Hoppa yfir valmynd
K%C3%A6runefnd%20%C3%BAtlendingam%C3%A1la

Nr. 172/2018 - Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 10. apríl 2018 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 172/2018

í stjórnsýslumáli nr. KNU18020008

Kæra […]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 5. febrúar 2018 kærði einstaklingur er kveðst heita […], vera fæddur […], og vera ríkisborgari […] (hér eftir nefndur kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 19. janúar 2018, um að taka ekki til efnismeðferðar umsókn hans um alþjóðlega vernd á Íslandi og endursenda hann til Þýskalands. Kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi ásamt eiginkonu sinni og tveimur börnum þeirra. Kærandi krefst þess aðallega að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að Útlendingastofnun verði gert að taka umsókn hans um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar með vísan til 2. mgr. 36. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga og 42. gr., sbr. 3. mgr. 36. gr., sömu laga. Til vara er gerð krafa um að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að Útlendingastofnun verði gert að taka málið til meðferðar að nýju með vísan til 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II. Málsmeðferð

Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi þann 13. september 2017. Við leit að fingraförum kæranda í Eurodac gagnagrunninum þann sama dag kom í ljós að fingraför hans höfðu verið skráð í grunninn af yfirvöldum í Þýskalandi. Þann 20. september 2017 var beiðni um viðtöku kæranda og umsóknar hans um alþjóðlega vernd beint til yfirvalda í Þýskalandi, sbr. b-lið 1. mgr. 18. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 604/2013 (hér eftir nefnd Dyflinnarreglugerðin). Þann 9. október 2017 barst svar frá þýskum yfirvöldum þess efnis að þau samþykktu viðtöku kæranda á grundvelli d-liðar 1. mgr. 18. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Útlendingastofnun ákvað þann 1. desember 2017 að taka ekki umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar og að hann skyldi endursendur til Þýskalands. Með úrskurði kærunefndar útlendingamála nr. 21/2018, dags. 9. janúar 2018, var ákvörðun Útlendingastofnunar felld úr gildi og stofnuninni gert að taka mál kæranda til meðferðar á ný. Útlendingastofnun ákvað þann 19. janúar 2018 að taka ekki umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar og að hann skyldi endurstendur til Þýskalands. Kærandi kærði ákvörðunina þann 5. febrúar 2018 til kærunefndar útlendingamála. Greinargerð kæranda barst kærunefnd 14. febrúar 2018 ásamt fylgigögnum. Í greinargerð óskaði kærandi eftir að fá að koma fyrir nefndina og tjá sig um efni málsins. Kærunefnd taldi ekki ástæðu til að gefa kæranda kost á að koma fyrir nefndina, sbr. 7. mgr. 8. gr. laga um útlendinga.

III. Ákvörðun Útlendingastofnunar

Niðurstaða ákvörðunar Útlendingastofnunar var sú að umsókn kæranda um alþjóðlega vernd yrði ekki tekin til efnismeðferðar hér á landi og hann skyldi endursendur til Þýskalands. Lagt var til grundvallar að Þýskaland virði ákvæði mannréttindasáttmála Evrópu og flóttamannasamnings Sameinuðu þjóðanna, þar með talið bann við endursendingu til ríkis þar sem líf og frelsi kæranda kynni að vera í hættu (non-refoulement). Því fæli flutningur kæranda til Þýskalands ekki í sér brot gegn 42. gr. laga um útlendinga. Þá var talið að kærandi hefði ekki slík tengsl við Ísland að ástæða væri til að beita ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Þá var það mat stofnunarinnar að sérstakar aðstæður í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga væru ekki til staðar í málinu. Kærandi var ekki talinn í sérstaklega viðkvæmri stöðu sem áhrif hefði á mál hans. Aðstæður kæranda féllu ekki undir 16. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar og væru ekki slíkar að ástæða væri til að beita 1. mgr. 17. gr. reglugerðarinnar í málinu. Kærandi skyldi yfirgefa Ísland og bæri að senda hann til Þýskalands, sbr. c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

IV. Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð sem var lögð fram hjá kærunefnd fyrir hönd allrar fjölskyldunnar kemur fram að kærandi hafi átt skóbúð […] í heimaríki sínu, […], og að hann hafi starfað fyrir ríkisstjórn landsins […]. Kemur fram að kærandi og fjölskylda hans hafi þurft að flýja […] þegar […] hafi tekið við völdum í borginni enda hafi hann átt á hættu að vera ofsóttur fyrir að vera af […]ættum. Þá kemur fram að ungur sonur kæranda hafi orðið fyrir banvænu skoti frá hermanni […] sem ætlað hafi verið sér. Í kjölfar þess hafi kærandi og fjölskylda hans flúið […] og hafi þau farið til Þýskalands. Kærandi kveður að þau hafi búið við afar slæmar aðstæður í Þýskalandi og eftir að hafa fengið synjun um alþjóðlega vernd þar í landi hafi þau komið til Íslands. Þá kemur fram að kærandi og fjölskylda hans hafi leitað eftir aðstoð til að komast hingað til lands og að tiltekinn einstaklingur hafi fylgt þeim hingað. […]. Þá greinir kærandi frá því að ókunnugir menn hafi spurst fyrir um hann og fjölskyldu hans í hælisbúðum í Þýskalandi og jafnframt að þau hafi fengið símtöl frá Þýskalandi þar sem þeim hafi verið hótað og varað við því að snúa aftur.

Kærandi gerir athugasemd við trúverðugleikamat Útlendingastofnunar í máli hans einkum varðandi lýsingu hans á þeim aðbúnaði sem kærandi og fjölskylda hans hafi búið við þar í landi. Gerir kærandi athugasemd við að ekki hafi verið rökstutt nánar sú fullyrðing stofnunarinnar að aðstæður á hóteli því sem fjölskyldan hafi dvalið á hafi verið aðrar en þær sem kærandi hafi lýst og gögn málsins hafi bent til. Þá gerir kærandi athugasemd við að beiðni hans um framhaldsviðtal hafi verið hafnað en kærandi hafi lýst yfir vilja til þess að fara í framhaldsviðtal hjá Útlendingastofnun áður en nýjar ákvarðanir yrðu teknar í máli hans og fjölskyldu hans. Útlendingastofnun hafi talið það óþarft þar sem að frá upphafi umsóknar fjölskyldunnar hafi legið fyrir að þau héldu því fram að smyglarar hefðu komið þeim til Íslands og að ljóst væri að stjórnvöld í Þýskalandi væru í stakk búin til þess að veita fjölskyldunni vernd. Kærandi telur að ný gögn sýni að framhaldsviðtal hefði átt að fara fram hjá Útlendingastofnun og vísar hann til símhringinga úr sama númeri og kærandi notaðist við til þess að komast hingað til lands sem bendi til þess að smyglarinn hafi ekki starfað einn síns liðs.

Aðalkröfu sína styður kærandi með vísan til þess að hann sé í sérstaklega viðkvæmri stöðu í skilningi 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga. Vísar kærandi til þess að hann hafi farið til sálfræðings á vegum Göngudeilda sóttvarna og að gögnin beri með sér að hann sé haldinn kvíða og sé stressaður. Þá vísar kærandi til atviks þar sem hermaður hafi orðið syni hans að bana í heimaríki eftir slysaskot og til símtala sem hann hafi fengið frá Þýskalandi til stuðnings því að hann sé ekki vel á sig kominn andlega. Þann 23. febrúar 2017 bárust kærunefnd frekari gögn í málinu sem snéri að sálfræðiviðtali eiginkonu kæranda og elstu dóttur þeirra þar sem lýst væri bágri andlegri heilsu þeirra.

Kærandi telur að taka skuli mál hans til efnismeðferðar hér á landi vegna sérstakra ástæðna í máli hans í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Vísar kærandi til lögskýringargagna að baki ákvæðinu og bendir á nýlega úrskuði kærunefndar útlendingamála máli sínu til stuðnings. Telur kærandi að breytingar á löggjöfinni og breytt framkvæmd kærunefndar í kjölfarið sýni viðleiti löggjafans til þess að víkka gildissvið ákvæðisins. Kærandi telur að stjórnvöldum beri að framkvæma heildstætt mat á viðkvæmri stöðu fjölskyldunnar, einstaklingsbundnum aðstæðum þeirra, og gögnum um stöðu mála í móttökuríki. Kærandi bendir í því sambandi á aðbúnaðinn í móttökumiðstöðinni í Þýskalandi. Byggingin hafi verið gömul, þakið lekið og músagangur í húsinu. Þá telji kærandi það ótækt að börn hans hafi þurft að sofa í öðru herbergi en hann og eiginkona hans. Kærandi óttist að hann og fjölskylda hans muni verða send aftur í sömu móttökumiðstöð og áður miðað við svar þýskra stjórnvalda um móttöku þeirra auk þess að hann óttist þá sem flutt hafi þau hingað til lands.

Að lokum styður kærandi aðalkröfu sína með vísan til 42. gr., sbr. 3. mgr. 36. gr., laga um útlendinga og telur að synjun stjórnvalda á umsókn hans um alþjóðlega vernd hér á landi leiði til þess að hann verði fyrir ómannúðlegri og vanvirðandi meðferð. Vísar kærandi til þess að skv. ákvæðinu þurfi stjórnvöld bæði að líta til þess að ekki megi senda hann til ríkis þar sem hann eigi á hættu slíka meðferð auk þess sem ekki megi senda hann til ríkis þar sem líklegt er að hann verði áframsendur til svæðis þar sem hann muni verða fyrir slíkri meðferð. Kærandi telur að hann falli undir báðar þessar meginreglur. Þá lýsir kærandi bágum aðstæðum í heimaríki og vísar til skýrslna aljóðlegra samtaka og fréttaskýringa máli sínu til stuðnings. Varakröfu sína byggir kærandi á því að rannsókn Útlendingastofnunar hafi verið ófullnægjandi í skilningi 10. gr. stjórnsýslulaga. Kærandi vísar í fyrsta lagi til framangreindra athugasemda hans við rannsókn Útlendingastofnunar í málinu og í öðru lagi geri hann athugasemd við að stofnunin dragi í efa frásögn sína af aðstæðum hans og fjölskyldu í Þýskalandi, án þess að rökstyðja nánar á hverju stofnunin byggi þær fullyrðingar. Telur kærandi að rannsókn Útlendingastofnunar á aðstæðum sínum hafi verið verulega ábótavant og uppfylli ekki þær kröfur sem 10. gr. stjórnsýslulaga mæli fyrir um.

V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Lagagrundvöllur

Í 1. mgr. 36. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga er mælt fyrir um að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema undantekningar sem greindar eru í a-, b- og c-liðum ákvæðisins eigi við. Samkvæmt c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er stjórnvöldum heimilt að synja því að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef heimilt sé að krefja annað ríki sem tekur þátt í samstarfi á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar um að taka við umsækjanda.

Fyrir liggur í máli þessu að þýsk stjórnvöld hafa samþykkt viðtöku á kæranda á grundvelli d-liðar 1. mgr. 18. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar, en Ísland skuldbatt sig til að fylgja reglugerðinni með samningi Íslands, Noregs og Evrópusambandsins frá 19. janúar 2001, um viðmiðanir og fyrirkomulag við að ákvarða hvaða ríki skuli fara með beiðni um alþjóðlega vernd sem lögð er fram í aðildarríki eða á Íslandi eða í Noregi. Í III. kafla Dyflinnarreglugerðarinnar koma fram viðmið, í ákveðinni forgangsröð, um hvaða ríki skuli bera ábyrgð á umsókn um alþjóðlega vernd. Samþykki Þýskalands er byggt á því að kærandi hafi fengið synjun á umsókn sinni um alþjóðlega vernd þar í landi. Eru skilyrði c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga uppfyllt.

Í 2. mgr. 36. gr. kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skal taka hana til efnismeðferðar.

Í 32. gr. a-b reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 koma fram viðmið varðandi mat á því hvort taka skuli umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar vegna sérstakra tengsla eða ef sérstakar ástæður mæla með því, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Í 32. gr. a kemur m.a. fram að með sérstökum ástæðum sé átt við einstaklingsbundnar ástæður er varða umsækjanda sjálfan, aðrar en þær sem myndu að jafnaði rúmast innan 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Þá er m.a. nefnt í dæmaskyni ef umsækjandi mun eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar og ef umsækjandi glímir við mikil og alvarleg veikindi.

Þá er í 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga tekið fram að ef beiting 1. mgr. myndi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því landi sem senda á umsækjanda til, skuli taka umsókn til efnismeðferðar. Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er kveðið á um að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr.

Við mat á því hvort senda eigi umsækjanda um alþjóðlega vernd til ríkis, sem hefur samþykkt að taka við honum á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar, ber stjórnvöldum að leggja sjálfstætt mat á hvort aðstæður þar brjóti gegn 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sem kveður á um að enginn maður skuli sæta pyndingum eða ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Í dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu hefur verið lagt til grundvallar að sú meðferð, sem einstaklingur eigi von á, verði að ná tilteknu lágmarks alvarleikastigi til þess að falla undir 3. gr. sáttmálans. Við það mat verði að horfa til allra aðstæðna í fyrirliggjandi máli, svo sem lengdar og eðlis meðferðar, andlegra og líkamlegra áhrifa hennar og í einhverjum tilvikum kyns, aldurs og heilsufars viðkomandi. Þá ber stjórnvöldum að leggja mat á hvort málsmeðferð vegna umsókna um alþjóðlega vernd tryggi umsækjendum raunhæfa leið til að ná fram rétti sínum, sbr. 13. gr. sáttmálans. Í samræmi við framkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu skal mat á meðferð umsókna um alþjóðlega vernd og móttöku og aðbúnaði umsækjenda í viðtökuríki taka mið af einstaklingsbundnum aðstæðum í hverju máli.  

Greining á sérþörfum sbr. 25. gr. og 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga

Kærandi er […] karlmaður sem kom hingað til lands ásamt eiginkonu sinni og börnum. Kærandi hefur m.a. lýst því í viðtölum hjá Útlendingastofnun að hann sé þreyttur, […] og verði pirraður og reiður þegar hann hugsi um vandamálin sín. Í gögnum frá Heilsugæslu Höfuðborgarsvæðisins, dags. 27. september 2017 – 13. desember 2017, kemur m.a. fram að hann hafi hitt sálfræðing í tvígang. Þá bárust kærunefnd viðbótargögn í málinu þann 23. febrúar 2017, vegna sálfræðiviðtals sem eiginkona kæranda og barn hans fóru í þann 22. febrúar. Í þeim komi m.a. fram að kærandi og fjölskylda virðist bera þess merki að vera með áfallaröskun.

Að mati kærunefndar, einkum með vísan til gagna um líðan […] barns kæranda, er það mat kærunefndar að fjölskyldan í heild sé í sérstaklega viðkvæmri stöðu að því er varðar meðferð máls þeirra hér á landi.

Aðstæður og málsmeðferð í Þýskalandi

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður og málsmeðferð í Þýskalandi, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:

  • Freedom in the world 2018 – Germany (Freedom House, 2. febrúar 2018);
  • World Report 2018 – European Union (Human Rights Watch, 18. janúar 2018);
  • Germany 2016 Human Rights Report (United States Department of State, 3. mars 2017);
  • Amnesty International Report 2017/18 - Germany (Amnesty International, 22. febrúar 2018);
  • Asylum Information Database, Country Report: Germany (European Council on Refugees and Exiles, 31. mars 2018);
  • From host country to deportation country – latest asylum reform in Germany (European Council on Refugees and Exciles (ECRE), 26. maí 2017,
  • Report by Nils Muižnieks Commissioner for Human Rights of the Council Of Europe Following his Visit to Germany on 24th April and from 4 to 8 May 2015 (Council of Europe: Commissioner for Human Rights, 1. október 2015) og
  • ECRI Report on Germany (European Commission against Racism and Intolerance, 25. febrúar 2014).

Í málinu liggur fyrir að kærandi hafi fengið synjun á umsókn sinni um alþjóðlega vernd í Þýskalandi. Í framangreindum gögnum kemur fram að umsækjendur sem fengið hafa synjun á umsókn sinni hjá þýsku útlendingastofnuninni (þ. Bundesamt für Migration und Flüchtlinge) geta kært niðurstöðuna til sérstaks stjórnsýsludómstóls. Fái umsækjendur synjun á umsókn sinni hjá útlendingastofnun eða stjórnsýsludómstól eiga þeir möguleika á því að leggja fram viðbótarumsókn um alþjóðlega vernd hjá Útlendingastofnun. Ef nýjar upplýsingar eða gögn liggja fyrir í máli umsækjanda, aðstæður hafa breyst í máli hans eða verulegir annmarkar voru á fyrri málsmeðferð, geta skilyrði viðbótarumsóknar verið uppfyllt. Umsækjendur geta borið mál sitt undir þýska dómstóla sé viðbótarumsókn þeirra synjað. Jafnframt eiga umsækjendur þess kost að leggja fram beiðni fyrir Mannréttindadómstól Evrópu um bráðabirgðaráðstöfun skv. 39. gr. málsmeðferðarreglna dómstólsins, telji þeir endanlega niðurstöðu um synjun á alþjóðlegri vernd hafa í för með sér hættu á ofsóknum eða meðferð sem brýtur í bága við ákvæði mannréttindasáttmálans.

Af þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér verður talið að þýsk stjórnvöld uppfylli skyldur sínar varðandi lögfræðiaðstoð til handa umsækjendum um vernd skv. tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins nr. 32/2013 um málsmeðferð við veitingu og afturköllun alþjóðlegrar verndar, sbr. 19. og 20. gr. hennar.

Þýskaland er aðildarríki Evrópusambandsins og hefur innleitt tilskipanir sambandsins vegna meðferðar og móttöku umsækjenda um alþjóðlega vernd. Í þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður og aðbúnað umsækjenda um alþjóðlega vernd í Þýskalandi kemur fram að umsækjendum séu tryggð búsetuúrræði og mataraðstoð. Þá verður ráðið af framangreindum gögnum að umsækjendur um alþjóðlega vernd í Þýskalandi eiga rétt á nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu, þ. á m. lyfjum. Í ljósi þeirra upplýsinga sem liggja fyrir um aðstæður í Þýskalandi telur kærunefnd ekki forsendur til annars en að leggja til grundvallar við úrlausn málsins að kærandi geti leitað sér heilbrigðisþjónustu við hæfi þar í landi.

Kærandi kveðst m.a. óttast að þýsk yfirvöld endursendi hann til heimaríkis hans. Að mati kærunefndar bera gögn málsins það með sér að í Þýskalandi sé almennt veitt fullnægjandi vernd gegn brottvísun umsækjenda um alþjóðlega vernd til landa þar sem einstaklingar eiga á hættu að verða fyrir ofsóknum og lífi þeirra og frelsi ógnað. Er þá sérstaklega litið til þess að þau gögn sem kærunefnd hefur kynnt sér benda eindregið til þess að málsmeðferð þýskra yfirvalda sé fullnægjandi og veiti umsækjendum um alþjóðlega vernd viðunandi úrræði til að tryggja að réttur þeirra sé ekki brotinn og að einstaklingsbundið mat verði lagt á aðstæður þeirra. Að mati kærunefndar bendir ekkert til þess að umsækjendum sé synjað sjálfkrafa um alþjóðlega vernd í Þýskalandi eða þeir endursendir til heimaríkis án þess að leyst sé úr málum þeirra á einstaklingsgrundvelli. Þá er Þýskaland bundið að þjóðarétti til að fylgja reglunni um að einstaklingum skuli ekki vísað brott þangað sem líf þeirra eða frelsi kann að vera í hættu (non-refoulement). Telji kærandi framangreind réttindi sín vera brotin getur hann leitað réttar síns fyrir þýskum dómstólum og Mannréttindadómstól Evrópu.

Athugun kærunefndar á aðstæðum umsækjenda um alþjóðlega vernd í Þýskalandi hefur ekki leitt í ljós gögn sem gefa tilefni til að líta svo á að aðstæður eða móttökuskilyrði þeirra þar í landi séu þess eðlis að hætta sé á að endursending kæranda þangað brjóti í bága við 1. eða 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga eða 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þá benda öll gögn til þess að kæranda séu tryggð úrræði til að leita réttar síns í Þýskalandi bæði fyrir landsrétti og fyrir Mannréttindadómstól Evrópu, sbr. 13. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Enn fremur er haft til hliðsjónar að Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur ekki lagst gegn endursendingu umsækjenda um alþjóðlega vernd til Þýskalands á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar.

Einstaklingsbundnar aðstæður kæranda

Áður hefur verið greint frá aðstæðum kæranda, þ.á m. heilsufari hans og aðstæðum í Þýskalandi. Af þeim gögnum sem kærunefnd hefur skoðað um aðstæður í móttökumiðstöðvum í Þýskalandi er það mat nefndarinnar að ekki séu forsendur til annars en að leggja til grundvallar í málinu að húsnæðisaðstæður sem bíði kæranda og fjölskyldu hans í Þýskalandi séu fullnægjandi. Þá séu aðstæður í móttökumiðstöðvum í Þýskalandi í samræmi við móttökutilskipun Evrópuþingsins og ráðsins nr. 2013/33. Þá bendi gögn málsins til þess að aðgengi umsækjenda um alþjóðlega vernd í Þýskalandi að heilbrigðisþjónustu sé fullnægjandi og að kærandi eigi rétt á nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu við hæfi. Að mati kærunefndar bera gögn málsins ekki með sér að kærandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar eða að hann glími við mikil og alvarleg veikindi, sbr. viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Ekki sé fyrir hendi ástæða í máli kæranda er varðar heilsufar hans sem sé svo einstaklingsbundin og sérstök að ekki verði framhjá henni litið, sbr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga.

Kærandi hefur sagt að hópur manna, sem standi að smygli á fólki milli landamæra, hafi hringt í sig frá Þýskalandi og hótað sér. Þeir hafi sagt honum að vara sig, yrði hann sendur aftur til Þýskalands. Það er mat kærunefndar, m.t.t. þeirra upplýsinga sem fyrir liggja um aðstæður umsækjenda um alþjóðlega vernd í Þýskalandi, að þarlend yfirvöld séu í stakk búin til þess að veita umsækjendum fullnægjandi vernd gegn slíkum hótunum og að kærandi geti leitað til lögreglunnar og annarra yfirvalda vegna þeirra.

Kærunefnd hefur yfirfarið þau gögn sem kærandi lagði fram með kæru sinni, svo og skýrslur og upplýsingar um aðstæður í Þýskalandi. Að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda er það mat kærunefndar að ekki séu fyrir hendi sérstakar ástæður sem mæli með því að mál hans verði tekið til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Kærandi kvaðst í viðtali hjá Útlendingastofnun m.a. þann 25. október 2017 ekki hafa sérstök tengsl við Ísland. Þar að auki er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að kærandi hafi slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Þá telur kærunefnd ljóst að síðari málsliður 2. mgr. 36. gr. eigi ekki við í máli kæranda þar sem ekki eru liðnir 12 mánuðir frá því að kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi, en hann lagði fram umsókn sína þann 13. september 2017.

Reglur stjórnsýsluréttar

Kærandi byggir á því að með ákvörðun sinni hafi Útlendingastofnun brotið gegn 10. gr. stjórnsýslulaga þar sem hin kærða ákvörðun hafi verið tekin á grundvelli ófullnægjandi upplýsinga. Stofnunin hafi ekki rannsakað nægilega aðstæður kæranda, en m.a. hafi ekki verið fallist á framhaldsviðtal við kæranda vegna nýrra gagna í málinu.

Rannsóknarreglan í 10. gr. stjórnsýslulaga mælir fyrir um að stjórnvald afli þeirra gagna sem eru nauðsynleg svo mál sé nægilega upplýst. Reglan gerir kröfu um rannsókn sem er fullnægjandi grundvöllur ákvörðunar stjórnvalds en gerir hvorki kröfu um að aflað sé allra upplýsinga sem varpað gætu ljósi á málið né að stjórnvald afli ófáanlegra gagna. Þá segir í 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga að við meðferð mála vegna umsókna um alþjóðlega vernd skuli Útlendingastofnun afla nauðsynlegra og aðgengilegra upplýsinga.

Að mati kærunefndar verður ekki talið að skort hafi á rannsókn Útlendingastofnunar. Að mati kærunefndar var kæranda við meðferð málsins gefið fullnægjandi tækifæri til þess að leggja fram gögn og athugasemdir í málinu. Svo sem fram hefur komið hefur kærunefnd yfirfarið þau gögn sem aflað var við meðferð málsins, svo og skýrslur og önnur gögn um aðstæður í Þýskalandi, og komist að sömu niðurstöðu og Útlendingastofnun. Það er því mat kærunefndar að málsmeðferð Útlendingastofnunar í máli kæranda hafi verið í samræmi við 10. gr. stjórnsýslulaga.

Samantekt

Í máli þessu hafa þýsk stjórnvöld fallist á að taka við kæranda og umsókn hans um alþjóðlega vernd á grundvelli ákvæða Dyflinnarreglugerðarinnar. Í ljósi alls ofangreinds er það niðurstaða kærunefndar að rétt sé að synja því að taka til efnismeðferðar umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi og senda kæranda til Þýskalands með vísan til c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Ákvörðun Útlendingastofnunar er því staðfest.

Athygli kæranda er vakin á því að skv. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

 

Úrskurðarorð

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

 

Anna Tryggvadóttir

 

Erna Kristín Blöndal                                                                                              Pétur Dam Leifsson 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum