Hoppa yfir valmynd
02.06. 2023 Utanríkisráðuneytið

Eva Harðardóttir nýr formaður Félags Sameinuðu þjóðanna

Eva Harðardóttir formaður og Þórður Kristinsson varaformaður. Ljósmynd: FS - mynd

Eva Harðardóttir var kosinn nýr formaður Félags Sameinuðu þjóðanna á Íslandi á aðalfundi félagsins í fyrradag sem haldinn var í nýju húsnæði félagsins að Sigtúni 42. Á þessu ári eru 75 ár liðin frá stofnun félags Sameinuðu þjóðanna á Íslandi en systurfélög eru starfandi í rúmlega eitt hundrað löndum. Ársskýrsla félagsins var kynnt á aðalfundinum.

Kosið er til stjórnar í félaginu á tveggja ára fresti. Auk Evu skipa nýja stjórn þau Páll Ásgeir Davíðsson, Védís Sigrúnar Ólafsdóttir, Susan Christianen, Unnur Lárusdóttir, Viktoría Valdimarsdóttir, Þórður Kristinsson og Þorvarður Atli Þórisson.

Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir, lögfræðingur og alþingismaður lét af störfum sem stjórnarformaður eftir tveggja ára setu og fjögur ár í stjórn, en auk hennar létu Svava Jónsdóttir, Sveinn H. Guðmarsson, Böðvar Ragnarsson, Sigurður Ingi Sigurpálsson og Sólveig Þorvaldsdóttir einnig af stjórnarsetu.

“Það er mikill heiður og ábyrgð fólgin í því að taka við sem formaður félags Sameinuðu þjóðanna á Íslandi á 75 ára afmælisári félagsins. Ekki bara vegna þess að félagið á sér langa og merkilega sögu heldur einnig vegna þess að þau markmið sem sett voru við stofnun félagsins, árið 1948, eiga fullt erindi við okkur í dag: Að stuðla að alþjóðafriði, öryggi, samvinnu og samstarfi í anda hugsjóna Sameinuðu þjóðanna” segir Eva Harðardóttir nýkjörinn stjórnarformaður en hún hefur setið í stjórn félagsins frá árinu 2022.

Eva starfar sem aðjúnkt við Menntavísindasvið Háskóla Íslands og lýkur doktorsnámi þaðan í haust með áherslu á hnattræna borgaravitund. Eva hefur einnig starfað fyrir UNICEF í Malaví við stefnumótun og innleiðingu verkefna á sviði félags-, mannréttinda og menntamála og hefur víðtæka þekkingu og reynslu af því að vinna með heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum