Hoppa yfir valmynd

Mál nr. 394/2017

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 394/2017

Fimmtudaginn 14. desember 2017

AgegnVinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Kári Gunndórsson lögfræðingur, Arnar Kristinsson lögfræðingur og Agnar Bragi Bragason lögfræðingur.

Með kæru, móttekinni 25. október 2017, kærir A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 28. september 2017, um að fella niður rétt hennar til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 54. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

I. Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um greiðslur atvinnuleysisbóta þann 16. ágúst 2017. Meðfylgjandi umsókn kæranda var vinnuveitandavottorð þar sem fram kemur að kærandi hafi sjálf sagt upp starfi sínu hjá B. Í skýringum kæranda á uppsögn kemur fram að hún hafi flutt út á land til dóttur sinnar. Með bréfi Vinnumálastofnunar, dags. 28. september 2017, var kæranda tilkynnt að umsókn hennar um atvinnuleysisbætur hefði verið samþykkt og útreiknaður bótaréttur væri 60%. Með vísan til starfsloka hennar hjá B væri réttur til atvinnuleysisbóta hins vegar felldur niður í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 54. gr. laga 54/2006 um atvinnuleysistryggingar. Kærandi fór fram á rökstuðning fyrir þeirri ákvörðun og var hann veittur með bréfi Vinnumálastofnunar, dags. 12. október 2017. Kærandi fór fram á endurupptöku málsins með tölvupósti 13. október 2017 og var þeirri beiðni hafnað með bréfi Vinnumálastofnundar, dags. 24. október sama ár.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 25. október 2017. Með bréfi, dagsettu sama dag, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst með bréfi, dags. 21. nóvember 2017. Með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 22. nóvember 2017, var greinargerð Vinnumálastofnunar send kæranda til kynningar. Athugasemdir bárust ekki.

II. Sjónarmið kæranda

Kærandi greinir frá því að hún hafi sagt upp starfi sínu vegna búferlaflutnings [...] en það gefi augaleið að hún geti ekki mætt til vinnu í Reykjavík. Kærandi tekur fram að hún hafi verið á leigumarkaði í Reykjavík síðastliðin sjö ár sem hafi verið erfitt og kostnaðarsamt. Hún hafi þegið boð um að flytja út á land með dóttur sinni og í framhaldinu sagt upp starfi sínu. Kærandi bendir á að hún hefði aldrei sagt upp starfinu nema vegna búferlaflutnings og að hún hafi aldrei áður verið atvinnulaus.

III. Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir. Í greinargerð með frumvarpi því, sem hafi orðið að lögum um atvinnuleysistryggingar, sé það áréttað að eitt af markmiðum vinnumarkaðskerfisins sé að stuðla að virkri atvinnuþátttöku fólks. Með hliðsjón af því sé ekki gefinn kostur á að fólk segi upp starfi sínu til að fá greiddar atvinnuleysisbætur án þess að sérstakar ástæður liggi að baki uppsögninni í tilvikum þegar annað starf sé ekki í boði. Í athugasemdum við 1. mgr. 54. gr. í greinargerðinni sé vísað til þess að það væri erfiðleikum bundið að skilgreina nákvæmlega í lögum og reglugerðum hvaða ástæður, sem liggi að baki ákvörðun þess að fólk segi störfum sínum lausum eða missi starf sitt, séu gildar þar sem þær ástæður geti verið af margvíslegum toga. Því hafi verið lagt til að lagareglan væri matskennd og Vinnumálastofnun falið að meta atvik og aðstæður hverju sinni. Orðalagið „gildar ástæður“ hafi verið túlkað þröngt og fá tilvik verið talin falla þar undir. Stofnuninni beri því að líta til almennra reglna og málefnalegra sjónarmiða við ákvarðanir á því hvort umsækjendur um atvinnuleysisbætur skuli sæta biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.

Vinnumálastofnun vísar til þess að tilgangur laga nr. 54/2006 sé að tryggja þeim, sem tryggðir séu og misst hafi fyrra starf sitt, tímabundna fjárhagsaðstoð í þrengingum sínum. Lögin veiti þeim fjárhagslegt úrræði og beri að gera ríkar kröfur til þeirra sem segi upp störfum sínum að hafa til þess gildar ástæður samkvæmt lögunum, enda eigi almennt ekki að þiggja atvinnuleysisbætur í stað þess að gegna launuðu starfi. Ljóst sé að kærandi hafi sagt starfi sínu lausu. Ágreiningur málsins lúti að því hvort ástæður kæranda fyrir uppsögninni teljist gildar í skilningi framangreinds ákvæðis. Í skýringum kæranda til Vinnumálastofnunar komi fram að hún hafi sagt starfi sínu lausu sökum þess að hún hafi ákveðið að flytja [...] í C vegna hækkandi leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu. Vinnumálastofnun tekur fram að búferlaflutningar hafi einir og sér ekki talist gild ástæða fyrir uppsögn á starfi í skilningi laga nr. 54/2006 þegar umsækjandinn sjálfur taki ákvörðun um að flytja búferlum. Vinnumálastofnun ítrekar að ríkar kröfur séu gerðar um ástæður uppsagnar en þær ástæður sem kærandi hafi fært fram í málinu sínu geti ekki talist gildar í skilningi laganna. Í athugasemdum með 54. gr. frumvarps til laganna sé sérstaklega fjallað um tilvik sem heyri til gildra ástæðna fyrir starfslokum. Þar sé að finna lýsingu á aðstæðum þar sem maki hins tryggða hefji störf í öðrum landshluta og fjölskyldan hafi af þeim sökum þurft að flytja búferlum. Slíkt tilvik eigi ekki við í máli kæranda, enda hafi hún sjálf tekið ákvörðun um að flytja búferlum og segja upp starfi sínu, án þess að vera með annað starf í hendi. Það sé því afstaða Vinnumálastofnunar að kærandi skuli sæta biðtíma á grundvelli 54. gr. laga nr. 54/2006.

IV. Niðurstaða

Ágreiningur máls þessa lýtur að þeirri ákvörðun Vinnumálastofnunar að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 54. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Ákvæði 1. mgr. 54. gr. laganna er svohljóðandi:

„Sá sem telst tryggður samkvæmt lögum þessum en hefur sagt starfi sínu lausu án gildra ástæðna skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá móttöku umsóknar um atvinnuleysisbætur, sbr. þó 4. mgr. Hið sama gildir um þann sem missir starf af ástæðum sem hann á sjálfur sök á.“

Óumdeilt er að kærandi sagði upp starfi sínu hjá B en ágreiningur málsins lýtur að því hvort ástæður kæranda fyrir uppsögninni hafi verið gildar í skilningi 1. mgr. 54. gr. laga nr. 54/2006. Í athugasemdum við ákvæðið í frumvarpi til laga um atvinnuleysistryggingar kemur fram að það sé erfiðleikum bundið að takmarka þau tilvik sem geti talist til gildra ástæðna í lögum og reglugerðum þar sem ástæður þess að fólk segi störfum sínum lausum eða missi þau geti verið af margvíslegum toga. Því sé lagt til að lagareglan verði áfram matskennd og Vinnumálastofnun falið að meta atvik og aðstæður hverju sinni. Stofnuninni beri að líta til almennra reglna og málefnalegra sjónarmiða við ákvarðanir á því hvort umsækjendur um atvinnuleysisbætur skuli sæta biðtíma eftir atvinnuleysisbótum. Jafnframt er bent á að um íþyngjandi ákvörðun sé að ræða. Úrskurðarnefnd velferðarmála telur að ráða megi af framangreindu að almennt beri að gera nokkuð ríkar kröfur til atvinnuleitanda þegar metið er hvort ástæður fyrir uppsögn séu gildar samkvæmt 1. mgr. 54. gr. laga nr. 54/2006.

Af hálfu kæranda hefur komið fram að hún hafi sagt upp starfi sínu vegna búferlaflutnings [...] sökum húsnæðisvanda. Líkt og fram hefur komið eru gerðar ríkar kröfur um ástæður uppsagnar og hafa búferlaflutningar fjarri vinnustað ekki verið talin gild ástæða. Það er því mat úrskurðarnefndar velferðarmála að tilgreindar ástæður kæranda fyrir starfslokum hennar séu ekki gildar í skilningi 1. mgr. 54. gr. laga nr. 54/2006. Að því virtu bar kæranda að sæta tveggja mánaða biðtíma eftir atvinnuleysisbótum. Með vísan til þess er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að setja greiðslu atvinnuleysisbóta til kæranda á bið í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 54. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar staðfest.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 28. september 2017, um að fella niður bótarétt A, í tvo mánuði er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Kári Gunndórsson


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum