Hoppa yfir valmynd
05.09. 2023 Utanríkisráðuneytið

Um fimm milljónir barna í brýnni þörf á mannúðaraðstoð í Malí

Ljósmynd: UNICEF - mynd

Nærri fimm milljónir barna eru í brýnni þörf á mannúðaraðstoð í Malí. Þar á meðal er þörf á næringu, menntun og verndarþjónustu, auk aðgangs að hreinu vatni. Samkvæmt fulltrúum UNICEF, Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, og Matvælaáætlun Sameinuðu þjóðanna, WFP, má gera ráð fyrir að nærri ein milljón barna undir fimm ára aldri glími við bráðavannæringu það sem eftir lifir árs. Þar af eigi um 200 þúsund börn á hættu að deyja úr hungri án nauðsynlegrar mannúðaraðstoðar.

"Malí er að ganga í gegnum flókna mannúðarkreppu og þarf á brýnum stuðningi að halda til þess að afstýra hörmungum fyrir börn sem verða verst úti í átökum sem þau hafa ekki átt þátt í að skapa,“ segir Ted Chaiban, aðstoðarframkvæmdastjóri UNICEF í mannúðaraðgerðum og birgðamálum í frétt á vef stofnunarinnar. „UNICEF hefur verið á vettvangi í gegnum sum erfiðustu ár Malí og mun Barnahjálpin halda áfram aðstoð sinni svo lengi sem á henni er þörf,“ sagði Ted Chaiban.

Auk ofbeldis og átaka í Malí hafa loftslagsáföll leitt til gríðarlegrar aukningar fólks á flótta víðsvegar í landinu á síðustu mánuðum. Af þeim 377 þúsund manns sem eru á flótta, eru börn meiri en helmingur þeirra og eru nú að minnsta kosti 1,6 milljónir barna í Malí í brýnni þörf á vernd.

„Við verðum að gera það sem við getum til að hjálpa viðkvæmum fjölskyldum, sérstaklega börnum og konum, með því að vinna náið með samstarfsaðilum okkar til að koma í veg fyrir hungursneyð, og takast á við bráða fæðuóöryggi og vannæringu,“ sagði Carl Skau, aðstoðarframkvæmdastjóri Matvælastofnunar Sameinuðu þjóðanna.

UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, og Matvælastofnun Sameinuðu þjóðanna kalla eftir öruggu aðgengi til þess að mæta þörfum barna í Malí en þörf er á um 184 milljónum Bandaríkjadala til þess að ná til 4,7 milljóna barna í Malí fyrir loka árs.  

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

2. Ekkert hungur
3. Heilsa og vellíðan
16. Friður og réttlæti

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum