Hoppa yfir valmynd
I. Landnotkun

Lýsing

I.6 Umbótaáætlun um bætta þekkingu á bókhaldi landnotkunar. Aðgerðin felur í sér að bæta þekkingu á bókhaldi landnotkunar og tryggja að fullnægjandi grunnupplýsingar liggi fyrir.

Staða


Aðgerðin er í framkvæmd.

Umbótavinna við að bæta þekkingu og tryggja að fullnægjandi grunnupplýsingar liggi fyrir um mat á losun gróðurhúsalofttegunda og bindingu kolefnis vegna landnotkunar í losunarbókhaldi Íslands.

Framkvæmd

Þekking á losun og bindingu vegna landnotkunar, breyttrar landnotkunar og skógræktar (LULUCF) er skemmra á veg komin en þekking á losun frá öðrum uppsprettum, s.s. brennslu á jarðefnaeldsneyti. Þörf er á að koma þeirri umfangsmiklu vinnu sem nú stendur yfir við að bæta þessa þekkingu í öruggan farveg og tryggja að fullnægjandi grunnupplýsingar liggi fyrir svo unnt sé að leggja mat á stöðu og árangur aðgerða í þágu loftslags. Því var Landgræðslunni og Skógræktinni falið að vinna saman umbótaáætlun, í samráði við Umhverfisstofnun.

Umbótaáætlunin nær frá árinu 2020 til 2023 og inniheldur 20 aðgerðir sem eru byggðar á mati á stöðu Íslands gagnvart kröfum ESB og hvaða þætti þarf að bæta miðað við núverandi bókhald Íslands yfir losun gróðurhúsalofttegunda og bindingu kolefnis. Aðgerðunum í áætluninni er ætlað að styrkja bókhaldið og tryggja að Ísland uppfylli kröfur Loftslagssamnings Sameinuðu þjóðanna og reglur Evrópusambandsins þar að lútandi. Aðgerðirnar eru einnig lykill að því að þær upplýsingar sem liggja til grundvallar mati á árangri Íslands í átt að kolefnishlutleysi séu áreiðanlegar og að þær sé hægt að staðfesta.

Ábyrgð

Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Árangursmælikvarði

Staða aðgerða í samræmi við tímasetta verkáætlun í umbótaáætlun.

Áhrif á ríkissjóð

-

Áhrif á losun

-
Til baka
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum