréttablaðinu - Kyn og loftslagsbreytingar

Eftirfarandi grein Svandísar Svavarsdóttur umhverfisráðherra um samstarf stjórnvalda Íslands, Noregs og Danmerkur við stjórnvöld í Úganga um að samþætta jafnréttissjónarmið í aðgerðum landsins til að takast á við loftslagsbreytingar birtist í Fréttablaðinu 23. febrúar 2012.

 

Kyn og loftslagsbreytingar, verkefni í Úganda

Áhrif loftslagsbreytinga verða líklega meiri á konur en karla, ekki síst í fátækari ríkjum heims. Í þeim löndum bera konur yfirleitt ábyrgð á  vinnu við ræktun matvæla, söfnun eldiviðar og vatnsöflun til heimilisins, til viðbótar öðrum verkum. Það eru því konur sem finna mest fyrir áhrifum loftslagsbreytinga sem valda þurrkum og lélegri uppskeru, lengja leiðina að vatnsbólum eða gera aðgengi erfiðara að eldiviði.

Konur búa líka yfir mikilvægu afli til breytinga. Aukin völd og menntun kvenna eru ein áhrifaríkasta leiðin til bættrar framtíðar mannkyns alls. Það má til sanns vegar færa í loftslagsmálum.

Kynjasjónarmið mikilvæg

Ísland hefur sett kynjasjónarmið á oddinn í alþjóðlegu loftslagsviðræðunum undanfarin ár. Bæði er mikilvægt að taka tillit til sjónarmiða beggja kynja við mótun aðgerða til að draga út loftslagsbreytingum, og eins að samþætta þau þeim aðgerðum sem snúa að aðlögun að breytingum sem orsakast af loftslagsvandanum. Aukin þátttaka kvenna í verkefnum tengdum loftslagsmálum, ekki síst ákvarðanatöku, er mikilvægur þáttur þess að ná árangri í að vinna gegn loftslagsvandanum.      

Því miður stefnir ekki í að þjóðir heims nái samkomulagi í tæka tíð til að koma í veg fyrir breytingar á loftslagi. Það er því óhjákvæmilegt að lögð verði áhersla á aðgerðir til að aðstoða ríki til að aðlagast loftslagsbreytingum eins og kostur er, og þá sérstaklega fátækustu ríkin þar sem talið er að áhrifin verði mest.  

Þeirra á meðal eru fátæk ríki í Afríku sunnan Sahara, sem eru þau lönd sem talið er að muni eiga hvað erfiðast með að aðlaga sig  breytingum í loftslagi.  Þorri íbúa þar eru smábændur sem lifa af sjálfsþurftarbúskap sem byggir á aðgangi að landi og náttúru. Þessi stóri hópur er því hvað viðkvæmastur fyrir loftslagsbreytingum sem hafa öfgar í veðurfari í för með sér.

Samstarf við Úganda

Úganda í austurhluta Afríku er eitt þessara landa. Nú hafa þarlend stjórnvöld ákveðið að ganga til samstarfs við stjórnvöld Íslands, Noregs og Danmerkur,  um að samþætta jafnréttissjónarmið í aðgerðum landsins til að takast á við loftslagsbreytingar. Verkefnið er margþætt. Það felur í sér rannsóknir á vegum Makerere háskóla, stefnumótun, undirbúning fyrir þátttöku í alþjóðlegum samningaviðræðum, ráðstefnu og gerð heimildamyndar. Jafnframt verða skipulögð námskeið fyrir sérfræðinga úr ýmsum geirum í landinu, s.s. ráðuneytum, stofnunum, félagasamtökum og héraðsstjórnum. Alþjóðlegum jafnréttisskóla Háskóla Íslands (GEST) hefur verið falin ábyrgð á gerð námsefnisins og framkvæmd námskeiðanna en umhverfisráðuneytið leggur sérfræðiþekkingu til verkefnisins.

Hér á landi hafa dvalið úgandískir sérfræðingar til að vinna að gerð námsefnisins með íslenskum sérfræðingum á sviði umhverfis-, loftslags- og jafnréttismála.  Stefnt er að því að halda þrjú námskeið í mismunandi hlutum Úganda síðar á árinu, með það að markmiði að auka þekkingu og færni fólks til að vinna að verkefnum á sviði jafnréttis og loftslagsbreytinga. Fyrsta námskeiðið verður í bænum Mbale í austur Úganda um miðjan mars og er gert ráð fyrir um 35 þátttakendum á því.  

Takist vel til með framkvæmd þessa er stefnt að því að sambærileg verkefni byggð á reynslunni frá Úganda getið farið af stað í öðrum löndum.

Hugmyndum hrint í framkvæmd

Ísland lagði til að vísað yrði til jafnréttis kynjanna í viðræðum um loftslagsmál fyrir þremur árum, en þá var engin slík tilvísun til staðar í samningstextum. Með harðfylgi hefur tekist að fá samþykkt ákvæði þar að lútandi inn í samningstexta og nú er slík áhersla almennt viðurkennd. Nú er tekið nýtt og mikilvægt skref á þessari vegferð, þegar hugmyndum um jafnréttissjónarmið í loftslagsmálum verður hrint í framkvæmd þar sem áhrifa loftslagsbreytinga gætir einna mest. Með áframhaldandi starfi leggur Ísland lóð sín á vogarskálarnar í einu mesta jafnréttismáli samtímans, en loftslagsmálin varða framtíð mannkyns og allra þjóða. Þar er aðkoma beggja kynja nauðsynleg.

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum