Hoppa yfir valmynd
01.02. 2023 Utanríkisráðuneytið

Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna þakkar Íslandi stuðninginn

Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna, UNHCR, lofar mjög skuldbindingu Íslands til þess að aðstoða og vernda flóttafólk um allan heim, með auknum fjárframlögum Íslands til stofnunarinnar fyrir árið 2022.

„Með rúmlega 100 milljónir manna sem eru neyddar frá heimilum sínum um gjörvallan heim vegna stríðs, ofbeldis, ofsókna og mannréttindabrota, er mannúðar- og verndarþörf mikil. Við treystum á stuðning framlagsríkja og Ísland á í því sambandi skilið viðurkenningu fyrir að bregðast skjótt við alþjóðlegum aðstæðum með því að auka fjárframlög sín,“ segir Henrik M. Nordentoft, fulltrúi UNHCR fyrir Norðurlöndin og Eystrasaltslöndin.

Á síðasta ári lagði Ísland fram hæsta fjárframlagið í þágu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna á heimsvísu og lagði alls til 4,2 milljónir Bandaríkjadala, sem er 120 prósenta aukning frá árinu á undan. Af framlaginu lagði Ísland til tæpar 1,5 milljónir Bandaríkjadala sem svokallað óeyrnamerkt fjármagn, sem er þreföldun frá fyrra ári. Slík fjármögnun er lífsnauðsynleg og gerir Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna kleift að bregðast við neyðartilvikum sem þróast hratt, eins og raunin varð til að mynda í Úkraínu á síðasta ári, auk þess að veita vernd og lífsbjargandi aðstoð í langvinnum og oft gleymdum krísum um allan heim.

„Þökk sé þessum fjármunum getum við aðstoðað flóttafólk, ekki aðeins við að finna öryggi, heldur einnig til að geta endurbyggt líf sitt með því að tryggja aðgang að heilbrigðisþjónustu, menntun og lífsviðurværi. Sem lítið land er alþjóðleg þátttaka Íslands í flóttamannavernd öðrum innblástur,“ segir Henrik M. Nordentoft. „Við vonum að Ísland haldi áfram þessu mikilvæga verkefni og beiti sömu sterku skuldbindingu um vernd flóttafólks heima fyrir.“

Árið 2022, reyndist vera sorglegt þegar að kom að nauðungarflutningum. Innrásin í Úkraínu hefur leitt til stærstu og mest vaxandi flóttamannavanda frá síðari heimsstyrjöldinni. Um þessar mundir hafa tæplega 8 milljónir manna flúið land og um 6 milljónir manna eru á flótta innanlands í Úkraínu.

Nánar á vef UNHCR

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

16. Friður og réttlæti

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum