Hoppa yfir valmynd
21.09. 2022 Utanríkisráðuneytið

Erindi í Háskóla Íslands um ástandið í Eþíópíu

Á morgun, fimmtudaginn 22. september, flytur Sophie Gebreyes framkvæmdastjóri Hjálparstarfs Lútherska heimssambandsins í Eþíópíu erindi á vegum Hjálparstarfs kirkjunnar og námsbrautar í mannfræði um ástandið í Eþíópíu og verkefni Hjálparstarfs Lútherska heimssambandsins og Hjálparstarfs kirkjunnar.

Sophie hefur langa reynslu af stjórnunarstörfum hjá hjálparsamtökum í Afríku og í Suður-Ameríku, þar með talið hefur hún verið framkvæmdastjóri LWF í Eþíópíu frá árinu 2013. Sophie lærði lögfræði í Addis Ababa og lauk meistaragráðu í frönsku og þróunarfræðum frá The University of Winnipeg.

Hjálparstarf kirkjunnar hefur verið í samstarfi við LWF/DWS í Eþíópíu í áratugi og stærsta verkefni samtakanna í þróunarsamvinnu hefur verið þar frá árinu 2007. Í ár og í fyrra hefur Hjálparstarfið einnig fjármagnað mannúðaraðstoð í norðanverðu landinu með stuðningi utanríkisráðuneytisins þar sem hörð átök hafa verið milli stjórnarhers Eþíópíu og Frelsishers Tigray.

Viðburðurinn verður í stofu 103 á Háskólatorgi klukkan 17 til 18 og eru öll velkomin að hlýða á erindið.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

16. Friður og réttlæti
2. Ekkert hungur
3. Heilsa og vellíðan

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum