Hoppa yfir valmynd

Mál nr. 457/2016

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 457/2016

Fimmtudaginn 9. febrúar 2017

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Kári Gunndórsson lögfræðingur, Arnar Kristinsson lögfræðingur og Agnar Bragi Bragason lögfræðingur.

Með kæru, dags. 21. nóvember 2016, A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 11. nóvember 2016, um að fella niður bótarétt hennar í tvo mánuði.

I. Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um greiðslur atvinnuleysisbóta hjá Vinnumálastofnun þann 4. september 2016 og var umsóknin samþykkt þann 3. október 2016. Með bréfi, dags. 17. október 2016, tilkynnti Vinnumálastofnun kæranda að stofnuninni hefðu borist upplýsingar um að hún hefði verið stödd erlendis í september 2016 samhliða því að þiggja atvinnuleysisbætur og án þess að hafa tilkynnt um það til stofnunarinnar. Kæranda var veittur sjö daga frestur til að skila inn skýringum og farseðlum. Skýringar og afrit af flugfarseðlum bárust 17. og 18. október 2016 þar sem fram kom að kærandi hafi dvalið erlendis á tímabilinu 2. til 15. september 2016.

Með bréfi, dags. 24. október 2016, var kæranda tilkynnt að bótaréttur hennar yrði felldur niður frá og með 17. október 2016 í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar sökum þess að hún hefði ekki tilkynnt Vinnumálastofnun fyrir fram um dvöl sína erlendis. Kærandi var einnig krafin um endurgreiðslu ofgreiddra atvinnuleysisbóta samkvæmt 2. mgr. 39. gr. laga nr. 54/2006 að fjárhæð 56.707 kr., að meðtöldu 15% álagi, fyrir tímabilið 5. september 2016 til 15. september 2016. Kærandi óskaði eftir endurupptöku og rökstuðningi á ákvörðun Vinnumálastofnunar þann 26. október 2016. Með bréfi Vinumálastofnunar, dags. 2. nóvember 2016, var kæranda tilkynnt að fyrri ákvörðun væri staðfest og með bréfi stofnunarinnar, dags. 11. nóvember 2016, var umbeðinn rökstuðningur veittur.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála þann 21. nóvember 2016. Með bréfi, dags. 23. nóvember 2016, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst með bréfi, dags. 6. desember 2016. Með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 7. desember 2016, var greinargerð Vinnumálastofnunar send kæranda til kynningar. Athugasemdir bárust ekki.

II. Sjónarmið kæranda

Kærandi óskar eftir að ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður bótarétt hennar í tvo mánuði verði felld úr gildi og tekur fram að hún fallist á að endurgreiða þá fjárhæð sem hún hafi fengið greidda fyrir þann tíma sem hún hafi verið stödd erlendis. Kærandi greinir frá því að hún hafi ferðast á opnum miða og því hafi hún getað komið til landsins hvenær sem er ef henni yrði boðið starf. Í umsókn um atvinnuleysisbætur hafi kærandi því tilgreint að hún gæti hafið störf strax, þrátt fyrir að vera stödd erlendis.

Kærandi bendir á að hvergi komi fram að umsækjanda beri að tilkynna ferðir erlendis í umsóknarferlinu sem sé yfirleitt um fjórar til sex vikur. Einungis sé tilgreint að umsækjanda beri að tilkynna um ferðir erlendis þegar viðkomandi þiggi bætur. Kærandi hafi ekki vitað að bæturnar yrðu greiddar afturvirkt, enda hafi hún ekki áður þegið bætur. Að mati kæranda hafi Vinnumálastofnun ekki gætt meðalhófs við ákvörðun um niðurfellingu bótaréttar þar sem um fyrsta brot sé að ræða og ekki byggt á ásetningi.

III. Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að tilgangur laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar sé að tryggja þeim sem tryggðir séu og misst hafi fyrra starf sitt, tímabundna fjárhagsaðstoð í þrengingum sínum. Því sé gert ráð fyrir að hinir tryggðu séu í virkri atvinnuleit þann tíma en lögin veiti þeim fjárhagslegt úrræði í tímabundnu atvinnuleysi. Í 13. gr. laganna séu talin upp almenn skilyrði fyrir atvinnuleysistryggingum launamanna. Í c-lið ákvæðisins komi meðal annars fram að það sé skilyrði fyrir greiðslum að atvinnuleitandi sé búsettur og staddur hér á landi til að teljast tryggður samkvæmt lögunum. Í 2. mgr. 14. gr. laganna sé einnig mælt fyrir um upplýsingaskyldu umsækjanda en þar segi að atvinnuleitanda beri án ástæðulauss dráttar að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunni að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum.

Í 1. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006 sé kveðið á um viðurlög við brotum á upplýsingaskyldu hins tryggða. Óumdeilt sé að kærandi hafi verið stödd erlendis á sama tíma og hún hafi verið skráð atvinnulaus hjá Vinnumálastofnun. Stofnuninni hafi ekki borist tilkynning fyrir fram um utanlandsferð kæranda, líkt og skylt sé samkvæmt 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. laganna. Ljóst sé að réttindi og skyldur atvinnuleitanda samkvæmt lögum nr. 54/2006 stofnist frá og með umsóknardegi, enda séu atvinnuleysisbætur greiddar frá og með umsóknardegi, sbr. 29. gr. laganna. Á því tímabili sem atvinnuleitandi fái greiddar atvinnuleysisbætur beri honum að tilkynna Vinnumálastofnun um allar breytingar á högum sínum, sbr. 3. mgr. 9. gr. laganna, þar á meðal ferðir sínar utanlands. Atvinnuleitendum beri því að uppfylla allar sínar skyldur við Vinnumálastofnun á þeim tíma sem beðið sé úrskurðar um bótarétt.

Vinnumálastofnun bendir á að þegar atvinnuleitandi sæki um atvinnuleysisbætur á heimasíðu stofnunarinnar sé vakin athygli á því að tilkynna þurfi um ferðir erlendis. Umsækjendur um atvinnuleysisbætur samþykki að þeir hafi lesið og skilið þær upplýsingar sem fram komi í umsókn. Einnig hafi kæranda verið sendur tölvupóstur þann 9. september 2016 þar sem henni hafi verið bent á að ef farið væri erlendis þyrfti að tilkynna það fyrir fram og skila afriti af flugfarseðlum til stofnunarinnar því til staðfestingar. Þá séu víðtækar og ítarlegar upplýsingar um réttindi og skyldur atvinnuleitanda á heimasíðu Vinnumálastofnunar. Þar komi skýrt fram að atvinnuleitanda beri að veita nákvæmar upplýsingar um hagi sína. Í umsókn kæranda komi fram að hún uppfylli þau skilyrði sem lög nr. 54/2006 geri til atvinnuleitenda og hún hafi staðfest það með því að samþykkja skilmála umsóknarinnar, þrátt fyrir að á þeim tímapunkti hafi hún ekki verið stödd hér á landi og því ekki uppfyllt ákvæði c-liðar 13. gr. laganna.

Vinnumálastofnun tekur fram að kærandi hafi látið hjá líða að veita nauðsynlegar upplýsingar um atvik er höfðu bein áhrif á rétt hennar til greiðslu atvinnuleysisbóta og því skuli hún sæta viðurlögum samkvæmt 59. gr. laga nr. 54/2006 í formi tveggja mánaða biðtíma eftir greiðslum atvinnuleysisbóta. Viðurlögin hafi tekið gildi frá og með 17. október 2016. Þá beri kæranda að endurgreiða stofnuninni ofgreiddar atvinnuleysisbætur í samræmi við 2. mgr. 39. gr. laganna.

IV. Niðurstaða

Ágreiningur máls þessa lýtur að ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður bótarétt kæranda í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Ákvæði 1. mgr. 59. gr. laganna er svohljóðandi:

„Sá sem lætur hjá líða að veita nauðsynlegar upplýsingar skv. 14. gr. eða um annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. Hið sama á við þegar hinn tryggði hefur … látið hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á högum hans á því tímabili sem hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum, sbr. 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. Skal honum jafnframt verða gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur skv. 39. gr.“

Ákvæðið ber meðal annars að túlka með hliðsjón af ákvæði c-liðar 1. mgr. 13. gr. laga nr. 54/2006 þar sem fram kemur að launamaður sé tryggður samkvæmt lögunum sé hann búsettur og staddur hér á landi. Í máli þessu liggur fyrir að kærandi var stödd erlendis þegar hún sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun þann 4. september 2016 og greindi ekki frá því. Af hálfu kæranda hefur komið fram að hún hafi ekki vitað að það þyrfti að tilkynna um ferðir erlendis í umsóknarferlinu og að bætur yrðu greiddar aftur í tímann. Af hálfu Vinnumálastofnunar hefur komið fram að þegar atvinnuleitandi sæki um atvinnuleysisbætur með rafrænni umsókn sé viðkomandi bent á að tilkynna þurfi um allar ferðir erlendis. Þá þurfi umsækjendur að samþykkja að þeir hafi lesið og skilið þær upplýsingar sem fram komi í umsókn.

Í tölvupósti þann 9. september 2016 var kærandi upplýst um að þar sem fram kæmi í umsókn hennar að hún gæti hafið störf frá og með 5. september 2016 myndi umsóknin miðast við þá dagsetningu. Í tölvupóstinum var kæranda einnig bent á að tilkynna þyrfti Vinnumálastofnun fyrir fram um ferðir erlendis.

Réttindi og skyldur atvinnuleitenda samkvæmt lögum nr. 54/2006 stofnast almennt frá og með umsóknardegi, enda eru atvinnuleysisbætur greiddar frá umsóknardegi, sbr. 29. gr. laganna. Í tilviki kæranda tilgreindi hún í umsókn um atvinnuleysisbætur að hún gæti hafið störf 5. september 2016 og því fékk hún greiddar bætur frá þeim tíma. Á því tímabili sem atvinnuleitandi fær greiddar atvinnuleysisbætur ber honum að tilkynna Vinnumálastofnun um allar breytingar á högum sínum, sbr. 3. mgr. 9. gr. laga nr. 54/2006, þar á meðal ferðir sínar til útlanda. Kæranda bar því að tilkynna Vinnumálastofnun að hún væri stödd erlendis þegar hún lagði inn umsókn um atvinnuleysisbætur.

Í ljósi þeirrar upplýsingaskyldu atvinnuleitenda, sem kveðið er á um í 3. mgr. 9. gr. laga nr. 54/2006, verður fallist á með Vinnumálastofnun að kærandi hafi brotið gegn skyldum sínum gagnvart stofnuninni er hún tilkynnti ekki um dvöl sína erlendis. Því bar Vinnumálastofnun að láta hana sæta viðurlögum samkvæmt 1. mgr. 59. gr. laganna. Ákvæði 1. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006 er fortakslaust en í því felst að hvorki Vinnumálastofnun né úrskurðarnefnd velferðarmála getur tekið ákvörðun um vægari viðurlög í máli kæranda en ákvæðið felur í sér.

Með vísan til framangreinds er hin kærða ákvörðun staðfest.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 11. nóvember 2016, um að fella niður bótarétt A, í tvo mánuði er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Kári Gunndórsson


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum