Hoppa yfir valmynd
%C3%9Arskur%C3%B0arnefnd%20velfer%C3%B0arm%C3%A1la%20-%20Atvinnuleysistryggingar%20og%20vinnumarka%C3%B0sa%C3%B0ger%C3%B0ir

Nr. 13/2019 - Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 13/2019

Miðvikudaginn 6. mars 2019

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Kári Gunndórsson lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Björn Jóhannesson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 9. janúar 2019, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 7. desember 2018, um að fella niður bótarétt hans í tvo mánuði og innheimta ofgreiddar bætur.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um greiðslur atvinnuleysisbóta hjá Vinnumálastofnun þann 27. september 2018 og tilgreindi að hann gæti hafið störf þann 1. október 2018. Með bréfi, dags. 16. nóvember 2018, tilkynnti Vinnumálastofnun kæranda að stofnuninni hefðu borist upplýsingar um að hann hefði verið staddur erlendis í október 2018 samhliða því að þiggja atvinnuleysisbætur og án þess að hafa tilkynnt um það til stofnunarinnar. Kæranda var veittur sjö daga frestur til að skila inn skýringum og farseðlum. Skýringar og farseðlar bárust Vinnumálastofnun 22. nóvember 2018 og kom þar fram að kærandi hefði dvalið erlendis á tímabilinu 24. október til 1. nóvember 2018. Þann 7. desember 2018 var kæranda tilkynnt ákvörðun Vinnumálastofnunar um að bótaréttur hans yrði felldur niður frá og með þeim degi í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar sökum þess að hann hefði ekki tilkynnt Vinnumálastofnun fyrir fram um dvöl sína erlendis. Kærandi var einnig krafinn um endurgreiðslu ofgreiddra atvinnuleysisbóta samkvæmt 3. mgr. 39. gr. laga nr. 54/2006 að fjárhæð 59.226 kr. að meðtöldu 15% álagi, fyrir tímabilið 24. október til 1. nóvember 2018.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 9. janúar 2019. Með bréfi, dags. 10. janúar 2019, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst með bréfi, dags. 25. janúar 2019. Með bréfi úrskurðarnefndar, dagsettu sama dag, var greinargerð Vinnumálastofnunar send kæranda til kynningar. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi greinir frá því að hin kærða ákvörðun Vinnumálastofnunar hafi komið á einum erfiðasta tímapunkti í hans lífi vegna ákveðinna aðstæðna á þeim tíma. Kærandi hafi sent Vinnumálastofnun skýringu sem ekki hafi verið tekið tillit til. Allt sem kærandi hafi rakið um veikindi sín í skýringu til Vinnumálastofnunar sé hægt að fá staðfest frá skóla, vinnuveitanda, fjölskyldu, læknum og sálfræðingum. Kærandi telur ákvörðun Vinnumálastofnunar afar harkalega þar sem hann hafi ekki verið búinn að fara í kynningarviðtal og ferðin hafi verið ákveðin áður en hann hafi sótt um atvinnuleysisbætur. Kærandi hafi talið að þetta hefði ekki áhrif fyrr en til samþykktar atvinnuleysisbóta kæmi. Hann hafi brugðist strax við, afhent farseðla og endurgreitt þá daga sem hann hafi dvalið erlendis. Nú hafi hann orðið af miklum tekjum en samt verið mjög virkur í atvinnuleit. Að mati kæranda geti viðurlög laga nr. 54/2006 farið eftir aðstæðum hvers og eins, sbr. orðalag „sá sem kann að hafa…getur átt von á því“.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir. Með lögunum sé verið að tryggja stöðu og öryggi fólks í atvinnuleysi og því sé gert ráð fyrir að hinir tryggðu séu í virkri atvinnuleit þann tíma. Atvinnuleysistryggingar veiti hinum tryggðu fjárhagslegt úrræði í tímabundnu atvinnuleysi. Í 13. gr. laganna séu talin upp almenn skilyrði fyrir atvinnuleysistryggingum launamanna. Í c-lið ákvæðisins komi meðal annars fram að það sé skilyrði fyrir greiðslum að atvinnuleitandi sé búsettur og staddur hér á landi til að teljast tryggður samkvæmt lögunum. Á vefsíðu Vinnumálastofnunar komi þær upplýsingar fram undir liðnum „réttindi og skyldur- upplýsingaskylda“. Þar segi: „Ekki er heimilt að dvelja erlendis á sama tíma og umsækjandi þiggur atvinnuleysisbætur nema hafa sótt um U2-vottorð.“ Einnig sé athygli vakin á þessu í umsóknarferli á „Mínum síðum“ stofnunarinnar.

Í 3. mgr. 9. gr. laga nr. 54/2006 sé tekið fram að sá sem teljist tryggður á grundvelli laganna skuli upplýsa Vinnumálastofnun um allar breytingar sem kunni að verða á högum hans á þeim tíma er hann fái greiddar atvinnuleysistryggingar eða annað það sem kunni að hafa áhrif á rétt viðkomandi. Í 2. mgr. 14. gr. laganna sé einnig mælt fyrir um upplýsingaskyldu umsækjanda, en þar segi að atvinnuleitanda beri án ástæðulauss dráttar að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunni að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum.

Í 1. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006 sé kveðið á um viðurlög við brotum á upplýsingaskyldu hins tryggða. Óumdeilt sé að kærandi hafi verið staddur erlendis á tímabilinu 24. október til 1. nóvember 2018 á sama tíma og hann hafi verið skráður atvinnulaus hjá Vinnumálastofnun. Stofnuninni hafi ekki borist tilkynning fyrir fram um utanlandsferð kæranda, líkt og skylt sé samkvæmt 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. laganna. Af þeim sökum hafi kærandi ekki uppfyllt skilyrði laga nr. 54/2006 á því tímabili og því fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur fyrir þann tíma. Á því tímabili sem atvinnuleitandi fái greiddar atvinnuleysisbætur beri honum að tilkynna Vinnumálastofnun um allar breytingar á högum sínum, þar á meðal ferðir sínar utanlands. Vinnumálastofnun tekur fram að þegar rafrænni umsókn um greiðslu atvinnuleysisbóta sé skilað sé umsækjendum kynnt margvísleg atriði er varði réttindi og skyldur, þar með talið að tilkynna beri um ferðir til útlanda. Þá þurfi umsækjendur að samþykkja að þeir hafi lesið og skilið þær upplýsingar sem fram komi í umsókn um réttindi og skyldur þeirra. Kærandi hafi samþykkt slíka skilmála þegar hann hafi sótt um atvinnuleysisbætur hjá stofnuninni þann 27. september 2018 en einnig hafi verið sendur tölvupóstur þann 5. október 2018 vegna umsóknar hans þar sem honum hafi verið bent á að ef farið væri til útlanda þyrfti að tilkynna það fyrir fram og skila afriti af flugfarseðlum til stofnunarinnar því til staðfestingar. Þá séu víðtækar og ítarlegar upplýsingar um réttindi og skyldur atvinnuleitanda á vefsíðu Vinnumálastofnunar en þar komi skýrt fram að atvinnuleitanda beri að veita nákvæmar upplýsingar um hagi sína. Í skýringum sínum tilgreini kærandi að hann hafi ranglega talið að hann þyrfti ekki að tilkynna um för sína erlendis þar sem umsókn hans hefði, á þeim tímapunkti, ekki verið samþykkt af Vinnumálastofnun.

Ljóst sé að réttindi og skyldur atvinnuleitanda samkvæmt lögum nr. 54/2006 stofnist frá og með umsóknardegi, enda séu atvinnuleysisbætur greiddar frá og með umsóknardegi samkvæmt 29. gr. laganna. Á því tímabili sem atvinnuleitandi fái greiddar atvinnuleysisbætur beri honum að tilkynna Vinnumálastofnun um allar breytingar á högum sínum, sbr. 3. mgr. 9. gr. laga nr. 54/2006, þar á meðal ferðir sínar utanlands. Atvinnuleitendum beri því að uppfylla allar sínar skyldur við Vinnumálastofnun á þeim tíma sem beðið sé úrskurðar um bótarétt.

Vinnumálastofnun vísar til þess að í málinu liggi fyrir að kærandi hafi látið hjá líða að tilkynna um utanlandsferð sína líkt og honum hafi borið. Kærandi hafi fengið upplýsingar um réttindi sín og skyldur, þar með talið varðandi tilkynningar um dvalir erlendis. Að öllu framangreindu virtu hafi það verið mat Vinnumálastofnunar að kærandi hafi í umrætt sinn látið hjá líða að veita nauðsynlegar upplýsingar um atvik er höfðu bein áhrif á rétt hans til greiðslu atvinnuleysisbóta. Því hafi kæranda borið að sæta viðurlögum samkvæmt 59. gr. laga nr. 54/2006.

Þá hafi kæranda einnig borið að endurgreiða stofnuninni ofgreiddar atvinnuleysisbætur fyrir það tímabil sem hann hafi verið staddur erlendis. Stofnuninni sé skylt að leiðrétta fjárhæð atvinnuleysisbóta og innheimta þær sem hafi verið ofgreiddar í samræmi við 2. mgr. 39. gr. laga nr. 54/2006. Í athugasemdum með 39. gr. frumvarps þess er varð að lögum nr. 54/2006 sé sérstaklega áréttað að leiðréttingin eigi við í öllum þeim tilvikum þegar atvinnuleitandi hafi fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur. Skuld kæranda, að fjárhæð 59.226 kr. að meðtöldu 15% álagi, verði skuldajafnað við síðari tilkomnar atvinnuleysisbætur í samræmi við 3. mgr. 39. gr. laganna. Með vísan til framangreindra sjónarmiða sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að réttilega hafi verið staðið að ákvörðun um niðurfellingu bótaréttar kæranda í tvo mánuði og endurgreiðslu atvinnuleysisbóta og að staðfesta beri ákvörðun stofnunarinnar í máli kæranda.

IV.  Niðurstaða

Ágreiningur máls þessa lýtur að ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður bótarétt kæranda í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar og innheimta ofgreiddar bætur samkvæmt 3. mgr. 39. gr. laganna.

Ákvæði 1. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006 er svohljóðandi:

„Sá sem lætur hjá líða að veita nauðsynlegar upplýsingar skv. 14. gr. eða um annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. Hið sama á við þegar hinn tryggði hefur … látið hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á högum hans á því tímabili sem hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum, sbr. 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. Skal honum jafnframt verða gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur skv. 39. gr.“

Ákvæðið ber meðal annars að túlka með hliðsjón af ákvæði c-liðar 1. mgr. 13. gr. laga nr. 54/2006 þar sem fram kemur að launamaður sé tryggður samkvæmt lögunum sé hann búsettur og staddur hér á landi.

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur þann 27. september 2018 og tilgreindi að hann gæti hafið störf þann 1. október 2018. Síðar breytti kærandi þeirri dagsetningu í 27. september 2018. Óumdeilt er að kærandi var staddur erlendis á tímabilinu 24. október til 1. nóvember 2018 en tilkynnti Vinnumálastofnun ekki fyrir fram um ferð sína. Af hálfu kæranda hefur komið fram að hann hafi ekki vitað að það þyrfti að upplýsa Vinnumálastofnun um þá dvöl þar sem umsókn hans væri enn ferli og hann hafi ekki verið farinn að þiggja atvinnuleysisbætur. Af hálfu Vinnumálastofnunar hefur komið fram að þegar umsækjendur um atvinnuleysisbætur sæki um greiðslur bóta með rafrænni umsókn sé þeim kynnt margvísleg atriði er varða réttindi og skyldur, þar með talið að tilkynna beri um ferðir erlendis. Þá þurfi umsækjendur að staðfesta í lok umsóknarferlisins að þeir hafi kynnt sér reglur um réttindi þeirra og skyldur.

Í tölvupósti 5. október 2018 var kærandi upplýstur um að þar sem fram kæmi í umsókn hans að hann gæti hafið störf frá og með 1. október 2018 myndi umsóknin miðast við þá dagsetningu. Í öðrum tölvupósti sama dag var kæranda einnig bent á að tilkynna þyrfti Vinnumálastofnun fyrir fram um ferðir erlendis. Með hliðsjón af framangreindu telur úrskurðarnefndin að kærandi hefði mátt vita, eða að minnsta kosti haft tilefni til þess að afla sér frekari upplýsinga um skyldur sínar, að honum bæri að tilkynna Vinnumálastofnun sérstaklega um ferðir erlendis, þrátt fyrir að umsókn hans væri enn í ferli.

Réttindi og skyldur atvinnuleitenda samkvæmt lögum nr. 54/2006 stofnast almennt frá og með umsóknardegi, enda eru atvinnuleysisbætur almennt greiddar frá umsóknardegi samkvæmt 29. gr. laganna. Í tilviki kæranda tilgreindi hann í umsókn um atvinnuleysisbætur að hann gæti hafið störf 1. október 2018 en breytti því síðar í 27. september 2018 og fékk því greiðslur frá þeim tíma. Á því tímabili sem atvinnuleitandi fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum ber honum að tilkynna Vinnumálastofnun um allar breytingar á högum sínum, sbr. 3. mgr. 9. gr. laga nr. 54/2006, þar á meðal ferðir sínar erlendis. Kæranda bar því að tilkynna Vinnumálastofnun um ferð sína erlendis í október 2018.

Í ljósi framangreindrar upplýsingaskyldu verður fallist á með Vinnumálastofnun að kærandi hafi brotið gegn skyldum sínum gagnvart stofnuninni er hann tilkynnti ekki um ferð sína erlendis. Að því virtu bar Vinnumálastofnun að láta kæranda sæta viðurlögum samkvæmt 1. mgr. 59. gr. laganna.

Mál þetta lýtur einnig að þeirri ákvörðun Vinnumálastofnunar að endurkrefja kæranda um ofgreiddar bætur vegna tímabilsins sem hann var erlendis. Í 39. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um leiðréttingu á atvinnuleysisbótum. Þar segir í 2. mgr. að hafi hinn tryggði fengið hærri atvinnuleysisbætur samkvæmt 32. eða 33. gr. laganna en hann hafi átt rétt á samkvæmt álagningu skattyfirvalda eða af öðrum ástæðum beri honum að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd hafi verið að viðbættu 15% álagi. Hið sama gildi um atvinnuleysisbætur sem hinn tryggði hafi fengið greiddar fyrir tímabil er hann uppfyllti ekki skilyrði laganna. Í sömu málsgrein segir einnig að fella skuli niður álagið samkvæmt málsgreininni færi hinn tryggði rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er leitt hafi til ákvörðunar Vinnumálastofnunar. Í athugasemdum með frumvarpi því er varð að lögum nr. 54/2006 segir meðal annars svo í skýringum við ákvæðið:

„Efni ákvæðisins felur í sér möguleika á leiðréttingu á fjárhæð tekjutengdra atvinnuleysisbóta eftir að þær hafa verið keyrðar saman við álagningu skattyfirvalda að því er varðar það viðmiðunartímabil sem lagt er til að verði haft til hliðsjónar við útreikningana. Er því gert ráð fyrir að Vinnumálastofnun hafi heimildir til að leiðrétta fjárhæð atvinnuleysisbótanna til samræmis við álagningu skattyfirvalda. Er gert ráð fyrir að leiðréttingin geti átt sér stað nokkru eftir að bæturnar hafa verið greiddar eða þegar endanleg álagning skattyfirvalda liggur fyrir. Á sama hátt er jafnframt gert ráð fyrir að Vinnumálastofnun geti leiðrétt fjárhæð grunnatvinnuleysisbóta. Slíkt getur átt við þegar upplýsingar þær er liggja grunnatvinnuleysisbótum til grundvallar hafa verið rangar eða hinn tryggði ekki tilkynnt til Vinnumálastofnunar um að hann sé ekki lengur í atvinnuleit.

Þannig er gert ráð fyrir að hinn tryggði endurgreiði Atvinnuleysistryggingasjóði þær fjárhæðir sem ofgreiddar eru í þeim tilvikum er hann fékk hærri greiðslur úr sjóðnum en honum bar. Á þetta við um öll tilvik sem kunna að valda því að hinn tryggði hafi fengið ofgreitt úr Atvinnuleysistryggingasjóði.“

Samkvæmt framangreindu er ljóst að endurkröfuheimild Vinnumálastofnunar er meðal annars bundin við það að einstaklingur hafi fengið greiddar atvinnuleysisbætur fyrir tímabil er hann uppfyllti ekki skilyrði laganna. Þegar kærandi var erlendis á tímabilinu 24. október til 1. nóvember 2018 uppfyllti hann ekki skilyrði c-liðar 1. mgr. 13. gr. laga nr. 54/2006 um að vera búsettur og staddur hér á landi. Ákvæði 2. mgr. 39. gr. laganna er fortakslaust að því er varðar skyldu til þess að endurgreiða ofgreiddar bætur. Aftur á móti skal fella niður 15% álag færi hinn tryggði rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er leitt hafi til ákvörðunar Vinnumálastofnunar. Líkt og áður greinir tilkynnti kærandi ekki Vinnumálastofnun fyrir fram um ferð sína erlendis og er því að mati úrskurðarnefndarinnar ekki tilefni til að fella niður álagið sem lagt var á endurgreiðslukröfuna.

Með vísan til framangreinds er hin kærða ákvörðun staðfest.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 7. desember 2018, um að fella niður bótarétt A, í tvo mánuði og innheimta ofgreiddar bætur er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Kári Gunndórsson

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum