Hoppa yfir valmynd

Ræða eða grein fyrrum ráðherra

09. maí 2020 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytiðGuðmundur Ingi Guðbrandsson

Grein Guðmundar Inga Guðbrandssonar umhverfis- og auðlindaráðherra - Út með óþarfa plast

Eftirfarandi grein Guðmundar Inga Guðbrandssonar umhverfis- og auðlindaráðherra birtist á Vísi.is 9. maí 2020.

 

Út með óþarfa plast

Í byrjun vikunnar mælti ég fyrir frumvarpi á Alþingi sem gengur út á að draga úr áhrifum tiltekinna plastvara á umhverfið. Lagt er til að frá og með miðju næsta ári verði bannað að setja á markað einnota plastvörur á borð við bómullarpinna, sogrör, hræripinna, diska og hnífapör úr plasti, sem og drykkjarílát, bolla og glös úr frauðplasti.

Af hverju þessar plastvörur?

Frumvarpið byggir á Evróputilskipun og er henni fyrst og fremst beint að þeim vörum sem finnast helst á ströndum í álfunni. Meirihluti rusls á ströndum í Evrópu er nefnilega plast, helmingurinn einnota. Við erum þannig ekki að banna í blindni hvaða plast sem er - heldur einnota óþarfa sem veldur skaða í náttúrunni. Aðrar vörur eru tiltækar í stað þeirra sem bannaðar verða og undanþágur eru gerðar ef vörur flokkast sem lækningatæki.

Af hverju að banna? Er ekki fræðsla nóg?

Undanfarin ár hefur átt sér stað mikil hugarfarsbreyting. Fjöldi fólks og fyrirtækja hefur lagt mikið á sig til þess að draga úr plastnotkun, vegna þess að það veit og skilur að breytinga er þörf. Þótt fræðsla sé mikilvæg og nauðsynleg þá sýna rannsóknir í félags- og umhverfissálfræði samt að hún er ekki nóg til að breyta hegðun. Þannig þarf að breyta kerfinu til að breyta hegðuninni. Kerfið þarf að auðvelda fólki að gera það sem það veit að er rétt og þess vegna er mikilvægt að stíga skref sem þessi.

Náttúran má ekki við meiri einnota óþarfa

Verði frumvarpið samþykkt verður heldur ekki lengur leyfilegt að afhenda drykki og matvöru á skyndibitastöðum í ílátum úr plasti - án þess að tekið sé fyrir það sérstakt gjald. Þetta er í raun sama ráðstöfun og gerð var með burðarpoka í fyrra, en þá mátti ekki lengur afhenda þá ókeypis. Það getur nefnilega ekki lengur verið auðvelt og ókeypis að nota einnota plast. Náttúran má ekki við því. Hafið má ekki við því.

Plastið hverfur ekki – og finnst því víða

Plast hefur marga góða kosti. Það er létt og endingargott og við eigum því margt að þakka, t.d. að draga úr matarsóun. En það er líka að stórum hluta gert úr óendurnýjanlegum auðlindum. Það fýkur auðveldlega undan veðri og vindum. Og þegar plast berst út í náttúruna brotnar það ekki niður og hverfur alfarið, heldur verður að sífellt minni ögnum. Þannig hefur plast m.a. fundist á mesta dýpi sjávar, í ísjökum á Norðurpólnum, fjallstindum í Sviss og í fiskum í Amazon.

Líka á Íslandi

Því miður höfum við fengið staðfestingar á örplastsmengun við Íslandsstrendur, rétt eins og annars staðar í heiminum. Í rannsóknum sem Umhverfisstofnun lét gera árið 2018 fannst örplast í helmingi kræklings sem kannaður var og í maga um 70% fýla. Örplast hefur líka fundist í drykkjarvatni á Íslandi, rétt eins og víða erlendis.

Margnota fremur en einnota

Auðlindir jarðar eru ekki óþrjótandi. Við megum ekki umgangast þær eins og þær séu það.
Með frumvarpinu er stutt við innleiðingu hringrásarhagkerfisins og notkun margnota vara frekar en einnota. Í raun má segja að frumvarpið nú sé framhald af þeirri vegferð sem við fórum í með einnota burðarpoka í fyrra. Plokkarar segjast þegar sjá mun minna af plastpokum í náttúrunni.

Höldum áfram á þessari braut, fyrir náttúruna!

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum