A.15. Opinber grunnþjónusta og jöfnun aðgengis
Aðgerðin er í vinnslu | |
---|---|
Fréttir af aðgerðinni
Febrúar 2025 Haustið 2023 gaf IRN út leiðbeiningar fyrir sveitarstjórnir við mótun stefnu um það þjónustustig sem sveitarfélagið hyggst halda uppi í byggðum fjarri stærstu byggðakjörnum, en skv. 130. gr. sveitarstjórnarlaga skal sveitarstjórn móta slíka stefnu samhliða fjárhagsáætlun. Í nóvember 2023 til febrúar 2024 voru drög að skilgreiningu á opinberri grunnþjónustu, ásamt greinargerð, lögð fram í samráðsgátt. Skilgreiningin er m.a. ætluð stjórnvöldum, ríki og sveitarfélögum, til leiðbeiningar við stefnumótun, framkvæmd stefna og við mat á áhrifum lagafrumvarpa og annarra stjórnvaldsfyrirmæla eða stefnumarkandi ákvarðana hins opinbera. Gera má ráð fyrir að aðgerðinni ljúki fyrri hluta árs 2025 með útgáfu leiðbeininga.
Janúar 2024 Drög að skilgreiningu á opinberri grunnþjónustu, ásamt greinargerð, var lögð fram í samráðsgátt í nóvember 2023 og verða þar til febrúar 2024. Skilgreiningin er m.a. ætluð stjórnvöldum, ríki og sveitarfélögum, til leiðbeiningar við stefnumótun, framkvæmd stefna og við mat á áhrifum lagafrumvarpa og annarra stjórnvaldsfyrirmæla eða stefnumarkandi ákvarðana hins opinbera. Jafnframt hafa verið unnar leiðbeiningar fyrir sveitarstjórnir við mótun stefnu um það þjónustustig sem sveitarfélagið hyggst halda uppi í byggðum fjarri stærstu byggðakjörnum.
27. janúar 2023 Aðsókn að Ísland.is jókst um 80%. Vefurinn Ísland.is hefur það markmið að auðvelda fólki að sækja stafræna þjónustu og þannig jafna aðgengi allra landsmanna að opinberri þjónustu.
Tengiliður
Hólmfríður Sveinsdóttir, innviðaráðuneyti - [email protected]
Aðgerðin
Markmið: Að aðgengi og þjónustustig opinberrar grunnþjónustu verði jafnað með bættum aðstæðum og tæknilausnum.
Stutt lýsing: Skilgreint verði aðgengi að opinberri grunnþjónustu. Einnig verði skilgreint lágmarksþjónustustig opinberrar grunnþjónustu fyrir dreifbýli þar sem of kostnaðarsamt getur þótt að veita þjónustuna. Jafnframt verði lagðar fram tillögur um tæknilega framkvæmd og jöfnun kostnaðar við að sækja einstaka þætti þjónustu á vegum ríkisins.
- Ábyrgð: Innviðaráðuneytið.
- Framkvæmdaraðili: Byggðastofnun.
- Dæmi um samstarfsaðila: Ráðuneyti og stofnanir, Samband íslenskra sveitarfélaga, landshlutasamtök sveitarfélaga og sveitarfélög.
- Tímabil: 2022–2023.
- Tenging við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: Styður markmið 1, 10 og 11, einkum undirmarkmið 1.4, 10.2, 10.3, 10.4, 10.7, 11.1, 11.2, 11.3 og 11.a.:
- Tillaga að fjármögnun: 2 millj. kr. af byggðaáætlun