Hoppa yfir valmynd

Ræða eða grein fyrrum ráðherra

08. júlí 2019 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytiðGuðmundur Ingi Guðbrandsson

Grein Guðmundar Inga Guðbrandssonar umhverfis- og auðlindaráðherra - Vatnajökulsþjóðgarður á Heimsminjaskrá UNESCO

Eftirfarandi grein Guðmundar Inga Guðbrandssonar umhverfis- og auðlindaráðherra birtist í Morgunblaðinu 6. júlí 2019

Náttúra Íslands er mögnuð. Hér koma saman kraftar elds og íss. Fjölbreytni í landslagi lætur engan ósnortinn og mikill munur getur verið á upplifun frá degi til dags einungis vegna veðurs.

Náttúran okkar hlaut mikilvæga alþjóðalega viðurkenningu í gær þegar Menningarmálastofnun Sameinuðu þjóðanna (UNESCO) samþykkti að taka Vatnajökulsþjóðgarð inn á skrá yfir svæði sem hafa einstakt gildi fyrir mannkynið. Þetta er gríðarstór viðburður í íslenskri náttúruvernd, þar sem 12% landsins fara nú inn á heimsminjaskrá UNESCO sem einstakar náttúruminjar. Vil ég færa öllum þeim sem að tilnefningu þjóðgarðsins komu mínar bestu þakkir fyrir ómetanlegt framlag þeirra.

Náttúra svæðisins sem nú fer inn á heimsminjaskrána er stórbrotin. Ævintýralegar hraunmyndanir, svartir sandar, fágætar gróðurvinjar og víðerni öðlast nýjan sess, að ógleymdu samspili elds og íss sem minjar um stórkostleg hamfarahlaup úr jöklum bera glöggt vitni. Jökullinn sjálfur geymir síðan ótrúlega sögu, bæði úr fortíð og nútíð þar sem ummerki um hopun hans vegna loftslagsbreytinga minna okkur á verkefnið fram undan.

Stjórnfyrirkomulag sem markaði tímamót í íslenskri náttúruvernd

Vatnajökulsþjóðgarður var stofnaður árið 2008. Með stofnun þjóðgarðsins var komið á nýju og einstöku stjórnfyrirkomulagi sem markaði tímamót í íslenskri náttúruvernd. Fyrirkomulagið tryggir virka aðkomu heimafólks, náttúruverndar- og útivistarsamtaka og hagaðila að stefnumótun og stjórnun þjóðgarðsins í samvinnu við fulltrúa ríkis og starfsfólk þjóðgarðsins.

Í Vatnajökulsþjóðgarði eru fjölmargir starfsmenn sem samtals mynda um 53 ársverk. Ríflega 90% þeirra eru á landsbyggðinni. Rannsóknir hérlendis sýna að fyrir hverja krónu sem hið opinbera leggur til friðlýstra svæða skila sér að meðaltali 23 krónur til baka í þjóðarbúið. Hluti þess verður eftir heima í héraði og því er náttúruvernd einnig stórt byggðamál.

Starfsemi Vatnajökulsþjóðgarðs hefur verið efld í tíð núverandi ríkisstjórnar, með auknum fjárframlögum, fjármagni til uppbyggingar innviða og aukinnar landvörslu. Allt skilar sér þetta í bættri þjónustu við bæði náttúru og menn. Í síðustu viku hlotnaðist mér sá heiður að undirrita reglugerð sem stækkaði þjóðgarðurinn um sem nemur 0,5% af Íslandi. Drottning íslenskra fjalla, Herðubreið, bættist við þjóðgarðinn, auk Herðubreiðarlinda og víðerna í Ódáðahrauni.

Sú viðurkenning sem náttúra Vatnajökulsþjóðgarðs fékk í gær með því að vera bætt inn á heimsminjaskrána er mikilvæg hvatning til okkar allra að standa að myndugleik að starfsemi þjóðgarðsins og vernd þessarar einstöku náttúruperlu.


Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum