Hoppa yfir valmynd

Ræða eða grein fyrrum ráðherra

15. ágúst 2019 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytiðGuðmundur Ingi Guðbrandsson

Grein Guðmundar Inga Guðbrandssonar umhverfis- og auðlindaráðherra - Ég er eins og ég er

Eftirfarandi grein umhverfis- og auðlindaráðherra birtist í Morgunblaðinu 15. ágúst 2019

 

Ég er eins og ég er

Þegar lögreglan í New York stormaði inn á Stonewall-barinn fyrir fimmtíu árum áttu flestir von á að atburðarásin yrði hefðbundin. Lögreglan gerði reglulega rassíu á þessum vinsæla bar þar sem hinsegin fólk gat dansað saman óáreitt. Í þetta sinn var lögreglan hins vegar borin yfirliði – fólk fékk nóg og fjöldinn reis upp gegn vanvirðingu, yfirgangi og óréttlæti. Átök stóðu heila helgi og nokkur þúsund manns tóku þátt. Máttur samstöðunnar var virkjaður og þá var ekki aftur snúið.

Árið 2019 minnumst við þess að hálf öld er liðin frá þessari merkilegu uppreisn sem af mörgum er talinn vera viðburðurinn þar sem réttindabarátta hinsegin fólks hófst af krafti. Um leið eru tuttugu ár liðin frá því að á Íslandi fóru fyrst fram hátíðahöldin sem í dag nefnast Hinsegin dagar og ná hámarki með Gleðigöngunni. Sá mikli fjöldi fólks sem nú fagnar fjölbreytileikanum á þessari litríku hátíð sýnir þá ótrúlegu viðhorfsbreytingu sem orðið hefur hér á landi á fáeinum árum og áratugum.

En hvað með kynlífið þitt?

Ég er þakklátur fyrir að hafa nær aldrei mætt mótlæti sökum kynhneigðar minnar. Fordóma í garð hinsegin fólks er hins vegar enn að finna á Íslandi og sögur fólksins jafnmargar og fólkið er margt. Samkvæmt nýrri óformlegri könnun sem unnin var á vegum Hinsegin daga, um málefni hinsegin fólks á íslenskum vinnumarkaði, telja 15% þeirra sem svöruðu að þau hafi færri tækifæri á vinnumarkaði samanborið við þau sem ekki eru hinsegin. Nærri þriðjungur hinsegin fólks upplifir óþægilegar og nærgöngular spurningar frá samstarfsfólki og stjórnendum á vinnustað sínum, svo sem tengdum kynlífi, kynfærum og hjúskaparstöðu.

Í fyrra voru samþykkt lög um jafna meðferð á vinnumarkaði en í þeim er sérstaklega tilgreind jöfn meðferð einstaklinga óháð kynhneigð, kynvitund, kyneinkennum og kyntjáningu. Í þessu felst mikilvæg réttarbót. En við þurfum líka að rýna í menninguna og breyta henni. Vindar geta breyst hratt og við megum aldrei sofna á verðinum.

Þau sem vörðuðu veginn

Löggjafinn þarf á hverjum tíma að tryggja að hann fari á undan með góðu fordæmi. Til þess þarf bæði vilja og þor. Nýsamþykkt lagafrumvarp Katrínar Jakobsdóttur, forsætisráðherra, um kynrænt sjálfræði felur í sér afar mikilvægar breytingar á réttarstöðu hinsegin fólks hér á landi og með samþykkt þeirra skipar Ísland sér í fremstu röð á heimsvísu í málefnum hinsegin fólks. Kjarninn í nýju lögunum er að virða og styrkja sjálfsákvörðunarrétt fólks.

Í Gleðigöngunni á laugardag ætla ég að hugsa til fólks um allan heim sem berst fyrir því að lifa lífinu á sínum eigin forsendum. Ég er meðvitaður um að líf mitt væri afar frábrugðið því sem er ef ég hefði fæðst í landi þar sem réttindi hinsegin fólks eru þverbrotin og ómögulegt væri t.d. að vera opinberlega samkynhneigður ráðherra. Í göngunni ætla ég líka að hugsa með þakklæti til þeirra sem hafa í gegnum árin tryggt réttarstöðu hinsegin fólks og allra hetjanna sem vörðuðu veginn.

Ég er eins og ég er. Við þurfum ekki öll að vera eins.

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum