Hoppa yfir valmynd

Ræða eða grein fyrrum ráðherra

24. júní 2020 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytiðGuðmundur Ingi Guðbrandsson

Grein Guðmundar Inga Guðbrandssonar umhverfis- og auðlindaráðherra - Ísland mun uppfylla skuldbindingar í loftslagsmálum

Eftirfarandi grein Guðmundar Inga Guðbrandssonar umhverfis- og auðlindaráðherra birtist í Fréttablaðinu 24. júní 2020.

 

Ísland mun uppfylla skuldbindingar í loftslagsmálum

Í gær kom út ný útgáfa Aðgerðaáætlunar í loftslagsmálum sem sýnir að Ísland mun uppfylla alþjóðlegar skuldbindingar sínar í loftslagsmálum. Stjórnvöld setja samt markið enn hærra.

Stefna ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur er skýr í loftslagsmálum. Stefnt er að samdrætti í losun gróðurhúsalofttegunda um 40% árið 2030 í samstarfi við Noreg og Evrópusambandið, og kolefnishlutleysi árið 2040. Strax á fyrstu mánuðum ríkisstjórnarinnar var ráðist í aðgerðir í loftslagsmálum og fjármagni beint inn í málaflokkinn. Með þeim aðgerðum sem við höfum ráðist í og hyggjumst ráðast í munum við ná mun meiri árangri en alþjóðlegar skuldbindingar samkvæmt Parísarsamkomulaginu krefjast af okkur. Því ber svo sannarlega að fagna.

Samkvæmt áætluninni mun samdráttur í losun gróðurhúsalofttegunda árið 2030 verða 35%, miðað við viðmiðunarárið 2005, en skuldbindingar okkar kveða á um 29% samdrátt. Til viðbótar við þetta eru aðgerðir sem enn eru í mótun taldar geta skilað 5-11%, eða samtals 40-46% samdrætti. Þetta sýnir að blaðinu hefur verið snúið við í loftslagsmálum á Íslandi.

Að baki þessari nýju útgáfu áætlunarinnar liggja ítarlegir útreikningar á ávinningi allra þeirra aðgerða sem unnt var að meta. Áætlunin samanstendur af 48 aðgerðum, en rúmur helmingur þeirra er þegar kominn til framkvæmda. 15 nýjar aðgerðir hafa bæst við frá fyrri útgáfu áætlunarinnar og má þar t.d. nefna aðgerðir til þess að auka innlenda grænmetisframleiðslu, fjölga vistvænum bílaleigubílum, styðja við orkuskipti í þungaflutningum, fanga kolefni frá stóriðju og draga úr losun frá byggingariðnaði.

Við munum halda ótrauð áfram að tryggja þau umskipti sem nauðsynleg eru í samfélaginu til að sporna gegn áhrifum loftslagsbreytinga og munum meðal annars nú í framhaldinu greina áhrif áætlunarinnar á mismunandi tekjuhópa.

Fjölmörg tækifæri felast í fjárfestingu í grænum innviðum og grænni nýsköpun. Orkuskipti á öllum sviðum samfélagsins, minni sóun og frekari kolefnisbinding með landgræðslu, skógrækt og endurheimt votlendis eru allt aðgerðir sem geta leitt til mikils ávinnings fyrir samfélagið. Hvort heldur sem það er í formi grænna starfa, græns vaxtar eða lífvænlegri heims til lengri tíma litið.


Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum