Hoppa yfir valmynd
1. desember 2020 Innviðaráðuneytið

Gjaldfrjáls landamæraskimun kynnt á fundi norrænna samgönguráðherra

Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, tók síðdegis í gær þátt í fundi norrænna samgönguráðherra um heimsfaraldurinn og áhrif hans á samgöngur á Norðurlöndum. 

Ráðherra sagði á fundinum að tvöföld skimun við íslensku landamærin með fimm daga sóttkví hafi reynst Íslendingum mikilvæg í því skyni að halda aftur af því að smit berist óhindrað inn í landið. Þá kynnti hann kollegum sínum frá því að skimun verði gjaldfrjáls á landamærunum, frá og með deginum í dag, 1. desember. Markmiðið væri að sem allra flestir veldu þá leið.

 Á fundinum fjallaði Sigurður Ingi um mikilvægi millilandaflugs og flugþjónustu fyrir íslenskt samfélag og efnahag. Millilandaflug hafi að meðaltali dregist saman um 90% frá því í apríl en samdrátturinn hafi minnstur verið í júlí og ágúst, um 80%.  Ráðherra sagði að markvissar og samræmdar aðgerðir væru nauðsynlegar til að koma flugsamgöngum og ferðaþjónustu til fyrra horfs. Ísland hefði aldrei lokað landamærum að fullu en tæki þátt í aðgerðum þjóða á Schengen-svæðinu um takmarkanir á flugi.

Það kom fram hjá norrænu ráðherrunum að ríkisstjórnir þeirra hefðu glímt við margvíslegan vanda í samgöngum við að halda uppi nauðsynlegri þjónustu við flutning vöru og farþega á milli landa. Tekist hafi að leysa úr ýmsum vanda en margt væri óleyst. Ríkin hefðu lagt fram verulega fjármuni í að halda uppi samgöngum og m.a. gerðu Norðmenn ráð fyrir að leggja tvo milljarða norskra króna til flugs á næsta ári. Þá voru norrænu ríkin að styrkja lámarksáætlunarflug til staða á landsbyggðinni.

Loks kom fram að vandi járnbrautanna vegna tekjufalls vegna Covid væri mjög mikill og sambærilegur vandi og við væri að etja í flugi. Sáu fyrir sér að nú væri tækifæri til þess að vinna að rafvæðingu í flugi og vinna væri komin af stað í sumum ríkjunum í þá veru. Ráðherrarnir voru sammála um að eiga samstarf um þetta málefni.

Ráðherrarnir voru sammála um að efla samvinnu þjóðanna enn frekar og samræma þær eins og kostur væri. Næsti fundur ráðherranna verður í janúar.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum