Hoppa yfir valmynd
13.07. 2020 Utanríkisráðuneytið

Óttast að tíu milljónir barna snúi aldrei aftur í skóla

Ljósmynd: Seifuasseged/ Save the Children - mynd

Samtökin Save the Children óttast að niðurskurður á framlögum til menntamála og aukin fátækt vegna COVID-19 farsóttarinnar komi til með að hafa þær afleiðingar að 9,7 milljónir barna missi af allri formlegri skólagöngu og enn fleiri dragist aftur úr í námi. Þetta kemur fram í skýrslu samtakanna sem birt var í dag.

Samkvæmt skýrslunni – Save Our Education – er sérstaklega óttast að stúlkur hverfi frá námi og margir þeirra verði neyddar í hjónaband á unga aldri. Einnig er óttast að börn verði vegna fátæktar tekin úr skóla og skipað að fara út á vinnumarkaðinn.

Í skýrslunni skora samtökin Save the Children á ríkisstjórnir og framlagsríki að bregðast við þeirri neyð sem menntun í heiminum býr við, með því að fjárfesta í menntun nú þegar skólar opna hver á fætur öðrum eftir að þeim var lokað vegna heimsfaraldursins.

„Líkur eru á því að um tíu milljónir barna snúi aldrei aftur í skóla,“ segir Inger Ashing framkvæmdastjóri Save the Children og bendir á að rannsóknir samtakanna sýni að í tólf löndum, einkum í Vestur- og Mið-Afríku, en einnig í Jemen og Afganistan, sé ástæða til að óttast að börn snúi ekki aftur í skóla, sérstaklega stúlkur.

Í öðrum 28 löndum er óttast að einhver hluti barna hverfi algjörlega frá námi. Áður en farsóttin braust út voru 258 milljónir barna og unglinga í skyldunámi þegar utan skóla.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

4. Menntun fyrir öll

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum