Hoppa yfir valmynd

Ræða eða grein fyrrum ráðherra

27. mars 2021 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytiðGuðmundur Ingi Guðbrandsson

Grein Guðmundar Inga Guðbrandssonar umhverfis- og auðlindaráðherra - Hert markmið + efldar aðgerðir = árangur í loftslagsmálum

Eftirfarandi grein Guðmundar Inga Guðbrandssonar umhverfis- og auðlindaráðherra birtist á Vísi.is 27. mars 2021.

 

Hert markmið + efldar aðgerðir = árangur í loftslagsmálum

Eitt helsta áherslumál mitt sem umhverfis- og auðlindaráðherra hefur verið að snúa við blaðinu í loftslagsmálum. Þegar ég tók við sem ráðherra ríkti kyrrstaða í aðgerðum stjórnvalda á Íslandi. Það skorti sýn, stefnu, áætlanir um samdrátt í losun og fjármagn til þess að fylgja þeim eftir.

Ég hef lagt áherslu á að áætlunum fylgi fjármagn, að orðum fylgi efndir. Ég ætla að nefna nokkur dæmi: Á þessu kjörtímabili hefur fjármagn til loftslagsmála, bara í umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, aukist um meira en 800%. Samkvæmt nýrri fjármálaáætlun sem kynnt var í vikunni verða framlög stjórnvalda til loftslagsmála aukin um 1 milljarð króna á ári næsta áratuginn. Árið 2022 verður metár í framlögum til loftslagsmála, þegar 13 milljörðum verður varið til málaflokksins.

Metnaðarfyllri markmið

Forsætisráðherra tilkynnti efld markmið Íslands í loftslagsmálum á leiðtogafundi í desember síðastliðnum. Þá færðum við markið úr 40% samdrætti í losun gróðurhúsalofttegunda fram til ársins 2030, í 55% samdrátt. Þetta gerum við í samfloti við aðrar þjóðir; Evrópusambandið og Noreg. Með þessu fylkjum við liði með metnaðarfyllstu þjóðum heims í loftslagsmálum og þannig á það líka að vera.

Efldar aðgerðir

Við erum með plan um hvernig við ætlum að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda á Íslandi og auka kolefnisbindingu. Planið er lagt fram í Aðgerðaáætlun í loftslagsmálum  sem kom fyrst út árið 2018 en var uppfærð síðasta sumar. Í vikunni tilkynntum við svo um aðgerðir til viðbótar við þær sem fram koma í aðgerðaáætlun, eða eru nánari útfærsla á þeim.
Þessar efldu aðgerðir eru liður í að mæta hertum loftslagsmarkmiðum okkar frá því í desember og verða fjármagnaðar með 1 milljarðs árlegu viðbótarfjármagni til loftslagsmála næstu 10 árin. Aðgerðirnar munu einkum beinast að fjórum þáttum:

1. Náttúrumiðaðar lausnir í loftslagsmálum
Aukinn kraftur settur í endurheimt landgæða, landgræðslu og skógrækt, vernd og endurheimt votlendis. Þessar aðgerðir hafa líka að markmiði að efla og endurheimta lífríki og líffræðilega fjölbreytni.

2. Loftslagsaðgerðir í landbúnaði
Loftslagsaðgerðum í landbúnaði verður hraðað og þær auknar í samstarfi við bændur, einkum í gegnum verkefnið Loftslagsvænn landbúnaður en þar er stefnt að því að fjölga verulega bændum sem taka þátt í verkefninu.

3. Aukinn stuðningur við orkuskipti
Orkuskiptum í samgöngum á landi, hafi og í lofti verður hraðað. Í samgöngum á landi verður megináhersla lögð á orkuskipti á sviði ferðaþjónustu og þungaflutninga. Áframhaldandi stuðningur verður við orkuskipti í haftengdri starfsemi með bættum innviðum og nýrri tækni og skoða þarf sérstaklega stuðning við innlenda framleiðslu á endurnýjanlegu eldsneyti til að mæta þörfum á komandi árum.

4. Efling umhverfisvænni almenningssamgangna og betri innviðir fyrir virka ferðamáta
Áhersla verður lögð á að efla vistvænar almenningssamgöngur með fjölgun umhverfisvænni ferðavagna og að bæta innviði fyrir rafhjól og aðra virka ferðamáta, m.a. með uppsetningu hleðslustöðva.

Aðgerðirnar eru settar fram sem hluti af grænni endurreisn eftir kórónuveirufaraldurinn og verða unnar í samstarfi stjórnvalda og atvinnulífs. Áhersla er á að forgangsraða verkefnum sem stuðla að mestum samdrætti í losun gróðurhúsalofttegunda. Til viðbótar við þetta liggur fyrir Alþingi frumvarp fjármála- og efnahagsráðherra um ívilnanir vegna fjárfestinga sem teljast umhverfisvænar og stuðla að sjálfbærni. Gert er ráð fyrir að þessar ívilnanir muni geta numið um 1,2 milljörðum á ári á árunum 2024-2026.

Blaðinu hefur verið snúið við

Ég vil meina að með öllu því sem að hefur verið gert í loftslagsmálum á þessu kjörtímabili hafi blaðinu verið snúið við. Aðgerðir okkar hafa snúið að orkuskiptum, kolefnisbindingu, úrgangsmálum, landbúnaði, rannsóknum og vöktun, nýsköpun, margvíslegri reglusetningu, fjölbreyttum skattaafsláttum og styrkjum, svo eitthvað sé nefnt. Það var því sérstaklega ánægjulegt að sjá að í niðurstöðum spánnýrrar umhverfiskönnunar Gallup  kemur fram að ánægja með viðleitni stjórnvalda til þess að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda hefur aukist úr 40% í rúmlega 50% frá því í fyrra. Og hlutfall þeirra sem hefur trú á að hægt sé að ná miklum árangri í því að sporna við loftslagsbreytingum fyrir árið 2030 fer úr rúmum 60% í rösk 70%. Það segir mér að fólk hefur trú á þeirri vegferð sem nú er hafin.

Við erum farin að sjá árangur

Það tekur auðvitað tíma að gera umfangsmiklar breytingar á gangverki samfélagsins, en við erum sannarlega komin á fulla ferð og farin að sjá árangur, eins og bráðabirgðaniðurstöður Umhverfisstofnunar sýna varðandi samdrátt í losun til dæmis frá bílaumferð. Í umhverfis- og auðlindaráðuneytinu er nú hafin vinna við að móta framtíðarsýn um kolefnishlutlaust Ísland árið 2040. Það er spennandi verkefni sem felur í sér fullt af tækifærum fyrir lágkolefnishagkerfi framtíðarinnar.

Stefnum hærra

Það er auðvitað ekki annað í boði en að veita umhverfismálum, og þá sérstaklega loftslagsmálum, síaukna athygli, grípa til enn frekari aðgerða og tryggja fjármagn á næstu árum. Því hvernig svo sem veröldin snýst þá er loftslagsváin stóra áskorun samtímans.

Þess vegna vil ég sjá okkur stefna enn hærra en hingað til. Byggjum ofan á það sem nú þegar hefur verið gert og gefum hvergi eftir. Það er eina leiðin framávið – og líka sú rétta.

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum