Hoppa yfir valmynd

Aðgerð

B.02. Flutningskerfi raforku og aukið orkuöryggi

Aðgerðin er í vinnslu

Tengiliður    Erla Sigríður Gestsdóttir, umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu
                     [email protected]

Fréttir

27.01.22 Í þingsályktun 26/148, frá 2018, um stefnu stjórnvalda um uppbyggingu flutningskerfis raforku, kemur fram að sérfróður aðili skuli fenginn til að gera sjálfstæða rannsókn á áhrifum mismunandi tæknilegra lausna við lagningu raflína og á þjóðhagslegri hagkvæmni þess að aukið hlutfall flutningskerfis raforku verði lagt í jörð, með tilliti til áhrifa á raforkuverð, afhendingaröryggi, hagkvæmni, byggðaþróun, tæknilegar lausnir og umhverfiskostnað.

18.12.20 Í þingsályktun nr. 26/148, frá júní 2018, um stefnu stjórnvalda um uppbyggingu flutningskerfis raforku, kemur fram að sérfróður aðili skuli fenginn til að gera sjálfstæða rannsókn á áhrifum mismunandi tæknilegra lausna við lagningu raflína og á þjóðhagslegri hagkvæmni þess að aukið hlutfall flutningskerfis raforku verði lagt í jörð, með tilliti til áhrifa á raforkuverð, afhendingaröryggis, hagkvæmni, byggðaþróunar, tæknilegra lausna og umhverfiskostnaðar. 

13.11.20 Greining á regluverki og fyrirkomulagi er varðar flutning og dreifingu raforku.

29.11.19 Árið 2018 var samþykkt þingsályktun um stefnu stjórnvalda um uppbyggingu flutnings­kerfis raforku. Í gangi er vinna sem snýr að möguleikum á lagningu jarðstrengja í stað loftlína. Áætlað er að fyrir lok árs 2019 verði unnt að leggja mat á hvort lagðar verði til breytingar á viðmiðum og meginreglum um lagningu jarðstrengja.

Verkefnið

Verkefnismarkmið: Að auka orkuöryggi og efla flutningskerfi raforku. 

Áfram verði unnið að því að liðka fyrir nauðsynlegri uppbyggingu og viðhaldi á flutnings- og dreifikerfi raforku, tengja betur lykilsvæði og tryggja afhendingaröryggi um land allt til að mæta þörfum almennings og atvinnulífs. 

  • Ábyrgð: Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið.
  • Framkvæmdaraðili: Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
  • Dæmi um samstarfsaðila: Orkustofnun, Landsnet og landshlutasamtök sveitarfélaga. 
  • Tímabil: 2019–2024. 
  • Tillaga að fjámögnun: 60 millj. kr. úr byggðaáætlun. 

Auðlindir
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum