Hoppa yfir valmynd
%C3%9Arskur%C3%B0arnefnd%20velfer%C3%B0arm%C3%A1la%20-%20Almannatryggingar

Nr. 233/2018 - Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 233/2018

Miðvikudaginn 5. september 2018

A

gegn

Tryggingastofnun ríkisins

 

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Rakel Þorsteinsdóttir lögfræðingur, Eggert Óskarsson lögfræðingur og Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur.

Með kæru, dags. 1. júlí 2018, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins, dags. 22. maí 2018, um endurreikning og uppgjör tekjutengdra bóta ársins 2017.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi fékk tekjutengdar bætur frá Tryggingastofnun ríkisins á árinu 2017. Með bréfi Tryggingastofnunar ríkisins, dags. 22. maí 2018, var kæranda tilkynnt um að endurreikningur á tekjutengdum bótagreiðslum á árinu 2017 hefði leitt í ljós ofgreiðslu að fjárhæð X kr., að teknu tilliti til endurgreiddrar staðgreiðslu skatta.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 4. júlí 2018. Með bréfi, dags. 5. júlí 2018, óskaði úrskurðarnefnd eftir greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins ásamt gögnum málsins. Með bréfi, dags. 3. ágúst 2018, barst greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 7. ágúst 2018. Athugasemdir bárust ekki.   

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi gerir kröfu um að ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um endurreikning og uppgjör tekjutengdra bóta kæranda vegna ársins 2017 verði endurskoðuð.

Í kæru segir að við upphaf hjúskapar þeirra hjóna hafi þau gert kaupmála þar sem eiginkona hans hafi átt […] fyrir. Hún hafi selt séreign sína í X 2017 og sé nú að borga til ríkisins fjármagnstekjuskatt að fjárhæð X kr.  [….]. Þess sé óskað að kærandi þurfi ekki að endurgreiða allar sínar örorkubætur vegna tekjuársins 2017 og að ákvörðun Tryggingastofnunar verði endurskoðuð þar sem þessi söluhagnaður sé tilkominn vegna séreignar eiginkonu hans.

III.  Sjónarmið Tryggingastofnunar ríkisins

Í greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins kemur fram að kærður sé endurreikningur tekjutengdra bóta 2017.

Í 16. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar, með síðari breytingum, sé kveðið á um tilhögun útreiknings tekjutengdra bóta. Í 2. mgr. ákvæðisins sé vísað til laga nr. 90/2003 um tekjuskatt varðandi hvað skuli teljast til tekna. Til tekna samkvæmt III. kafla laga um almannatryggingar teljist tekjur samkvæmt II. kafla laga nr. 90/2003 um tekjuskatt, að teknu tilliti til ákvæða 28. gr. sömu laga um hvað teljist ekki til tekna og frádráttarliða samkvæmt 1., 3., 4. og 5. tölul. A-liðar 1. mgr. 30. gr. og 31. gr. sömu laga eða undantekninga og takmarkana samkvæmt öðrum sérlögum.

Í a-lið 2. mgr. 16. gr. laga um almannatryggingar sé fjallað um fjármagnstekjur og þá segi: „Ef um hjón er að ræða skiptast tekjur skv. 1. málsl. til helminga milli hjóna við útreikning bótanna. Skiptir ekki máli hvort hjónanna er eigandi þeirra eigna sem mynda tekjurnar eða hvort um séreign eða hjúskapareign er að ræða.“

Tryggingastofnun greiði lífeyri á grundvelli áætlunar um tekjur viðkomandi árs, sbr. 5. mgr. 16. gr. laga um almannatryggingar. Bótaþegi beri ábyrgð á því að slík tekjuáætlun endurspegli árstekjur og beri að breyta áætluninni ef svo sé ekki, sbr. 1. mgr. 39. gr. sömu laga og 3. gr. reglugerðar nr. 598/2009 um útreikning, endurreikning og uppgjör tekjutengdra bóta og vistunarframlags, en þar komi fram að bótaþega sé skylt að veita Tryggingastofnun allar nauðsynlegar upplýsingar til að hægt sé að taka ákvörðun um bótarétt, fjárhæð og greiðslu bóta og endurskoðun þeirra. Að sama skapi sé bótaþega skylt að tilkynna Tryggingastofnun um breytingar á tekjum eða öðrum aðstæðum sem geti haft áhrif á greiðslur.

Í 7. mgr. 16. gr. laga um almannatryggingar komi fram að þegar endanlegar upplýsingar um tekjur bótagreiðsluársins liggi fyrir við álagningu skattyfirvalda á opinberum gjöldum, þá skuli Tryggingastofnun endurreikna bótafjárhæðir á grundvelli tekna. Einnig sé fjallað um endurreikning í reglugerð nr. 598/2009 um útreikning, endurreikning og uppgjör tekjutengdra bóta og vistunarframlags. Tryggingastofnun hafi ekki heimild til að líta fram hjá tekjuupplýsingum sem fram koma í skattframtölum.

Komi í ljós við endurreikning bóta að bætur hafi verið ofgreiddar fari um það samkvæmt 55. gr. laganna. Þar komi fram sú skylda Tryggingastofnunar til að innheimta ofgreiddar bætur. Sú meginregla sé ítrekuð í 9. gr. reglugerðar nr. 598/2009.

Á árinu 2017 hafi kærandi verið með örorkulífeyri og tengdar greiðslur allt árið. Uppgjör tekjutengdra bóta ársins 2017 hafi leitt til X kr. ofgreiðslu að teknu tilliti til greiddrar staðgreiðslu. Ástæða þess að endurkrafa hafi myndast sé sú að við samkeyrslu við tekjuupplýsingar af skattframtali 2018 vegna tekjuársins 2017, hafi komið í ljós að tekjur kæranda hafi reynst hærri en tekjuáætlun hafi gert ráð fyrir. Endurreikningur hafi byggst á upplýsingum úr skattframtölum bótaþega.

Kærandi hafi fengið senda tillögu að tekjuáætlun 26. janúar 2017. Samkvæmt tillögunni hafi verið gert ráð fyrir að árið 2017 væri kærandi með X kr. í lífeyrissjóðstekjur og í sameiginlegar tekjur þeirra hjóna X kr. í vexti og verðbætur. Engar athugasemdir hafi borist frá kæranda vegna þessarar tekjuáætlunar og hafi honum verið greitt samkvæmt henni allt árið 2017.

Við bótauppgjör ársins 2017 hafi komið í ljós að kærandi hafi […] og sameiginlegar tekjur þeirra hjóna hafi verið X kr. í vexti og verðbætur og X kr. í söluhagnað. Niðurstaða endurreiknings tekjutengdra bóta ársins 2017 hafi verið sú að kærandi hafi fengið ofgreitt í öllum bótaflokkum. Um nánari útlistun var vísað til meðfylgjandi gagna.

Tryggingastofnun sé skylt lögum samkvæmt að framkvæma endurreikning ár hvert þegar endanlegar upplýsingar um tekjur bótagreiðsluársins liggi fyrir við álagningu skattyfirvalda á opinberum gjöldum. Tryggingastofnun sé ekki heimilt að horfa fram hjá tekjum sem birtist á framtali bótaþega eins og ítrekað hafi verið staðfest af úrskurðarnefnd og einnig verið staðfest fyrir dómstólum.

Niðurstaða endurreiknings tekjutengdra bóta ársins 2017 hafi verið sú að kærandi hafði fengið greitt á árinu X kr., en hafi átt að fá greitt X kr. Þessi mismunur hafi leitt til ofgreiðslu að fjárhæð X kr. að teknu tilliti til endurgreiddrar staðgreiðslu.

Eins og áður hafi komið fram þá sé í a-lið 2. mgr. 16. gr. afdráttarlaust kveðið á um það, ef um hjón sé að ræða, þá skipti ekki máli hvort hjónanna sé eigandi þeirra eigna sem myndi tekjurnar eða hvort um séreign eða hjúskapareign sé að ræða.

Meðferð Tryggingastofnunar á fjármagnstekjum hjóna og sambúðaraðila hafi ítrekað komið til meðferðar hjá úrskurðarnefnd og hafi ítrekað verið staðfest að sé kærandi í hjónabandi þá skiptist fjármagnstekjur til helminga á milli hjónanna. Í ljósi málsatvika þessa máls sé rétt að benda þar sérstaklega á mál nr. 286/2013.

Kærð ákvörðun sé í samræmi við þær lög og reglur sem gildi um uppgjör og endurreikning tekjutengdra bóta. Með vísun til framanritaðs telji Tryggingastofnun ekki forsendur til að breyta fyrri ákvörðun sinni.

IV.  Niðurstaða

Mál þetta varðar ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um endurreikning og uppgjör á tekjutengdum bótum kæranda vegna ársins 2017.

Kærandi fékk greiddar tekjutengdar bætur frá Tryggingastofnun á árinu 2017. Samkvæmt 39. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar, með síðari breytingum, er umsækjanda eða greiðsluþega skylt að veita stofnuninni allar nauðsynlegar upplýsingar til að hægt sé að taka ákvörðun um bótarétt, fjárhæð og greiðslu bóta og annarra greiðslna samkvæmt lögunum og endurskoðun þeirra. Enn fremur er skylt að tilkynna stofnuninni um breytingar á tekjum eða öðrum aðstæðum sem geta haft áhrif á bætur eða greiðslur. Af framangreindu verður ráðið að sú skylda hvíli á greiðsluþegum að upplýsa Tryggingastofnun um tekjur á bótagreiðsluári sem kunna að hafa áhrif á bótarétt.

Í 16. gr. laga um almannatryggingar er kveðið á um tekjutengingu lífeyristrygginga og hvernig Tryggingastofnun ríkisins skuli standa að útreikningi bóta. Samkvæmt 2. málsl. a-liðar 2. mgr. 16. gr. laga um almannatryggingar skulu fjármagnstekjur skiptast til helminga á milli hjóna við útreikning bóta og þá segir í 3. málsl. sömu greinar að ekki skipti máli hvort hjónanna sé eigandi þeirra eigna sem myndi tekjurnar eða hvort um séreign eða hjúskapareign sé að ræða. Á grundvelli 7. mgr. 16. gr. ber Tryggingastofnun ríkisins að endurreikna bótafjárhæðir þegar endanlegar upplýsingar um tekjur bótagreiðsluárs liggja fyrir við álagningu skattyfirvalda á opinberum gjöldum. Ef í ljós kemur við endurreikning að bætur hafi verið ofgreiddar ber Tryggingastofnun að innheimta þær samkvæmt 55. gr. laga um almannatryggingar. Sú meginregla er ítrekuð í 9. gr. reglugerðar nr. 598/2009 um útreikning, endurreikning og uppgjör tekjutengdra bóta og vistunarframlags.

Samkvæmt gögnum málsins gerði upphafleg tekjuáætlun kæranda fyrir árið 2017 ráð fyrir X kr. í lífeyrissjóðstekjur og X kr. í sameiginlegar tekjur þeirra hjóna vegna vaxta og verðbóta. Samkvæmt upplýsingum úr skattframtali kæranda vegna tekjuársins 2017 reyndust […] vera sameiginlegar tekjur hans og eiginkonu hans, þ.e. X kr. vegna vaxta og verðbóta og X kr. í söluhagnað. Samtals reyndust því fjármagnstekjur þeirra hjóna vera X kr. Endurreikningur Tryggingastofnunar á tekjutengdum bótagreiðslum vegna ársins 2017 leiddi í ljós að kærandi hafi ekki átt á rétt á greiðslum frá Tryggingastofnun að undanskildum X kr. í orlofs- og desemberuppbætur. Samtals reyndist ofgreiðsla vera X kr. að teknu tilliti til endurgreiddrar staðgreiðslu í bótaflokkunum örorkulífeyri, tekjutryggingu, aldurstengdri örorkuuppbót, orlofs- og desemberuppbótum og sérstakri framfærslu. Kærandi hefur verið krafinn um endurgreiðslu þeirrar fjárhæðar.

Að framangreindu virtu liggur fyrir að fjármagnstekjur hafa áhrif á bótarétt samkvæmt lögum um almannatryggingar. Þegar um hjón er að ræða skiptast fjármagnstekjurnar til helminga á milli hjóna við útreikning bótanna, sbr. a-lið 2. mgr. 16. gr. laga um almannatryggingar. Ástæðu þess að endurkrafa myndaðist á hendur kæranda er að rekja til þess að umræddur tekjustofn var vanáætlaður í tekjuáætlun. Tryggingastofnun greiðir tekjutengdar bætur á grundvelli upplýsinga úr tekjuáætlun viðkomandi greiðsluþega. Þá ber stofnuninni lögum samkvæmt að endurreikna bætur með hliðsjón af upplýsingum skattyfirvalda og innheimta ofgreiddar bætur. Úrskurðarnefnd velferðarmála hefur yfirfarið útreikninga Tryggingastofnunar og fellst á að kærandi hafi fengið ofgreiddar bætur að fjárhæð X kr. á árinu 2017. Ljóst er að tekjur kæranda fóru yfir efra tekjumark örorkulífeyris ársins 2017 sem var X kr., sbr. d-lið 1. gr. reglugerðar nr. 1249/2016 og átti hann því ekki rétt á tekjutengdum greiðslum á árinu.

Með hliðsjón af öllu framangreindu er það niðurstaða úrskurðarnefndar velferðarmála að staðfesta beri endurreikning og uppgjör Tryggingastofnunar ríkisins á tekjutengdum bótum kæranda vegna ársins 2017.


Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um endurreikning og uppgjör á tekjutengdum bótum A, á árinu 2017, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Rakel Þorsteinsdóttir

 

 

 

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum