Hoppa yfir valmynd

Úrskurður nr. 296/2017

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 23. maí 2017 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 296/2017

í stjórnsýslumáli nr. KNU17040018

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 10. apríl 2017 kærði [...], fd. [...], ríkisborgari [...] (hér eftir nefndur kærandi) ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 19. mars 2017, um að taka ekki til efnismeðferðar umsókn hans um alþjóðlega vernd á Íslandi og endursenda hann til Tékklands.

Kærandi krefst þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að Útlendingastofnun verði gert að taka umsókn hans um alþjóðlega vernd til efnislegrar meðferðar með vísan til 3. mgr. 36. gr., sbr. 42. gr. laga um útlendinga og 2. mgr. 36. gr. sömu laga.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II. Málsmeðferð

Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi þann 13. nóvember 2016. Við leit að fingraförum kæranda í Eurodac gagnagrunninum, þann 15. nóvember 2016, kom í ljós að fingraför hans höfðu verið skráð í grunninn af yfirvöldum í Svíþjóð. Þann 7. febrúar 2017 var beiðni um viðtöku kæranda og umsóknar hans um alþjóðlega vernd beint til yfirvalda í Tékklandi, sbr. 1. eða 3. mgr. 12. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 604/2013 (hér eftir nefnd Dyflinnarreglugerðin), þar sem kærandi hafði fengið útgefna vegabréfsáritun af tékkneskum yfirvöldum. Þann 10. mars 2017 barst svar frá tékkneskum yfirvöldum þess efnis að þau samþykktu viðtöku kæranda á grundvelli 4. mgr. 12. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Útlendingastofnun ákvað þann 19. mars 2017 að taka ekki umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar og að hann skyldi endursendur til Tékklands. Kærandi kærði ákvörðunina þann 10. apríl 2017 til kærunefndar útlendingamála. Greinargerð kæranda barst kærunefnd 21. apríl 2017.

III. Ákvörðun Útlendingastofnunar

Niðurstaða ákvörðunar Útlendingastofnunar var sú að umsókn kæranda um alþjóðlega vernd yrði ekki tekin til efnismeðferðar hér á landi og hann skyldi endursendur til Tékklands. Lagt var til grundvallar að Tékkland virði ákvæði mannréttindasáttmála Evrópu og flóttamannasamnings Sameinuðu þjóðanna, þar með talið bann við endursendingu til ríkis þar sem líf og frelsi kæranda kynni að vera í hættu (non-refoulement). Því fæli flutningur kæranda til Tékklands ekki í sér brot gegn 42. gr. laga um útlendinga. Þá var talið að kærandi hefði ekki slík tengsl við Ísland að ástæða væri til að beita ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Þá var það mat stofnunarinnar að sérstakar aðstæður í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga væru ekki til staðar í málinu. Kærandi var ekki talinn í sérstaklega viðkvæmri stöðu sem áhrif hefði á mál hans auk þess sem ekki yrði annað séð en að hann ætti að geta fengið þá heilbrigðisþjónustu í Tékklandi sem hann kynni að þurfa vegna veikinda sinna. Aðstæður kæranda féllu ekki undir 16. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar og væru ekki slíkar að ástæða væri til að beita 1. mgr. 17. gr. reglugerðarinnar í málinu. Kærandi skyldi yfirgefa Ísland og bæri að senda hann til Tékklands, sbr. c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur enn fremur fram að tékknesk stjórnvöld hafi enga ástæðu til að hneppa kæranda í varðhald og engin sýnileg ástæða sé fyrir hann að óttast slíkt. Í Tékklandi sé varðhaldi einkum beitt í málum þeirra umsækjenda um alþjóðlega vernd sem hafi komið ólöglega til landsins eða hafi haft í fórum sínum fölsuð skilríki. Framangreint eigi ekki við um kæranda enda beri tékknesk yfirvöld ábyrgð í máli hans á grundvelli vegabréfsáritunar sem þau hafi gefið út honum til handa og því verði um að ræða löglega dvöl kæranda í Tékklandi. Fyrir liggi staðfesting tékkneskra yfirvalda frá 16. desember 2016, eftir fyrirspurn Útlendingastofnunar frá 15. desember 2016, um að varðhaldi hafi ekki verið beitt vegna mála í Tékklandi síðan núgildandi Dyflinnarreglugerð tók gildi. Þá sé það mat Útlendingastofnunar að ekkert bendi til annars en að kærandi geti leitað til lögreglu eða annarra yfirvalda í Tékklandi óttist hann glæpasamtök þar í landi.

IV. Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda kemur fram að kærandi hafi greint frá því í viðtali hjá Útlendingastofnun að hann vilji ekki fara til Tékklands en þar sé hann í lífshættu. Vegna vandamála sem eigi rætur að rekja til heimaríkis kæranda geti hann ekki snúið aftur til Tékklands. Menn í [...] muni frétta af komu hans til Tékklands og standi kæranda lífshættuleg ógn af þeim. Þá sé kærandi [...].

Krafa kæranda um að verða ekki sendur aftur til Tékklands byggir aðallega á því að þangað megi ekki senda hann vegna non-refoulement reglu þjóðaréttar sem komi fram í 42. gr. laga um útlendinga. Ákvæðið mæli fyrir um bann við því að vísa fólki brott eða endursenda þangað sem líf þess eða frelsi kunni að vera í hættu. Reglan feli bæði í sér bann við beinni endursendingu einstaklings til slíks ríkis og jafnframt endursendingu til þriðja ríkis ef ekki sé tryggt að það muni ekki senda hann áfram í slíka hættu.

Þær aðstæður sem kærandi muni mæta við endursendingu til Tékklands séu svo slæmar að þær jafnist á við ómannúðlega eða vanvirðandi meðferð í skilningi 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu og 42. gr. laga um útlendinga. Svo virðist vera sem mál kæranda megi fella undir c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga en að mati kæranda njóti hann verndar 42. gr. laganna sem mæli fyrir um áðurnefnda non-refoulement reglu. Með endursendingu kæranda til Tékklands sé hætt við því að Ísland brjóti gegn framangreindi grundvallarreglu þjóðaréttar um non-refoulement og samsvarandi ákvæðum íslenskra laga og mannréttindasamninga sem Ísland eigi aðild að, þ.e. 3. mgr. 36. gr. og 42. gr. laga um útlendinga, 68. gr. stjórnarskrárinnar og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu.

Í greinargerð kæranda er að finna umfjöllun um þá gagnrýni sem tékknesk stjórnvöld hafi sætt fyrir að notast við varðhald fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd í miklum mæli og er vísað til ýmissa heimilda hvað það varðar, þ.á m. ummæla umboðsmanns borgara í Tékklandi og mannréttindafulltrúa Sameinuðu þjóðanna. Í þeim komi fram vaxandi áhyggjur af beitingu tékkneskra stjórnvalda á varðhaldi fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd. Aðstæður þeirra í varðhaldi séu afar slæmar, jafnvel verri en í fangelsi og jafngildi bráðu og alvarlegu mannúðarvandamáli. Umsækjendur séu færðir í varðhald í járnum og hafi ekkert ferðafrelsi meðan á varðhaldinu standi. Farsímar séu bannaðir, hreinlæti í svefnklefum sé ábótavant, matur sem þar sé á borð borinn sé næringarlítill og ýmsir sjúkdómar, eins og niðurgangur, uppköst og salmonellusýkingar, séu algengir meðal þeirra sem séu í varðhaldi. Skortur á túlkaþjónustu í varðhaldi valdi því að erfitt sé fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd að sækja sér heilbrigðisþjónustu og þá hafi stjórnvöld ákveðið að stöðva fjárveitingar til lögfræðiþjónustu fyrir umsækjendur í varðhaldi. Því sé endurgjaldslaus lögfræðiþjónusta ekki lengur í boði nema frá sjálfboðaliðum sem oft eigi erfitt með að fá greiðan aðgang að umsækjendum í varðhaldi. Enn fremur hafi lengd varðhalds verið sérstaklega gagnrýnd en umsækjendum sé haldið þar í allt að 90 daga. Fyrir dvölina í varðhaldinu þurfi þeir svo að borga sjálfir, u.þ.b. 266 evrur fyrir hvern mánuð.

Þá hafi hatur á útlendingum í Tékklandi vaxið með auknu streymi flóttafólks til landsins. Hafi forseti Tékklands meðal annars lýst þeirri skoðun sinni opinberlega að tékknesk stjórnvöld eigi alfarið að hætta að veita flóttafólki vernd.

Verði ekki fallist á það að endursending kæranda til Tékklands brjóti í bága við framangreind ákvæði alþjóðasamninga og íslenskra laga telur kærandi að taka skuli mál hans til efnislegrar meðferðar með vísan til sérstakra ástæðna, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Vísar kærandi til athugasemda með frumvarpi því er varð að lögum um útlendinga og athugasemda með frumvarpi því er varð að lögum nr. 115/2010 sem breyttu þágildandi lögum um útlendinga. Með hinum nýju lögum um útlendinga sé leiddur í ljós vilji löggjafans til að víkka út gildissvið ákvæðisins miðað við beitingu stjórnvalda á sambærilegu ákvæði í eldri lögum um útlendinga.

V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Fyrir liggur í máli þessu að tékknesk stjórnvöld hafa samþykkt viðtöku á kæranda á grundvelli 4. mgr. 12. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar, en Ísland skuldbatt sig til að fylgja reglugerðinni með samningi Íslands, Noregs og Evrópusambandsins frá 19. janúar 2001, um viðmiðanir og fyrirkomulag við að ákvarða hvaða ríki skuli fara með beiðni um alþjóðlega vernd sem lögð er fram í aðildarríki eða á Íslandi eða í Noregi. Í III. kafla Dyflinnarreglugerðarinnar koma fram viðmið, í ákveðinni forgangsröð, um hvaða ríki skuli bera ábyrgð á umsókn um alþjóðlega vernd. Samþykki Tékklands er byggt á því að kærandi hafi fengið útgefna vegabréfsáritun af tékkneskum yfirvöldum.

Í c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að umsókn um alþjóðlega vernd skv. 37. gr. skuli tekin til efnismeðferðar nema heimilt sé að krefja annað ríki sem tekur þátt í samstarfi á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar um að taka við umsækjanda. Í 2. mgr. 36. gr. kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skal taka hana til efnismeðferðar.

Þá er í 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga tekið fram að ef beiting 1. mgr. myndi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því landi sem senda á umsækjanda til, skuli taka umsókn til efnismeðferðar. Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er kveðið á um að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr.

Við mat á því hvort senda eigi umsækjanda um alþjóðlega vernd til ríkis, sem hefur samþykkt að taka við honum á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar, ber stjórnvöldum jafnframt að leggja sjálfstætt mat á hvort aðstæður þar brjóti gegn 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þá ber stjórnvöldum að leggja mat á hvort málsmeðferð vegna umsókna um alþjóðlega vernd tryggi umsækjendum raunhæfa leið til að ná fram rétti sínum, sbr. 13. gr. sáttmálans. Í samræmi við framkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu skal mat á meðferð umsókna um alþjóðlega vernd og móttöku og aðbúnaði umsækjenda taka mið af einstaklingsbundnum aðstæðum í hverju máli.

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður og málsmeðferð í Tékklandi, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:

· 2016 Country Reports on Human Rights Practices – Czech Republic (United States Department of State, 3. mars 2017),

· Amnesty International Report 2016/17 – Czech Republic (Amnesty International, 22. febrúar 2017),

· Freedom in the World 2016 – Czech Republic (Freedom House, 12. ágúst 2016)

·,

· Annual Report on the Situation of Asylum in the European Union 2015 (European Union: European Asylum Support Office, júlí 2016),

· Immigration Detention in the Czech Republic (Global Detention Project, september 2016),

· Czech Republic: Health System Review. Health Systems in Transition. (European Observatory on Health Systems and Policies, 2015) og

· EDAL Country Overview – Czech Republic (European Database of Asylum Law, 21. febrúar 2014).

Í framangreindum gögnum kemur fram að umsækjendur um alþjóðlega vernd í Tékklandi eiga rétt á viðtali áður en ákvörðun er tekin í máli þeirra og fá aðstoð túlks í gegnum alla málsmeðferðina ef þess þarf. Viðtölin eru tekin af starfsmönnum innanríkisráðuneytis Tékklands sem jafnframt úrskurða í málum. Endurgjaldslaus lögfræðiþjónusta er ekki til staðar en umsækjendur geta leitað til hjálparsamtaka varðandi slíka aðstoð. Fái umsækjendur synjun á umsókn sinni geta þeir áfrýjað til viðkomandi héraðsdómstóls. Staðfesti héraðsdómstóll neikvæða niðurstöðu innanríkisráðuneytisins geta umsækjendur áfrýjað máli sínu til æðri stjórnsýsludómstóls. Fyrir dómstólum eiga umsækjendur rétt á lögmanni eða sérfræðingi á vegum hjálparsamtaka án endurgjalds ef þeir hafa ekki bolmagn til að greiða fyrir slíka þjónustu sjálfir. Þá njóta umsækjendur um alþjóðlega vernd heilbrigðistryggingar samkvæmt tékkneskum lögum og hafa því aðgang að viðhlítandi heilbrigðisþjónustu.

Af framangreindum gögnum má jafnframt ráða að þeir umsækjendur um alþjóðlega vernd sem koma á löglegan hátt til Tékklands eru færðir í móttökumiðstöðvar. Komi umsækjendur á ólöglegan hátt til landsins geta þeir á hinn bóginn verið færðir í varðhald eða sérstaka móttökumiðstöð á alþjóðlegum flugvelli. Ljóst er af þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér að tékknesk stjórnvöld hafa verið gagnrýnd fyrir notkun sína á varðhaldi. Varðar sú gagnrýni einkum lengd varðhaldsins, skort á túlkaþjónustu og upplýsingagjöf og að umsækjendur séu látnir standa undir kostnaði við varðhaldið. Á hinn bóginn kemur einnig fram í framangreindum gögnum að umboðsmaður borgara í Tékklandi hafi greint frá því í nóvember 2015 að aðstæður umsækjenda um alþjóðlega vernd í varðhaldi hafi batnað á undanförnum misserum. Í nýútgefinni skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins kemur að sama skapi fram að lögfræðiþjónusta er aðgengileg þeim sem eru í varðhaldi í Tékklandi.

Kærunefnd hefur sérstaklega skoðað gögn um notkun tékkneskra stjórnvalda á varðhaldi fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd. Meðal gagna í fyrri málum, sem kærunefnd hefur haft til meðferðar og fjalla um endursendingu umsækjenda um alþjóðlega vernd til Tékklands, er tölvupóstur frá innanríkisráðuneyti Tékklands, dags. 16. desember 2016, vegna fyrirspurnar Útlendingastofnunar, dags. 15. desember 2016. Fyrirspurn Útlendingastofnunar laut að því hvort þeir umsækjendur um alþjóðlega vernd, sem sendir eru til Tékklands á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar, verði settir í varðhald. Í svari innanríkisráðuneytis Tékklands kemur fram að í þeim málum þar sem tékknesk stjórnvöld taka ábyrgð á umsókn um alþjóðlega vernd (e. Take Charge Cases), líkt og þau hafa gert í máli kæranda, er umsækjendum almennt komið fyrir í móttökumiðstöðvum en ekki varðhaldi. Þá kemur einnig fram í ofangreindu svari að innanríkisráðuneyti Tékklands sé ekki kunnugt um að varðhaldi hafi verið beitt í slíkum málum frá því núgildandi Dyflinnarreglugerð tók gildi. Telur kærunefnd því með hliðsjón af framangreindu að ekki sé tilefni til þess að ætla að brotið verði gegn 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga með endursendingu kæranda þangað.

Athugun kærunefndar á aðstæðum umsækjenda um alþjóðlega vernd í Tékklandi hefur ekki leitt í ljós gögn sem gefa tilefni til að líta svo á að aðstæður eða móttökuskilyrði þeirra þar í landi séu þess eðlis að hætta sé á að endursending umsækjenda um alþjóðlega vernd til Tékklands brjóti í bága við 1. eða 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga eða 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þá benda öll gögn til þess að umsækjendum um alþjóðlega vernd séu tryggð úrræði til að leita réttar síns í Tékklandi bæði fyrir landsrétti og fyrir Mannréttindadómstól Evrópu, sbr. 13. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Enn fremur er haft til hliðsjónar að Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur ekki lagst gegn endursendingu umsækjenda um alþjóðlega vernd til Tékklands á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar.

Kærandi hefur greint frá því að hann óttist ákveðna aðila í heimaríki sínu sem viti að hann hafi farið til Tékklands. Kærandi hefur á hinn bóginn ekki greint frá því hverjir þessir aðilar séu eða hvers konar vandamál hann glími við gagnvart þeim. Vandamálin séu þó alvarleg og jafnvel lífshættuleg. Þau gögn sem kærunefnd hefur kynnt sér benda til þess að kærandi geti leitað aðstoðar yfirvalda í Tékklandi óttist hann tilgreinda aðila eða að á honum verði brotið.

Skilgreiningu á einstaklingi í sérstaklega viðkvæmri stöðu er að finna í 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga en þar kemur fram að átt sé við einstaklinga sem vegna tiltekinna persónulegra eiginleika eða aðstæðna hafa sérþarfir sem taka þarf tillit til við meðferð máls eða geta ekki að fullu eða með engu móti nýtt sér rétt eða uppfyllt skyldur sem kveðið er á um í lögunum án aðstoðar eða sérstaks tillits, t.d. [...]. Í viðtölum hjá Útlendingastofnun hefur kærandi greint frá því að hann sé [...]. Að mati kærunefndar er kærandi ekki í sérstaklega viðkvæmri stöðu í skilningi 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga þar sem þau [...] veikindi sem hann hefur lýst ná ekki þeim alvarleikaþröskuldi sem framangreint ákvæði gerir kröfu um. Telur kærunefnd ekki forsendur til annars, í ljósi þeirra upplýsinga sem liggja fyrir um aðstæður í Tékklandi, en að leggja til grundvallar við úrlausn málsins að kærandi hafi aðgang að viðhlítandi heilbrigðisþjónustu þar í landi.

Að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda, þ.á m. heilsufars hans, er það mat kærunefndar að ekki séu fyrir hendi sérstakar ástæður sem mæli með því að mál hans verði tekið til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Kærandi kvaðst í viðtali hjá Útlendingastofnun þann 16. mars 2017 ekki hafa sérstök tengsl við Ísland. Þar að auki er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að kærandi hafi slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Þá telur kærunefnd ljóst að síðari málsliður 2. mgr. 36. gr. eigi ekki við í máli kæranda þar sem ekki eru liðnir 12 mánuðir frá því að kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi, en hann lagði fram umsókn sína þann 13. nóvember 2016.

Í máli þessu hafa tékknesk stjórnvöld fallist á að taka við kæranda og umsókn hans um alþjóðlega vernd á grundvelli ákvæða Dyflinnarreglugerðarinnar. Í ljósi alls ofangreinds er það niðurstaða kærunefndar að rétt sé að synja því að taka til efnismeðferðar umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi og senda kæranda til Tékklands með vísan til c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Ákvörðun Útlendingastofnunar er því staðfest.

Athygli kæranda er vakin á því að skv. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

Úrskurðarorð

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

Anna Tryggvadóttir

Erna Kristín Blöndal Þorbjörg Inga Jónsdóttir


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum