Hoppa yfir valmynd
K%C3%A6runefnd%20%C3%BAtlendingam%C3%A1la

Nr. 416/2018 - Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 9. október 2018 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 416/2018

í stjórnsýslumáli nr. KNU18080025

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 21. ágúst 2018 kærði einstaklingur er kveðst heita [...], vera fæddur [...] og vera ríkisborgari [...] (hér eftir nefndur kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 15. ágúst 2018, um að taka ekki til efnismeðferðar umsókn hans um alþjóðlega vernd á Íslandi og honum skyldi vísað frá landinu.

Kærandi krefst þess að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og að stofnuninni verði gert að taka umsókn hans til efnislegrar meðferðar hér á landi með vísan til 2. og 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, með síðari breytingum.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II. Málsmeðferð

Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi þann 20. apríl 2018. Við leit að fingraförum kæranda í Eurodac gagnagrunninum, þann sama dag, kom í ljós að fingraför hans höfðu verið skráð í grunninn af yfirvöldum í Þýskalandi. Þann 25. apríl 2018 var beiðni um viðtöku kæranda og umsóknar hans um alþjóðlega vernd beint til yfirvalda í Þýskalandi, sbr. b-lið 1. mgr. 18. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 604/2013 (hér eftir nefnd Dyflinnarreglugerðin). Þann 16. maí 2018 barst svar frá þýskum yfirvöldum þess efnis að þau samþykktu viðtöku kæranda á grundvelli d-liðar 1. mgr. 18. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Útlendingastofnun ákvað þann 15. ágúst 2018 að taka ekki umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar og að vísa honum frá landinu. Ákvörðunin var birt fyrir kæranda þann 21. ágúst 2018 og kærði kærandi ákvörðunina samdægurs til kærunefndar útlendingamála. Greinargerð kæranda barst kærunefnd 31. ágúst 2018 ásamt fylgigögnum. Viðbótargögn bárust kærunefnd 25. september og 1. október 2018.

III. Ákvörðun Útlendingastofnunar

Niðurstaða ákvörðunar Útlendingastofnunar var sú að umsókn kæranda um alþjóðlega vernd yrði ekki tekin til efnismeðferðar hér á landi og honum skyldi vísað frá landinu. Flutningur kæranda til Þýskalands fæli ekki í sér brot gegn 42. gr. laga um útlendinga, sbr. 3. og 13. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Kærandi hefði ekki slík tengsl við Ísland að nærtækast væri að hann fengi hér vernd eða að sérstakar aðstæður væru fyrir hendi þannig að ástæða væri til að beita ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Var umsókn kæranda um alþjóðlega vernd því synjað um efnismeðferð, sbr. c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, og skyldi hann fluttur til Þýskalands.

IV. Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda gerir hann athugasemdir við að verða sendur aftur til Þýskalands. Máli hans þar sé lokið og hann yrði því áframsendur til heimaríkis þar sem hann yrði drepinn. Kærandi hafi dvalið í Þýskalandi síðastliðin tvö ár, þar hafi hann fengið fæði og framfærslu frá þýskum stjórnvöldum en hafi þurft að greiða fyrir lögfræðiaðstoð. Þá kveður kærandi að hann glími við [...] og öndunarerfiðleika, hann hafi haft aðgang að læknisþjónustu í Þýskalandi en ekki eftir að honum hafi verið synjað um vernd þar. Þá hafi kærandi fengið brottvísun eftir að hafa fengið lokaákvörðun í máli sínu í Þýskalandi, en hann telji að mál hans hafi ekki verið nægilega rannsakað. Þýsk yfirvöld sendi einstaklinga til [...] á hverjum degi og því hafi kærandi ekki séð annað í stöðunni en að flýja til Íslands. Kærandi kveður jafnframt að hann hafi orðið fyrir ofbeldi í heimaríki.Í greinargerð sinni gagnrýnir kærandi að Útlendingastofnun hafi ekki metið sig í sérstaklega viðkvæmri stöðu. Bendi kærandi á að hann hafi í viðtali hjá stofnuninni greint frá erfiðri lífsreynslu sinni, m.a. þeim pyndingum sem hann hafi orðið fyrir. Hafi frásögnin tekið verulega á kæranda, hann hafi grátið og margsinnis hafi þurft að gera hlé á viðtalinu. Útlendingastofnun hafi hafnað beiðni talsmanns kæranda um að framkvæmt yrði sálfræðimat á kæranda. Þá bendi kærandi á að hann hafi mætt í læknisskoðun á Göngudeild sóttvarna þann 9. maí sl. Í komunótum þar hafi hjúkrunarfræðingur metið það svo að kærandi þurfi bæði á tíma hjá sálfræðingi og lækni að halda og hafi kærandi hitt sálfræðing þann 11. júlí sl. Kærandi gagnrýni ummæli sálfræðingsins í samskiptaseðli, dags. þann sama dag, sem gefi til kynna að kærandi hafi verið óöruggur um tilgang tímans og upplýsi jafnframt um skeytingarleysi sálfræðingsins. Bendi kærandi á úrskurð kærunefndar í máli nr. 322/2018 frá 9. ágúst sl. í þessu sambandi þar sem nefndin hafi ekki gert athugasemd við að hjúkrunarfræðingur meti þörf á sálfræðimeðferð fyrir umsækjendur. Við mat á því hvort kærandi sé í sérstaklega viðkvæmri stöðu beri því að líta framhjá framangreindum ummælum sálfræðingsins og líta fremur til áðurgreinds mats hjúkrunarfræðingsins.

Kærandi telur með öllu ótækt að beita c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga þar sem að í málinu séu fyrir hendi sérstakar ástæður í skilningi 2. mgr. 36. gr. sömu laga. Í slíkum tilvikum beri stjórnvöldum skylda til að taka umsókn til efnismeðferðar. Í því sambandi bendi kærandi á ummæli í greinargerð með frumvarpi til laga nr. 81/2017 og túlkun kærunefndar á þeim ummælum. Þá telji kærandi að í 32. gr. a reglugerðar nr. 276/2018, um breytingu á reglugerð nr. 540/2017, sé kveðið á um almenn viðmið sem hafa beri í huga við mat á því hvort sérstakar ástæður séu uppi í málum umsækjenda um alþjóðlega vernd. Kærandi vísi til þess að ákvæði laga gangi framar ákvæðum reglugerða við túlkun og skýringu laga og að auki verði ákvæði í reglugerðum að hafa stoð í lögum. Telji kærandi að nokkuð skorti á að reglugerð nr. 276/2018 uppfylli þau skilyrði sem gerð séu til þess að reglugerð teljist hafa lagastoð, enda gangi ákvæði reglugerðarinnar þvert á markmið laganna sem finna megi í 2. gr. þeirra sem og skýran vilja löggjafans sem lesa megi úr greinargerðum með frumvörpum sem urðu að lögum nr. 80/2016 og nr. 81/2017. Lögin geri það ekki að skilyrði að umsækjendur um alþjóðlega vernd séu haldnir skyndilegum, lífshættulegum sjúkdómi til þess að teljast til sérstaklega viðkvæmra einstaklinga. Þá hafi kærunefnd kveðið á um það að viðkvæm staða skuli hafa aukið vægi við mat á því hvort sérstakar ástæður eigi við í málum, en mat kærunefndar á því hafi hingað til grundvallast á fleiri en einum þætti, t.d. andlegu heilsufari, aldri og fyrri reynslu.

Kærandi telur ljóst að þeir atburðir sem hann hafi upplifað hafi haft veruleg áhrif á andlega og líkamlega heilsu hans. Íslenskum stjórnvöldum beri því að leggja heildstætt mat á einstaklingsbundnar aðstæður hans og þær afleiðingar sem endursending til Þýskalands gæti haft í för með sér auk þess að meta hvort kærandi sé einstaklingur í sérstaklega viðkvæmri stöðu. Vísi kærandi í því sambandi til úrskurða kærunefndar nr. 550/2017 og nr. 552/2017 frá 10. október 2017, auk úrskurða nr. 583/2017 og nr. 586/2017 frá 24. október 2017, en í þeim hafi kærunefnd komist að þeirri niðurstöðu að þegar viðkvæm staða umsækjanda verði talin leiða til þess að hann muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki, s.s. vegna heilsufars, aldurs, þungunar, mismununar vegna kynhneigðar, kynþáttar eða kyns, eða fyrri reynslu, skuli þau sjónarmið hafa mikið vægi við matið. Með endursendingu kæranda til Þýskalands muni hann standa frammi fyrir því að verða sendur aftur til heimaríkis. Hann sé hræddur, haldinn stöðugum ótta og telji sig ekki öruggan í Þýskalandi og líklegt sé að hann muni reyna hvað sem hann geti til að komast í öruggt skjól. Sé því alls óvíst hvort kærandi muni þola að verða endursendur til Þýskalands. Með vísan til andlegrar og líkamlegrar vanheilsu kæranda og þeirrar stöðu sem hann muni standa frammi fyrir við endursendingu til Þýskalands byggir kærandi á því að fyrir hendi séu sérstakar ástæður sem skyldi íslensk stjórnvöld til að taka umsókn kæranda til efnismeðferðar, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Fallist kærunefnd ekki á að sérstakar ástæður séu uppi í málinu kæranda, byggir hann á því að hann njóti verndar 42. gr. laga um útlendinga, sem mæli fyrir um grundvallarreglu þjóðaréttar um non-refoulement enda liggi fyrir að kærandi hafi fengið lokasynjun í Þýskalandi og standi frammi fyrir flutningi til [...] þar sem líf hans sé í hættu. Í hinni kærðu ákvörðun sé enga eiginlega afstöðu að finna um það hvernig íslensk stjórnvöld geti tryggt, í skilningi 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, að kærandi verði ekki ekki sendur í þær aðstæður sem 1. mgr. ákvæðisins tiltekur. Non-refoulement reglan sé hornsteinn í flóttamannarétti og hafi beint eða óbeint verið tekin upp í fjölda alþjóðlegra samninga, sbr. t.d. 33. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna, 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu og 7. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi. Ákvæði Dyflinnarreglugerðarinnar og heimild í lögum um útlendinga handa íslenskum stjórnvöldum til þess að synja efnismeðferð umsóknar um alþjóðlega vernd ef krefja má annað aðildarríki Dyflinnarsamstarfsins um að taka við umsækjanda séu ekki rétthærri en reglan um non-refoulement.

V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Lagagrundvöllur

Í 1. mgr. 36. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga er mælt fyrir um að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema undantekningar sem greindar eru í a-, b- og c-liðum ákvæðisins eigi við. Samkvæmt c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er stjórnvöldum heimilt að synja því að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef heimilt sé að krefja annað ríki sem tekur þátt í samstarfi á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar um að taka við umsækjanda.

Fyrir liggur í máli þessu að þýsk stjórnvöld hafa samþykkt viðtöku á kæranda á grundvelli d-liðar 1. mgr. 18. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar, en Ísland skuldbatt sig til að fylgja reglugerðinni með samningi Íslands, Noregs og Evrópusambandsins frá 19. janúar 2001, um viðmiðanir og fyrirkomulag við að ákvarða hvaða ríki skuli fara með beiðni um alþjóðlega vernd sem lögð er fram í aðildarríki eða á Íslandi eða í Noregi. Í III. kafla Dyflinnarreglugerðarinnar koma fram viðmið, í ákveðinni forgangsröð, um hvaða ríki skuli bera ábyrgð á umsókn um alþjóðlega vernd. Samþykki Þýskalands er byggt á því að kærandi hafi fengið synjun á umsókn sinni um alþjóðlega vernd þar í landi. Eru skilyrði c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga uppfyllt.

Í 2. mgr. 36. gr. kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skal taka hana til efnismeðferðar. Í 32. gr. a-b reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 koma fram viðmið varðandi mat á því hvort taka skuli umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar vegna sérstakra tengsla eða ef sérstakar ástæður mæla með því, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Í 32. gr. a kemur m.a. fram að með sérstökum ástæðum sé átt við einstaklingsbundnar ástæður er varða umsækjanda sjálfan, aðrar en þær sem myndu að jafnaði rúmast innan 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Þá er m.a. nefnt í dæmaskyni ef umsækjandi mun eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar, ef umsækjandi af sömu ástæðu getur vænst þess að staða hans verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki og ef umsækjandi glímir við mikil og alvarleg veikindi sem meðferð við er aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki.

Þá er í 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga tekið fram að ef beiting 1. mgr. myndi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því landi sem senda á umsækjanda til, skuli taka umsókn til efnismeðferðar. Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er kveðið á um að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr.

Við mat á því hvort senda eigi umsækjanda um alþjóðlega vernd til ríkis, sem hefur samþykkt að taka við honum á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar, ber stjórnvöldum að leggja sjálfstætt mat á hvort aðstæður þar brjóti gegn 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sem kveður á um að enginn maður skuli sæta pyndingum eða ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Í dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu hefur verið lagt til grundvallar að sú meðferð, sem einstaklingur eigi von á, verði að ná tilteknu lágmarks alvarleikastigi til þess að falla undir 3. gr. sáttmálans. Við það mat verði að horfa til allra aðstæðna í fyrirliggjandi máli, svo sem lengdar og eðlis meðferðar, andlegra og líkamlegra áhrifa hennar og í einhverjum tilvikum kyns, aldurs og heilsufars viðkomandi. Þá ber stjórnvöldum að leggja mat á hvort málsmeðferð vegna umsókna um alþjóðlega vernd tryggi umsækjendum raunhæfa leið til að ná fram rétti sínum, sbr. 13. gr. sáttmálans. Í samræmi við framkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu skal mat á meðferð umsókna um alþjóðlega vernd og móttöku og aðbúnaði umsækjenda í viðtökuríki taka mið af einstaklingsbundnum aðstæðum í hverju máli.

Greining á sérþörfum sbr. 25. gr. og 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga

Kærandi er [...] gamall einhleypur og barnlaus karlmaður frá [...]. Hann kvaðst í viðtölum hjá Útlendingastofnun hafa orðið fyrir ofbeldi í heimaríki og glíma við verki og [...] vegna þessa ofbeldis. Þá finni hann oft fyrir ótta og hræðslu þegar hann hugsi til heimaríkis. Kærandi hafi hitt sálfræðing hjá Göngudeild sóttvarna þann 11. júlí og 26. september 2018 en gögn málsins bera ekki með sér að það hafi verið mat heilbrigðisstarfsfólks að hann þyrfti á frekari meðferð að halda.

Þrátt fyrir að framburður kæranda beri með sér að hann hafi verið þolandi ofbeldis í heimaríki er það mat kærunefndar að gögn málsins, þ. á m. framburður hans og komunótur, beri ekki með sér að heilsufar kæranda sé svo alvarlegt að hann teljist í sérstaklega viðkvæmri stöðu, sbr. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga.

Vegna athugasemdar kæranda við mat Útlendingastofnunar á viðkvæmri stöðu hans tekur kærunefnd fram að kærandi hefur hitt heilbrigðisstarfsfólk sem hefur metið hvort hann hafi persónulega eiginleika eða sérþarfir sem taka þarf tillit til við meðferð málsins eða vegna umræddra eiginleika eða sérþarfa geti ekki að fullu eða með engu móti nýtt sér rétt eða uppfyllt skyldur sem kveðið er á um í lögum um útlendinga. Í málinu liggja fyrir gögn sem varpa ljósi á það mat. Kærunefnd telur ekki tilefni til að gera athugasemdir við meðferð Útlendingastofnunar á máli kæranda að þessu leyti.

Aðstæður og málsmeðferð í Þýskalandi

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður og málsmeðferð í Þýskalandi, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:

  • 2017 Human Rights Report – Germany (United States Department of State, 20. apríl 2018),
  • Amnesty International Report 2017/18 – Germany (Amnesty International, 22. febrúar 2018),
  • Asylum Information Database, Country Report: Germany (European Council on Refugees and Exiles, 31. mars 2018),
  • ECRI Report on Germany (European Commission against Racism and Intolerance, 25. febrúar 2014),
  • Freedom in the World 2018 – Germany (Freedom House, 2. febrúar 2018),
  • From host country to deportation country – latest asylum reform in Germany (European Council on Refugees and Exiles (ECRE), 26. maí 2017),
  • Report by Nils Muižnieks Commissioner for Human Rights of the Council Of Europe Following his Visit to Germany on 24th April and from 4 to 8 May 2015 (Council of Europe: Commissioner for Human Rights, 1. október 2015),
  • Upplýsingar af heimasíðu þýsku útlendingastofnunarinnar (www.bamf.de) og
  • World Report 2018 – European Union (Human Rights Watch, 18. janúar 2018).

Í ofangreindum gögnum kemur fram að umsækjendur um alþjóðlega vernd sem fengið hafa synjun á umsókn sinni um í Þýskalandi geta kært niðurstöðuna til sérstaks stjórnsýsludómstóls. Fái umsækjendur synjun á umsókn sinni hjá Útlendingastofnun eða stjórnsýsludómstól eiga þeir möguleika á því að leggja fram viðbótarumsókn um alþjóðlega vernd hjá Útlendingastofnun. Ef nýjar upplýsingar eða gögn liggja fyrir í máli umsækjanda, aðstæður hafa breyst í máli hans eða verulegir annmarkar voru á fyrri málsmeðferð, geta skilyrði viðbótarumsóknar verið uppfyllt. Umsækjendur geta borið mál sitt undir þýska dómstóla sé viðbótarumsókn þeirra synjað. Jafnframt eiga umsækjendur þess kost að leggja fram beiðni fyrir Mannréttindadómstól Evrópu um bráðabirgðaráðstöfun skv. 39. gr. málsmeðferðarreglna dómstólsins, telji þeir endanlega niðurstöðu um synjun á alþjóðlegri vernd hafa í för með sér hættu á ofsóknum eða meðferð sem brýtur í bága við ákvæði mannréttindasáttmála Evrópu.

Af þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér verður talið að þýsk stjórnvöld uppfylli skyldur sínar varðandi lögfræðiaðstoð til handa umsækjendum um vernd skv. tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins nr. 32/2013 um málsmeðferð við veitingu og afturköllun alþjóðlegrar verndar, sbr. 19. og 20. gr. hennar. Þýsk yfirvöld tryggja umsækjendum ekki lögfræðiaðstoð endurgjaldslaust við meðferð máls á fyrsta stjórnsýslustigi en frjáls félagasamtök veita almennt gjaldfrjálsa lögfræðiaðstoð á fyrsta stigi málsmeðferðar. Á kærustigi eiga umsækjendur kost á lögfræðiráðgjöf og fyrir dómstólum geta þeir sótt um aðstoð lögmanns á kostnað þýskra yfirvalda. Umsækjendur um alþjóðlega vernd fá aftur á móti ekki endurgjaldslausa aðstoð lögfræðings við að leggja fram viðbótarumsókn um alþjóðlega vernd í Þýskalandi eða við að bera synjun á viðbótarumsókn undir dómstóla.

Þýskaland er aðildarríki Evrópusambandsins og hefur innleitt tilskipanir sambandsins vegna meðferðar og móttöku umsækjenda um alþjóðlega vernd. Í þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður og aðbúnað umsækjenda um alþjóðlega vernd í Þýskalandi kemur fram að umsækjendum séu tryggð búsetuúrræði og mataraðstoð. Eftir að umsókn um alþjóðlega vernd hefur verið synjað endanlega skerðist þjónusta við einstaklinga en þeir eiga samt sem áður rétt á tiltekinni félagslegri aðstoð. Þá verður ráðið af framangreindum gögnum að umsækjendur um alþjóðlega vernd í Þýskalandi og einstaklingar sem hafa fengið synjun á slíkri umsókn eiga rétt á nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu, þ. á m. lyfjum og geðheilbrigðisþjónustu. Þá kemur fram í framangreindum gögnum að glæpum gegn innflytjendum í Þýskalandi hafi fjölgað á undanförnum árum en nýlega hafi stjórnvöld gert aðgerðaráætlun til að sporna við fordómum þar í landi.

Að mati kærunefndar bera gögn málsins það með sér að í Þýskalandi sé almennt veitt fullnægjandi vernd gegn brottvísun umsækjenda um alþjóðlega vernd til ríkja þar sem einstaklingar eiga á hættu að verða fyrir ofsóknum og lífi þeirra og frelsi ógnað. Er þá sérstaklega litið til þess að þau gögn sem kærunefnd hefur kynnt sér benda eindregið til þess að málsmeðferð þýskra yfirvalda sé fullnægjandi og veiti umsækjendum um alþjóðlega vernd viðunandi úrræði til að tryggja að réttur þeirra sé ekki brotinn og að einstaklingsbundið mat verði lagt á aðstæður þeirra. Að mati kærunefndar bendir ekkert til þess að umsækjendum sé synjað sjálfkrafa um alþjóðlega vernd í Þýskalandi eða þeir endursendir til heimaríkis án þess að leyst sé úr málum þeirra á einstaklingsgrundvelli. Þá er Þýskaland bundið að þjóðarétti til að fylgja reglunni um að einstaklingum skuli ekki vísað brott þangað sem líf þeirra eða frelsi kann að vera í hættu (non-refoulement).

Athugun kærunefndar á aðstæðum umsækjenda um alþjóðlega vernd í Þýskalandi hefur ekki leitt í ljós gögn sem gefa tilefni til að líta svo á að aðstæður eða móttökuskilyrði þeirra þar í landi séu þess eðlis að hætta sé á að endursending kæranda þangað brjóti í bága við 1. eða 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga eða 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þá benda öll gögn til þess að kæranda séu tryggð úrræði til að leita réttar síns í Þýskalandi bæði fyrir landsrétti og fyrir Mannréttindadómstól Evrópu, sbr. 13. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Enn fremur er haft til hliðsjónar að Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur ekki lagst gegn endursendingu umsækjenda um alþjóðlega vernd til Þýskalands á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar.

Einstaklingsbundnar aðstæður kæranda

Áður hefur verið greint frá aðstæðum kæranda. Að mati kærunefndar bera gögn málsins ekki með sér að kærandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar eða að kærandi geti af sömu ástæðu vænst þess að staða hans verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki. Þá fær kærunefnd ekki séð að hann glími við mikil og alvarleg veikindi sem meðferð er aðgengileg við hér á landi en ekki í viðtökuríki, sbr. viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Þá verður ekki séð af gögnum málsins að fyrir hendi sé ástæða í máli kæranda er varðar heilsufar hans sem sé svo einstaklingsbundin og sérstök að ekki verði framhjá henni litið, sbr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Af gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður og aðbúnað umsækjenda um alþjóðlega vernd í Þýskalandi má ráða að umsækjendur eigi rétt á nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu fram að brottflutningi þeirra frá landinu. Telur kærunefnd því ekki forsendur til annars, í ljósi þeirra upplýsinga sem liggja fyrir um aðstæður í landinu, en að leggja til grundvallar við úrlausn málsins að umsækjendur hafi aðgengi að viðhlítandi heilbrigðisþjónustu þar í landi.

Kærunefnd hefur farið yfir þau gögn sem kærandi lagði fram með kærum sínum, svo og skýrslur og upplýsingar um aðstæður í Þýskalandi. Að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda er það mat kærunefndar að ekki séu fyrir hendi sérstakar ástæður sem mæli með því að mál hans verði tekið til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Kærandi kvaðst í viðtali hjá Útlendingastofnun þann 6. júní 2018 ekki hafa sérstök tengsl við Ísland. Þar að auki er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að kærandi hafi slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Þá telur kærunefnd ljóst að síðari málsliður 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eigi ekki við í máli kæranda þar sem ekki eru liðnir 12 mánuðir frá því að kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi, en hann lagði fram umsókn sína þann 20. apríl 2018.

Vegna athugasemdar í greinargerð kæranda tekur kærunefnd fram að aðstæður kæranda eru ekki sambærilegar aðstæðum sem fjallað var um í úrskurðum kærunefndar útlendingamála nr. 550/2017 og nr. 552/2017 frá 10. október 2017, og úrskurðum kærunefndar nr. 583/2017 og nr. 586/2017 frá 24. október 2017. Í því sambandi vísar kærunefnd einkum til viðtökuríkis í framangreindum úrskurðum, en aðstæðum kæranda í Þýskalandi verður að mati kærunefndar ekki jafnað til aðstæðna í viðtökuríkjum í áðurnefndum úrskurðum.

Gildistaka breytinga á reglugerð um útlendinga nr. 540/2017

Með reglugerð nr. 276/2018, sem tók gildi 14. mars 2018, voru gerðar breytingar á reglugerð um útlendinga nr. 540/2017. Sem fyrr segir þá telur kærandi reglugerðarbreytinguna skorta lagastoð þar sem ákvæði hennar gangi gegn markmiði laga um útlendinga, sbr. einkum 4. mgr. 2. gr. laganna, og vísar kærandi jafnframt til sjónarmiða um rétthæð réttarheimilda og vilja löggjafans. Þá bendir kærandi á að kærunefnd útlendingamála hafi í úrskurðum sínum kveðið á um að viðkvæm staða skuli hafa aukið vægi við mat á því hvort sérstakar ástæður eigi við í málum, en mat kærunefndar á því hvort sérstakar ástæður séu fyrir hendi hafi hingað til grundvallast á fleiri en einum hætti. Þegar litið sé til fyrri framkvæmdar hafi þróunin verið sú að gefa sérstaklega viðkvæmri stöðu einstaklinga aukið vægi við mat á sérstökum ástæðum andspænis öðrum sjónarmiðum.

Tilvitnuð ákvæði reglugerðar nr. 276/2018 eru sett með stoð í 4. mgr. 36. gr. laga um útlendinga þar sem segir að ráðherra hafi heimild til að setja reglugerð um framkvæmd 36. gr. laganna. Löggjafinn hefur því framselt ráðherra vald til að útfæra framangreind ákvæði nánar og ljóst að reglugerðina skortir ekki lagastoð. Eins og að framan greinir hefur kærunefnd lagt einstaklingsbundið mat á umsókn kæranda og komist að niðurstöðu um að synja henni um efnismeðferð með vísan til ákvæða laga um útlendinga eins og þau hafa verið útfærð í reglugerð um útlendinga. Er niðurstaðan í málinu byggð á túlkun kærunefndar á framangreindum ákvæðum og sjónarmiðum sem nefndin telur málefnaleg eins og að framan hefur verið lýst. Að mati kærunefndar er því ekki tilefni til frekari umfjöllunar um þessar athugasemdir kæranda.

Frávísun

Kærandi kom hingað til lands 20. apríl 2018 og sótti um alþjóðlega vernd sama dag. Eins og að framan greinir hefur umsókn hans um alþjóðlega vernd verið synjað um efnismeðferð og hefur hann því ekki tilskilin leyfi til dvalar enda verður að líta á umsókn hans um alþjóðlega vernd sem áform um að dveljast í landinu meira en 90 daga, sbr. til hliðsjónar 3. mgr. 42. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017. Verður kæranda því vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. og 5. mgr. 106. laganna, enda hafði hann verið hér á landi í innan við níu mánuði þegar málsmeðferð umsóknar hans hófst hjá Útlendingastofnun.

Kærandi skal fluttur til Þýskalands ekki síðar en 6 mánuðum eftir birtingu þessa úrskurðar, sbr. til hliðsjónar 29. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar, nema ákveðið verði að fresta réttaráhrifum úrskurðar þessa að kröfu kæranda, sbr. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga.

Samantekt

Í máli þessu hafa þýsk stjórnvöld fallist á að taka við kæranda og umsókn hans um alþjóðlega vernd á grundvelli ákvæða Dyflinnarreglugerðarinnar. Í ljósi alls ofangreinds er það niðurstaða kærunefndar að rétt sé að synja því að taka til efnismeðferðar umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi og senda kæranda til Þýskalands með vísan til c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Ákvörðun Útlendingastofnunar er því staðfest.

Athygli kæranda er vakin á því að skv. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

 

Úrskurðarorð

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

Anna Tryggvadóttir

Árni Helgason                                                                                      Erna Kristín Blöndal


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum