Hoppa yfir valmynd
26.05. 2023 Utanríkisráðuneytið

Ársskýrsla UNICEF komin út

Ein af ljósmyndum í skýrslunni. Ljósmynd: UNICEF - mynd

Á ári gríðarlegra áskorana og fjölþættra ógna sem steðja að börnum um allan heim hefur UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, unnið þrotlaust að markmiðum sínum um betri heim fyrir öll börn og náð eftirtektarverðum árangri í þágu réttinda og velferðar barna.

Í dag birti UNICEF ársskýrslu sína þar sem farið er yfir helstu áskoranir og árangur ársins 2022 sem litað var af eftirmálum heimsfaraldursins, stríðsátökum, loftslagsbreytingum, efnahagsþrengingum, sjúkdómum og verstu matvæla- og næringarkrísu nútímasögunnar hjá mörgum fátækustu ríkjum veraldar.

Einstaklingum sem þurftu á mannúðaraðstoð að halda á árinu fjölgaði úr 235 milljónum árið 2021 í 274 milljónir í fyrra. Í frétt á vef UNICEF er greint frá eftirtöldum árangri UNICEF á síðasta ári:

  • 356.3 milljónir barna undir fimm ára aldri nutu góðs af verkefnum til að draga úr vannæringu af öllu tagi á árinu. Fleiri en nokkru sinni. 182.4 milljónir barna nutu góðs af vinnu í að snemmbærri greiningu og meðhöndlun á rýrnun (e. Wasting), alvarlegasta formi vannæringar.
  • 77.9 milljónir barna voru bólusett gegn mislingum og 27 milljónir barna fengu bólusetningar í ríkjum þar sem neyð og mannúðarkrísa ríkti.
  • 37.9 milljónir barna og ungmenna sem ekki voru í skóla (þar af 49 prósent stúlkur) fengu aðgengi að menntun á árinu, þar af 3,1 milljónir barna á flótta og vergangi og 18.6 milljónir barna sem búa við mannúðarkrísu.
  • UNICEF skalaði upp verkefni sem beinast að forvörnum gegn ofbeldi, hagnýtingu og öðrum skaðlegum aðgerðum gegn börnum, þar á meðal með foreldranámskeiðum sem náðu til 11.8 milljóna forráðamanna árið 2022, samanborið við 3 milljónir árið 2021.
  • Fjöldi barna, ungmenna og forráðamanna sem fékk aðgengi að samfélagslegri heilbrigðisþjónustu og sálrænum stuðningi á árinu ríflega tvöfaldaðist milli ára, úr 12 milljónum árið 2021 í 25,2 milljónir á því siðasta.
  • Verkefni sem beinast að þátttöku barna með fötlun náðu til 4,5 milljóna barna í 142 löndum.
  • 26 milljónir einstaklinga fengu aðgengi að, í það minnsta, grunnhreinlætisaðgerðum, 30,6 milljónir að vatni, 23,6 milljónir hreinlæti og 39 milljónir fengu aðgengi að vatns- og hreinlætisþjónustu (WASH) í neyðaraðstæðum.
  • Með stuðningi UNICEF gátu stjórnvöld á viðkomandi svæðum náð til 129 milljóna barna með beinum fjárstuðningi.
  • Á COP27 ráðstefnunni varð hagsmunagæslusamstarfsverkefni UNICEF í Children´s Environmental Rights Initiative til þess að hlutverk barna og ungmenna í baráttunni gegn hamfarahlýnun var formlega viðurkennt.
  • UNICEF náði til og virkjaði tugi milljóna barna í réttindagæslu og fræðslu.

Ársskýrsla UNICIEF

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

1 Engin fátækt
2. Ekkert hungur
3. Heilsa og vellíðan
6. Hreint vatn og hreint

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum