Hoppa yfir valmynd

Ræða eða grein fyrrum ráðherra

05. september 2018 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytiðGuðmundur Ingi Guðbrandsson

Grein Guðmundar Inga Guðbrandssonar umhverfis- og auðlindaráherra - Berjumst saman gegn einnota plasti

Eftirfarandi grein Guðmundar Inga Guðbrandssonar umhverfis- og auðlindaráðherra birtist í Fréttablaðinu 5. september 2018.

Berjumst saman gegn einnota plasti

Allar jógúrtdósirnar sem ég borðaði upp úr sem barn eru sennilega til enn þann dag í dag. Allir grænu sælgætispokarnir. Allar ídýfudósirnar.

Um alla jörð safnast upp haugar af plasti. Plastflöskur, plastpokar, plastlok, plaströr, sígarettustubbar, eyrnapinnar – plast og meira plast.

Alltof oft endar plastið úti á víðavangi, flýtur niður ár og læki og endar í vötnum og úti í sjó. Milljónir tonna af plasti enda í hafinu á hverju einasta ári, með ófyrirsjánanlegum afleiðingum fyrir lífríki Jarðar. Plast hverfur auk þess ekki eða eyðist heldur brotnar niður í smærri og smærri hluta og verður að endingu að örplasti sem ekki er betra fyrir umhverfið. Þessa plastmengun verðum við að stöðva og það með öllum tiltækum ráðum.

Plastlaus september er hafinn

Þegar ég varð ráðherra umhverfismála ákvað ég að plastmálin yrðu eitt af mínum forgangsmálum. Á þessu ári hefur ráðuneytið úthlutað verkefnastyrkjum til ýmissa plast- og strandhreinsunarverkefna og fleiri verkefni eru framundan sem verða kynnt nú í september.

Ég legg áherslu á að við nálgumst plastmálin heildstætt. Að við setjum sem dæmi niður fyrir okkur hvaða rannsóknir og hvers kyns vöktun sé nauðsynleg, ráðumst í beinar aðgerðir til að draga úr plastnotkun, svo sem með skattlagningu eða banni á ákveðnum gerðum af einnota plasti, og rýnum í það hvernig best sé að stuðla að nýsköpun á vörum sem koma í stað plasts. Starfshópi sem ég kom á laggirnar fyrr á árinu er falið að koma með tillögur er þetta varðar. Þá mun ég í erlendu samstarfi leggja sérstaka áherslu á varnir gegn plastmengun, enda er hún sameiginlegt viðfangsefni okkar allra.

Plastlaus september er hafinn. Átakinu er ætlað að vekja fólk til umhugsunar um ofgnótt og skaðsemi plasts í umhverfinu og benda á leiðir til að draga úr notkun á einnota plasti. Ég fagna framtakinu einlæglega og þeirri miklu vitundarvakningu sem hefur orðið. Tökum öll þátt og notum minna plast í september – og alla hina mánuðina.

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum